Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1988, Side 40
... 52
MÁNUDAGUR 25. JÚLÍ 1988.
Jarðarfarir Fréttir
Þolreið hesta til Þingvalla:
Fóru þrjátíu kíló-
metra á tveim tímum
Helgi Sigurðsson dýralæknir skoðar einn þátttökuhestinn við endamarkið
á Spóahólum. DV-mynd GVA
Júlíus Guðjónsson andaðist 16. júlí í
Borgarspítalanum. Hann var fæddur
28. júní 1905 á Neistastöðum í Flóa.
Hann var lengst af sjómaður, en
starfaði hjá Verkamannabústööum
20 síðustu starfsár sín. Hann giftist
Guðrúnu Sigurósk Jónsdóttur og
eignuðust þau tvö börn. Guðrún and-
aðist 8. maí 1935. Seinni kona Júlíus-
ar er Ingibjörg Bjömsdóttir og eign-
uðust þau tvö böm. Einnig ól hann
upp tvö börn Ingibjargar frá fýrra
hjónabandi. Útfór Júlíusar verður
gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Svanhildur Þorvarðardóttir, áður til
heimilis á Hjarðarhaga 46, andaðist
á Hrafnistu í Hafnarfirði 7. júlí. Jarð-
arförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Steingrímur Karlsson, fyrrverandi
veitingamaður, lést í Borgarspítalan-
um 20. júlí. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskapellu miðvikudaginn 27.
júlí kl. 15.
Hrefna Siguijónsdóttir, Barmahlíð
53, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 26. júlí kl. 15.
Guðlaug Siguijónsdóttir hár-
greiðslumeistari, Skeiðarvogi 69,
verður jarðsungin í Fossvogskirkju
miðvikudaginn 27. júlí kl. 13.30.
„Ég ákvað að ríða á vaðið og fram-
kvæma þessa hugmynd mína. Þetta
hefur aldrei verið prófað hér á landi
áður,“ sagði Þórarinn Jónasson í
Laxnesi í samtali við DV. „Erlendis
er þolreið viðurkennd keppnisgrein
og eru Englendingar núverandi
heimsmeistarar."
Á laugardag lögðu tuttugu hestar
af stað frá Laxnesi í átt að Þingvöll-
um. Leiðin er rúmir 30 kílómetrar
og komu hestarnir tveimur tímum
síðar í mark á Spóahólum. Allir hest-
arnir luku keppni en fjórir voru
dæmdir úr leik eftir ákveðnum regl-
um.
Áður en hestarnir lögðu af stað
voru þeir skoðaðir vandlega af dýra-
lækni. Meðal annars var tekin blóð- •
prufa, skeifur athugaðar og hvort
einhver sár væru á hestinum. Þegar
hestarnir komu í mark voru þeir aft-
ur skoðaðir af dýralækni og hjart-
sláttur mældur. Refsistig voru gefin
ef hestarnir voru t.d. með gjarðarsár,
sár í munnvikum eða ef hesturinn
haföi slegið sig.
„Við ákváðum að takmarka fjöld-
ann núna við tuttugu hesta. Miðað
við þann áhuga sem hestamenn
sýndu geri ég ráð fyrir að á næsta
ári veröi þáttakendur vel yfir hundr-
að,“ sagði Þórarinn. „Hinn almenni
hestamaður hefur ekki svo mörg
tækifæri til að reyna hestinn sinn í
keppni. Einu skilyrðin eru þau að
eigándinn treysti hesti sínum til að
fara leiðina, hestamir séu sæmilega
á sig komnir og knapi sé orðinn 15
ára.
Þórarinn benti einnig á að íslenskir
hestar hefðu farið þvert yfir Amer-
íku og staðið sig mjög vel. Þessi leið
til Spóahóla væri góð-smalaferð og
stysta vegalengdin sem keppt væri á
í þolreið. Erlendis væri lengsta leiðin
um 100 mfiur og á næsta ári yrði far-
in tveggja daga þolreið. Þáttökuskil-
yrði þá yrðu að hestur hefði lokið
þolreið til Þingvalla.
Bandag sigraði
Sigurvegari í þolreiðinni vár hest-
urinn Bandag. Bandag er 12 vetra og
undan hryssu frá Hafsteinsstöðum í
Skagafirði og Sörla frá Sauðárkróki.
Eigandi og knapi er Öm Bjarnason,
auglýsingasljóri.
„Ég undirbjó héstinn aðeins síð-
ustu vikuna fyrir keppni,“ sagði Örn
í samtali við DV. „Ég hef að vísu allt-
af notað hann mikið en síðustu vik-
una tók ég hann í reið á hverjum
degi. Einnig gætti ég þess að svelta
hann aöeins og hafði hann inni síö-
ustu nóttina."
Bandag fór leiðina á tveimur tím-
um og 15 mínútum. Hann var að vísu
ekki með besta tímann en fékk aðeins
5 mínútur í refsistig fyrir púls. Eðli-
legur tíma fyrir þessa vegalengd er
5-6 tímar.
„í svona keppni eru það aðrir eðlis-
þættir sem njóta sín en í kappreiðum.
I þolreið eru það brokk og valhopp
sem gilda en í kappreiðum tölt og
skeið,“ sagði Örn Bjamason.
