Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Síða 53
LAUGARDAGUR 2. JtJLÍ 1988.
65
Afmæli
Pétur Sigurðsson
Pétur sjómaöur Sigurösson, Goö-
heimum 20, Reykjavík, er sextugur
í dag.
Pétur fæddist í Keflavík 2. júlí
1928. Hann lauk gagnfræöaprófi í
Reykjavík 1944, fiskimannaprófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 1949 og farmannaprófi 1951.
Pétur var sjómaöur á fiskibátum
frá unga aldri, á togurum frá
1944-50 og á togurum og verslunar-
skipum frá 1950-62. Hann starfaöi
hjá Eimskipafélagi íslands frá 1952.
Pétur var þingmaður Reykvíkinga
frá 1959-78 og frá 1979-87. Hann
hefur verið forstöðumaöur Hrafn-
istu í Hafnarfirði frá 1977. Hann var
ritari Sjómannafélags Reykjavíkur
1960-76 og ritari Sjómannasam-
bands íslands um átta ára skeið.
Pétur hefur veriö í Sjómannadags-
ráði frá 1959 og formaður þess og
stofnana þess frá 1961. Hann var í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá
1978-87 og hefur setið í stjórn Óð-
ins. Pétur vann að stofnun SÁÁ og
hefur verið í stjórn samtakanna.
Pétur kvæntist 11. september
1952 Sigríöi Sveinsdóttur, f. 1. júlí
1931, skrifstofumanni. Foreldrar
Sigríðar: Sveinn, forstjóri í Reykja-
vík, Ingvarsson og kona hans, Ásta
Fjeldsted Ingvarsson.
Pétur og Sigríöur eignuðust tvo
syni og tvær dætur en eldri sonur
þeirra drukknaði í Chile fyrir fáum
árum. Böm Péturs og Sigríðar: Sig-
urður, prentari, f. 30. janúar 1955,
lést af slysfórum; Ásta f. 13. apríl
1966, er tveggja barna móðir, hefur
Pétur Sigurðsson.
lokið námi í flugvirkjun og stundar
nú nám i tölfræöi í Oklahoma;
Skúli f. 19. febrúar 1961, er starfs-
maður á barna- og unghngageð-
deild Landspítalans að Dalbraut 12;
Margrét, f. 3. nóvember 1966, starf-
ar viö tannlæknadeild HÍ.
Bróöir Péturs er Guðjón Sverrir,
f. 17. október 1925, fyrrv. formaöur
Iðju, félags verksmiðjufólks, en
hann starfar nú hjá Rannsókna-
stofnun iðnaðarins og Tæknistofn-
un íslands. Kona hans er Valdís
Sigurlaug Daníelsdóttir og eiga þau
þrjú börn.
Foreldrar Péturs: Sigurður Pét-'
ursson, kaupmaður í Keflavík, og
kona hans, Birna Ingibjörg Hafliöa-
dóttir. Faöir Sigurðar var Pétur,
sjómaður í Keflavík, Jónsson, frá
Katadal í Húnavatnssýslu, Jóns-
sonar. Móöir Sigurðar var Ingi-
björg, systir Þórðar, langafa Jóns
Guömundssonar á Reykjum og
langafa Vigdísar, móður Láru
Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra
Stjórnunarfélagsins. Þórður var afi
Erlends Ó. Péturssonar, formanns
KR, sem var móöurbróðir Péturs
Guðfinnssonar, framkvæmda-
stjóra Sjónvarpsins, fóður Péturs
leiklistarfræðings. Ingibjörg var
dóttir Jóns, b. og skipasmiðs í Eng-
ey, Péturssonar, b. í Engey, Guð-
mundssonar. Meðal barna Péturs í
Engey voru Guðrún, langamma
Bjarna Benediktssonar, Sigríður,
langamma Péturs Sigurgeirssonar
biskups og Péturs Sigurðssonar,
fyrrv. forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar, Halldóra, langamma Gunn-
ars, föður Þorsteins arkitekts.
Móðir Péturs, Birna, er dóttir
Hafliða, sjómanns í Rvík, bróður
Bjarna vígslubiskups, afa Guðrún-
ar Ágústsdóttur borgarfulltrúa.
