Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Síða 31
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
43
x>v Fréttir
Meridskonu minnst:
Stytta af
Jósefínu
Zoega
afhjúpuð
á sjúkra-
húsinu
Rótíeit Jack, DV, Tjöm, Vatnsnesi:
Laugardaginn 16. júlí sl. var af-
hjúpuö brjóstmynd af frú Jósefmu
Helgadóttur Zoega á sjúkrahúsinu á
Hvammstanga. Mættar voru dætur
Jósefmu, Helga og Evelyne, og
tengdasonur, Hafsteinn Guðmunds-
son. Ræöur fluttu séra Róbert Jack
og Karl Sigurgeirsson verslunar-
stjóri. Frú Evelyne afhjúpaði stytt-
una af móður sinni og flutti stutta
ræðu. Kirkjukór Hvammstanga-
kirkju söng tvo sálma.
Frú Jóseflna lagði á sínum tíma
grundvöll að sjúkrahúsinu á
Hvammstanga. í fjölda ára vann hún
fórnfúst og óeigingjamt starf, bæði á
vegum Kvennabands Vestur-Húna-
vatnssýslu og eigin, við að afla fjár
til sjúkahússins. Kona mikilla fram-
kvæmda og orku, m.a. stjórnaði hún
Kvennabandshátíð á Hvammstanga
um langt árabil en þessi hátíö var
haldin árlega í júlí. Fékk hún nafnið
Jósefínuhátíðin.
Frú Jósefína var tvígift. Fyrri mað-
ur hennar var enskur, Hobbs að
nafni, en seinni maður hennar var
Skúli Guðmundsson alþingismaður
og ráðherra. Bæði eru látin fyrir
mörgum árum. Einn bróðir Jósefínu,
hinn þjóðkunni maður Helgi Zoega,
er enn við bestu heilsu, kominn yfir
áttrætt.
Þaö hefur ekki verið mikið sumar
hér um slóðir. Bæði þoka og kuldi
hefur komið í veg fyrir góöa gras-
sprettu og minna er um ferðafólk á
Vatnsnesveginum en verið hefur
undanfarin ár. Vonandi er að ágúst-
mánuður komi með vermandi sólar-
geisla yfir þetta hérað.
Suðuriand:
Talsverð ölvun
um helgina
Talsverð ölvun var á tjaldstæöun-
um á Suðurlandi um helgina. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi var mik-
ið um fólk í útilegu, sérstakiega á
Þingvöllum og Laugarvatni. Voru 17
manns teknir grunaðir um ölvun við
akstur en ekki hlutust slys af. Ölvað-
ur bílstjóri olli árekstri á Selfossi í
gær.
-hlh
aðeins
SKYNDIHAPPDRÆTTI DAS
BiLVANGUR sf
HÖFÐABAKKA 9 SIMI 687300
Umboðsmenn: Akureyri, Véladeild KEA—Reyðarfirði, Lykill
Njarðvíkum, Bílabragginn—Borgarnesi, Bílasala Vesturlands
Vestmannaeyjum, Garðar Arason
mmr[
með 2,8 Itr. V6 vél,
sjálfskiptingu, sportinnréttingu og
vandaðasta búnaði sem fáanlegurer,
auk fullkominna hljómflutningstækja.
Traustur jeppi fyrir kr.1775.000.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR