Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Qupperneq 28
28
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
Sérstæð sakamál
Dauðínn þurrkaði út skuldina
I mars á síðasta ári bjargaði Matt
Paterson lífi Helenar Niland. Hann
var þá fjörutíu og sex ára en hún
tuttugu árum yngri. fíann varð ást-
fanginn af henni, en svo komu upp
erfiðleikar á milli þeirra og þeir áttu
eftir að hafa afleiðingar sem enginn
hefði getað séð fyrir.
Að kvöldi 10. mars í fyrra var Matt
Paterson á leið héim til sín, en hann
bjó í Chesterfield á Englandi. Klukk-
an var að verða átta um kvöldið og
hann var þreyttur. Matt var pípu-
lagningamaður og hafði verið að
setja miðstöðvarhitun í hús í ná-
grenninu. Er hann hafði ekið um
hríð fór hann framhjá bíl sem lá úti
í skurði og í fyrstu véitti hann honum
enga sérstaka athygli, en svo sá hann
að afturljósin loguðu. Þá stöðvaði
hann bíl sinn og gekk að htla Mini-
bílnum sem lá utan vegarins.
Meðvitundarlaus ung kona lá fram á
stýrið í Minibílnum og úr enni henn-
ar blæddi. í fyrstu ætlaði Matt að
reyna aö ná henni út en hann gat
engar dyr opnað. Þá kom honum til
hugar að brjóta rúðu en hætti við
þaö, því hann óttaðist að um innri
meiðsli gæti verið að ræða og því
væri best að hreyfa sem minnst við
konunni. Hann hélt því til húss sem
var um hálfan kilómetra frá og
hringdi á lögreglu. Fljótlega komu
svo lögreglubíll og sjúkrabíll á vett-
vang og skömmu síðar var unga kon-
an komin á sjúkrahús. Þar var hún
rannsökuð í skyndi og kom þá í ljós
að annað nýrað var sprungið og
sömuleiðis miltað.
Helen Niland
vaknaöi nokkru síðar til lífsins
og fékk þá að vita hvað gerst hafði.
Þá varð henni ljóst aö hún mátti
þakka Matt Paterson að hún var enn
á lífi. Hefði hann ekki komið að á
þessari stimdu hefði hún að öllum
líkindum verið látin áður en hún
hefði komist á sjúkrahús.
Um hálfum mánuði síðar, þann 28.
mars, fékk Helen að fara af sjúkra-
húsinu. Þá tók hún leigubíl og ók
heim til Matts Patersons til þess að
þakka honum lífgjöfina.
Er Helen hitti Matt á heimili hans
faðmaði hún hann að sér og sagöi að
hún gæti aldrei endurgoldið honum
það sem hann hefði gert fyrir hana.
Viðstödd voru kona Matts, Sylvia,
sem var ijörutiu og fimm ára, og son-
ur þeirra, Derrick, sautján ára. Matt
hafði þá að sjáifsögðu sagt þeim frá
því sem gerst hafði en engu að síður
komust mæöginin við er þau sáu hve
þakklát unga konan var. Sylvía bauö
henni til kvöldveröar og seint um
kvöldið ók Matt henni svo heim til
sín.
Aldrei ótrúr konu sinni
Þegar Helen steig út úr bíl Matts
kyssti hún hann á kinnina og þakk-
aði honum á ný lífgjöfina. Svo bætti
hún því við aö hún byggi ein og lang-
aði hann til þess að fá sér í glas með
henni, væri hann velkomin. Augna-
tíliit hennar fék Matt til þess að trúa
því að hún ætti við annaö og meira
en drykk.
Á leiðinni heim velti Matt þessum
orðum hennar fyrir sér og þá hélt
hann aö ímyndunaraflið væri að
hlaupa með hann í gönur. Hún var
yngri en hann og í þau tuttugu og tvö
ár sem hann hafði veið kvæntur
hafði hann aldrei haldið framhjá
Sylvía Paterson og sonurinn Derrick.
konu sinni. Þá fann hann á þessari
stundu heldur enga sérstaka löngun
til þess.
Heim til Helenar
Nokkrum dögum síðar var Matt
Paterson þó kominn að dyrum íbúð-
ar Helenar. Var það forvitni sem rak
hann þangað? Hafði hann þörf fyrir
að tala við einhverja aðra en konu
sína? Eða gat það verið að hann lang-
aöi til þess aö sýna að hann gæti feng-
ið konu, sem var svona miklu yngri,
tíl lags við sig? Matt hefur oft reynt
að finna svar við þeirri spumingu
síðan, en hvað svo sem það var sem
fékk hann til þess að heimsækja Hel-
en þetta kvöld varð afleiðingin sú að
hann fór upp í rúm með henni og var
hjá henni fram yfir miðnætti. Sylvía
kona hans trúði skýringu hans, enda
hafði hann aldrei gefið henni tilefni
til þess að vera með grunsemdir í
hans garð vegna annarra kvenna.
Þremur vikum síðar, og eftir
nokkra ástarfundi með Helen, fannst
Matt að hann yrði að segja konu sinni
sannleikann. Þó var hana ekki farið
að gruna neitt og ef til vill hefðu aldr-
ei vaknað neinar grunsemdir með
henni, en nú var hins vegar svo kom-
ið fyrir Matt að hann vildi fara frá
konu sinni til þess að taka saman við
Helen.
