Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1988, Page 41
S5
.8881 ÍMOl .1 HUDÁOflADU/ul
LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1988.
*----
LífsstOJ
Áður fyrr fór fólk í tjaldferðir og gisti einnig hjá ættingjum á leiðinni. Fjölmargir gistimöguleikar eru nú um land allt
og eru þeir óspart notaðir.
annað þvíumlíkt er á boðstólum en
allt kostar auðvitað pemnga.
Allir þurfa að borða, hvort sem
þeir feröast um landiö eða eru heima
hjá sér. Staðreyndin er sú að fólk
eyðir meira í mat í fríum en ella.
Pulsupakkinn kostar kringum 220
krónur en aðalréttur á betri veitinga-
stað úti á landi getur kostað frá fimm
hundruð og upp í tvö þúsund krón-
ur. Á þessu sést að munurinn á mat-
arkostnaði getur verið mikill. Ef
væntanlegir ferðamenn ætla að
halda eyðslu í lágmarki vegna matar-
kaupa er hægt að birgja sig að nesti
í stórmörkuðum þar sem verð er
hagstætt.
Þó að fiskibollur í dós og blávatn
úr lækjum landsins geti haldið lífi í
fólki um tíma má reikna með líflegri
matseðli hjá flestum. Hvaö kostar að
borða sunnudagsmat nokkrum sinn-
um í viku?
Ef ferðast er á eigin bíl er það held-
ur ekki frítt. Margur annar kostnað-
ur er af bílnum en bensínkostnaður-
inn einn.
Rútu-, flug- eða skipaferðir eru
einnig valkostur. Ekki skal það
reiknað inn í þau dæmi sem sett eru
hér upp. Mismunandi er hvort ferða-
menn sjá sér hag í því aö ferðast með
þessum samgöngutækjum. í sumum
tilfella getur verið hagstæðara aö
nota þessi farartæki heldur en eigin
bifreiðir.
Meiri kröfur
Lengri tjaldferðir, þar sem kulda,
rigningu og roki er gefið langt nef,
virðast vera á undanhaldi. Nútíma
ferðalangur nýtir sér betur þá fjöl-
mörgu gistimöguleika sem hafa
sprottið upp á síðustu árum. Kröf-
umar um þægindi eru meiri. Um leið
hækkar ferðakostnaðurinn.
Ekki verður hér lagt mat á hvort
dýrara sé að ferðast um landið held-
ur en að fara til útlanda. Til þess eru
ferðamöguleikar og kröfur um að-
búnað of mismunandi. Samt er Ijóst
aö dýrt er að ferðast um landið og
það jafnvel þó ferðast sé eins ódýrt
og unnt er. -EG.
Fleiri frídagar, betri vegir og auknir ferðamöguleikar hafa leitt til þess að
íslendingar fara meira um landið sitt en áður.
DV-mynd BG
Viö útreikning á ferðakostnaði
innanlands er margs að gæta. í
þeim þremur dæmum, sem við tök-
um hér, var reynt að fmna tölur
sem sannastar era. Ef mismunandi
valkostir voru fyrir hendi var sá
ódýrari ávallt tekinn. Á hinu ímyn-
daða ferðalagi var fjölskylda meö
tvö böm í hálfsmánaðar ferðalagj
um hringveginn.
Bifreiðakostnaöur
Haft var samband viö FÍB og
spurt ráöa um bifreiðakostnað viö
hringvegarakstur. Miðlungsstór
bíll varð fyrir valinu og var bensí-
neyðslan að meðaltali 9 litrar á
hundrað kflómetra. í kostnaðar-
tölu frá FÍB kom fram að bensí-
neyðslan rayndi nema 4.328 krón-
um.
Sumir telja aö rétt sé aö reikna
út allan kostnað af bílnum á því
tímabili sem hann er í notkun. Ef
slík leið er valin eru innifaldir allir
þeir kostnaðarþættir sem fylgja þvi
aö eiga bfl. Þannig væru skattar,
afskriftir, tryggingar og önnur
gjöld í tölunni ásamt viðhalds-,
dekkja- og bensinkostnaöL Ef þessi
aðferð væri notuð væri bifreiða-
kostnaðin- fjölskyldunnar á hring-
vegarakstrinum 26.448 krónur.
Hringvegurinn er reiknaður 1.402
km en miðað var viö 1.600 km akst-
ur. Þeim sem finnast háar tölur
lagðar til grundvallar viö útreikn-
ing á bifreiðakostnaði er bent á að
bera saman hvað kostar að fara um
landið með fjölskylduna með öðr-
um farartækjum en einkabflnum.
