Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Síða 36
48 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988. Ferðamál Þönglabakka í Þorgeirsfirði. Nú er landið nytjað sem afréttur. Allvatnsmikil á fellur um Þorgeirs- fjörð. Yfir hana er ágæt göngubrú sem kemur sér vel fyrir þá er fara fótgangandi um þessar slóðir. Þótt Þorgeirsfjarðardalurinn sé allur minni en nágranni hans að austan er hann síst verr fallinn til búskapar og þar þótti betri lending, einkum þegar áttin var austlæg. Keflavíkin Fjallið vestan við Þorgeirsfjörð heitir Háaþóra og liggur leiðin til Keflavík- ur meðfram undirhiíðum hennar. Gatan er nokkuð á fótinn enda nær hún, áður en lýkur, allt að tvö hundr- uð metra hæð. Fyrsta torleiðið á veginum er Blæjukambur, þunnur berg\'eggui' þar sem gatan liggur um einstigi yst á brún hans en neðan undir gínandi hengiflug. Þó er gatan ekki tæpari en svo að vel er þar fært með hesta. Blæjudalur er þar fyrir utan kambinn og brött brekka þaðan upp á Hnjáfjall. Þaðan blasir Kefla- víkin við. Gatan liggur ofan hlíðina í ótal hlykkjum og heim að gömlu bæjarrústunum. Þótt leiðin milli Þorgeirsfjarðar og Keflavíkur sé auð- veld yfirferðar að sumarlagi hlýtur hún að vera lífshættuleg að vetrar- lagi í harðfenni og hálku nema menn séu á góðum broddum. Keflavík var minnsta byggðin í Fjörðum. Hún er, eins og segir í Jarðabók Ama Magnússonar og Páls í Fjörðum Yst við austanverðan Eyjafjörð rís Kaldbakur, hátt og tignarlegt fjail sem setur sterkan svip á fjörðinn og umhverfi hans. Kaldbakur er eitt hinna mörgu tilkomumiklu fjalla sem raða sér á skagann milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa. Mörg þeirra eru um og yfir eitt þúsund metrar á hæð, girt hömrum og hengiflugi hið efra en vafin kjammiklum gróðri hið neðra sem gerir búsmala í sumarhögum feitan og sællegan. Milh þessara háu fjalla ganga dalir upp frá sjó, fyrrum byggðir en nú í eyði. Fyrir framan þá eru smáfirðir, opnir fyrir hafi. Heita þeir, taldir frá vestri til austurs: Keflavík, Þorgeirsfjörður og Hvalvatnsfjörður, í dagiegu tah nefndir í Fjörðum. Texti og myndir eftir Tómas Einarsson I Þorgeirsfirði. Horft suður eftir Hval vatnsfjarðardal frá bæjarrústum Tindriðastaða. Fjær voru bæimir Þverá og Kussungsstaðir. Austan við Kaldbak er djúpt og breitt skarð í fjallakeðjuna er nefnist Leirdalsheiði. Um hana liggur jeppa- -^fær vegur frá Höfðahverfi og niður að sjó í Hvalvatnsfirði, rösklega tutt- ugu og fimm kílómetrar að lengd. Hvalvatnsfjarðardalur Hvalvatnsfjaröardalurinn er grös- ugur, sléttur og allbreiður, einkum neðan til. Þar eru mikH engjalönd. Um hann liðast Hvalvatnsdalsá og fellur að lokum í stöðuvatn eða lón sem er aðskilið frá sjónum með mjó- um malarkambi eða rifi. Er útfaU vatnsins því við sjávarmál og fellur sjór þar inn á flóði. Hvalvatnsdalsá verður til úr tveimur ám er eiga upp- tök sín að mestu í fónnum fjallanna er umlykja dalinn. Úr Trölladal að vestan kemur Gilsá en Austurá af . Leirdalsheiði og fjöllunum austan hennar. Ösinn er mikið vatnsfaU og Utt eða ekki væður fyrr en síösumars þegar fannir eru horfnar að mestu úr fjöUum. Meðfram hUðum dalsins beggja vegna eru rústir bæjanna sem þar stóðu fyrrum. Munu þeir hafa verið aUt að tíu þegar flest var. Þessi dalur og umhverfi hans feUur einkar vel aö hugmyndum þjóðsög- unnar um daU og byggðir útilegu- manna forðum. íverum Eins og annars staðar á þessum skaga liggja há og brött fjöfi að daln- um, bæði aö austan og vestan. Einkum er fjallgarðurinn að austan, milli Flateyjardals og Hvalvatns- fjarðar, hömróttur