Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 24
24
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988.
Sérstæð sakamál
Eiginmaðurinn
sem
hvarf
Roddie Lowen var breskur
kaupsýslumaður. í ágúst síðast-
liðnum hvarf hann áleið heim
til sín frá skrifstofunni. í fyrstu
lék grunur á að honum hefði
verið rænt af því hann hafði gert
viðskipti við Suður-Afríku en svo
hætti lögreglan að telja þá skýr-
ingu sennilega. Þá fór athyglin
að beinast að konu hans. Svar
hennar við því var að bjóða all-
háa fjárhæð þeim sem varpað
gætiljósiámálið.
Geraldine Lowen.
Rak milljóna-
fyrirtæki
Það var 20. ágúst að Geraldine Low-
en skýrði lögreglunni frá því að
maður hennar heföi ekki komið heim
frá vinnu. Fyrirtæki hans var til
húsa í London en þau hjón bjuggu í
Nutberry Close, í Essex, og hafði
Geraldine beðið þar á jámbrautar-
stöðinni eftir manni sínum. Hafði
stöðvarstjórinn veitt henni athygli
og þegar lögreglan leitaði síðar til
hans gat hann staðfest að hún hefði
beðið þar eftir manni sínum að
kvöldi þess 20. Er hann hefði ekki
komið með sexlestinni frá London
hefði hún beðið eftir þeirri næstu.
Jafnframt fékkst á því staðfesting
hjá einkaritara Roddies Lowen að
hann hefði farið af skrifstofunni á
venjulegum tíma þennan dag.
Lögreglan fékk brátt að vita að
Roddie hefði verið vel efnaöur maður
og hefði verulegur hluti viðskipta
hans verið við Suður-Afríku. Fyrsta
tilgátan um hvarfið var því sú að
honum hefði verið rænt af stjórn-
málaástæðum og yrði brátt krafist
lausnargjalds fyrir hann.
Scotland Yard
hefur rannsókn
Roddie Lowen hvarf á fimmtudags-
kvöldi. Er lögreglan í Essex hafði
engar spurnir haft af honum daginn
eftir og enginn hafði þá krafist lausn-
argjalds fyrir hann leitaði hún til
Scotland Yard. Hófst þá umfangs-
mikil leit.
Ekki leið á löngu þar til Scotland
Yard taldi rétt að falla algerlega frá
hugmyndinni um að Roddie Lowen
heíði veriö rænt svo að krefjast
mætti lausnargjalds fyrir hann. Þess
í stað var farið að kanna hvort per-
sónulegar ástæður gætu legið til
hvarfsins. Brátt fékkst hins vegar á
því staðfesting að ekkert hefði verið
að fjárhag Lowens. Eignir hans voru
metnar á sextíu milljónir króna. Þá
báru vinir þeirra hjóna að Roddie
Lowen væri lífsglaður maður og að
hjónaband hans og Geraldine væri
gott.
Tilgáta um morð
tók nú við af þeim fyrri. Var nú
kannað hver gæti haft ástæðu til
þess að ráða hann af dögum. Enginn
gat hins vegar bent á neina óvini sem
hann hefði átt, hvorki kona hans né
aðrir, og þar kom að Scotland Yard
komst að þeirri niðurstöðu að aðeins
einn einstaklingur gæti hagnast á
dauða Roddies Lowen og það væri
kona hans, Geraldine.
Hún var sú sem erfa myndi mann
sinn tækist að sýna fram á að hann
væri látinn. Spurningin var aftur á
móti sú hvort hún væri líkleg til þess
að hafa ráöið mann sinn af dögum í
hagnaðarskyni. Ljóst þótti að hún
hefði ekki getað gert það með eigin
hendi því hún var á járnbrautarstöð-
inni Essex að bíða eftir manni sínum
á þeim tíma er hann hvarf. Hún hlyti
því aö hafa fengið leigumorðingja til
þess að vinna á manni sínum.
Rannsókn frá
því sjónarhorni
Nú hófst á því athugun hvort frú
Geraldine Lowen hefði látið af hendi
íjárhæð sem ætla mætti aö svaraði
til þess sem leigumorðingi myndi
taka í þóknun. Er bankareikningur
hennar var skoðaður kom í ljós að á
honum var jafnvirði fjögur hundruð
og tuttugu þúsund króna en engin
stórupphæð hafði verið tekin út af
honum um langan tíma; aðeins smá-
upphæðir sem svöruðu til heimilis-
útgjalda og minni háttar einka-