Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Page 14
14 MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglysingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Slæm staða Staöa ríkissjóðs er slæm eins og glöggt má ráða af tölum, sem íj ármálaráðuneytið birti fyrir helgi. Tölurn- ar segja þó að líkindum ekki allan sannleikann. Staðan lofar ekki góðu fyrir landsmenn. Fjármálaráðuneytið áætlar nú, að halli á ríkisrekstr- inum verði 700 milljón krónur á árinu. Margt hefur breytzt í shkum spám ráðuneytisins síðustu mánuði. Skammt er síðan ráðuneytið taldi hallann á árinu verða undir 600 milljónum. Mánuði fyrr taldi ráðuneytið árs- hallann verða innan við 500 milljónir. Nokkru þar áður taldi ráðuneytið engan halla mundu verða á ríkisrekstr- inum á þessu ári. Það væri í samræmi yið svona breyt- ingar, að ráðuneytið teldi eftir mánuð, að árshallinn yrði yfir 800 milljónir, og svo koll af kolli. Menn munu í raun telja líklegt, að ríkið verði í ár rekið með halla, sem nemur yfir milljarð króna. Þetta eru í raun voveif- legar tölur. Það átti einmitt að hafa verið útkoman á fundi ráðherra í fyrrahaust og yfirlýsingum síðasthðinn vetur, að ríkissjóður yrði ekki rekinn með haha í ár. Það skiptir meginmáli með tiliiti til verðbólgunnar, sem magnast við hahareksturinn. En gatið á ríkisrekstrinum er stærra. Lánsfjárþörf ríkissjóðs er um sex mihjarðar. Það er hið raupverulega gat á ríkissjóði. Ríkið leitar út á lánamarkaðinn th að fylla upp í gat- ið. Það keyrir upp vexti. Lítt stoðar ráðherrum að láta eins og þeir séu að lækka vexti, meðan stefna þeirra knýr upp bæði verðbólgu og vexti. Að þessu leyti er staða ríkissjóðs mjög slæm fyrir þjóðina. Enda gætum við látið okkur nægja að vitna th ummæla ráðherranna sjálfra um bölvun, sem fylgir shkri stefnu. Svona um- mæli heyrast að vísu ekki frá ráðherrunum síðustu daga. En sé leitað jafnvel nokkra mánuði aftur í tím- ann, var mikið um shk ummæh. Yfirlýsingar fjármálaráðuneytisins í lok síðustu viku eru í hróplegu ósamræmi við upphlaup fjármálaráð- herra vegna frásagnar í þjóðhagsspá fyrir nokkrum vik- um. Þá miðaði Þjóðhagsstofnun við, að ríkishalhnn yrði um 600 milljónir. Fjármálaráðherra æsti sig, taldi hag ríkissjóðs gerðan verri en hann væri og talaði um vísvit- andi rangfærslur Þjóðhagsstofnunar. AUt þetta er hðið. Nú birtir ráðuneytið sjálft upplýsingar um, að halhnn geti orðið 700 mhljónir, eða meira en Þjóðhagsstofnun reiknaði með. í þjóðhagsspá voru varnaðarorð um, að mikið aðhald þyrfti, ætti hagur ríkissjóðs ekki að verða mun verri. Hafi Þjóðhagsstofnun gert eitthvað af sér, er það að hafa ekki gert ráð fyrir miklu meiri halla á ríkissjóði í ár. Ekki batnar það, þegar htið er til næsta árs. Nú er gert ráð fyrir 2,5 tU 3 mUljarða haUa á flárlög- um næsta árs. TU viðbótar því, sem horfir um yfirstand- andi ár, eru þetta ljótar tölur. Viðurkenna verður, að eitthvað merkilegt þyrfti að gerast við þessu. Það hljóta ráðherrar einnig að viðurkenna. Koma þeim þá vafa- laust í hug skattahækkanir, og einhverjir munu nefna niðurskurð ríkisútgjalda. Þegar er rætt um skattahækk- anir frá því, sem áður var ákveðið, til að mæta hallan- um. En varla kemur strax niðurstaða í því. Ríkisstjórn- in veit, að almenningur stynur undan skattpíningu. Samt er jafnhklegt, að niðurskurðartahð reynist mark- leysa, og meiri skattar verði það, sem út kemur. Miðað við fengna reynslu verðum við að búast við hinu versta. Haukur Helgason „Sjómenn eru tilbúnir að sigla í land hvenær sem þeim finnst hagsmunum sínum ógnað,“ segir í greininni. Sturiungaöld á íslandi Sturlungar