Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1988, Page 9
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1988.
9
Utlönd
Berst gegn myndum
af brjóstaberum
Brjóstaber stúlka blasir viö millj-
ónum Breta á hverjum degi þegar
þeir opna síödegisblööin. Fyrirsæt-
urnar eru orðnar þekktar sem „blað-
síðu þrjú stúlkurnar" vegna þeirrar
venju blaösins Daily Sun að hafa þær
á þeirri síðu sem fyrst blasir við
mönnum þegar blaðinu er flett.
Vel vklin lýsingarorð, eins og til
dæmis barmfagra Behnda, hafa fylgt
með myndunúm sem þingkona ein
hefur barist hatrammlega gegn í
langan tíma. Segir hún það hljóti að
vera eitthvað að þjóðfélagi sem birtir
shkar myndir í jafnmiklum mæh og
raunin er á í Bretlandi. Fyrir einu
og hálfu ári bar þingkona Verka-
mannaflokksins, Clare Short, fram
tihögu að frumvarpi um bann við
birtingu slíkra mynda. Leiðandi
íhaldsménn hlógu að tillögunni og
afgreiddu hana sem kerþngarrugl og
kvenréttindablaður.
Nú hyggst Short bera tiUöguna
fram á ný snemma á þessu ári. Það
sem hefur ýtt undir hana er ágrein-
ingur vegna loforðs eins kvöldblað-
anna, The Star, um að birta aö
minnsta kosti sextán bijóstamyndir
í hverju tölublaði. Nokkrir stærstu
stórmarkaðanna ákváðu þá að hætta
að auglýsa í blaðinu og sumir alvar-
lega þenkjandi blaðamenn gengu út
af blaðinu. Myndirnar voru líka
orðnar grófari en áður.
Þingkonan segist hafa fengið bréf
frá konum sem hefur verið nauðgað.
Samkvæmt frásögn kvennanna tjáðu
nauðgararnir fómarlömbum sínum
meðan á ódæðisverkinu stóð að þær
minntu þá á blaðsíðu þijú eða að þær
ættu að vera á blaðsíðu þijú. Einnig
kvaðst hún hafa fengið bréf frá mörg-
um konum þar sem þær lýstu yfir
stuðningi við tihögu hennar.
Nýlega varð kona ritstjóri blaðsins
The Weekly News of the World sem
einnig birtir myndir af berbijósta
konum. Hún segir menn hafa nauðg-
að konum löngu áöur en myndirnar
á blaðsíðu þijú fóru að birtast og
Þegar þingkona nokkur í Bretlandi
bar fram tillögu að frumvarpi um
bann við birtingu mynda sem þess-
arar í síðdegisblöðum landsins var
tillagan afgreidd sem kvenréttinda-
blaður. Símamynd Reuter
segir hún sitt blaö sjá til þess að birta
aðeins klassamyndir.
Samkvæmt skoðanakönnun í ágúst
vildi meirihluti lesenda The Star aö
birtingu mynda af bijóstaberu kven-
fólki yrði hætt og voru það meðal
annars þessi úrslit sem urðu til þess
að Short hyggst bera fram tillögu
sína á ný.
Myndirnar eru niðurlægjandi fyrir
konur og þær viðhalda þeirri áráttu
karla að líta aðeins á konur sem kyn-
tákn, segir þingkonan.
ÖLAFS GAUKS
INNRITUN HAFIN.
Opið í skólanum, Stórholti 16,
klukkan 2-5 daglega, sími 27015. Upplýsingar k öðrum tíma í síma 685752.
Skóbúðin Póstsendum
Snorrabraut 38 Lipurtá
- sími 14190 Borgartúni 23 - sími 29350
★ GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR ALLA JEPPAEIGENDUR: ★
VERÐHKUN!
VIÐ VERSLUM EINGÖNGU MEÐ 1. FLOKKS VÖRUR:
BF Goodrich hjólbarðar
ARB loft driflœsingar
Unique felgur
Bestop Dualmatic blœjur
KC ljoskastarar
Warn rafmagnsspil og driflokur
Brahma yfirbyggingar á pallbíla
Monster Mudder hjólbarðar
Deflecta brettakantar og vindskeiðar
Mickey Thompson hjólbarðar
Downey aukahlutir fyrir Toyota
4 Runner, Hi-Lux og Landcruiser
Um áramótin varð stóríelld lœkkun á
aðflutningsgjöldum á vara- og aukahlutum
fyrir bíla svp og á hjólbörðum.
Við göngum beint til verks og bjóðum
allar okkar vörur á nýja verðinu.
OKKAR LANDSFRÆGU
GREIÐSLUSKILMÁLAR
ERU í FULLU GILDI
DÆMI: 25% ÚTBORGUN
EFTIRSTÖÐVAR Á 4-8 MÁN
FYRSTA AFBORGUN í MARS
HAFÐU SAMBAND, ÞAÐ BORGAR SIG
MARl
Vatnagöröuml4 Sími 83188