Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Page 28
40 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. Loðdýrabændur Við smíðum mjög vönduð fóðursíló. Tvöfalt ryðfrítt stál með úriþanfyllingu á milli. Stærðir 1600 lítrar og 2500 lítrar. Stigi og stigapallur með handlista, tæmingarloki upphitaður. Smiðjan sff., Hellu, Rangárvöllum sími 99-5996, kvöldsími 99-5965 NÝR UMBOÐSMAÐUR Á SIGLUFIRÐI Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54, sími 96-71252 NÝR UMBOÐSMAÐUR í SANÐGERÐI Sigfríður Sólmundsdóttir Ásabraut 3, sími 92-37813 Rafmagnsiðnfræðingar Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða raf- magnsiðnfræðing til eftirlitsstarfa (veitueftirlit) í innlagnadeild fyrirtækisins. Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 686222. Umsóknarfrestur er til 18. janúar nk. RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR Suðurlandsbraut 34 108 REYKJAVÍK Vélstjórafélag íslands Vélstjórar - Aðalfundur Aðalfundur Vélstjórafélags íslands verður sunnudag- inn 17, jan. að Borgartúni 14 og hefst stundvíslega kl. 14 samkvæmt dagskrá. Fullgildir félagar, munið að síðustu forvöð til að skila inn atkvæðaseðlum til stjórnarkjörs eru kl. 14 laugar- daginn 16. janúar. Stjórnin ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI St. Jósefsspítalinn, Landakoti, auglýsir eftir hjúkr- unarfræðingum. Boðið er upp á aðlögunarprógramm áður en farið er á sjálfstæðar vaktir. Reynt er að gera öllum kleift að sækja Váðstefnur og námskeið. Lausar stöður eru á gjörgæsludeild og á lyflækninga- deild l-A, sem er tvískipt deild, um fullt starf er að ræða. Einnig vantar okkur sjúkraliða á lyflækninga- deild l-A. Upplýsingar eru gefnar hjá hjúkrunarframkvæmda- stjóra í síma 19600-202 og 19600-220. Hafnarbúðir Hafnarbúðir eru lítill en mjög þægilegur vinnustað- ur, góður starfsandi og gott fólk, þangað vantar nú hjúkrunarfræðing í heila eða hálfa stöðu. 2-3 sjúkraliða í heilar stöður og sjúkraliða á 60% næturvaktir. Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 19600-300 eða deildarstjóri í síma 19600-200 Reykjavík 4.1. 1988. Hinhliðin „Eg byrjaði sem við annan mann árið í áhuga fyrst og fremst og það má segja að þetta sé mitt tóm- stundagaman. Eg vinn þetta eingöngu i sjálfboðavinnu enda væri ekki gam- an að þessu ef maður fengi greidd laun fyr- ir þetta starf,“ segir Gunnar Þór Jónsson en hann er annar af tveimur læknum ís- lenska landshðsins í handknattleik. Dag- lega starfar Gunnar sem prófessor í læknisfræði og sem yfirlæknir á slysa- 'eild Borgarspítal- ans. Gunnar hefur unnið mjög gott starf og fómfúst fyrir lands- liðið ásamt Stefáni ur ott veriö mjög tímafrekt. Gunnar er á förum með íslenska landsliðinu til Sví- þjóðar en það heldur utan í fyrramálið og tekur þátt í keppn- inni um heimsbikar- inn. Svör Gunnars fara hér á eftir: Fullt nafn: Gunnar Þór Jónsson. Aldur: 45 ára. Fæðmgarstaður: Grindavík. Maki: Ragnheiður Júlíusdóttir. Börn: Þau eru Qögur pg heita Mel- korka, Júlíus Þór, Úlfar Örn og Þóra Katrín. Bifreið: Ben2, árgerð 1975. Starf: Prófessor í læknisfræöi. Laun: Mismunandi. Helsti veikleiki: Get ekki sagt nei. Helsti kostur: Bjartsýnn. Umsjón Stefán Kristjánsson Hefur þú einhvern tíma unnið í happdrætti eða þvílíku: Ég hef einu sinni unniö 50 krónur í happa- þrennu. Uppáhaldsmatur: Saltkjötogbaun- ir. Uppáhaldsdrykkur: íslenskt vatn er í efsta sæti ef mig langar í eitt- hvaö sérstaklega gott að drekka. Uppáhaldsveitingastaður: Hótel Holt. Uppáhaldstegund tónlistar: Góð tóníist af öllu tagi. Uppáhaldshljómsveit: Stuðmenn. Uppáhaldssöngvari: Kristinn Sig- mundsson. Uppáhaldsblað: DV og Mogginn eru mín blöð. Uppáhaldstímarit: Læknatímarit. Uppáhaldsíþróttamaður: Kristján Arason. Uppálialdssljómmálamaður: Steingrímur Hermannsson. Uppáhaldsleikari: LiljaÞórisdóttir. Uppáhaldsrithöfundur: Þjóöverj- inn Patrick Súskind. Besta bók sem þú hefur lesið: Þrúg- ur reiöinnar eftir Hemingway. Hvort er í meira uppáhaldi hjá þér Sjónvarpið eða Stöð 2: Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Edda Andrésdóttir og Rósa Ingólfsdóttir. Hver útvarpsrásanna finnst þér best: Rás 2 meö fréttum. Uppáhaldsútvarpsmaöur: Jón Stef- án Hafstein. Hvar kynntist þú eiginkommni: í Reykholtsskóla í Borgarfirði. Helstu áhugamál: Ég eyði rnestmn tíma mínum í íþróttir fyrir mig og aðra. Svo hef ég auðvitað áhuga á leikhúsi og bókalestri. Fallegasti kvenmaður sem þú hef- ur séð: Marilyn Monroe. Hvaða persónu langar þig til aö hitta: Forseta Suöur-Kóreu. Fallegasti staður á íslandi: Skafta- fell. ' Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí- inu: Ég verð við veiöar á urriða- svæðinu í Laxá í Þingeyjaarsýslu og svo fer mikill hluti af fríinu í ólympíuleikana í Seoul. Strengdir þú áramótaheit: Já, ég gerði þaö auðvitað en ég er löngu hættur að gefa þau upp. Ég get þó gefiö upp að þaö tengist mér sjálf- um, starfi mínu og heimiJi. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.