Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Side 36
48
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
Kasparov nálgast Fischerstyrk
sigraði glæsilega á fjögurra manna móti í Amsterdam
Heimsmeistarinn í skák, Garrí
Kasparov, bar höfuð og herðar yfir
keppinauta sína á íjögurra manna
móti í Amsterdam sem lauk sl.
sunnudag. Er yfir lauk hafði Kasp-
arov tveimur og háifum vinningi
meira en landi hans Anatoly
Karpov og innbyrðis úrslit þeirra'
irnðu 3-1 Kasparov í vil.
Mótið sprengdi kvarða alþjóða-
skáksambandsins, var í 17. styrk-
leikaflokki af 16 mögulegum! Auk
K-anna tveggja tóku þátt hollensku
stórmeistaramir Jan Timman og
John van der Wiel. Mótið var hugs-
að sem nokkurs konar landskeppni
Sovétríkjanna og Hollands en í
þeim skilningi varð keppnin þó
aldrei spennandi. Van der Wiel var
bersýnilega lakastur fjórmenning-
anna en tvo af þremur vinningum
sínum hirti hann af landa sínum
Timman.
Kasparov hlaut 9 vinninga í 12
skákum (tefldar voru flórfaldar
umferðir) sem er sérdeilis glæsileg-
ur árangur. Hann vann eina skák
af Timman, tvær af Karpov og þrjár
af Van der Wiel. Öðrum skákum
Kasparovs lauk með jafntefli en
eins og heimsmeistara sæmir tap-
aði hann ekki skák. Sigur hans á
mótinu hlýtur því að teljast afar
verðskuldaöur. Um 2. sætið börð-
ust Karpov og Timman og hafði
Karpov betur, hlaut 6,5 vinninga
en Timman 5,5 v. Innbyrðisskákum
þeirra lauk öllum með jafntefli en
Karpov markaði betur á Van der
Wiel, leyfði aðeins eitt jafntefli gegn
honum í fjórum skákum en með
Hollendingunum tveimur var hins
vegar jafnræði.
Þessi yfirburðasigur Kasparovs
leiðir hugann ósjálfrátt að öðrum
snillingi skákarinnar sem var
þekktur fyrir allt annað en meðal-
mennsku. Sá er huldumaðurinn
Bobby Fischer sem hætti opinber-
lega að tefla eftir heimsmeistara-
einvígiö við Spassky í Reykjavík
1972. Fischer er í felum í Pasadena
í Kaliforníu og enginn veit hvort
hann er með hálfum eða öllum
mjalla. Þó koma upp sögusagnir
um meistarann öðru hveiju sem
flestar benda til að hann fylgist
grannt með öllu sem gerist á skák-
sviðinu og hafi aldrei verið sterk-
ari. Spassky mun hafa heimsótt
hann sl. haust en harni er þögull
sem gröfin um það hvað þeim fór
í milli. Annars mun Spassky hafa
í hyggju að setjast að í Kaliforníu
í eitt ár sem sumir segja að sé í
beinum tengslum við endurkomu
Fischers í skákheiminn. Það er
önnur saga.
Fischer hefur átt flest Eló-stig
allra, 2785 stig, efdr að hafa þurrk-
að út Tajmanov og Larsen og leikið
Petrosjan grátt í áskorendaeinvígj-
unum 1971. Samkvæmt tölunum er
hann sterkasti skákmaður allra
tíma en vitaskuld verður að taka
slíkri fullyrðingu með fyrirvara
þar eð öll tormerki eru á að bera
saman meistara mismunandi tíma-
bila. Kasparov hefur 2750 stig og
eftir mótið í Amsterdam nálgast
hann stigatölu Fischers óðfluga.
Líklegt er að hann hafi bætt við sig
um 20 stigum frá því á stigahstan-
um 1. janúar. Karpov hefur 2715
stig en aðrir skákmenn hafa ekki
náð 2700 stiga markinu.