Endalok íslenska þjóðveldisins á 13. öld eru sígilt umhugsunarefni. Söguritarar íslendingasagna til- greina ýmsar ástæður fyrir hnign- un réttar og stöðugum átökum ver- aidlegra höfðingja um auð og völd. Að lokum gengu íslendingar Há- koni gamla Noregskonungi á hönd eins og kunnugt er. Þar með lauk Sturlungaöld og þeim grimmilegu mannvígum sem henni fylgdu. Þeg- ar reynt er að rýna í dýpri ástæður fyrir allri óáran Sturlungaaldar kemur manni í hug ein skýring sem lítið hefur verið hampaö. Um þær mundir var allt nýtanlegt land numið og komið í eignarhald. Dalir allir voru nýttir upp að heiðar- brúnum og jafnvel afréttur einnig til beitar. Jarðir höfðu safnast á hendur fárra stóreignamanna og var sjálfur Snorri Sturluson þeirra atkvæðamestur og frægastur, en sex ættir eru gjarnan sagðar at- kvæðamestar. Ungt fólk fékk ekki jarðir til ábúðar nema gegn háu verði eða úr hendi einhverra af höfðingjunum, en böggull fylgdi þá gjaman skammrifi, því hollusta viö höfðingjana gat fylgt með í kaupun- um. í raun var þá ríkjandi vanþró- að lénsveldi með mjög skertu at- vinnufrelsi. Erlendis þurfti kon- ungsvald yfir lénsherrum til að halda ríkisskipan saman, en styij- aldir milli lénsherra voru algengar samt. Þrælatak tiltekinna valdamanna á atvinnumöguleikum ungs fólks hefur skapað rótleysi og mikið framboð af lausamönnum, sem áttu ekki annan kost en að láta ota sér út í hemað á vegum valda- braskara. Sturlungaöld á síðari hluta tuttugustu aldar á sér vissa samlíkingu, þótt óliku sé saman aö jafna aö öðm leyti. Hákon gamli er nú í Brussel Valdastreita hagsmunaforingj- anna á íslandi er nú komin út í öfgar og skylmingaþrælar hóta ís- lenskum stjómvöldum og öllum þeim sem bregðast til varnar gegn sérhagsmunakröfum. Hagsmuna- ágreiningurinn er aðalskýringin á verðbólgunni sem endurspeglar í raun óuppgerðan ágreining á milli sérhagsmunahópanna. Einstakir ráðherrar em meira að segja full- trúar tiltekinna sérhagsmuna og em á vissan hátt Gissur Þorvalds- son, Sturla Sighvatsson, Þorvaldur Vatnsfirðingur o.s.frv. Það er því engin furða þótt Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra sé að missa þolin- mæðina. Áður fyrr þurfti að leita út fyrir landsteinana til þess aö fá „skikk“ á hlutina á íslandi. Nú heyrast svipaðar raddir. Sum- ir vilja binda íslensku krónuna Evrópugjaldmiðlinum ECU vegna þess að íslenska krónan er ekki gjaldmiðill heldur gúmmítékki sem endurspeglar íslenska Sturlunga- öld. ASÍ telur sig þurfa að leggja bráðabirgðalög ríkisstjómar Þor- steins Pálssonar undir Evrópu- ráðið. íslenskir útvegsmenn vilja sumir landa fiski í erlendum höfn- um og gera kröfu um aö ráðstafa einir gjaldeyrinum. í raun gætu þeir og vildu smnir bara búa er- lendis og senda skip sín til íslands til að sækja auðlindina og landa KjaUarinn Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur henni erlendis og setja andvirðið á banka þar. Nú vilja allir fá lán er- lendis sem bera miklu lægri vexti en unnt er að fá á íslandi. Næsta stig í fyrirgreiðslu í íslenskum at- vinnumálum er pólitísk úthlutun á erlendum lánum til þess aö halda fyrirtækjum gangandi. Er það furða þótt Valur Arnþórsson kaup- félagsstjóri hafi verið ráðinn bankastjóri við Landsbanka ís- lands? í raun sannri eram við íslending- ar farnir að leita á náðir Hákonar gamla í nýjum stíl vegna þess að okkur tekst ekki að halda okkur á mottunni heima fyrir. Hagsmunarekstur Sfurlung- anna Tilrauninni ísland er ekki lokið og ekki er útséð um það hvemig henni lýkur. Þjóðarskuldir eru orðnar yfirgengilegar og enn sjáum við fram á ellefu milljarða