-JJ
Sýningar
Myndlistarsýning í Ferstiklu
Nú stendur yfir sýning á myndverkum
eftir Bjama Þór Bjamason frá Akranesi
í Ferstiklu á Hvaifjarðarströnd. Á sýn--
ingunni em oliukritarmyndir, coUage og
grafík (einprent). Myndimar em til sölu
og stendur sýningin tU 13. ágúst nk.
Tilkyiiningar
Loftbrú til Vestmannaeyja
Um verslunarmannahelgina verður
leiguflug Sverris Þóroddsonar með loft-
brú tU Vestmannaeyja. Flogið verður frá
HeUu og Reykjavik. Upplýsingar í síma
28011 í Reykjavík og 98-75165 á umboðs-
skrifstofunni á HeUu.
Færeysktioðnuskíp
tekið innan 200
mflna markanna
Varðskipið Týr stóð færeyska
loönuskipið Sjurður Tollaksson
FD 848 að ólöglegum veiðum 11,5
sjómfiur innan við mörk íslensku
fiskveiðilögsögunnar í gær-
kvöldi. Var færeyska skipið aö
veiðum þar sem heitir Slétta.
Sjurður er nú á leið til Húsavíkur
í fylgd Týs og er væntanlegur
þangað i kvöld. Ekki er vitað hve
raikið Sjuröur haföi veitt þegar
hann var staðinn að verki.
Helgi Hallvarðsson hjá Land-
helgisgæslunni segir þetta í
fyrsta skipti sera erlent skip sé
tekið að ólöglegura veiðum innan
200 mílna markanna.
______________________-hlh
Ferðalög
Utivistarferðir
MiðvUtudaginn 27. júfí og fimmtudaginn
28. júlí verða famar Þórsmerkurferðir
kl. 8, sérstaklega ætlaðar sumardvalar-
gestum. Hægt er áð dvelja tU fóstudags,
sunnudags, mánudags eða lengur. Uppl.
og farm. á skrifst., Grófinni 1, símar 14606
og 23732. Sjáumst.
Ferðafélag íslands
Miðvikudaginn 27. júli kl. 20 verður
kvöldferð í BláfjöU og upp á fjaUið með
stólalyftunni.
Sýningar á Light Nights
Sýningar Ferðaleikhússins á Light
Nights em í Tjarnarbíói við Tjömina í
ReykjavUt. Sýningar em fjögur kvöld í
viku, á fimmtudags-, fostudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöldum og hefjast
sýningamar kl. 21. Sýnt verður aUan júU
og ágúst. Síðasta sýning verður 28. ágúst.
Þetta er 19. sumarið sem Ferðaleikhúsið
stendur fyrir sýningum á Light Nights í
Reykjavík.
Menning
Æskufólk í Kristskirkju
Camerata Nova
Gunnsteinn Olalsson stjórnar Camerata Nova í Kristskirkju.
Alltaf er fallegt og vissulega
áhugavert að sjá og heyra unga
' fólkið sem er að læra að spila úti í
löndum. Þeirra á meðal er áreiðan-
lega margt talentið sem á eftir að
láta ljós sitt skína. Við skultam bara
vona að viö lifum það.
Á laugardaginn hóaði Gunn-
steinn Ólafsson, sem stundar nám
í tónsmíðum og hljómsveitarstjórn
í Þýskalandi, saman rúmlega 30
krökkum að spfia músík eftir Lars
Erik Larsson, Stravinsky, Beethov-
en og Mozart. Þetta var í Krists-
kirkju sem kannski er ekki beint
ákjósanlegur staður fyrir hljóm-
sveit þó þar megi vissulega gera
ýmislegt ef beitt er lagi. Tónleik-
amir hófust með Consertino eftir
Larsson, fyrir kontrabassa og
# strengi, og var einleikari Hávarður
Tryggvason en sá hefur margvakið
Tónlist
Leifur Þórarinsson
mikla athygli fyrir óvenjulega
músíkalskan leik. Og Hávarður
brást ekki að þessu sinni, það var
full og eðlileg músíkeining í öllu
sem hann gerði og hljómsveit og
stjórnandi fylgdu honum fast og
fallega eftir. Hins vegar var Kon-
sert í D eftir Stravinsky heldur
daufur hjá krökkunum, þar vant-
aði alla snerpu og æskuglóð. En
kannski er nú ekki heiglum hent
að blása lífi í þetta „miðlungsmeist-
arastykki“ sem Stravinsky samdi í
hvelli fyrir Paul Sacher (súkkulaöi
og lyf) í Sviss 1946.
Því miður féll niöur arían Ah,
perfido eftir Beethoven, vegna
veikinda söngkonunnar ágætu,
Signýjar Sæmundsdóttur. Signý er
einn mest „spennandi" sópran
okkar þessa dagana og á maður
vonandi eftir að heyra í henni á
næstunni.
Lokaverkið á þessum tónleikum,
sem voru haldnir undir nafninu
Camerata Nova, var Prag sinfónían
eftir Mozart. Þar reyndi mest á
stjórnandann og þó hann tæki
flesta hluti heldur hægt og dauflega
fyrir minn smekk þá var útkoman
sfils ekki óskemmtileg.
í öllu falli var þetta hin þekkileg-
asta samkoma og gott til þess að
hugsa aö áheyrendur láta ekki á
sér standa þegar mikið liggur við
því hver bekkur var þétt setinn í
kifkjunni. LÞ