Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Fréttir
Biskupskosningan
Einhver um-
ræða í gangi
„Viö erum ekkert farin að velta
þessu fyrir okkur enda hefur biskup
ekki sagt starfi sínu lausu. Biskup
verður sjötugur á næsta ári en getur
setið út það ár ef hann kærir sig
um,“ sagði séra Magnús Guðjónsson
biskupsritari.
Að undanfomu hefur verið rætt
manna á meðal um hugsanlegar
biskupskosningar að ári og hver séu
líklegustu biskupsefni. Séra Magnús
sagðist vita til þess að einhver um-
ræða heföi verið í gangi. í umræð-
unni hefðu verið nefnd nöfn þriggja
manna, Ólafs Skúlasonar vígslubisk-
ups, séra Heimis Steinssonar og
Bjöms Bjömssonar guðfræðipró-
fessors. Bæði Heimir og Bjöm munu
hafa lýst því yfir, að sögn Magnúsar,
að þeir saekist ekki eftir kjöri.
í lögum um biskupskosningu segir
að kjörgengi hafi hver guöfræði-
kandidat sem fullnægir þeim skilyrð-
um að vera skipaður prestur í þjóð-
kirkjmmi. Kosningarétt við biskups-
kjör hafa hins vegar: Allir þjónandi
prestar og prófastar í þjóðkirkjunni,
þjónandi vígslubiskupar og biskup,
kennarar guöfræðideildar, sem eru í
fóstum embættum eða störfum og
guðfræðikandidatar aö mennt, bisk-
upsritari með sama skilyrði og kenn-
arar guðfræðideildar, svo og prest-
vígöir menn sem ráðnir era til sér-
stakra starfa innan þjóðkirkjunnar.
Einnig hafa kosningarétt kjömir
leikmenn, sem sæti eiga á kirkju-
þingi þegar biskupskosning fer fram,
svo og leikmenn sem sitja í kirkjur-
áði og ekki eiga sæti á kirkjuþingi.
Að síðustu hefur kosningarétt einn
leikmaður úr hveiju prófastsdæmi,
þó tveir frá Reykjavíkurprófasts-
dæmi sem kjömir em af leikmönn-
um.
Biskupskosning er skrifleg og
leynileg og fer þannig fram að kjör-
stjóm sendir þeim sem kosningarétt
hafa nauðsynleg kjörgögn ásamt
leiðbeiningum, einkum fyrir hvaöa
tíma kjörseðili þarf að hafa borist
kjörstjóm. Kjósandi skal rita á kjör-
seðilinn nafn biskupsefnis en ekki
auðkenna hann á nokkum hátt. Er
hann síðan sendur kjörstjóm í
ábyrgðarpósti í sérstaklega gerðu
umslagi.
Rétt kjörinn biskup er sá sem fær
meirihluta greiddra atkvæða. Fái
enginn þann atkvæðafjölda skal kos-
ið aftur á miUi þeirra þriggja sem
flest fengu atkvæðin. -JFJ
Mikill fjoldi á útihátáð á Miklatúni:
Tonn af pylsum og tíu
þúsund Irtrar af gosi
Mikið fjölmenni var á Miklatúni
síðdegis í gær þegar lauk söfnun-
arátaki fyrir Skógrækt ríkisins.
„Söfnunin hefur gengið mun bet-
ur en við gerðum ráð fyrir. Núna
hafa safnast nærri 1 miUjón flipar
og tappar sem er tvöfalt það magn
sem við gerðum ráð fyrir í upp-
hafi,“ sagði Páll Þorsteinsson, út-
varpssjóri Bylgjunnar, í samtah við
DV í gær.
Bylgjan, Stöð 2 og Vífilfell stóðu
saman að þessu söfnunarátaki fyr-
ir Skógrækt rikisins. AUs hafa
safnast 1.750 þúsund krónur og síö-
an munu 100 þúsund krónur bæt-
ast við, en sú upphæð er ósóttur
vinningur. Söfhunarféð mun verða
notað til að gróðursetja 100.000
trjáplöntur nálægt Geysi í Haukad-
al.