og hrikalegur með grunnum sköröum á mUU sem sum hver eru Utt fær öðrum en fúgl- inum fljúgandi. Því eru leiðir til Flateyjardals ærið torsóttar á landi. Annaðhvort verður að fara yfir þessi fjaUaskörð eða ganga skriður norðan í BjamarfjalU sem er nyrst í þessum fjaUaklasa og rís snarbratt úr sjó. Þótt sú leið sé vel fær skal þar samt fara að öUu með gát. Um og eftir síöustu aldamót átti Theódór Friðriksson rithöfundur og fjölskylda hans heima í Fjörðum og bjuggu þau síðustu ár sín þar að GUi, innsta bænum í Hvalvatnsfirði. I ævisögu sinni, í verum, segir hann á skemmtilegan hátt frá dvöl sinni og búskaparháttum í þessari afskekktu byggð. Þorgeirsfjörður Vestanvert við Hvalvatnsfjörð er Þorgeirshöfði (211 m y.s.) og skUur hann að Hvalvatnsfjörð og Þorgeirs- fjörð. Sunnan við höfðann er fjaUið Lútur. Þar á miUi er lágt og breitt skarð og um það lá gatan miUi byggð- anna í þessum tveimur dölum. Vestanvert undir höfðanum, við botn Þorgeirsfjarðar, er Þönglabakki, prestssetur og sennUega landnáms- jörð. Þar er nú skipbrotsmannaskýU. Kirkjugarðurinn við bæjarrústimar segir fleira en orð fá lýst um það mannlif sem hér var. Síðasti prestur- inn á Þönglabakka hét Sigurður Jónsson. Hann fluttist burt árið 1904. Eftir það var Þönglabakkasókn lögð undir Grenivíkurprest og þjónað þaðan. I manntalinu árið 1703 vom íbúar Þönglabakkasóknar þrjátíu og átta, þar af var búið á fimm bæjum í Þorgeirsfirði. Á fyrri hluta þessarar aldar fór fóUdnu í Fjörðum að fækka og jarðir að leggjast í eyði. OUi því einkum hafnleysi og erfiðar samgöngur á landi. Árið 1944 lagðist byggðin alveg af, því að þá fluttust burt síðustu íbú- amir en þeir bjuggu á Tindriðastöð- um í Hvalvatnsfirði og Botni og Horft ofan í Keflavík af Hnjáfjalli. Yst ti! vinstri er Gjögurtá. Um miðbik síð- ustu aldar var vísir að sjómannaskóla í Keflavík. Áning við Blæjukamb. í baksýn er Þorgeirshöfði (nær) og Bjarnarfjall (fjær). Vídalíns, „á mUU Gjögra frá Hval- látrum og HnjábrekkufjaUi, sem er næst Blæju vestur frá Þorgeirsfirði." Að baki víkurinnar liggur vel gró- inn og grösugur dalur, frekar stuttur og þröngur, einkum er innar dregur. Eflir honum Uðast Util á sem feUur tíl sjávar rétt hjá bæjarrústunum. En jafnan var einn bær byggður í Keflavík áður fyrr. Vísir að sjómannafræðslu Þótt Keflavík sé afskekkt mun hafa verið búið þar frá fomu fari og oft búið vel. Um miðja síðustu öld átti þar heima Jón Loftsson, skipstjóri og bóridi. Hann var svo vel að sér í sigUngafræðum að hann hélt skóla og kenndi formannsefnum sjó- mennsku. Mun það vera fyrsti vísir aö skipulegri sjómannafræðslu hér- lendis. Þetta framtak og afrek Jóns má ekki gleymast. Hefur mönnum oft verið reistur bautasteinn af minna tílefni. í Keflavík er brimasamt, einkum í hafátt. Þá er þar ólendandi, oft vikum saman. Því hafa slysavamarfélags- konur á Akureyri byggt ágætis- björgunarskýli niðri á sjávarbakk- anum í gamla Keflavíkurtúninu. Er það tU mUdls öryggis því að leiðin tU byggða getur orðið torsótt hröktum mönnum, ekki síst að vetrarlagi. Vestan við Keflavík er Gjögurtá. Þar er vitinn sem þeir þekkja er siglt hafa inn Eyjafjörð. Úr KeflavUc liggur gömul gönguleið um Uxaskarð að Látrum á Látra- strönd. I þoku getur verið erfitt fyrir ókunnuga að finna götuna upp í skarðið. TU öryggis ættu framtaks- samir menn í nálægum byggðarlög- um að merkja hana með smá-vörð- um, málningu á steinum eða tréstikum. Það er lítið verk en gæti komið vegfarendum að góðu gagni. Og með þá ósk í huga skal hér setja punkt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.