Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. af áramótaskaupi sjónvarpsins Hallur snýr á Jóhannes. Væru þeir svona saman í sjónvarpsfréttunum? Þú ert búinn að drepa Steingrím fyrir mér - segir Jóhannes Kristjánsson eftirherma „Þú ert búinn að drepa Steingrím fyrir mér,“ bar Jóhannes Kristjáns- son eftirherma á Hall Hallson þegar þeir hittust í fyrsta sinn eftir að Jó- hannes brá sér í gervi Halls í áramótaskaupi sjónvarpsins. Þannig fór að þegar Jóhannes skemmti á ísafirði á nýársdag yfirgnæfði Hallur jafnvel Steingrím og er þá langt seilst. Steingrímur Hermannsson hefur þó gegnum árin veriö helsta atriði Jóhannesar á skemmtunum en með- ferð hans á Halli í áramótaskaupinu gæti breytt þvi. Jóhannes segir reyndar að munurinn á þeim Steim- grími og Halli sé sá að Steingrímur sé fimm gíra eftir tilefnum en Hallur sjálfskiptur. íjakka af Halli Þrátt fyrir glensið er þeim Jóhann- esi og Halli vel til vina og í áramóta- skaupinu var Jóhannes í jakka af Halli. Núna sér Jóhannes fram á að hann verði að auki aö fá sér hvíta alpahúfu eins og þá sem Hallur byrj- aði að nota um áramótin. „Það tók mig ekki langan tíma að ná Halli,“ segir Jóhannes „Ég tók fyrst eftir því hvað hann lá vel við þegar ég sá hann í frétt um meintan drykkjuskap á varðskipunum. Það er eitthvað við hann sem veldur því aö það er auövelt að hafa eftir hon- um. Sumir menn eru einfaldlega ekki þáð sérstakir aö það sé hægt að hafa eftir þeim. Fyrsta útgáfan mín af Halli var þó ekki alveg rétt. Ég hafði hann of hás- an og það var ekki fyrr en ég skoðaði hann nákvæmlega í sjónvarpinu að ég sá hvernig efri vörin er stíf og vinstra augað pírist. Þá var þaö kom- ið. Það er ekkert neikvætt við Hall í þessari útgáfu. Ég var í fyrstu hræddur við að móðga en sú hefur ekki orðið raunin enda er það ekki ætlunin.“ Æfingar Jóhannesar eru allsér- stæðar. Hann æfir ekki með miklum látum fyrir framan spegil. „Það reyn- ist mér best að hugsa um þá og hlusta á röddina," segir Jóhannes. „Ég átti lengi í baráttu við að ná Steingrími. Ég byrjaði fyrir alvöru árið 1974. Þá var ég í Vegagerðinni og átti ræöu eftir Steingrím á bandi. Að lokinni vinnu á hverjum degi í þrjár vikur hlustaði ég á hann í klukkutíma og lá uppi í rúmi og hugsaði máhö. Allt í einu fann ég að ég var búinn að ná honum. Þá fyrst var Steingrímur fullskapaður. Þeirra eigin orð Við eftirhermur reynist mér best aö nota sömu orð og setningar og þessir menn nota sjálfir. Aðalatriðið er að finna sjálfan karakterinn og þá borgar sig ekki að ganga of langt í skopstælingum. Eftir að ég er búinn að ná röddinni þá fylgir hitt allt eins og sjálfkrafa á eftir. Ég hef t.d. aldrei æft göngulag og handahreyfingar Steingríms sérstaklega. Þetta eru bara einkenni sem fylgja þessum karakter. Ég hef oft hitt Steingrím og hann er vel sáttur við stælinguná - eöa hann segir það í það minnsta. í haust gerðist það að við lentum saman á þrem skemmtunum þar sem hann hélt ræðu en ég hafði eftir honum. Á endanum vissum viö ekki hvor var aö flytja ræðu hvors. Mér finnst skemmtilegast að fara ekki yfir markið í skopstælingum en alveg að þeim. Mér hefur þannig aldrei líkaö vel að skjóta bröndurum, sem eiga ekki við karakterana, inn í textann en annars hef ég ekki heyrt nema þrjá góða brandara síðan 1973. Jóhannes hefur eftirhermumar að aukagetu með námi en hann leggur stund á stjórnmálafræði við háskól- ann