Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Síða 35
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
47
ffinn bráðefnilegi leikmaöur í
3. flokki Breiðabliks, Arnar Grét-
arsson, gerði það heldur betur
gott á gervigrasvellinum þegar
Blikarnir mættu ÍR í keppni ann-
arrar deildar islandsmótsins.
Drenguriim breytti gjörsamlega
öllu spili Kópavogsliðsins. Hann
lagði upp hvern boltann á íætur
öðrum og skapaði mikla hættu
við mark ÍR-inga. Arnar innsi-
glaði síöan 3-0 sigur Breiðabliks
með góðu marki undir lokin.
Þessi frammistaða Arnars kemur
í sjálfu sér ekki á óvart því hann
hefur sýnt það á sínum stutta
ferh að þar er roikið efni á ferð-
inni. Amar hefur gengið í Knatt-
spyrnuskóla KSÍ og leikiö dren-
gjalandsleiki og staöið sig frábær-
lega vel.
Arnar er aðeins 15 ára. Hann
var við æflngar og keppni með
unglingaliði Glasgow Rangers sl.
vetur og vildu skoskir ólmir gera
samning viö hann en Arnar hafn-
aði. Ef að líkum lætiu- verður
þessi snjalli leikmaður horfinn
út í atvinnumennskuna fyrr en
varir.
-HH
Arnar Grétarsson, Breiðabliki.
Teljið upp að tuttugu
-lengurefmeðþarf
Það fór heldur illa fyrir Pétri Sig-
urðssyni, leikmanni í 2. fl. Þróttar,
á Reykjavíkurmótinu. Honum
sinnaðist við dómara leiksins,
Kjartan Ólafsson og jós yfir hann
möl og einhverju fleiru, að því er
sagt er, og fékk fyrir vikið 6 leikja
bann hjá aganefnd KKR. Þessi
dómur tekur ekki yflr leiki í ís-
landsmóti svo að öllum líkindum
tekur Pétur út hluta leikbanns á
næsta keppnistímabili.
Já, það getur verið afdrifaríkt
þegar adrenalínið streymir í of
stórum skömmtum út í blóðið og
hvetur menn til árása. - Hvað er
til ráða? spyrja menn. Læknar hafa
engin svör við þessum ósköpum.
Það mætti segja mér að eina ráðið
viö þessum líkamlegu hamförum
væri einfaldlega að bíta á jaxhnn
og telja í hljóði upp að tuttugu - eða
jafnvel lengur ef með þarf. Hvað
er annaö hægt að gera í stööunni?
Knattspyrnumenn yngri flokka,
verið því duglegir að telja í sumar.
-HH
Knattspyma unglinga
Víkingar Reykjavíkurmeistarar
Reykjavíkurmeistarar Víkings 1988 í A-liði: Fremri röð frá vinstri: Hallsteinn Arnarsson, Róbert Sighvatsson, Arni Egilsson, Páll Guðmundsson, ívar
Bergsteinsson, Lúðvík Bragason, Jóhannes H. Jónsson og Haraldur Haraldsson. Aftari röð frá vinstri: Hallur Arnarsson þjálfari, Björn Einarsson, Arnar
Arnarsson, Magnús Guðmundsson, Úlfur Jónsson, Sigurður Sighvatsson, Kristinn Bjarnason, Þórður Jónsson, Ingimundur Helgason og Agnar Arnars-
son liðsstjóri. DV-mynd HH
2. flokkur karla - A-lið:
- sigruðu Fylki, 3-0
2. flokkur Víkinga, A-lið, sigraði
Bylki, 3-0, i síðasta leik sínum í
Reykjavíkurmótinu. Með þessum
heimasigri sínum innsigluðu strák-
arnir sigur í Reykjavíkurmótinu.
Víkingar urðu einnig sigurvegarar í
B-hði og er því greinilegt að meist- Staðan í leikhléi var 1-0. Mörk Vík- þunnskipaöan hóp að ræða.
araflokkur hefur gildan sjóð leik-
manna til að vinsa úr á komandi tím-
um.
Fylkisstrákarnir börðust eins og
ljón allan leikinn en gegn sterkri liðs-
heild Víkinganna dugði þaö skammt.
inga gerðu þeir Úlfar Jónsson, 2, og
Þórður Jónsson, 1 mark.
Athygli vekur hinn breiöi hópur
leikmanna í 2. fl. hjá Víkingum,
gagnstætt því sem er hjá mörgum
öörum félögum. Víðast hvar er um
Það verður fróðlegt að fylgjast með
hvernig strákunum vegnar í íslands-
mótinu.
