Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. 43 Handknattleikur unglinga Grótta og HK sigruðu í jólamóti Hauka Jólamót Hauka fór fram í íþrótta- húsinu við Strandgötu, 20. des. sl. og var keppt í 6. flokki karla og 5. flokki kvenna. Mikill áhugi skein úr andlit- um þessara ungu leikmanna, jafnt innan sem utan leikvallar, og er leið að leikslokum létu áhorfendurnir ungu leikmenn ávallt vita hve mikið væri eftir með því að hrópa í kór að leik væri aö ljúka. Mótshaldiö fórst Haukum mjög vel úr hendi og ekki var handboltinn sem leikmennirnir sýndu síðri, glæsileg mörk úr langskotum, af línu eða hornum. Þeir sýndu að þama fóru handboltamenn framtíðarinnar. í 5. flokki kvenna fór lið Gróttu hamförum og vann alla leiki sína. Þær unnu fyrst hð Hauka 7-5 og reyndist það vera úrslitaleikurinn þar sem Haukar lentu í 2. sæti. Grótta vann síðan UMFG 8-4 og FH 6-3. Liö Gróttu er vel að sigrinum komið, þær eru með gott spil og einnig er mark- varslan góð. Haukar urðu í 2. sæti eins og áður sagði, þær töpuðu aöeins fyrir Gróttu en unnu UMFG í hörkuspennandi leik, 6-5, og á móti nágrönnunum, FH, var mikil barátta sem endaði með sanngjörnu jafntefli, 3-3. UMFG sigraði síðan FH 5-4 og tryggöi sér þar með 3. sætið. í 6. flokki karla vann lið HK alla leiki sína nokkuð örugglega. UBK unnu þeir 6-2, Hauka 6-4 og Val 11-5. Haukar urðu einnig hér í 2. sæti þar sem þeir sigruðu Val 6-3 og UBK í úrslitaleik um 2. sætið í hörkuspenn- andi leik þar sem úrslit réðustu ekki fyrr en á síðustu mínútunni, 7-6. UBK vann síðan Val 5-4 og endaði í 3. sæti. Eins og áður sagði var leikgleöin í fyrirrúmi enda hér fyrstu leikir þessa unga handboltafólks. Sigur eða tap er ekki aðalmálið heldur það aö vera með, læra og þroskast. • Lið HK i 6. flokki karla sem sigraði á jólamóti Hauka, B 0*Íj.:J 1 i 1 j f ># 2 g M-. s «41 % '&sr MpW njBy > K waí n ■ ..J BBr' -< Txyv? % Wm íf g 1 • Valsari og HK-maður stíga dansspor i jólamótinu. • 5. flokkur kvenna Gróttu með verðlaunin sem þær hlutu fyrir sigur á jólamóti Hauka. • Rúnar Ágústsson. Leikið í í 6. flokfi ' Leikiö verður í fyrsta skipti í íslandsmóti í 6. flokki karla í vetur og er liðunum skipt niður í tvo riðla eftir stafrófsröð. A-riöill, sem spUaður verður- í Kópavogi, er skipaöur eftir- töldum liðum: UMFA, FH, FRAM, Fylki, Gróttu, Haukum, HKogKR. B-riðUl, sem spUaður verður í Hverageröi, er skipaöur eftir- töldum liöum: Selfossi, Stjörn- unni, UBK, UFHÖ, UMFG, UMFN, Val og Víkingi. Athugið sendið inn alla 10 seðlana í einu umslagi. Skilafrestur til 11. janúar ’88- - dregið um sextán glæsilega vinninga - 1. Technics geislaspilari m/fjarstýringu frá Japis að verðmæti kr. 45.660.- 3. Panasonic ferðaútvarpstæki frá Japis að verðmæti kr. 7.380.- 7-10. Lazer Tag leiktæki frá Radíóbúðinni, að verðmæti kr. 2.980.- 2. Sony Discman ferðageislaspilari frá Japis að verðmæti kr. 27.720.- 4- 6. Bangsi bestaskinn og Gormur vinur hans frá Radíóbúðinni að verðmæti kr. 8.800.- 11-16. Dansandi dúkkur frá Radíóbúðinni að verðmæti kr. 1.980.-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.