Það sem Matt sagði Sylvíu varð
henni mikiö áfall en hún bauðst þó
til þess að fyrirgefa honum ef hann
héti því að eiga ekki fleiri fundi með
Helen Niland. Allt kom þó fyrir ekki
því Matt var búin að taka sína
ákvörðun.
í upphafi gekk allt vel fyrir þeim
Matt og Helen. Er þau höfðu búiö
saman í hálft ár fóru þó ýmiss konar
vandamál að gera vart við sig. Helen
hafði þá fengið að finna fyrir því hve
mjög það skertí fjárráð Matts að
þurfa að greiða mánaöarlega til konu
sinnar og sonar. Var hún þá komin
að þeirri niðurstööu að það tæki
Matt langan tíma að kaupa fyrir þau
íbúð en að auki var Matt heimakær
og vildi helst sitja fyrir framan sjón-
varpið á kvöldin. Helen var aftur á
móti gefin fyrir það að fara út og
skemmta þér.
Helen verður þreytt
Um þetta leyti fór Helen að hafa
á því orð við Matt að hann ætti að
taka saman við konu sína á nýjan
leik. Hann sagði hins vegar viö Helen
að hann væri búinn að færa svo
miklar fórnir hennar vegna að hann
myndi aldrei fara frá henni. Hann
hefði yfirgefið konu og son og að
auki ætti Helen sér lífið aö þakka.
Hún yrði að endurgjalda sér það meö
ást sinni. Helen gerði honum aftur á
móti ljóst að hún heföi ekki mikla trú
á því aö þau gætu orðið hamingju-
söm til frambúðar.
Helen verður ástfangin
Sannleikurinn var líka sá aö Hel-
en gat ekki endurgoldið ást hans
lengur því hún var orðin ástfangin
af öðrum og yngri manni. Hann hét
Douglas Beckwith, var tuttugu og níu
ára og átti miklu meira sameiginlegt
með henni en Matt og vann að auki
í sama fyrirtæki og hún. Hún hafði
þekkt hann í ár og þau byrjuðu að
fara út saman í nóvember í fyrra eða
um sjö mánuðum eftir að Helen fór
aö búa með Matt.
Douglas Beckwith vissi um sambúð
Helenar og Matts og bað hana um
að binda enda á hana. En af ein-
hveijum ástæðum dró Helen að segja
Matt frá Douglas.
Grunsemdir vakna með
Matt
Eftir nokum tíma fannst Matt
eitthvað einkennilegt við hegðan
Helenar og fór hann þá að gruna að
ekki væri allt með felldu um fjarvist-
ir hennar að heiman. Það var þó
ekki fyrr en á jólunum, er Matt kom
í heimsókn til konu sinnar fyrrver-
andi, Sylvíu, að hann fékk staðfest-
ingu á því að Helen væri með öðrum
manni. Sylvía sagði honum þá frá
sambandi Helenar við yngri mann
og sagðist hafa séð þau saman á krá
kvöldiö áður.
4. janúar byrjaði Helen að vinna eftir
áramótafríiö. Þann dag beið Matt í
leyni fyrir utan skrifstofu hennar er
hún kom frá vinnu. Hún birtist með
Douglas Beckwith við hhð sér en
hann ók þeim heim til hans og þar
fyrir utan beið Matt í tvær stundir.
Þá birtíst Helen á tröppum hússins
ásamt Douglas sem kvaddi hana meö
kossi. Fór hún svo að leita aö leigubíl.
Er Helen kom heim var Matt kom-
inn þangað nokkrum mínútum á
undan henni. Þá var klukkan um
átta um kvöldið.
Örlagastundin í lífi Matts og Helen-
ar var nú runnin upp. Hann spurði
hana hvar hún hefði verið og svaraði
hún þvi þá til að hún hefði farið á
krá með nokkrum vinkvenna sinna.
Matt kreppti hnefana því hann vissi
að hún var að segja ósatt en það var
sama hve oft hann spurði hana. Hún
vildi ekki segja honum sannleikann
og allt í einu varð Matt gripinn svo
mikilli reiði að hann missti alla
stjórn á sér. Hann fór að slá Helen
og sparka í hana og því hélt hann
áfram þar tíl hún var látín.
Játaði verknaðinn
Matt hringdi skömmu síðar til
lögreglunar og tilkynnnti um verkn-
aðinn. Hún kom þegar á vettvang og
þá reyndi hann að gera grein fyrir
því sem gerst hafði. Hvernig mátti
það vera að unga konan, sem hann
hafði bjargað frá dauða, skyldi nú
hggja liöið lík við fætur hans? Þeirri
spurningu hefur hann ef til vill ekki
getað svarað enn.
Á lögreglustöðinni gaf Matt Paret-
son nákvæma skýrslu og um leið var
hann settur í tveggja daga varðhald.
Þegar hann kom svo fyrir rannsókn-
arrétt, lýstí hann þegar í stað sök á
hendur sér. Síðan tók við lengra
varðhaid sem vara mun þar til dóm-
ur verður kveöinn upp í máli hans.
Lögin gera ráð fyrir að dæma megi
hann í allt að fimmtán ára fangelsi.
Matt Paterson stendur því í stórri
skuld þótt verknaöurinn sem hann
gerðist sekur um hafi þurrkað út
skuld þá sem Helen Niland stóð í við
hann.