þar sem Ólafur Ragnar Gríms- son er meðal kennara hans. Það er þó allt goft í milli þeirra þótt Ólafur sé einn af karakterum Jóhannesar. Annars er Jóhannes ættaöur frá Ingjaldssandi við Önundarfjörð og þar reyndi hann sig fyrst við eftir- hermurnar. Komið frá ömmu „Þetta er í ættinni," segir Jóhann- es. „Amma mín var góð við þetta og einnig frændur mínir og bræöur. Það þekkist víða í sveitum að haft er eft- ir mönnum þegar verið er að segja frá þeim. Þetta er líka svo í minni heimasveit en mér fannst aldrei rétt haft eftir mönnum. Þessi árátta hefur því fylgt mér frá því ég man eftir mér en síðustu sex árin hef ég unnið sem skemmtikraft- ur og haft mikið aö gera. í fyrstu setti ég það alltaf sem skilyrði að ég yrði ekki auglýstur því aö ég vildi eiginlega aldrei byrja í þessu og ætl- aði alltaf að hætta. En ég seig alltaf neðar og neðar í dikið og það er bara ágætt að vera í þvi. Þetta er á margan hátt jafngóður skóli og háskólinn. Ég er núna að þróa Davíð Oddsson og á eftir að endurbæta þá útgáfu. Hann er að koma og ég spái honum góðri framtíð. Kristján Ragnarsson og Þórarinn V. Þórarinsson eru einn- ig komnir á dagskrá og fleiri. Það hefur komið fyrir að stjórn- málamenn hafa nefnt viö mig hvort ég ætli ekki að hafa eftir þeim. í þess- um hópi eru jafnvel ráðherrar en ég nefni engin nöfn. Stjórnmálamenn vita að illt umtal er betra en ekkert. í þessum eftirhermum mínum felst heldur engin illgimi," segir Jóhann- es Kristjánsson eftirherma. -GK tákn - segir Hallur Hallsson „Þetta er hin besta auglýsing fyrir raig,“ segir Hallur Hallson sem mátti horfa upp á tvífara sinn í sjónvarpinu um áramótin. „Ég þurfti að klípa sjálfan mig þegar ég horfði andaktugur á sjalfan mig birtast í sjónvarpinu. Ég er sérstaklega ánægður með hvað Jóhannes er skrautlegur við þetta. Eftir öll þessi ár er það að renna upp fyrir mér að ég er bara alls ekki svo litlaus.“ Hallur segir að fyrstu viku árs- ins hafi viðbrögðin ekki látið á sér standa. „Þetta uppátæki hefur greinilega vakiö mikla athyggli því það er sama hvar ég kem - alls staðar er spurt hvemig mér hafi líkaö. Nágrannakona mín hafði reyndar miklar áhyggjur af þessu og fannst aö verið væri að fara voöalega illa með mig. Því fer þó víðs fjarri. Það er ekkert annað en stöðutákn að komast í þann hóp sem eftirhermurnar hafa sérstakt dálæti á. Þaö er auðvitaö ekki saman hvernig þetta er gert og það er hægt að skopast þannig að mönn- um aö það sé meiðandi en þaö var ekki svo í þessu tilviki.“ Hallur hafði ekki áður séð Jó- hannes herma eftir sér en vissi að hann haföi gert það á skemmt- unum. Hallur hefur einnig haft spumir af manni í Borgarnesi sem fæst við þaö sama. „Eg vissi að það stóð til aö herma eftir mér í skaupinu en var ekki búinn að sjá þaö áöursegir Hallur „En ég læt Jóhannes ekki sprengja mig þótt ég hafí á endanum sprungið upp úr stólnum í skaup- inu. Þrátt fyrir þau endalok hikaði ég ekki við að taka frétt um tívolíbombur á eftir. Ég kvíði því helst ef Jóhannes kemur til vinnu hér á fréttastof- unni en hann hefur komið hingað á námskeið í sambandi við nám sitt í háskólanum. Það væri út- lokað að komast aö þvi hvor er hvor. Menn geta þó treyst því að ég næ Jóhannesi aldrei." -GK VORULOFTIÐ Skipholti 33 s. 689440 Opiö laugardaga frá kl. 10-16. Þegar við segjum útsala _ þa er 20-80% afsláttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.