Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 20
Reykjavík, 30. maí
Kæri vin
Ég ætla að byrja á aö ítreka það
sem ég sagði við þig í símann á
föstudaginn þegar þú hringdir. að
þú þarft ekki að gera þér neinar
vonir um hasar út af forsetakosn-
ingunum. Flokkur mannsins, sem
stendur að mótframboði gegn Vig-
disi, hefur ekki annað fram að færa
en bull og kjaftæði sem þjóðin hef-
ur skömm á og öllum almenningi
finnst þetta mótframboð niðurlæg-
ing fyrir embætti forseta íslands.
Persónulega finnst mér framlag
Flokks mannsins til þjóðmálaum-
ræðu á svipuðum nótum og fram-
lag Votta Jehóva til trúmála, enda
aðferðirnar um margt keimlíRar.
En auövitað getur það htið svo út
þarna þar sem þú ert búsettur að
um einhverja keppni verði að ræða
þótt engum heilvita manni hér á
Islandi detti slíkt í hug því þjóðin
stendur einhuga að baki forseta
sínum hér eftir sem hingað til.
Það er líka um nóg annað að ríf-
ast en forsetaembættið. Til dæmis
hefur mikið verið deilt um bráöa-
birgðalög sem ríkisstjórnin gaf út
eftir að bankarnir höfðu fellt geng-
ið. Það kom í ljós að margir áttu
erfitt með að skilja sum ákvæði
laganna og þetta með bann við
verðtryggingu var í rauninni ekki
það sem stjómin hafði ætlað sér
með lagasetningunni. Það ku þurfa
að gefa út ný bráðabirgðalög til
skýringar á hinum bráðabirgðalög-
unum og er þá vonandi aö menn
skilji hver annan - alla vega til
bráðabirgða. Svo eru þeir Stein-
grímur og Jón Baldvin að rífast út
af viðbótarreikningum vegna nýju
flugstöðvarinnar. Nú er Jón sestur
kirfilega ofan á kassann en Stein-
grímur stendur með reikninga í
höndunum upp á hátt í 200 milljón-
ir og vill endilega fá aö seilast eftir
þessu smáræði í kassa fjármálaráð-
herra. Segist hafa lofað því að þetta
fengist greitt og hótar illu ef Jón
Baldvin ljúki ekki upp kistlinum.
En fjármálaráðherra er ekki í
framboði á Reykjanesi og er hinn
þverasti. Segist meira að segja
þurfa heimild frá Alþingi til að
borga meira í flugstöðina. Hún ætl-
ar að verða dýr fyrir rest þessi
blessuð flugstöð. Það væri kannski
í lagi ef hún þjónaði sínu hlutverki
sómasamlega en það gerir hún
ekki. Alla vega ekki varðandi það
sem snýr að farþegum. Aðstaða til
innritunar virðist í engu betri en
var í gömlu flugstöðinni og þaö er
sami slagurinn viö færibandiö þeg-
ar komiö er tO landsins. Auðvitaö
er bót í máli að fá sæmilegan biðsal
og rana út að vélunum en þau
þægindi eru í engu samræmi við
kostnaðinn. Það besta við flugstöð-
ina er auðvitað fólkið sem þar
starfar, alltaf jafnalúölegt og hjálp-
fúst og á það jafnt við um starfsfólk
flugfélaganna sem ríkisins.
Ekki nenni ég að fara að tína til
fréttir af tíðarfari, grassprettu eða
fiskgengd. Enda virðast þessi atriði
ekki skipta þjóöina öllu máli lengur
eins og þú veist. Nú snýst allt um
laxeldi og refarækt. Seiðaeldis-
menn sitja allt í einu uppi með um
fjórar milljónir af laxaseiðum sem
Bréftílvmr
Sæmundur Guðvinsson
enginn vill kaupa og vilja þá ala
seiðin upp sjálfir en heimta að rík-
ið láni þeim peninga til þess arna.
Og Jón frá Seglbúðum kafar upp
að olnboga í hvern sjóöinn á fætur
öðrum í þeirri von að einhvers
staðar finnist nokkrar krónur
handa þessum snillingum. Á með-
an ganga refabædnur um og reyta
hár sitt í örvilnan þvi öll refabú
landsins eru komin á hausinn. Þeir
fullyröa að þeim hafi verið lofað
gulli og grænum skógum ef þeir
bara hættu að framleiða kjet og
smjer og færu að skófla út refa-
skinnum í staðinn. Staöreyndin sé
hins vegar sú að aleiga þeirra sé
komin í refinn en enginn vilji
kaupa skinnin nema á spottprís,
langt undir kostnaöarverði. Og nú
verði ríkið aö koma til skjalanna
og bjarga málum. Út í hvað ætli
vesalings mönnunum verði att
næst? Mér dettur í hug sagan af
Sigmundi Bjömssyni þá hann var
kjötbúðarstjóri á Ákureyri. Sagt er
að bóndi framan úr Eyjafirði hafi
komið til hans og viljað selja hon-
um kálf. Sigmundur taldi öll tor-
merki á að kaupa kálfinn því lítið
væri spurt um kálfskjöt. En bóndi
hélt áfram að nauða í Sigmundi
sem loks sagðist mundu kaupa
hálfan kálfmn.