Pylsur og gos
I góða veðrinu í gærdag var gífur-
legur fjöldi fólks saman kominn á
MUdatúni til aö taka þátt í há-
punkti átaksins. GriUaðar vom
pylsur og svalandi gosdrykkirnir
rannu út í hitanum. Áætlað var að
hátíðargestimir myndu snæða
tæpt tonn af pylsum og drekka 10
þúsund Utra af gosdrykkjum.
Nokkurrar óánægju hefur gætt
með að í lok söfnunarinnar þraut
birgðimar af útvörpunum sem
Þessir strákar voru búnir að fá
boli fyrir flipana sína. Þeir sögðu
systkini sín drekka mikið gos og
hefðu hjálpað þeim viö söfnunina.
Mikill mannfjöldi var á Mikiatúni i gær á lokadegi söfnunar fyrir Skóg-
rækt ríkisins.
Helgi Loftsson og Hrafn Bachmann
frá Kjötmiðstöðinni kampakátir
enda búnir að grilla tonn af pyls-
um. DV-myndir GVA
þátttakendur fengu. Margfr hafa
því aöeins fengið ávísun á tæki sem
þeir geta innleyst þegar þau koma
til landsins.
„Áhuginn kom okkur alveg í
opna skjöldu," sagði Pétur Steinn
Guðmundsson á Bylgjunni en hann
hefur haft umsjón með söfnuninni.
„Þessi útvörp era sérhönnuð fyrir
okkur og viö gerðum strax pöntun
í viðbótarsendingu. Fyrri hluti
hennar mun koma tíl lansins um
miðjan ágúst og seinni hlutinn í lok
september.
Laugardaginn 16. júlí vora 50
þúsund krónur dregnar út en það
var uppsafnað vinningsfé tveggja
daga. Svo skemmtilega vUdi til að
vinningshafinn var staddur við
Geysi að bíða eftir gosi þegar hann
heyrði númerið sitt dregið.
-JJ
í dag mælir Dagfari
Enn era málefni Ríkisútvarpsins
og þá sérstaklega Sjónvarpsins til
umræðu í fjölmiðlum eftir að dokt-
or Sigrún Stefánsdóttir sagöi í
tímaritsviðtaU að útvarpsstjóri
hefði tvívegis boðiö sér yfirmanns-
stöðu í Sjónvarpinu en svikiö jafn-
harðan. í fyrra skiptið bauð hann
henni starf dagskrárstjóra en réð
Hrafii og síðan bauð hann Sigrúnu
stöðu Ingva Hrafns en réð svo
Boga. Doktomum sámaði þetta að
vonum og lætur þess jafnframt get-
ið aö þegar útvarpsráð fiaUi um
mannaráðningar þá sé eingöngu
farið eftir póUtík en ekki reynslu
eða menntun umsækjenda. Út-
varpsstjóri er í viðtaU í helgarblaði
DV og segir hann þar aö þaö séu
takmörk fyrir því hvað hægt sé aö
ganga langt í blaðri og yfirlýsinga-
gleði. Eftir að hafa lesiö viðtaUð
getur Dagfarið tekið heUs hugar
undir þessi orð. Hins vegar sýnast
engar líkur á að blaðrið í útvarps-
sfjóra komi 1 veg fyrir frekari yfir-
lýsingar starfsmanna hans. Mark-
ús kvartar undan því að útvarps-
ráð grípi fram fyrir hendur sér og
ráði annað fólk tU starfa en hann
sjálfur vilji fá. Nú er það víst svo
aö útvarpsráð er bara umsagnaraö-
Ui um stöðuveitingar en útvarps-
Og enn er blaðrað
stjóri óbundinn af þeim umsögn-
inn, enda réð hann Ingva Hrafn á
sínum tíma gegn vfija útvarpsráðs.