Hafliði var sonur Jóns, tómthús-
manns í Mýrarholti i Rvík, Odds-
sonar, b. á Vindási i Kjós, Loftsson-
ar. Móðir Jóns var Kristín Þor-
steinsdóttir, systir Kristínar eldri,
langömmu Þuríðar Pálsdóttur og
Jórunnar Viðar. Móðir Hafliöa var
Ólöf, systir Guðnýjar, ömmu Jó-
hannesar Zoega hitaveitustjóra.
Ólöf var dóttir Hafliða, tómthús-
manns í Nýjabæ í Rvík, Nikulás-
sonar, og konu hans, Guðfinnu
Pétursdóttur, systur Jóns í Engey,
afa Sigurðar, fööur Péturs.
Pétur tekur á móti vinum og sam-
starfsmönnum í Sigtúni 3 í dag kl.
16-18.
Palmi Gislason
Pálmi Gíslason, formaður Ung-
mennafélags íslands og útibús-
stjóri Samvinnubankans, Eikju-
vogi 25, Reykjavík, er fimmtugur í
dag.
Pálmi fæddist á Bergsstöðum í
Svartárdal í Húnavatnssýslu.
Þriggja ára gamall missti hann fóð-
ur sinn en fimm árum síðar giftist
móöir hans Kristmundi Stefáns-
syni, b. í Grænuhlíð í Torfalækjar-
hreppi. Pálmi útskrifaðist úr Sam-
vinnuskólanum 1959 og var kaup-
félagsstjóri hjá Kaupfélagi Hún-
vetninga í tvö ár. Hann starfaði við
verslunarstörf í Danmörku í tvö
ár og var verslunarstjóri hjá KRON
í fimm ár. Pálmi hefur unnið hjá
Samvinnubankanum frá 1968 og
hefur verið útibússtjóri á Suður-
landsbraut frá því útibúið þar tók
til starfa.
Pálmi gekk í ungmennafélag
þrettán ára og var formaður frjáls-
íþróttadeildar Breiðabliks og gjald-
keri félagsins í nokkur ár. Hann
var gjaldkeri UMSK og formaður
UMSI frá 1979. Hann var í stjórn
Norrænna samvinnufélaga og í
framkvæmdastjórn Landssam-
bands íslenskra samvinnustarfs-
manna 1973-79.
Kona Pálma er Stella Guðmunds-
dóttir, f. 25. apríl 1941, skólastjóri.
Foreldrar hennar: Guðmundur
Þorláksson náttúrufræðingur, sem
nú er látinn, og kona hans, Elisa-
beth Þorláksson.
Börn Pálma og Stellu eru: Gísli,
f. 2. apríl 1962, tölvunarfræðinemi
við HI, giftur Hjördísi Ásgeirsdótt-
ur, en hún átti eitt barn fyrir og
þau eiga eitt barn saman; Guð-
mundur Atli, f. 17. júlí 1963, er við
nám í Garðyrkjuskólanum í Hvera-
gerði; Elísabet, f. 6. september 1965,
gift Pétri Guðmundssyni, kúlu-
varpara og lögreglumanni, og eiga
þau tvö börn.
Hálfsystir Pálma, samfeðra, er
Margrét, kona Halldórs E. Sigurðs-
sonar, fyrrv. ráðherra. Hálfsystk-
ini Pálma, sammæðra, eru: Einar,
b. í Grænuhlíð, f. 1947; Guörún,
húsmóðir á Sauðárkróki, f. 1948;
Anna, starfsmaður hjá SKÝRR, f.
1950; Helga, húsmóðir í Reykjavík,
f. 1953, og Bergdís, kennari á Sval-
barðseyri, f. 1958.
Foreldrar Pálma: Gísli Pálmason,
b. á-Bergsstöðum, og kona hans,
Helga Einarsdóttir. Faðir Gísla var
Pálmi, b. á Æsustöðum í Langadal,
Sigurðsson. Móðir Pálma var Guð-
rún, systir Jóns, alþingismanns á
Sólheimum, langafa Pálma, alþing-
ismanns á Akri. Bróðir Guðrúnar
var Erlendur, langafi Örlygs Sig-
urössonar listmálara. Guðrún var
dóttir Pálma, b. á Sólheimum í
Svínavatnshreppi, Jónssonar, b. á
Sólheimum, Benediktssonar, af
Eiðsstaðaættinni. Móðir Pálma á
Sólheimum var Ingiríður Jóns-
dóttir, af Skeggstaðaættinni. Móðir
Gísla var Sigríður Gísladóttir, b. á
Eyvindarstöðum í Blöndudal. Móð-
ir Sigríðar var Elísabet Pálmadótt-
Pálmi Gislason.
ir, hálfsystir Guðrúnar, móður
Pálma á Æsustöðum.