-HH
<
4. flokkur A:
Sannfærandi sigur Fram og meistaratitillinn í höfn
Framarar tefla fram mjög öflugum
4. flokki í ár og sannaðist það ræki-
lega þegar þeir mættu KR-ingum á
útivelli 26. maí sl. Fram-liðið er skip-
*t,Í! 'a- //'
- Dómari, þú verður að
stoppa leikinn, maður!
Sérðu ekki að ég er með
allt niðrum mig!!!
Gústi
„sweeper
Þjálfarinn sagði um daginn
að við hefðum verið bestir í
leikhléinu! Þvílíkt rugl!!!
að sterkum einstaklingum og leggja
strákarnir sig mjög fram um aö leika
góða knattspyrnu. Liðið er nokkuð
jafnt en þó held ég að það sé-á engan
hallað þótt Guðmundur Benedikts-
son sé settur í sérflokk því drengur-
inn er sérlega útsjónarsamur leik-
maður, auk þess að vera langmarka-
hæstur allra á Reykjavíkurmótinu,
með 24 mörk.
KR-strákarnir börðust vel í leikn-
um en að þessu sinni mættu þeir
ofjörlum sínum. Mörk Framara
gerðu þeir Guðmundur Benedikts-
son, 4 mörk, og Arnar Arnarsson, 1
mark. í leik B-liða sigraði KR, 2-1.
Fram-ÍR (A), 5-0
Þann 28. maí sl. mættu svo Fram-
arar ÍR á heimavelli og var það síð-
asti leikur þeirra á Reykjavíkurmót-
inu. í leik A-liða sigruðu Framarar,
5-0, og geröi hinn marksækni Kjart-
an Hallkelsson 2 mörk, Arnar Arn-
arsson, Ásbjörn Jónsson og Guð-
mundur Benediktsson 1 mark hver.
Þeir virðast svo sannarlega ekki vera
á flæðiskeri staddir með markaskor-
ara, Framararnir.
Með þessum sigri sínum á ÍR inn-
sigluöu Framstrákarnir sannfær-
andi sigur sinn á Reykjavíkurmót-
inu. í leik B-höa sigruðu Framarar
einnig, 6-2.
í keppni B-hða urðu KR-ingar
Reykjavíkurmeistarar. . ■
Vegna plássleysis verður mynd af
Reykjavíkurmeisturm Fram í 4.
flokki að bíða næsta laugardags.
-HH
„Þið eruð lakari núna en
þegar þið voruð í 5. flokki"
Lúðvík Amarson, leikmaður í 4.
flokki FH, er einn þeirra drengja sem
mættur er á úrtökumót drengja-
landsliðsnefndar sem snýr að Knatt-
spyrnuskóla KSÍ. Hann lék með 5.
flokki FH1986 þegar strákarnir urðu
íslandsmeistarar og var einn af mátt-
arstólpum liösins. En hvað segir
Lúðvík um gengi liðsins eftir að
strákarnir komust á 4. flokks aldur-
inn?
Misjafnt gengi í 4. flokki
„Þegar við lékum í 5. fl. var eins
og allt gengi upp. . Foreldrarnir
studdu okkur gífurlega án þess þó
aö íþyngja okkur um of. Það small
allt saman. Eftir að 4. fl. tók við hef-
ur velgengnin ekki verið eins mikil.
Það er dálítið erfitt að gera sér grein
fyrir því hvers vegna svo er. Við er-
um með góöan þjálfara, en það er
Úlfar Daníelsson, og var hann einnig
með okkur í 5. fl. þegar við urðum
íslandsmeistarar."
„Ekki eins góðir
og í 5. flokki“
„Þeir sem standa nálægt liðinu
geta á stundum verið ansi harðir í
gagnrýni sinni, eins og til dæmis eft-
ir leik á Faxamótinu gegn Breiða-
bliki, sem við reyndar unnum 1-0 í
afspyrnuslæmu veðri sem átti auð-
vitað sinn þátt i hvernig leikurinn
þróaðist. Eftir leikinn kom einn
stuðningsmanna inn í klefa til okkar
og sagði svo allir heyrðu: Þetta var
lélegur leikur hjá ykkur, strákar. Þið
eruð miklu verri núna en þegar þið
voruð í 5. flokki.
Það er náttúrlega ekkert gaman að
fá svona framan í sig. Við strákarnir
gerum okkur fyllilega ljóst að það er
ekki alltaf hægt að sigra og hlustum
bara á gagnrýni þjálfarans. Hitt lát-
um við sem vind um eyru þjóta. Það
er nefnilega býsna stórt mál aö flytj-
ast upp um flokk og lenda oftast á
móti strákum á eldra ári. Við erum
harðánægðir hjá FH og meö þjálfar-
ann og við skulum bara bíða og sjá
til,“ sagöi Lúðvík að lokum.
Lúðvík Arnarson, 4. fl. FH.