En nú bregður svo viö að Markús
viU fara í einu og öUu að vilja út-
varpsráðs sem alltaf er aö gera
honum einhverja bölvun. Þess
vegna lofaði hann Sigrúnu frétta-
stjórastöðunni og studdi hana leynt
og ljóst þar tU hann komst aö því
að hún átti Utinn stuðning innan
ráðsins. Þá svissaði hann yfir á
Boga þegar í ljós kom að hann var
aö skapi ráðsmanna. Það hljóta aU-
ir að skijja að ekki er hægt að
standa við gefin loforð ef það hefur
óþægindi í fór með sér. Magnús
Erlendsson, útvarpsráðsmaður frá
Sjálfstæðisflokknum, er gripinn
blaðri og yfirlýsingagleði eins og
fleiri þessa dagana. í ÞjóðvUjanum
um helgina segir Magnús mistökin
í þessu máU vera þau að útvarps-
stjóri skyldi gefa doktor Sigrúnu
loforð sem hann hefði svo ekki get-
að staðið við. Og Magnús segir líka
að faglegt mat ráði ákvörðunum
ráðsins og komi póUtík ekkert við.
En þá gerir Sigrún Magnúsi þann
óleik að lýsa því yfir í sama blaði
að Magnús hafí sagt sér að hann
ætlaöi að greiða henni atkvæði sitt.
Síðar hafi svo komið í ljós að hann
hafi gefið fleiri umsækjendum
sama loforð. Er ekki annað að sjá
en að Magnús sé þar með kominn
í enn verri kUpu en útvarpsstjóri
sem lofaði þó ekki nema tveimur
stuöningi og sveik ekki nema ann-
an þeirra. Og Sigrún vUl ekki gefa
mikið fyrir yfirlýsingar Magnúsar
Erlendssonar um að póUtík ráði
engu í útvarpsráði og lái henni
hver sem vUl. Enda segir útvarps-
stjóri í DV að ráðið hafi meðal ann-
ars átt að gæta þess að póUtískt
jafnvægi ríkti meðal starfsmanna.
Auðvitað getur Sigrún því sjálfri
sér um kennt því að hún var ekki
skrifuö inn í neinn flokk þegar hún
sótti um og hver getur treyst Ut-
lausu fólki fyrir fréttastjórastöðu,
hvaö sem Uður menntun og starfs-
reynslu. Þar fyrir utan segir Ingvi
Hrafn að Sigrún hafi ekki þau bein
sem þurfi tU að bera þunga frétta-
stofunnar. Ingvi getur trútt um tal-
að sem hefur slík bein að það end-
aði með að fréttastofan gat ekki
borið þau. Svo segir Ingvi Hrafn
líka að enginn fréttamanna hafi
vfrjað fá Sigrúnu sem yfirmann en
Sigrún segist hafa átt vísan stuðn-
ing aUra samstarfsmanna. Svona
getur fólk nú blaðrað fram og tíl
baka. Og heltekinn yfirlýsingagleði
segir útvarpsstjóri svo í DV að
Hrafn Gunnlaugsson sé mikUl at-
orkumaöur og það sé ekki víst að
hans vinnuálág henti til frambúð-
ar. Það er eflaust rétt hjá Markúsi
að atorkumenn henti ekki Sjón-
varpinu en þess ber þó að gæta að
Hrafni hefur verið hleypt út úr
búrinu með reglulegu irúlUbiU til
aö hann geti tappað af hjá Svíum.
Á meðan hefur staðgengUl hans
einbeitt sér að því að seinja yfirlýs-
ingar til höfuðs Ögmundi frétta-
manni. Markús Öm kvartar mjög
undan því að hann geti ekki borgað
fólki laun efdr eigin geðþótta. Þetta
er auðvitað grábölvað en það er þó
bót í máU að hann getur lækkað
laun fólks að geðþótta spamaðar-
ráðgjafa Ríkisútvarpsins sem er
víst launahæsti maður stofnunar-
innar þótt hann sinni aðeins niður-
skurðinum í Ujáverkum. Að lokum
vUl Dagfari svo taka undir þau orð
útvarpsstjóra að það séu takmörk
fyrir hvað hægt sé að ganga langt
í blaðrinu. Ef menn eru að opna á
sér þverrifuna er aUtaf hætta á að
sitthvað óþægUegt komi í ljós og
því ber vinnuhjúum Markúsar að
halda sig á mottunni.
Dagfari