Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988.
Popp
DV
Rokkað í þága friðar
í Mið-Ameríku
Það á að poppa í þágu friðar í
Miö-Ameríku á næstunni. í kjölfar
þess að Oscar Arias Sánchez, forseti
Costa Rica, hlaut friðarverðlaun
Nóbels fyrir friðarstarf sitt í heims-
hlutanum var ákveðið að vekja á því
enn frekari athygli með því að efna
til almennilegra rokktónleika í Nic-
aragua, E1 Salvador og Costa Rica í
vetur eða vor. Það er að segja ef enn
veröur unnið eftir áætlunum forset-
ans er að hijómleikunum kemur.
Jackson Browne hefur meðal ann-
arra tekið að sér að skipuleggja þessa
merku konserta. Hann sýndi einmitt
málefnum Mið-Ameríku athygli á
síðustu plötu sinni, Lives in the Bal-
ance. Peter Gabriel hefur gefið
vilyrði sitt fyrir því að koma fram
og nokkrir meðvitaðir til viðbótar
eru að kanna málið.
Nýliðiö ár var svo sannarlega ánægjulegt fyrir aödáendur írsku hljómsveitarinnar U2. Platan The Joshua
Tree kom út og á eftir fylgdi hijómleikaferð um Evrópu, Ameríku og viðar. Og liðsmenn hljómsveitarinnar
ætla sannarlega ekki að sitja auðum höndum á árinu 1988. Með vorinu kemur út kvikmyd frá nýafstaöinni
hijómleikaferð og um svipað leyti er væntanleg tvöfóld hþómplata með hljómleikaupptökum að mestu leyti.
Áætlað er að fullunnin kosti kvikmyndin tæplega tvö hundruð milijónir króna. Nokkur kvikmyndafyrirtæki
voru tilbúin að greiða þann kostnað en liðsmenn U2 kusu að greiða hann út eigin vasa til að geta ráöið gerð
myndarinnar að öllu leyti. í myndinni gefur ekki einungis að líta hljómsveitina á tónleikum. Viö fáum einnig
að kynnast lífinu á ferðalögum milfi staða sem og ýmsu sem gerist baksviös. Ekkert var sett á svið vegna
myndarinnar heldur allt unnið í belg og biðu og veröur síðan raðaö saman í eina heild.
Hljómleikaplatan verður hin þriðja sem U2 sendir frá sér. Hún veröur þó ekki „lifandi“ aö öllu leyti því að nú
í janúar verða fjórmenningamir í U2 i hljóðveri i Dyflinni og taka þar upp fjögur lög.
Bjami er byrjaður
á sólóplötunni
„Það er ósköp lítið hægt að segja
núna nema aö við byrjum að taka
upp núna í þessari viku,“ sagði
Bjami Árason söngvari er hann var
inntur eftir væntanlegri sólóplötu.
„Það er Jakob Magnússon sem stýrir
upptökunum og við vinnum plötuna
í einkastúdíói hans.“
Bjarni kvaö þá vera aö safna lögum
á plötuna um þessar mundir. Hann
var spurður hvort aðrir Stuðmenn
en Jakob kæmu til með að leggja til
efni, til dæmis Valgeir Guðjónsson
sem átti lagið Bara ég og þú, sællar
minningar. „Vonandi," svaraöihann
stutt og laggott og vildi ekki ræða
frekar væntanlega lagahöfunda.
Það er Skífan sem mun gefa sóló-
plötu Bjarna út. Hún ætti að koma í
verslanir síðla vetrar eða með vor-
inu.
Þegar Bjarna Arasyni skaut upp á
stjörnuhimininn í látúnsbarka-
keppninni í fyrrasumar söng hann
með hljómsveitinni Vaxandi. Tekur
hann ennþá lagið með gömlu félög-
unum?
„Nei. Vaxandi er ekki til lengur,"
svaraði hann.
„Samstarfið gekk ekki upp svo að
það var ekki um annað að ræða en
aðhætta.“
Bjarni Arason hóf upptökur sólóplötu sinnar núna i vikunni með Jakob
Magnússyni.
Hljómsveitin U2 var iðin við kolann á síðasta ári. Ýmislegt verður einnig að gerast á þvi nýbyrjaða.
Daryl Hall og John Oates saman að nýju. Þeir lofa sinni bestu plötu í lang-
an tima.
