Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. 45 IþróttapistiU Árlegu kjöri íþróttafréttaritara á íþróttamanni ársins hefur nú verið lýst og eru flestir sammála um að knattspyrnumaðurinn Arnór Guðjohnsen hafi verið vel að útn- efningunni kominn. Þó heyrðust óánægjuraddir eins og venjulega og þá aðallega í þá átt aö hand- knattleiksmaður hefði átt að hljóta hnossið að þessu sinni. Kjör íþróttamanns ársins var óvenjulegt að þessu sinni vegna þess að sá sem fyrir valinu var átti í erfiðleikum með að fá sig lausan frá félagi sínu í Belgíu. Margar hendur lögöust á eitt og að lokum tókst að fá Amór lausan frá And- erlecht og verður að segjast eins og er að framkoma forráðamanna Anderlecht vakti mikla furöu. Sérstaklega þegar það er haft í huga að hlé er nú á keppninni í belgísku knattspyrnunni. En Ar- nór komst til landsins í tæka tíð og allt fór vel að lokum. Lansliðið í enn eitt keppnisferðalagið í fyrramálið heldur landslið okk- ar í handknattleik í enn eitt keppnisferðalagið og að þessu sinni er ferðinni heitið til Svíþjóðar á World Cup keppnina sem nefnd hefur verið heimsbikarkeppni á meðal manna. Mót þetta er það sterkasta á þessu ári ef sjálfir ólympíuleikarnir í september eru undanskildir. Fróðlegt verður að fylgjast með gengi okkar manna á mótinu en Bogdan landsliösþjálfari hefur lýst því yfir að hann leggi ofurkapp á að landsliðið standi sig vel á þessu stórmóti. Allur undir- búningur landsliðsins undanfarn- ar vikur hefur miðast við þetta mót í Svíþjóð. Róðurinn verður þó eflaust mjög þungur þar sem öll bestu handknattleikslið heims verða með á mótinu. Fyrst leikið gegn Austur-Þjóðverjum Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn Austur-Þjóðverjum á þriðjudag en daginn eftir verður leikið gegn heims- og ólympíu- meisturum Júgóslava. Á fimmtu- dag mætum við erkifjendum okkar, Dönum, og að þeim leik loknum verður ljóst um hvaða sæti íslenska hðið leikur á mótinu. Leikir okkar gegn Austur-Þjóð- verjum hafa verið mjög jafnir á undanförnum árum og hefur ávallt verið mikil spenna samfara leikj- unum. Tahð er að Austur- Þjóð- veijar mæti til leiks meö sitt allra besta lið sem og aðrar þjóðir í keppninni en allar þjóðirnar leggja mikið upp úr góöum árangri á mótinu í Svíþjóö. Áframhald á velgengninni gegn Júgóslövum? Á síðasta ári gerði íslenska lands- liðið sér lltiö fyrir og sigraði hið geysisterka Uð heimsmeistaranna þrívegis. Vonandi tekst okkar mönnum að halda áfram á sömu braut á miðvikudaginn. Leikurinn gegn Dönum á fimmtudag veröur eflaust jafn og spennandi en þar fá Umsjón: Stefán Kristjánsson íslensku leikmennirnir kærkomið tækifæri til að hefna tapsins í Dan- mörku á síðustu dögum nýhðins árs. í raun er ógerningur aö spá fyrir um árangur íslenska liðsins á mót- inu. Ekkert er þó óeðlilegt við það að krefjast þess að lið okkar nái góðu sæti á mótinu en líklega verð- um við að sigra eða gera jafntefli gegn Austur-Þjóðverjum í fyrsta leiknum til að það takist. Bogdan hefur aldrei fengið sínar óskir uppfylltar frá því hann tók við landsliðinu Þaö getur oft verið þreytandi að vera landshðsþjálfari í handknatt- leik. Það hefur landsliösþjálfari okkar, Bogdan Kowalczyk, fengið að reyna frá því hann tók við stjórnartaumunum hjá íslenska liðinu árið 1983. Bogdan hefur þurft að undirbúa íslenska liðið fyrir mörg stórmótin. Það er vægast sagt athygUsverð staðreynd að aldrei á þessum árum hefur Bogdan fengið alla sterkustu handknattleiks- menn okkar til undirbúnings. Þetta er nöturleg staðreynd. Sú spurning vaknar hvert íslenska liðið hefói getað náð ef Bogdan hefði alltaf getað gengið að öhum leikmönnum sínum vísum. Atvinnumennska er það sem koma skal Við áramót er alltaf freistandi að líta tíl baka yfir farinn veg og velta málum fyrir sér. AUir geta verið sammála um aö síðasta ár var ein- staklega gott hjá íslenskum íþrótta- mönnum. Of langt mál yrði hér að rekja árangur bestu íþróttamanna okkar en hæst ber þó gengi íslenska landsUðsins í handknattleik og frækna frammistöðu Arnórs Guðjohnsen í belgisku knattspym- unni. Eðvarð Þór sýndi það á nýUðnu ári að hann er farinn að velgja heimsins bestu sundmönn- um undir uggum og fatlaðan íþróttamann, Hauk Gunnarsson, eigum við á heimsmælikvarða. Bjami Friöriksson stendur sig allt- af jafnvel í