Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Page 2
H IJUb M
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Varð að hætta framleiðslu vegna salmonellumáls:
Krefúr ríkið um fimmtán
milljónir í skaðabætur
„Þetta mál varö að deilumáli milli
Hollustuverndar og yfirdýralækn-
isembættisins. HeObrigðisfulltrú-
inn á Suðurlandi lét stöðva alla
dreifingu á vörum frá mér en ég
mátti halda áfram að framleiða. Ég
gat auðvitað ekki framleitt enda-
laust á lager þannig að ég neyddist
til að hætta þessu. Ég var nýbúinn
að stækka við mig, var í nýju húsi
og reksturinn gekk vel. Markaðúr-
inn var góður og viðskipti traust,
framleiðslan var ódýr og því gat ég
selt á lágu verði. Það. stefndi sem
sagt allt í hagnað af búinu hjá mér
á síðasta ári og sem dæmi um þetta
get ég nefnt að í júní í fyrra vant-
aði mig kjöt til að fullnægja eftir-
spum viðskiptavina á meðan
birgðir hlóðust upp hjá öðrum,'*
sagði Ingimundur Bergmann Garð-
arsson, fyrrverandi kjúklinga-
bóndi að Vatnsenda í Flóa.
í júlímánuði í fyrra veiktist fólk
af salmonellumengun eftir að hafa
keypt kjúklinga i verslun í Reykja-
vík. Sýni voru tekin úr kjúklinga-
leifunum, sem að sögn Ingimundar
voru komnar inn í bílskúr á disk
heimiliskattarins. Sama salmon-
ellutegund og fólkið varð veikt af
fannst síðan á búi Ingimundar.
Hann var strax látinn hætta dreif-
ingu á afurðum sínum og síðan var
búið skoðað hátt og lágt. „Það
fannst hér salmonellutegund sem
er búin að vera hér lengi, enda er
salmonella í flestum kjúkhngum.
Það þarf einungis að matreiða þá
rétt,“ sagði Ingimundur.
„íslandsmeistarar í vit-
leysu“
Hann neyddist vegna þessa til aö
bregða búi sem áður framleiddi eitt
tonn á viku, en þar starfaði hann
ásamt fjölskyldu sinni. Hann vinn-
ur nú fyrir sér sem fangavörður á
Litla-Hrauni. Ingimundur segist
hafa barist fyrir því að fá þetta leið-
rétt. Heilbrigðisráðuneytið hafi
viljað bæta tjónið og beðið um auk-
afjárveitingu en því hafi verið
hafnað af fjármálaráðuneytinu.
„Ég hef gefist upp á að fara frið-
samlega leið að þessu og nú er
málið í höndum lögfræðings. Ég tel
að óeðlilegt hafi verið að stöðva
einungis okkur en ekki önnur
kjúklingabú sem eru litlu betri.
Tjón mitt vegna stöðvunarinnar
var um síðustu áramót um 15 millj-
ónir króna en inni í þeirri tölu er
ekki mat á viðskiptavild og miski.
Ég á ekki annan kost en að fara í
mál því aö ef ég fæ engar skaðabæt-
Ingimundur Bergmann Garðars-
son bóndi er þungorður um stöðv-
un á dreifingu afurða sinna, segir
hana hafa verið óeðlilega og verk
óábyrgra embættismanna.
ur get ég ekki greitt skuldir min-
ar,“ sagði Ingimundur.
Um salmonelluskýrsluna, sem nú
er nýkomin út og fellir þungan dóm
yfir alifuglarækt, sagði Ingimund-
ur: „Með heilbrigðisráðherra
starfa menn sem eru íslandsmeist-
arar í vitleysu. Skýrslan er rugl og
á vart við rök að styðjast. Það er
kannski ekki hægt að búast við
öðru þegar ábyrgðarlausir og
ómarkvissir embættismenn gera
úlfalda úr mýflugu. Salmonella
gerir engum mein ef fólk matreiðir
kjötið á réttan máta. Ef fara á eftir
tillögum þessarar nefndar þá vor-
kenni ég þeim mönnum sem ætla
að stánda í svona rekstri. En þrátt
fyrir aö mér sé illa við þessa emb-
ættismenn, eftir það sem þeir hafa
gert mér og fjölskyldu minni, þá
vona ég að þeir þurfi aldrei að þola
það sem þessi fjölskylda hefur
þurft að þola,“ sagði Ingimundur
Bergmann Garðarsson.
JFJ
Nauðlending á Sandskeiði:
Hreyfillinn var í gangi
A laugardag varð eins hreyfils
flugvél af gerðinni Jodel að lenda á
Sandskeiði vegna þess aö flugmaður
varð var við torkennileg hljóö í mót-
or.
Að sögn flugmannsins, Ragnars J.