Móðir Pálma, Helga, er dóttir
Einars, b. á Grjóti í Þverárhlíð,
Helgasonar, b. á Ásbjarnarstööum
í Stafholtstungum, Einarssonar, b.
á Ásbjarnarstööum, bróður Jóns á
Svarfhóli, langafa Halldórs H.
Jónssonar arkitekts. Einar var
sonur Halldórs „fróða“, b. á Ás-
bjarnarstöðum, Pálssonar. Móðir
Helgu var Helga Jónsdóttir, b. á
Háreksstöðum í Norðurárdal, Ey-
jólfssonar, b. og skálds í Sveina-
tungu, Jóhannessonar. Móðir Jóns
var Helga Guðmundsdóttir, b. á
Sámsstöðum í Hvítársíðu, Guð-
mundssonar, af HáafeOsættinni,
bróður Sigurðar á Háafelli, afa
Jóns Helgasonar, skálds og prófess-
ors.
Pálmi tekur á móti gestum í dag
á heimili sínu, Eikjuvogi 25,
Reykjavík.
Gudfínna S. Olafsdóttir
Guðfinna Sigrún Ólafsdóttir,
Marklandi 16, Reykjavík, er sjötug
í dag.
Guðfmna er fædd að Stóra-
Knarrarnesi á Vatnsleysuströnd,
dóttir hjónanna Þuríðar Guð-
mundsdóttur og Ólafs Péturssonar
bónda. Guðfinna átti 14 systkini,
en 12 þeirra eru enn á lífi.
Guðfinna giftist 12.10. 1940 Guð-
mundi Inga Ágústssyni, skósmið
og síðar kaupmanni í Reykjavík.
Guðfmna fluttist til Reykjavíkur
og fyrsta heimiO þeirra hjóna var
á Vatnsstíg 9. Þaðan fluttu þau í
Snekkjuvog 12 og þá aö Rauðageröi
52.
Börn þeirra eru Maja, Sigrún,
Ólöf Hafdís, Kristján og Linda.
Barnabörnin eru 13.
Guðfinna og Guðmundur ráku
söluturn á Bústaðavegi í rúm 20 ár.
Guðmundur lést árið 1978.
Fyrir tveim árum flutti Guðfinna
í Markland 16.
Guðfinna verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Guófinna Sigrún Ólafsdóttir.
Kjartan Þorleifsson
Kjartan Þorleifsson, Hamraborg 16,
Kópavogi, verður sjötugur mánu-
daginn 4. júlí. Kjartan er fæddur
og uppahnn á Eyrarbakka, sonur
hjónanna Ágústu Þórðardóttur og
Þorleifs Halldórssonar frá Einkofa.
Kjartan á tvær systur á lífi en
bræður hans tveir eru látnir.
Kjartan fluttist til Reykjavíkur
1942 og var á togurunum Skalla-
grími og Hallveigu Fróðadóttur
1939-1952. Kjartan var í verka-
mannavinnu 1952-1960, verkstjóri
í fiskverkun Ingimundar hf. 1960-
1983 og hefur verið í saltfiskmati
frá 1984.
Kjartan kvæntist fyrri konu sinni
1943, Sigríði Nikulásdóttur, f. 16.
júní 1918. Foreldrar hennar voru
Nikulás Torfason, verkamaður á
Stokkseyri, og kona hans, Helga
Sveinsdóttir. Börn Kjartans og Sig-
ríöar eru: Bryndís, f. 26. júlí 1943,
gift Karli Arasyni, stýrimanni í
Rvík; Ágústa, f. 10. maí 1947, gift
Ólafi Olafssyni, stýrimanni í
Garðabæ; Halldór, f. 11. maí 1949,
vélstjóri í Rvík; Helgi, f. 28. nóv-
ember 1950, matsveinn í Kaup-
mannahöfn; Svanhvít, f. 6. sept-
ember 1953, gift Einari Sigurði Sig-
urðssyni, verslunarstjóra í kaup-
félaginu á Hvammstanga; Guð-
bjartur, f. 18. nóvember 1957, fanga-
vörður í Rvík, og Bára, f. 21. apríl
1963, saumakona í Rvík. Kjartan
kvæntist seinni konu sinni 10.