júdóinu og svona mætti lengi telja. MUiil og hröð þróun hefur átt sér stað innan íþróttahreyfingarinnar á síöustu árum. SífeUt eru gerðar meiri og meiri kröfur til íþrótta- manna okkar og allt það fjármagn sem verið hefur í gangi innan íþróttahreyfingarinnar nú síðustu árin og þá kannski sérstaklega á síðasta ári hefur verið með óhkind- um. Ég tel að tími atvinnumennsku nálgist óðum og ekki líði langur tími þar til íslenskir íþróttamenn sem iðka íþrótt sína hér á landi fari að fá greidd laun fyrir æfingar og keppni. Og hér er auðvitað fyrst og fremst átt við handknattleik og knattspymu. Skíðamenn kætast Einstök veðurbUöa síðustu mán- uði nýliðins árs fór ekki fyrir bijóstið á mörgum en þó örugglega þeim sem leggja stund á vetrar- íþróttir og þá sér í lagi skíðafólk. Snjó hefur kyngt niður hér sunn- anlands undanfarna daga og skíðamenn hefur tekið gleði sína á ný. Senn líöur að því að Bláfjalla- svæðið verði opnað almenningi og skíðamótin fara að hefjast hvert af öðru. Vertíð skíöamanna verður eflaust með skemmtilegra móti í vetur enda hafa gamhr skíðakapp- ar, sem gerðu garðinn frægan í skíðabrekkunum fyrir nokkrum árum, ákveðið að snúa aftur og keppa í vetur. Án efa verður endur- koma þessara manna til að lífga upp á mótin en því verður ekki á móti mælt að skíðamótin hérlendis undanfarin ár hafa verið með aUra daufasta móti. Stefán Kristjánsson • Daníel Hilmarsson, einn fremsti skíðamaður landsins, sést hér á fleygiferð í keppni. Skiðafólk hér á Suð- urlandi getur nú andað léttar eftir snjókomu síðustu daga. FELAGSMALASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR VONARSTRÆTI 4 - SÍMI 25500 Ráðskona Ráöskona óskast strax til að aðstoða við heimilis- hald fyrir þrjá roskna menn, í sambýli í vesturbæ. Stuttur vinnutími og góð vinnuaðstaða. Upplýsingar í síma 25500 næstu daga. Símavarsla og ritarastörf Félagasamtök með sameiginlega símaþjónustu óska að ráða starfsmann. Upplýsingar um starfsreynslu, menntun og óskir um laun sendist til afgreiðslu blaðsins,merktSH 123, fyr- ir 15. janúar nk. Nauðungaruppboð á lausafjármunum Eftir kröfu Sigurðar Sigurjónssonar hdl., Þórólfs Kristjáns Beck hrl., Reynis Karlssonar hdl. og skiptaréttar Kópavogs fer fram opinbert uppboð laugardaginn 9. janúar 1987. Hefst uppboðið kl. 13.00 að Hamraborg 3, norðan við hús, en þvi verður síðan fram haldið þar sem munina er að finna. Eftirtaldir munir verða seldir: 1) Vélbáturinn Hraunborg RE 27, skipaskrárnúmer B-603, 7,96 metrar að lengd, 4,99 brúttósmálestir. 2) Bifreiðin R-52296, Toyota Corolla st. árg. 1977. 3) Nýlegt fundarborð og 8 stólar. 4) Hljómflutningstæki: Kenwood magnari, Pioneer útvarpstæki o.fl. Samkvæmt ósk Rúnars Mogensen hdl., skiptastjóra þrotabús Gófer h/f, verður haldið nauóungaruppboó á lausafjármunum i eigu þrota- búsins aö Kársnesbraut 100, Kópavogi, og hefst þaö kl. 14.00. Hér er aðallega um að ræða: 1) Trésmíöavélar svo sem bandslípivél (Herseman), kantlímingar- vél (IDM), plötusög (Kamro), spónlagningatvél (Kupær), bandsög, afréttara, fræsara og borvélar. 2) Handverkfæri af ýmsum gerðum og stærðum. 3) Fittingsvörur og smíðaefni. 4) Búnað af skrifstofu, þ.á m. tölvubúnað af gerðinni Island með prentara og bókhaldsforriti. Greiðsla við hamarshögg. Bæjarfógetinn I Kópavogi. STÝRIMANNASKÓLINN í REYKJAVÍK 30 rúmlesta réttindanám Námskeið í Stýrimannaskólanum frá 13. janúar-29. febrúar, samtals 105 kennslustundir. Kennt er þrjú kvöld í viku; mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga frá kl. 18.00-20.15 og laugardaga frá kl. 9.00-13.00. Kennt og prófað er skv. löggiltri námsskrá mennta- málaráðuneytisins: 42 stundir 15 stundir 15 stundir 15 stundir Siglingafræði: Stöðugleiki skipa: Siglingareglur: Siglingatæki: (ratsjá, lóran, dýptarmælir o.fl.) Slysavarnir, björgunartæki, eldvarnir: (Slysavarnaskóla sjómanna) Skyndihjálp, blástursaðferð: Fjarskipti, talstöðvar, tilkynningask.: 9 stundir 3 stundir 6 stundir Samtals a.m.k. 105 kennslustundir Auk þess verður boðið upp á fyrirlestra í veðurfræði. Þátttökugjald kr. 8.000,- Innritun á hverjum degi á skrifstofu Stýrimannaskól- ans frá kl. 8.30-14.00. Öllum er heimil þátttaka. Nánari upplýsingar í síma 13194. Stýrimannaskólinn í Reykjavik, skólastjóri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.