Ragnarssonar, reyndist brotinn
ventilgormur á einum venth vera
orsök hávaðans. Hann sagði að mót-
orinn hefði verið í gangi allan tímann
og aldrei verið hætta á ferð. Síðdegis
á laugardag var gert við bilunina og
TF-RJR flogiö til Reykjavíkur. pv
Lögreglan búin að slökkva eldinn og bílstjórinn kominn í steininn.
DV-mynd Sveinn
Hraðakstur endaði í eldhafi
Með vodkakass-
ana gegnum gat á
vallaigirðingunni
Saufján ára ölvaður ökumaður
slapp litið slasaður úr brennandi bíl
eftir aö hafa lent á ljósastaur í Mos-
fellssveit á laugardagsnótt. Unghng-
urinn ók stolnum bíl en hafði fyrr
um kvöldið lent í tveim árekstrum á
eigin bíl. Á báðum bílunum keyrði
ökumaðurinn á ofsahraða um götur
Reykjavíkur með lögregluna á hæl-
unum.
í Mosfehssveit var lögreglubíl lagt
í veg fyrir unglinginn og þegar hann
reyndi aö sveigja framhjá rakst hann
fyrst á umferðarmerki og síðan á
ljósastaur. Við það kviknaði í bílnum
og mátti sjá eldtaum á götunni. Lög-
reglunni tókst með handslökkvi-
tækjum að slökkva eldinn og ná öku-
manninum úr bifreiðinni.
Að sögn lögreglu er ekki vitað til
þess að ökumaðurinn hafi áöur gert
sig sekan um svipað afbrot.
pv
Aðfaranótt föstudags var brotist
inn í vínskemmu varnarhðsins á
Keflavíkurflugvelh. Þrem kössum af
Smimoff vodka var stohð.
Innbrotsþjófarnir stálu lyftara frá
vamarhðinu og notuðu hann til að
brjóta upp hurð vöruskemmunnar.
Að sögn Unnsteins Jónssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns, virðist sem
þjófarnir hafi boriö vodkakassana
niður að girðingu sem hggur um
herstöðvarsvæðiö. Þeir hafi síðan
klippt gat á girðinguna og komið
brennivíninu undan í bíl.
„Innbrotsþjófamir em engir við-
vaningar. Þeir vissu hvaö þeir voru
að gera og vora fljótir að því,“ segir
Unnsteinn.
Þetta er þriðja innbrotið í vín-
skemmu vamarliðsins á mánaðar-
tíma og ekki er óhklegt að sömu aðil-
ar hafi verið að verki í öll skiptin.
Ekkert aðvörunarkerfi er í vín-
skemmunni. pv
Allir starfsmenn Bylgjunnar fa uppsagnarbréf:
Fréttastofan
lógð mður
Fréttastofa Bylgjunnar verður
lögð niður í núverandi mynd.
Starfsmönnum fyrirtækisins, bæði
fréttastofu og dagskrárgerðar, hef-
m- verið tilkynnt að uppsagnarbréf
séu á leiðinni. Lausráðið fólk mun
hætta um næstu mánaðamót en
fastráðnir starfsmenn njóta þriggja
mánaða uppsagnarfrests.
„Hér er ekki um neinn niður-
skurð að ræða. Þeir sem stjórna
fyrirtækinu era með hugmyndir
um hvemig þeir vilja ná til hlust-
enda okkar. Þeir verða að fá fuh-
komið frelsi til þess að setja sínar
hugmyndir í framkvæmd," sagði
Jón Ólafsson, stjómarformaður
Bylgjunnar og aðaleigandi.
Meðal þeirra breytinga sem að
er stefnt er að fréttatímar í núver-
andi mynd leggjast af. Þess í staö
mun fjögurra manna fréttastofa
vinna í náinni samvinnu við dag-
skrárgerðina. í stað venjulegra
frétta verður áherslan lögð á ýmis-
legt fréttatengt efni.
„Þaö era svo margir sem sinna
hinum daglegu fréttum og gera það
vel aö ég held að hlustendur okkar
muni ekki sakna þess þó við ein-
beitum okkur að annars konar út-
færslu," sagði Jón Ólafsson.
- En er ekki meginmarkmiðiö meö
þessum breytingum að skera niður
kostnað og koma á hahalausum
rekstri?
„Reksturinn er hahalaus nú þeg-
ar. Við erum fyrst og fremst að
reyna að þjóna hlustendum okkar
betur,“ sagði Jón Ólafsson.
-gse
Páll Þorsteinsson, útvarpsstjóri Bylgjunnar, var vígreifur á Miklatúni i
gær þrátt fyrir að starfsmönnum fyrirtækisins hefði verið tilkynnt um
að uppsagnarbréf væru á leiðinni. DV-mynd GVA