ágúst 1979, Kristínu Maríu Krist-
insdóttur, f. 10. júní 1928, handa-
Kjartan Þorleifsson.
vinnukennara í Kársnesskóla í
Kópavogi. Foreldrar hennar voru
Kristinn Friðfmnsson, bygginga-
verkamaður í Rvík, og kona hans,
María Jónsdóttur. Börn Kristínar
frá fyrra hjónabandi eru: Guðbjörg
Jóna Jakobsdóttir, f. 5. október
1949, skrifstofumaður í Kópavogi;
Þórður, f. 7. janúar 1954, húsasmið-
ur á Seyðisfirði, kvæntur Grétu
Garöarsdóttur, og Jón Kristinn, f.
11. júli 1959, matreiðslumaöur í
Borgarnesi, kvæntur Guörúnu
Daníelsdóttur.
Kjartan og Kristín taka á móti
gestum í sal Sjálfstæðisflokksins í
Hamraborg 1 í Kópavogi laugar-
daginn 2. júní, eftir kl. 20.
Sigmar Eiríksson
Sigmar Eiríksson, bóndi í Lang-
holti, Hraungerði í Flóanum, verð-
ur fertugur á sunnudaginn.
Sigmar fæddist í Norðurgarði á
Skeiðum og bjó um tíma á Minni-
Ólafsvöllum á Skeiðum. í Langholt
fluttist hann fyrir nokkrum árum.
Foreldrar Sigmars eru Rósa Pét-
ursdóttir, 18.9. 1919, og Eiríkur
Valdimarsson, f. 29.7.’ 1915. Sigmar
á sjö systkini.
Sigmar kvæntist 31.12. 1972 Sig-
ríði Ásmundsdóttur, f. 7.1. 1954.
Þau eiga þrjú börn, Ásmund, f. 24.7.
1975; Arnar, f. 25.10. 1976; Eirík, f.
22.5. 1987.
Sigmar tekur á móti gestum í
Félagsheimili Hveragerðis (\úð
hliðina á Eden) í kvöld, laugardags-
kvöld, eftir ki. 20.
Leiðréttingar
í afmælisgrein um Hólmfríði
Þórdísi Ingimarsdóttur, sem birtist
25.6., var rangt farið með afmælis-
daga barna hennar. Hildur Kristín
Jakobsdóttir verslunarmaður er
fædd 7.3.1935; Oddný Jakobsdóttir,
ráðgjafi hjá SÁÁ, er fædd 4.2.1936;
Sigurjóna Jakobsdóttir læknaritari
er fædd 4.2.1936. Stjúpbörn Þórdís-
ar eru Ásgeir H. Karlsson, verk-
fræðingur, f. 13.1. 1927, kvæntur
Ingibjörgu Johannesen, kennara
og löggiltum skjalaþýðanda, Ásgeir
er látinn; Katrín H. Karlsdóttir,
vinnur hjá Flugleiðum í Stokk-
hólmi, f. 27.11. 1932, maki Bragi
Guðmundsson verkfræðingur, þau
shtu samvistum; Halldóra Karls-
dóttir, kaupmaður í Borgarnesi, f.
17.2.1936, maki Aðalsteinn Péturs-
son, læknir á Borgarnesi. Aðal-
steinn er látinn. Fóstursynir Þór-
dísar eru Steingrímur V. Björg-
vinsson, vélstjóri í Reykjavík, f.
31.5.1944, maki Anna Hákonardótt-
ir, þau slitu samvistum; Karl Dav-
íðsson, gleraugnasmiður á Akur-
eyri, f. 4.11. 1949, maki Margrét
Eyfells. Fyrri maður Þórdísar var
Jakob V. Þorsteinsson, f. 1.6. 1912.
Þau slitu samvistum. Seinni maður
Þórdísar var Karl Hjálmarsson, f.
17.12. 1900. Karl lést 11.7. 1964.
í afmælisgrein um Guðjón Magn-
ússon, sem birtist 28.6., var sagt að
Guðjón hefði verið oddviti frá
1956-1961 en rétt er að Guðjón var
oddviti 1956-1971. Þá var tengda-
móðir Guðjóns, Sólveig Benjamíns-
dóttir, sögð frá Krossanesi í Árnes-
hreppi, en hún er að sjálfsögðu frá
Krossnesi í sama hreppi.
DV biðst velvirðingar á þessum
mistökum.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hveturafmælisbörn og að-
standendur þeirra til að senda því
myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi tveimur dögum
fyrirafmælið.
Munið að senda okkur myndir
v