Skák
Jón L. Árnason
Mótið í Amsterdam þótti í dau-
fara lagi en innbyrðisbarátta
Karpovs og Kasparovs bætti það
margfalt upp. Einkrnn dró til tíð-
inda í skákum þeirra er Kasparov
hafði hvítt. Karpov beitti Caro-
Kann vöm í bæði skiptin en skák-
imar urðu þó ólíkar. í þeirri fyrri
lét Kasparov öllum illum látum og
fómaði tveimur mönnum fyrir
sókn en í seinni skákinni fór hann
sér hægar. Þrengdi smám saman
að Karpov uns hann gat sig hvergi
hrært.
Fyrri skák þeirra verður að telja
þá mögnuðustu sem þeir hafa
nokkm sinni teflt. Hún var miklu
fremur í anda rómantísku meistar-
anna heldur en rökhyggju nútím-
ans. Það var öllum ljóst sem á
horfðu að mannsfómir Kasparovs
stóðust ekki en hið ótrúlega gerðist
að Karpov fótaði sig ekki í vöm-
inni. Til að bæta gráu ofan á svart
féll hann svo á tíma er hann hafði
enn dágóða möguleika til að verj-
ast.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Caro-Kann vörn.
1. e4 c6. d4 d5 3. Rd2 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rf3
í seinni Caro-Kann glímu þeirra
félaga lék Kasparov 5. Rg5 og eftir
5. - RgfB 6. Bd3 e6 7. Rlf3 Bd6 8. 0-0
h6 9. Re4 Rxe4 10. Bxe4 0-0 11. c3
e5 12. Bc2 He8 13. Hel exd4 14.
Hxe8+ Dxe8 15. Dxd4 De7 16. Bf4
Bxf4 17. Dxf4 hafði hann þægilegri
stöðu og eftir slaka taflmennsku
Karpovs náði hann miklum þrýst-
ingi.
5. - RgfB 6. Rg3
Reynslan hefur sýnt að hvítur
hefur eftir litlu að slægjast eftir 6.
Rxf6 RxfB 7. c3 eins og Kasparov
og Karpov tefldu í tvígang í Sevilla
eða 7. Re5 Be6 eins og varð uppi á
teningnum í 3. einvígisskák Jó-
haxms og Kortsnojs í Saint John.
6. - e6 7. Bd3 Be7 8. 0-0 c5 9. De2 0-0
10. Hdl Dc7 11. c4 cxd4
Annar möguleiki er 11. - He8!?
sbr. gamla skák, Tal - Ciric, Budva
1967.
12. Rxd4 a6 13. b3 He8 14. Bb2 b6 15.
Rh5 Bb7
16. Rxe6?!
Ákaflega freistandi en fórnin
stenst því miður ekki.
16. - fxe6 17. Dxe6+ Kf8!
Karpov fellur ekki í gildmna 17.
- Kh8? 18. Df7! Rxh5 19. Dxh5 RfB
20. Df7 og vinnur.
18. Bxh7 Rc5
Og nú hafði Karpov vitaskuld
hvorki áhuga á 18. - Rxh5 19. Dg8
mát, né 18. - Rxh7 19. Bxg7 mát! í
stað þessa bægir hann hættunni frá
með ískaldri yfirvegun.
19. Dh3 Rxh7 20. Bxg7+ Kg8 21. Bb2
Dc6! 22. Hd4 Re4 23. Hel Reg5 24.
Dg4 Ba3! 25. Bc3
Ekki gekk 25. Hxe8 + Hxe8 26. Bc3
vegna 26. - Hel mát. Hvítur er glat;
aður og nú hefði Karpov getað gert,
út um tafliö í leiknum:
£ 1
£ 4
k Af
A 2
A.SA
A í i A A
2
ABCDEFGH
25.-Hxel + ?
Eftir 25. - Bb2! er ekki annað að
sjá en hvítum séu allar bjargir
bannaðar. Sem fyrr má ekki drepa
biskupinn vegna mátsins í borðinu.
Karpov teflir ekki sem nákvæmast
en vinningurinn er þó enn innan
seilingar.
26. Hxel He8 27. Bd2! Bcl 28. h4
Bxd2 29. Hxd2 Hel + ?
En nú fórlast honum alvarlega.
Með 30. - De4! myndi svartur án
efa tryggja sér sigurinn. T.d. 31.
Rf6+ Rxf6 32. Dxg5+ Kf7ogtjaldiö
fellur.