við- skiptahalla. Viö skulum ekki gleyma því að Nýfundlendingar týndu sjálfstæði sínu. Einstakir hagsmunaforingjar bíta í skjaldar- rendur og senda skylmingaþræla gegn öllum röddum sem þeir telja stangast á við hinn eina sanna rétt- trúnað. Sjómenn em tilbúnir að sigla í land hvenær sem þeim finnst hagsmunum sínum ógnað. Auðvit- að eiga forystumenn þeirra að ann- ast hagsmunavörslu fyrir stéttina, en þeir geta ekki almennilega tekið þátt í því að minnka útgerðarkostn- að og ofveiði ef það þýðir fækkun sjómanna. Útgerðarmenn bjóðast til að opna botnlokann á skipum til að fækka þeim ef þeir fá skipin „keypt“ út úr veiðum. Þeir bjóða sumsé hagræðingu í greininni gegn greiðslum! Landbúnaöurinn býður minnkun á offramleiöslu og þrúg- andi útflutningsbótum meö því að minnka framleiðslu á hvern fram- leiðanda án þess að fækka þeim. Auövitað hækkar þaö verð en þaö dregur úr neyslu og eykur niöur- greiðsluþörf. Bændm' bjóða þannig aukið óhagræði gegn greiðslum og viröast komast upp með það. Land- búnaðarráðherra er verðugur sporgengill Orms Svínfellings. Iðnaðarforystan krefst að sjálf- sögöu sambærilegra skilyrða og ríkja í nágrannalöndum en það þýðir erlend lán og auknar þjóðar- skuldir. Verslunin vill líka flýja íslenskan fjármagnsmarkað eins og aðrir, og enginn hefur enn kom- ið böndum á fjárfestingar í þeirri grein og um leið á íjölda verslana. Sambandiö mun líklega fá sérstaka fyrirgreiðslu í formi erlendra lána, en það er fyrst og fremst verslunar- deild Sambandsins sem stendur illa. Tryggingafélögum og bönkum mun öragglega ekki fækka nema gegn greiðslum. Svona má lengi telja. Rætur vaxtavandans Búið er að skrifa mikið um ís- lenska fjármagnsmarkaðinn og þátt hins opinbera í að sprengja upp vexti. Allir hafa sínar skýring- ar. Hvers vegna em svona margir tilbúnir að taka lán með drápsvöxt- um? Em íslendingar ábyrgðarlaus- ir eða svona heimskir? Hvers vegna stjómast ekki vaxtastig af greiðslu- getu fyrirtækja og einstakhnga eins og annars staðar? Lítum nánar á. Sá sem fjárfestir í fiskkvóta getur greitt mjög háa vexti af lánsfé ef hann tryggir sér þar með kvótann til frambúðar. Hversu margir telja sig vera að fá kvóta til frambúðar, þ.e. að tryggja sér sérréttindi á kostnað annarra? Hvers vegna er kaupmaður tilbúinn að greiða tugi prósenta í raunvexti vegna vöru- kaupa? Hvers vegna er venjulegur íslendingur tilbúinn að greiða svo- kallaðá okurvexti vegna bíla- kaupa? Það er vegna þess að hann treystir því ekki að tollar á bílum verði ekki hækkaðir og að gengis- felling muni ekki veröa, en hún ein getur borgað honum aftur háa vexti. Það er í raun öll óvissan, sem birtist í mismikilli verðbólgu og skyndibreytingum á öllum sköpuð- um hlutum, sem er búin að afsiða íslendinga. Vaxtaverkimir eru í raun aðeins önnur hhð á verð- bólgudraugnum. Auk þess fer nú vaxandi að skerða atvinnufrelsi með kvótum á ýmsum sviðum. Kapphlaup vegna öflunar kvóta framkalla óeðhlega eftirspum eftir fjármagni. Framsóknarmenn í öll- um flokkum eru að brjóta í bága við íslensku stjómarskrána varð- andi atvinnufrelsi. Mér hefur verið sagt að þetta ákvæði stjómarskrár- innar sé fengið frá Dönum, en þeir hafa sama ákvæði í sinni stjómar- skrá til að afnema síðustu leifar lénsveldistímans. Nú erum við ís- lendingar að stíga inn í nýja léns- veldistíma, en um leið erum viö aö afturkaha Sturlungaöld. Jónas Bjarnason „Valdastreita hagsmunaforingjanna á Islandi er nú komin út í öfgar og skylm- ingaþrælar hóta íslenskum stjórnvöld- um og öllum þeim sem bregðast til varnar gegn sérhagsmunakröfum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.