Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Qupperneq 23
23
Í IíAUGARDAGUR 4! ÍIÚNÍ 1988.
Kristin alþjódarádstefna um bæn og iðrun í Washington D.C.:
Hreinsað til eftir hneykslis-
mál sjónvarpsprestanna
„Kirkjan hefur verið í svínastíunni
og allur heimurinn hefur horft á
okkur,“ sagði séra Gimenez, prestur
í 5000 manna söfnuði á Virginia
Beach og upphafsmaður hugmynd-
arimiar um ráðstefnuna sem stóð í
Washington, höfuðborg Bandaríkj-
anna, dagana 28. apríl til 5. maí. For-
svarsmenn ráðstefnunnar sögðu að
hvatinn að samkomunni væri sú trú
að kristin kirkja bæri mikla ábyrgð.
Hún þyrfti að viðurkenna mistök sín
og syndir og leita ráða við félagsleg-
um, efnahagslegum og andlegum
vandamálum sem hrjá bandarísku
þjóðina og heiminn allan og samein-
ast í bæn fyrir raunhæfum lausnum.
Tilgangur ráðstefnunnar var að
safna miklum fjölda fólks til bæna,
iðrunar og sáttargjörðar. Ráðstefnan
bar heitið „Washington for Jesus
88“ og var sótt af fólki frá öllum fylkj-
um Bandaríkjanna og yfir 114 þjóð-
um víðs vegar að úr heiminum, fólki
frá öllum kirkjudeildum og kynþátt-
um veraldar.
í ljósi nýlegra hneykslismála í röð-
um kristinna sjónvarpspredikara
gerðu Gimenez og samstarfsfólk
hans sér vonir um að hundruð þús-
unda kæmu þarna saman til bæna
og iðrunar. Og þeim varð að ósk sinni
þrátt fyrir að þennan föstudag væri
veðrið í Washington ekki sem best -
köld gola og smáskúrir um miöjan
daginn.
Auk áherslunnar á bæn og iðrun
var sáttargjörð milli fólks af ólíkum
htarhætti og frá hinum ýmsu kirkju-
deildum ofarlega á baugi.
og söngvarar. Allt kvöldið og nóttina
áður en ráðstefnan hófst stóð þar
reyndar yfir samfehd dagskrá krist-
inna tónlistarmanna sem dró að
íjöldamargt ungt fólk.
Kostnaður við ráðstefnuhaldiö var
áætlaður 2 milljónir dollara en varð
í reynd nokkru lægri og var greiddur
að fullu með þátttökugjöldum og
gjöfum þátttakendanna.
í tengslum viö „Washington for
Jesus 88“ var haldin þriggja daga
alþjóðleg ráðstefna kristinna leið-
toga undir forsæti Loren Cinning-
ham, stofnanda kristniboðshreyfing-
Söngvarinn Pat Boone ávarpar ráð-
stefnuna.
Hundruð þúsunda sóttu ráðstefnuna Washington for Jesus 88.
Kirkjan og pólitíkin
Ráðstefnan dró ekki taum neins
stjórnmálaflokks - þarna var fólk
bæði úr röðum demókrata og repú-
blikana og því ekki hægt að stimpla
hana sem „kristnu hægribylgjuna"
eða „nýju hægribylgjuna“.
En þótt ráðstefnan væri ekki
flokkspólitísk og enginn forsetafram-
bjóöendanna fengi að koma þar fram,
flutti Reagan forseti hvatningará-
varp til ráðstefnugesta og var það
sýnt á fjórum stórum sjónvarps-
skjám sem komið hafði verið fyrir á
svæðinu. Einn aðstandenda „Was-
hington for Jesus 88“, Ted Pantaleo,
sagði eftir sams konar ráðstefnu sem
haldin var í Washington D.C. árið
1980: „Ég álít að Reagan hafi unnið
forsetakosningarnar vegna þess sem
þar gerðist.“ Á ráðstefnunni árið
1980 var Jimmy Carter, þáverandi
forseti, beðinn um að ávarpa ráð-
stefnugesti en hann varð ekki við
þeirri ósk.
Lyftistöng fyrir
Pat Robertson?
Sumir fjölmiðlar hafa gagnrýnt
„Washington for Jesus 88“ og talið
ráðstefnuna eiga að vera lyftistöng
fyrir sjónvarpspredikarann og repú-
blikanann séra Pat Robertson sem
tekiö hefur þátt í forsetakosningun-
um að þessu sinni en hefur ótvírætt
beðið Iægri hlut fyrir þeim Robert
Dole og Bush, flokksbræðrum sín-
um. Sú rödd hefur heyrst að „Was-
hington for Jesus 88“ eigi að greiða
götu séra Robertsons í forsetakosn-
ingunum árið 1992.
Kristnir úr öllum röðum
Skipuleggjendur ráðstefnunnar
sögðu það út í hött aö reyna að
„stimpla" alla ráðstefnugesti bók-
stafstrúarmenn, evangelíska, karis-
matíska eða eitthvað annað vegna
þess að þarna var líka margt fólk úr
röðum kaþólskra og biskupakirkju-
manna. Það sem sameinaði þennan
fjölda var sú játning og trú að Jesús
Kristur er Drottinn og því væri að-
eins einn samnefnari fyrir þennan
annars ólíka hóp, og það væri orðið
„kristinn".
Mikill aðbúnaður -
fjölbreytt dagskrá
Stóru sviöi var komið fyrir á The
Mall, framan við Smithsonian kast-
alann. Geysimiklir hátalarar trón-
uðu til beggja hhða við sviðið en fjær
var komið fyrir fjórum stórum sjón-
varpsskjám til þess að allir gætu
fylgst með því sem gerðist á sviðinu.
Þar fluttu um 140 þjóðkunnir kristn-
ir leiðtogar stutt ávörp og bænir, en
þess á milli komu fram hljómsveitir
arinnar Youth With A Mission (Ungt
fólk með hlutverk). Þá rástefnu sóttu
yfir 1000 leiðtogar úr öllum heims-
hornum. Þar var umræðuefnið
hvernig kristin kirkja geti orðið
áhrifameiri á sviði þjóðfélagsmála og
stuðlað að meira réttlæti í heiminum
og um leið flýtt fyrir útbreiðslu
kristninnar um heiminn.
Hin mikla þátttaka í „Washington
for Jesus 88“ virðist ótvírætt benda
til þess að kristnar kirkjur og hreyf-
ingar í Bandaríkjunum séu að rétta
úr kútnum eftir bakslagið sem nýleg
hneykslismál sjónvarpsprestanna
Jim Bakkers og Jimmy Swaggarts
ollu.
Friðrik Schram
INNRÖMMUN
Sérverslun
með
innrömmunarvörur
Tilbúnir álrammar
Litir: Gull, silfur og grátt Stærðir:
13x18cm 29,7x42cm 50x60cm
15x21 cm 34x40cm 50x70cm
18x24cm 40x40cm 56x71 cm
20x25cm 30x45cm 60x80cm
21 x29,7cm 40x50cm 62x93cm
24x30cm 41x61cm 70x90cm
28x35cm 42x59,4cm 70x1 OOcm
35x35cm 50x50cm 60x90cm
30x40cm 46x61 cm
Smellurammar
Stórkostlegt úrval
af Gallerí
plakötum
Alhliða innrömmun Næg bilastæði
RAMMA A
MIÐSTOÐIN ^
' Sigtúni 10 - sími 25054
Skáhallt á móti Bilaþvottastöðinni Blika
/