- Hvað á ég þá að gera viö hinn
helminginn? spurði bóndi í öngum
sínum.
- 0, þú lætur hann bara lifa, svar-
aöi Sigmundur að bragði. Eflaust
gefast bændur samt ekki upp fyrr
en „með fulla hnefana" eins og
íþróttafréttamaður á einu dagblað-
anna komst að orði á dögunum af
öðru tilefni. En talandi um skuldir
og ógöngur refabænda og annarra
þá leist mér satt að segja ekki á
blikuna þegar ég rakst á svohljóð-
andi smáauglýsingu í DV um dag-
inn: „Innheimtum allt! Hafa hefð-
bundnar leiðir brugðist? Reyndu
okkur. Hafið samband við...“
Nú þykir mér fokið í flest skjól
hjá okkur frændunum. Þú manst
hvernig svona innheimtumenn
koma fyrir sjónir í bíómyndunum.
í dökkum fótum, svartri skyrtu.
Dökk sólgleraugu, lívitt bindi og
hvítir hanskar. Gefa vikufrest til
að greiða upp í topp. Annars kann
að henda slys. Ef til vill bara lær-
brot í fyrstu atrennu, en ef ekki er
greitt tafarlaust eftir slysið þá...
Þú veist að þú ert í stórfelldum
vanskilaskuldum við lánasjóðinn.
Og námsmenn reyna allt til að fá
vinnu í sumar. Ef þú ert ekki búinn
að fá þér gægjugat á útihurðina þá
gerðu það strax. Sjálfur er ég aö
kanna verð á ferðum til fjarlægra
heimshoma þessa dagana. Aðra
leiðina, vel að merkja. Ef það geng-
ur ekki upp þá fer ég bara í refinn
eða seiðin. Til að komast í sjóðina
hans Jóns frá Seglbúðum. Læt þig
fylgjast meö framvindu mála.
Kær kveðja,
Sæmundur
P.S.
Ætli Steingrímur ráði þessa menn
til að innheimta flugstöðvarreikn-
ingana hjá Jóni Baldvin?
ERÞAÐ 1EÐAXEÐA2
Þettaermerki
1: Hafnarfjarðar
X: Mosfellsbæjar
2: Kópavogs
Þettaermerki
1: Veðurstofuíslands
X: Verslunarskólaíslands
2: Vinnuveitendasambands íslands
B Megas hefur nýlega sent frá sér plötuna
1: Höfuðmálin
X: Höfuðleður
2: Höfuölausnir
G Skákmeistaramir Jóhann Hjartarson og Karpov undirbúa
sig nú undir einvígi í borginni Seattle sem er í
1: Bandaríkjunum
X: Kanada
2: Mexíkó
c HljómsveidnA-haerskipuðpiItumsemeru
1: sænskir
X: norskir
2: danskir
D Heilbrigðismálaráðherraokkarheitir
1: GuðmundurBjamason
X: Friðrik Sophusson
2: JóhannaSigurðardóttir
H Rauði kross íslands safnar nú fé til vemdunar vatnsbóla í
1: Súdan
X: Angóla
2: Eþíópíu
Sendandi
E Hið vinsæla leikrit „Þar sem djöflaeyjan rís“ er gert efúr
skáldsögum
1: Péturs Gunnarssonar
X: Þórarins EldjámS
2: Einars Kárasonar
Heimili
Rétt svar:
A □
E □
B □ C □
F □ G □
D □
H □
Hér eru átta spurningar og
| hverriþeirrafylgjaþrírmögu-
I leikaráréttusvari.Þóeraðeins
' eittsvarréttviðhverrispurn-
| ingu.Skráiðniðurréttarlausn-
ir og sendið okkur þær á svar-
I seðlinum.SkilafresturerlO
| dagar. Aðþeimtímaliðnum
drögum við úr réttum lausnum
| ogveitumþrennverðlaun.öll
• fráPóstversluninniPrimuí
I Hafnarfirði. Þau eru:
| 1. Töskusett, kr. 6.250,-
2. Vasadiskó og reiknitölva, kr.
I 2.100,-
| 3. Skærasett, kr. 1.560,-
| Íöðruhelgarblaðihéðanífrá
I birtastnöfnhinnaheppnuen
■ nýjarspurningarkomaínæsta
| helgarblaði.
Merkið umslagið: 1 eða x eða
I 2, c/o DV, pósthólf5380,125
| Reykjavík.
| Vinningshafar í Er það 1 eða X
, eða2íþriðjugetraunreyndust
I vera: JökullSigurðsson.Hlé-
| gerði 12,200 Kópavogur (tösku-
sett), Laufey Sigurbergsdóttir,
I Löngubrekku25,200Kópavog-
| ur(vasadiskóogreiknitölva),
ErlaÁsmundsdóttir, Kringlu-
| mýril0,600Akureyri(skæra-
i sett).