Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Page 29
8S
p«pr TMT'TT, t UITOAnflA.niIA.I
LAUGARDAGUR 4. JÚNl 1988. 29
Hinhlidin
• Guðlaugur Bergmann var einn af þeim sem opnuðu Norðurá í Borgarfirði i liðinní viku. Hér sést hann
ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Guðjónsdóttur sem heldur á vænum laxi sem tók hjá Guðlaugi á Bryggjunum.
DV-mynd G. Bender
„Stefni að því
að léttast á
þessu ari"
segir Guölaugur Bergmann, verslunarmaður og laxabani
„Ég veiddi minn fyrsta
lax í Ölfusá á heimatil-
búna stöng þegar ég var
átta eða níu ára gamall,“
segir Guölaugur Berg-
mann sem margir segja
aö sé einn snjallasti lax-
veiðimaður landsins.
Laxveiðitímabilið er
hafið og Guðlaugur var
einn af mörgum veiði-
mönnum sem opnuðu
Norðurá í Borgarfirði.
Eins og kom fram í DV í
vikunni fékk Guðlaugur
vænan fisk fyrs.ta daginn
og naut þar dyggrar að-
stoðar konu sinnar, Guð-
rúnar Guðjónsdóttur,
sem fylgir bónda sinum
jafnan við veiðar á sumr-
in. Við slógum á þráðinn
upp í veiðihúsið í Norð-
urá í vikunni og svör
Guðlaugs fara hér á eftir:
Fullt nafii: Guölaugur Bergmann.
Fæðingardagur og ár: 20. október
1938.
Maki: Guðrún Guðjónsdóttir.
Börn: Fimm, Ragnar, Ólafur, Daní-
el, Guöjón og Guðlaugur.
Biflreiö:Langur Pajerojeppi, árgerð
1985.
Starf: Verslunarraaður.
Laun: Ura 200 þúsund á mánuöi.
Annars bý ég til mín laun sjálfur
og þau geta verið mismunandi.
Áhugamál: Ég er mikill áhugamað-
ur um veiði, félagsmál og þjóðmál
ásarat mörgu fleiru.
Hvað hefur þú fengiö margar tölur
réttar í lottóinu? Eg spfla aldrei í
lottói.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Lifa lífinu.
Hvaö finnst þér leiðiniegast að
gera? Mér finnst leiðinlegast að
þurfa að sofa þegar sólin er sem
hæst á lofti.
Umsjón:
Stefán Kristjánsson
Hvað er þaö neyðarlegasta sem fyr-
ir þig hefur komið? Ætli það sé
ekki þegar ég átti Wagoneer jep-
pann og þaö sprakk þrívegis hjá
mér þegar ég var að aka á milli
veiðistaða.
Uppáhaldsmatur: íslenskur lamba-
hryggur.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íslenskur íþróttamaður
stendur fremstur í dag? Ætli þeir
séu ekki jafnir í efsta sætinu Ás-
geir Sigurvinsson og Arnór Guöjo-
hnsen.
Uppáhaldstímarit: Ég les aldrei
tímarit en þú getur sagt Veiðimað-
urinn.
Fallegasta kona sem þú hefhr séö
fyrir utan konuna þína: Eli2abeth
Taylor.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjóm-
inni: Hlutlaus.
í hvaða sæti hafnar íslenska lands-
liðið í handknattleik á ólympíuleik-
unum? Ég vona aö það haldi sjötta
sætinu frá síðustu heimsmeistara-
keppni.
Hvaöa persónu langar þig mest til
aö hitta? Hún heitir. Margaret
Thatcher.
Uppáhaldsleikari: Þeir era margir
góöir, ég segi Paul Newman.
Uppáhaldssöngvari: Ég sjálfur þeg-
ar ég er í góðu skapi.
Uppáhaldsstjómmálamaöur:
Steingrímur Hermannsson.
Hlynntur eða andvigur bjórnum:
Hlynntur.
Hlynntur eöa andvígur veru vam-
arliðsins hér á landi: Hlynntur.
Hver útvarpsstöðvanna finnst þér
best? Ég hlusta lítið á útvarp. Æth
það sé ekki bara sú stöð sem ég
hitti á hvetju sinni þegar ég leita á
tækinu í bílnum.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Get ekki
gert upp á milli Páls Þorsteinsson-
ar og Hallgrims Thorsteinssonar.
Hvort er í meira uppáhaldi hjá þér,
Sjónvarpið eða Stöð 2? Ég kann
betur viö Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Það
var Ingvi Hrafn Jónsson.
Uppáhaldsskemmtistaöur. Norð-
urá.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR, KR
og aftur KR.
Eitthvað sérstakt sem þ. -.tefnir að
á þessu ári: Að léttast.
Hvað ætlar þú aö gera í sumarfrí-
inu? Veiöa lax.
-SK
TIL SÖLU
25 tonna LINK BELT
lítið notaður, í mjög góðu ástandi,
allur nýyfirfarinn.
Uppl. í síma 43722.
REYKHOLT
Tiiboð óskast í að fullgera 1. hæð, einangrun og lagnir í
kjallara og 2. hæð í húsi A, mötuneytishúsi, í Reykholti í
Borgarfirði.
Flatarmál 1. hæðar er 598 m2 en hússins alls um 1600
m2. Einangrun útveggja er um 620 m2 og múrhúðun
útveggja um 250 m2.
Verkinu í heild skal lokið fyrir 1. júní 1989, en hluta verks-
ins fyrir 1. september 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni
7, Reykjavík, til og með 10. júní 1988 gegn 10.000 kr.
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 21. júní 1988 kl. 14.00.
II\II\IKAUPAST0FI\IUI\1 RÍKISIIMS
__________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Sumartími í HAGKAUP
verslanir verða opnar sem hér segir:
Skeifan
mánud. - fimmtud. .........9 - 1830
föstud.........9 - 21
laugard..........lol^að
, »• '’0\
, Kringlan
mánud - fimmtud. ........10 - 19
föstud.........10 - 21
laugard............lokað
Kjörgarður
mánud. - fimmtud...,.....9 - 18..
föstud.........9 - Í’9;.
laugard.........lokað
Njarðvík
mánud. - fimmtud.......10 - 19
föstud.....10 -20
laugard.......10 - 14
Akureyri
mánud. - miðvikud.......9- 18
fimmtud.........9 - 20
föstud..9 - 19
laugard.lokað
HAGKAUP