30. Kh2 He4? 31. f4 De6 32. Hd8+
Kf7 33. Hd7+! Kf8 34. Dxe6 Hxe6 35.
hxg5 He7 36. Hxe7 Kxe7 37. g4 Be4
38. Kg3 Bbl 39. a3
Og áður en Karpov náði að leika
39. - Ba2 40. b4 Bxc4 féll hann á
tíma! Úrsht þessarar skákar hljóta
að hafa verið mikið áfall fyrir
Karpov því að hann var algjörlega
heillum horfinn í seinni hluta
mótsins. -JLÁ
Sigursveitin komstbakdyramegin í úrslitin
Valur-Jón-Guðlaugur-Öm báru sigur
úr býtum í úrslitaleik við sveit Braga
Haukssonar í opnu móti Sparisjóðs Kópa-
vogs og Bridgefélags Kópavogs, sem hald-
iö var um sl. helgi.
Mótið var útsláttarmót með þeim fyrir-
vara að sveitir, sem slegnar voru út, áttu
aögang að úrslitunmn með því að spila í
samhliða sveitakeppni þeirra sveita sem
höfðu tapað leik. Leið þeirra félaga í úr-
slitin var einmitt þannig og í undanúrslit-
mn spiluðu þeir við Jón-Guðna-Anton-
ur Þórðaraon spila hér gagn Emi Amþórasynl og Guðlaugi R. Jóhannssyni.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Friðjón og sigruðu naumlega.
Hér er skemmtilegt skiptingarspil frá
þeim leik, sem bauö upp á ýmsa mögu-
leika fyrir báðar sveitir.
V/A-V
♦ 2
¥ KG65
♦ ÁD2
+ KG843
* KG53
¥ 3
♦ G8654
+ 752
♦ 76
¥ Á98
♦ K1097
+ D1096
♦ ÁD10984
¥ D10742
♦ 3.
♦ Á
vinna fimm spaða því sagnhafi nær að
trompa þijú hjörtu. Jón spilaði hins veg-
ar út trompi og þar með virtist spihð tap-
að. Friðjón drap í blindum og í stað þess
að spila hjarta, sem virðist eina vinnings-
vonin, þá spilaði hann tígU. Valur þorði
ekki að gefa og átti slaginn á ásinn. Hon-
um fannst hann nú þurfa að koma Jóni
inn til þess að trompa aftur út og spilaði
því hjarta. Jón átti slaginn á ásinn og
trompaði aftur út. Friðjón drap aftur í
blindum og spfiaði Utlu hjarta. Valur
þorði ekki að gefa, lét gosann og þar með
var spiUð unnið því Friðjón trompsvínaði
drottningunni næst.
Valur var of fljótur á sér þegar hann
var inni á tígulás. Það lá ekkert á því að
spUa hjarta. Hann gat spUað sig út á laufi
og eftir það var sagnhafi vamarlaus. Þeg-
ar hann spUar hjarta í ijórða slag fær Jón
slaginn á áttuna, trompar út og spiUð er
tapað.
Auðvitað gat Friðjón unnið spiUð með
því að spUa hjartadrottningunni í fimmta
slag, síðan tíunni næst og fríað þannig
sjöið. En hann kaus að spila upp á kóng-
inn þriöja hjá vestri eða gosann þriðja
hjá austri sem er í sjálfu sér ekkert verri
möguleiki.
I opna salnum sátu n-s Friðjón og Anton,
en a-v Jón og Valur. Þar gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Noröur Austur Suður
1L lSx) 2S dobl
pass pass 3L 4S
5L pass pass 5S
dobl pass pass pass
En víkjum í lokaða salinn. Þar sátu n-s
Guðlaugur og Öm en a-v Guðni og Jón.
A-v gátu passað út þrjá spaða:
Vestur Noröur Austur Suður
2L pass 3L dobl
pass 3T dobl 3H
dobl 3S pass pass
4L pass pass 4S
pass pass pass
x) spaði og annar Utvu1 Sannarlega skemmtUegt spU sem gaf
Ef ekki kemur tromp út er auðvelt að báðmn sveitum ýmsa möguleika.