Matarkostnaður
Við útreiknaðan matarkostnað
var leitað til Leiðbeiningarstöðvar
húsmæðr a í þessum útreikningum
var gengiö út frá því að fjöiskyldan
gætti ýtrustu sparsemi við hráefn-
iskaup í nestið. Hin hagsýna hús-
móðir útbjó til dæmis sjálf áleggið
á brauöið og tók með sér ódýrt og
gott hráefhi til eldunar. Kostnaöur-
ixm, 800 krónur á dag fýrir fiöl-
skylduna, getur því tæpast talist
of hár. Reikna má með aö mun
fleiri láti eftir sér ýmsan lúxus í
fríinu. Þar sem aðkeyptur matur
frá hótelum og veitingastöðum
kemur inn í dæmið var notast við
þær upplýsingar sem eru fyrirliggj-
andi á þessum stöðum.
Gisting
Mjög mismunandi verðlag er á
gistingu víðsvegar um landið.
Reynt var að finna raunhæfar tölur
í þeim efhum. Til dæmis kom í flós
að þegar reiknaður var út kostnaö-
ur við svefnpokapláss fyrir fjöl-
skylduna á Edduhótelum var ódýr-
ara fyrir hana aö taka eitt tveggja
manna herbergi og fá lánaðar dýn-
ur handa bömunum en aö borga
fyrir svefiipokapláss handa öllum.
Annað
Annar kostnaður er reiknaður
sem 2.000 krónur á viku fyrir alla
fiölskylduna. Tefla má aö það sé
lágt, jafnvel fyrir sparsömustu fjöl-
skyldu.
I útreikningana eru ekki teknir
ýmsir möguleikar á dægrardvöl og
ferðum. Þarfir og áhugi á slíku er
svo misjafn að ógerlegt er að hafa
þann kostnað með, fólk veröur því
sjálft að bæta honum við.
-EG.
Tjald- og svefnpokagisting
Bifreiðakostnaður______4,328 kr.
Gistikostnaður________12.300 kr.
Matarkostnaður________19.000 kr.
Annað 4.000 kr.
Samtals 40.228 kr.
í gisikostnaði er reiknað með að
fjölskyldan tjaldi í níu daga og þar af
þurft hún að greiða tjaldstæði fyrir tvo
daga. Tvo daga gistir hún á Edduhóteli en
sökum þess að ódýrara er fyrir hana að
leigja eitt herbergi og fá dýnur lánaðar en
aðborga fyrir svefnpokapláss þá velur
hún þá leið. Tvo daga er gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins og einn dag í bænda-
gistingu.
Matinn sér húsmóðirin að mestu um sjálf
en morgunverður er borðaður á Eddu-
hótelum og bændagistingunni þegar
dvalist er þar. Þau borðuðu úti fjórum
sinnum á leiðinni og kostaði máltiðin að
meðaltali 500 krónur á mann.
Dvöl á hótelum og
sumargististöðum
Bifreiðakostnaður___4.328 kr.
Gistikostnaður 47.250 kr.
Matarkostnaður 79.800 kr.
Annað 4.000 kr.
Samtals 135.378 kr.
Nú gistir fjölskyldan sjö daga á sumar-
hóteli þar sem herbergi með einka-
snyrtingu verður fyrir valinu. Dvalist er á
betri hótelum hina sjö dagana.
Fullt fæði er tekið þar sem það er í boði.
Fjölskyldan borðar á veitingastöðum þá
sjö daga sem hún dvelst á hótelum og
kostar málsverðurinn að meðaltali 800 kr.
Morgunverður kostar alla dagana 400 kr.
á hvern fullorðinn og helmingi minna
fyrir bömin.
Dvöl á sumarhótelum og heimagistingu
Bifreiðakostnaður 4.328 kr.
Gistikostnaður 39.800 kr.
Matarkostnaður 59.200 kr.
Annað 4.000 kr.
Samtals OO C4 fO B
Hér dvelst fjölskyldan alla fjórtán dagana
á sumarhótelum og í heimagjstingu. Til
dæmis er hún fjóra daga í bændagistingu
og tvo daga á ódýru hóteli í þorpi úti á
landi. Valin eru ódýrari herbergi án einka-
snyrtingar. Morgim- og kvöldmatur er
keyptur á þeim stöðum sem gist er á.
Reiknað er með 500 krónum í snarl
handa fjölskyldunni í hádeginu.
Við útvegum yður
interRent bílaleigubíl
hvar sem er erlendis,
jafnvel ódýrara en nokkur
annar getur boðið:
Dæmi: í íslenskum
krónum m/söluskatti.
Ótakmarkaður akstur
DANMÖRK:
3 dagar = 5.314.-
7 dagar = 10.626.-
Aukadagur 1.512.-
ÞÝSKALAND:
3 dagar = 5.370.-
7 dagar = 8.990.-
Aukadagur 1.285.-
LUXEMBURG:
3 dagar = 5.260.-
7 dagar = 8.020.-
Aukadagur 1.150,-
Einnig bjóðum við úrval
húsbíla og campingbíla í
Þýskalandi.
interRent er stærsta
bílaleiga Evrópu.
Við veitum fúslega allar
upplýsingar og pöntum
bílinn fyrir yður.
interRent
interRent á íslandi/
Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar
91-686915, 91-31615
Akureyri - Tryggvabr. 14 -
Símar 96-21715, 96-23515.
Telex: 2337 IR ICE IS.