Daryl Hall og John Oates
taka upp þráðinn að nýju
Danskur plötumarkaður
á í erfiðleikum
Gleðifrétt fyrir aðdáendur Daryls
Hall og Johns Oates. Gömlu fóst-
bræðurnir eru í óðaönn að hnoða
saman plötu sem kemur út á fyrri-
hluta þessa árs ef allt fer að óskum.
„Fólk keppist við að segja mér að
við séum hættir að vinna saman,
leigubílstjórar sem aðrir,“ sagði
John Oates í nýlegu blaöaviðtali.
„Við ákváöum árið 1985 að einbeita
okkur að eigin hugðarefnum en við
nefndum aldrei að við ætluðum ekki
að koma saman einhvern tíma síöar.
Meðan á fríinu stóð sendi Daryl
Hall frá sér sólóplötu og John Oates
vann meðal annars að hljómplötum
Parachute Club og Icehouse. Að und-
anfómu hafa þeir hins vegar unnið
saman að nýju Hall & Oates plötunni
í stúdíói í New York. Þeir era búnir
að reka alla úr hljómsveit sinni nema
bassaleikarann T-Bone Wolk og ráða
nýjan mannskap. Þeir telja sig vera
með sterka hljómplötu í hönduhum.
„Við leggjum sem fyrr aðaláherslu
á melódíuna og þær raddir sem hafa
verið vöramerki okkar í langan
tíma,“ segir Daryl Hall. „Hins vegar
höfum við báöir haft gott af að hvíla
okkur hvor á öðram." Og Oates bæt-
irvið:
„Fríiö var eins og aö anda að sér
fersku lofti. Við komum endurnýjað-
ir til baka og ætlum okkur að gera
betri plötu en viö höfum getað í mörg
ár.“
A meðan íslenskir plötuútgef-
endur dældu með bros á vör hverri
hljómplötunni af annarri fyrir jóhn
þurftu danskir starfsbræður þeirra
að heyja harða baráttu. Fyrir lá
eftir fyrstu ellefu mánuöi síðasta
árs að samdráttur í sölu danskra
platna var um 25 prósent svo að til
einhverra bragða varð að grípa.
Fjögur stærstu fyrirtækin tóku
höndum saman og auglýstu vöra
sína sameiginlega í stærsta dag-
blaði Dana. Þá var og efnt til
auglýsingaherferðar í kvikmynda-
húsum (auglýsingar eru bannaðar
í dönsku sjónvarpi) og einnig var
gerð mikil og voldug safnplata sem
á voru margir þekktustu dægur-
lagasöngvarar Danmerkur.
Danskir útgefendur kenna gervi-
hnattasjónvarpi mjög um hvemig
komið er fyrir hljómplötumarkað-
inum. Einnig leggja erlend fyrir-
tæki þunga áherslu á að kynna
listamenn sína. Dönsk popptónlist
er ákaflega lítiö leikin í útvarpi, svo
lítið að útgefendur telja Dani vera
Popp
Ásgeir Tómasson
að nálgast met Belga, sem er fimm
prósent innlend tónlist á móti 95
prósentum af erlendri!
Forráöamenn dönsku hljóm-
plötuútgáfanna fjögurra lögðu í
jólamánuðinum þunga áherslu á
stuðning útvarps, sjónvarps og rík-
isstjórnarinnar við danska dægur-
tónlist. Plötur í Danmörku bera
fimmtán prósent lúxusskatt sem
útgefendur vilja meina að geri
meira ógagn en gagn.
Það er ánægjulegt til þess að vita
að á meðan útgefendur standa í
baráttu um lúxusskatta í Dan-
mörku lækka plötur enn frekar hér
á landi. Erlendar breiðskífur falla
um eitt til tvö hundrað krónur í
veröi þessa dagana og kosta nú
velflestar á bilinu 599-699 krónur.
Verð geisladiska er sömuleiðis á
niðurleiö, eða um 200-300 krónur.
Tollur á plötum frá EFTA löndum
er nú enginn og tíu prósent annars
staðar frá. íslenskar plötur, sem
framleiddar era erlendis, lækkuðu
um átamótin um sextán prósent.
Flestallar íslenskar plötur eru
reyndar framleiddar hérlendis
þannig aö lækkunin er óveruleg
þegar á heildina er litið. Plötuútgef-
endur og -kaupendur geta þó litið
björtum augum til komandi árs.
Kim Larsen og stéttarbræður hans
ku litt heyrast i dönskum útvarps-
stöðvum á kostnað erlendra lista-
manna.