Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 21
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. 21 í dag ætlaði ég að segja ykkur frá manninum sem keypti sér frakka og fór að því búnu inn í speglabúð þar sem hann heilsaði sjálfum sér með virktum af því aö hann hélt að hann væri bróðir sinn en vegna þess að ég varð fyrir miklu merki- legri lífsreynslu en áðumefndur maður inni í apóteki um daginn ætla ég heldur að segja ykkur frá henni.' Eins og alhr vita hefur gengið hér flensa aö undanförnu og við henni er ekkert að gera að sögn læknavís- indanna nema liggja í rúminu og snýta sér á meðan kraftar leyfa. Ef menn fá hins vegar háan hita og meira óráð en eðlilegt má teljast á skattfrjálsu ári er fólki ráðlagt að taka magníltöflur en það er ekki fyrr en fólk fær lungnabólgu sem læknavísindin fara að kætast að einhverju ráði því að hana ráða þau við af því að hún er ekki vírus og það er búið að lækna hana fyrir löngu í músum og rottum og fleiri kvikindum sem of langt mál yrði upp að talja. Nú er það svo með konuna mína að hún á sem betur fer ekki vanda til aö fá inflúensu enda panta ég alltaf bólusetningu handa henni fyrir jóhn og að þessu sinni stakk ég upp á því að gefa henni þetta í jólagjöf þar sem ég væri búinn að gefa henni allt annað sem hana vantaði til að gera jólahátíðina sem hátíðlegasta, eins og ryksugu, af- þurrkunarklút, silfurfægilög og gólftusku. Þessi uppástunga mín féll ein- hverra hluta vegna ekki í góðan jarðveg en hins vegar bað konan mín mig í guðanna bænum að fara fyrir sig út í apótek og kaupa handa sér parasetamól skömmu fyrir jól en þá var hún komin með óguriega ljótan hósta og var svo slöpp að hún gat varla staðið á fótunum. Ég vildi auövitað allt gera til að konan mín legðist ekki í rúmið og arkaði því út i apótek og bað um hundrað töflur af parasetamóli. - Því miður, sagði konan í apótek- inu, það má bara afgreiöa tuttugu töflur af því samkvæmt lögum. - Nú, sagði ég, er þetta eitthvaö sem getur drepið fólk? Síst af öllu vildi ég kála konunni minni svona rétt fyrir jólin og áður en búið væri að þurrka af og ryksuga. - Nei, sagði konan í apótekinu, þetta eru bara lög sem við verðum að fara eftir. Háaloft Benedikt Axelsson - Og hvaða hálfvitar setja svona lög? skrapp upp úr mér og síðan tiíkynnti ég konunni í apótekinu að ég gæti fariö í öll apótekin í borg- • inni, apótekið í Garðabæ, Seltjarn- arnesi, Mosfellsbæ og Hafnarfirði og keypt í þeim tuttugu töflur af parasetamóli og þetta gæti ég gert dag eftir dag þangað til ég yrði gjaldþrota. Síðan gæti ég slegið lán í banka og haldið leiknum áfram fyrir utan það að ég gæti farið út úr apótekinu og komið að vörmu spori aftur og keypt tuttugu töflur af parasetamóli. - Ég myndi ekki afgeiða þig, sagði konan í apótekinu og þar með lauk okkar viðskiptum að öðru leyti en því að ég keypti af henni hárgreiðu eftir að hún hafði fullvissað mig um að ég gæti fengið hana án res- epts. Lög eru lög. Áður en lengra er haldið skal þess getið að parasetamól er verkjatöflur sem á að geyma, eins og foreldrana, þar sem börn ná ekki til og samkvæmt leiðbeining- um aftan á pakkanum, sem ég keypti, er venjulegur skammtur ein til tvær freyðitöflur í senn, mest sex freyðitöflur á sólarhring handa fullorðnum við höfuðverk, tannverk, tíðaverk og sótthita af völdum inflúensu eða kvefs'. Freyðitöflurnar eru leystar upp í hálfu glasi af vatni. Og nú skulum við hugsa okkur að vísitölufjölskyldan mín fengi allt í einu allt sem á leiðbeiningamið- anum stendur - það yröu aö vísu tveir að fá annaöhvort höfuöverk eða tannverk af því að konan mín er með sótthita af völdum inflú- ensu eða kvefs og hún er sú eina í fjölskyldunni sem getur fengiö tíðaverki - og ég færi út í apótek að kaupa parasetamól þá myndi það sem kaupa má af því sam- kvæmt lögum duga okkur, í einn sólarhring og tvær yrðu afgangs. Auðvitað er þetta svo sem gott og blessað því að einhver hefur örugglega læknast af einhverjum þessara verkja af áðurnefndum sex freyðitöflum og því getað skroppið út í apótek til að kaupa meira para- setamól. En ef allir hefðu hins vegar verið með fjörutíu stiga hita heföi ég ekki blessað þá menn sem settu lögin um parasetamólið. Kveðja Ben. Ax. Finnurðu átta breytingar? Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragöi eins en á neöri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stööum. Þaö er misjafnlega erfitt aö fmna þessar breytingar en ef fjölskyldan sámeinast um aö leysa þetta trúum viö því aö allt komi þetta aö lokum. Merkiö meö hring eöa krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neöri myndina. Skilafrestur er tíu dagar. Að þeim tíma liönum drögum viö úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Japis, Brautar- holti 2. Þau eru LED útvarpsvekjari (verömæti 4.680,-), Supertech útvarp (verðmæti 2.840,-) og Supertech feröatæki (verðmæti 1.880,-). I ööru helgarblaöi héöan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góöa skemmtun! Merkiö umslagiö: „Átta breytingar-75, c/o DV, pósthólf5380,125 Reykjavík.“ Verölaunahafar 73. gátu reyndúst vera: Brynhildur Skeggjadóttir, Safamýri 48, 108 Reykjavík (útvarpsverjari); Garöar R. Árnason, Heiðarbrún 15, 810 Hveragerði (út- varpstæki); Hjalti Jóhannesson, Bröttugötu 9, 900 Vest- mannaeyjar (ferðatæki). Vinningarnir veröa sendir heim. §*e NAFI\I ....... HEIMILISFANG PÓSTNÚMER ..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.