Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988. Fréttir_________________________________________ Framúrakstur á fjáriógum: Iðnaðarráðuneytið langstórtækast Eyðsla ráðuneyta og stofnana umfram fjárlög á árunum 1983 til 1986 A þessu súluriti má sjá framúrakstur á fjárlögum á árunum 1983 til 1986 skipt eftir ráöuneytum. lönaöarráðuneyt- ið ber þar af. Það fór aö meðaltali fram úr fjáriögum sem nemur 150 prósentum á ári. Næst fylgir æðsta stjórn ríkisins sem ekki fellur undir neitt ákveðið ráðuneyti. Framúrkeyrsla hennar nam að meðaltali 48 prósentum. Síð- an fylgja ráðuneytin koll af kolli. Fjármálaráðuneytið er eini pósturinn á fjárlögum sem eyddi minna er Alþingi gaf heimild til. Þaö skilaði til baka sem nemur 9 prósentum af framlagi fjárlaga. Iðnaðarráðuneytið átti metiö í framúrakstri á fjárlögum á árunum 1983 til 1986. Á þeim árum fór ráðu- neytið að meðaltali 150 prósentfram úr fjárlögum. Út úr því ráðuneyti runnu að meðaltali tvöfalt til þrefalt meiri fjármunir á ári hverju en Al- þingi hafði samþykkt. Þetta er þre- falt meiri framúrakstur heldur en hjá þeim pósti fjárlaga sem næstur kom. Á eftir iðnaðarráðuneytinu kemur æðsta stjóm ríkisins sem ekki fellur undir neitt ákveðið ráðuneyti. Æðsta stjóm ríkisins er forseti íslands, Al- þingi, Hæstiréttur og ríkisstjóm. Þessir aðilar fóm að meðaltali um 48 prósent fram úr fjárlögum á árun- um 1983 til 1986. Síðan fylgja ráðuneytin hvert af öðm. Dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið fór 43 prósent fram úr fjárlögum, utanríkisráðuneytið 39 prósent, landbúnaðarráðuneytið 33 prósent og sjávarútvegsráðuneytiö 31 pró- sent. Fjárlaga- og hagsýslustofnun 30% fram úr fjárlögum Næst á hstanum er stofnun sem er sérstaklega flokkuð í ríkisreikning- um, Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Hún fór að meðaltali 30 prósent fram úr fjárlögum. Þessi stofnun hefur eftirlit með því að stjórnendur ríkis- stofnana haldi sig innan ramma fjár- laga. Það kann þvi að skjóta skökku við að stofnunin sjálf skuli fara jafn- langt fram úi;framlögum á fjárlögum og raun ber vitni. Viðskiptaráðuneytið kemur næst með 26 prósent framúrakstur. Þar næst menntamálaráðuneytið með 24 prósent, Hagstofan með 18 prósent, félagsmálaráðuneytið með 17 pró- sent, heilbrigðis- og tryggingamála- ráðúneytið með 15 prósent og sam- gönguráðuneytið með rúm 12 pró- sent. í þessum hópi eru þrjú fjárfrekustu ráðuneytin; heilbrigðis-, samgöngu- og menntamálaráðuneyti. Það hlýtur að gleðja alla fjármálaráðherra að þessi ráðuneyti skuli halda sig þó þetta vel innan ramma fjárlaga. Ef heilbrigðisráðuneytið færi jafnheift- arlega fram úr fjárlögum og til dæm- is æðsta stjóm ríkisins er hætt við að gatið á ríkiskassanum myndi stækka um nokkra milljarða á ári hverju. Forsætisráðuneytið fór að meðal- tali tæp 12 prósent fram úr fjárlögum á umræddum árum og Ríkisendur- skoðun eyddi 10 prósent umfram fjárlög. Eina ráðuneytið sem ekki eyddi umfram fjárlög á þessum árum var fjármálaráðuneytið sjálft. Það skilaði til baka sem nam 9 prósentum af framlögum sínum að meðaltali. Eflaust em einhveijir sem þakka það góðum skilningi ráðuneytisins áfjár- þörf sinni við ákvörðun fjárlaga frek- ar en aðhaldssemi í rekstri. -gse Skömmtunaikeifid íferskfisksölu sniðgengið: Meira selt eriendis en kvótinn segir til um Utgerðarmenn og fiskútflytjend- ur sniðganga takmarkanir sjóm- valda á útflutingi á óunnum þroski og ýsu. Um 1200 tonn af ferskum þorski og ýsú frá íslandi hafa verið seld á Bretlandsmarkaði fyrstu þtjá daga vikunnar, samkvæmt upplýsingum frá íslenskum um- boðsfyrirtækjum í Grimsby og Hull. UtanrQdsráðueytið heimilaði aðeins útflutning á 850 tonnum. Föstudaginn 15. júlí og mánudag- inn 18. júlí veitti viöskiptadeild ut- anríkisráðuneytisins gámaútflytj- endum leyfi til að flytja út og selja 550 tonn af þorski og ýsu í þessari viku. Landssamband íslensfcra út- vegsmanna notaði heimild sina til að gefa aighngaleyfi fyrir 250-300 tonnum af ýsu og þorski. Fiskur úr 80 gámum var seldur á mörkuðunum í Hull og Grimsby á mánudag og í gær. Magniö er sam- tals 1040 tonn og umboösaöilar í Bretlandi fullyrða að ekki minna en 70 prósent af aflanum, eða 730 tonn, hafi veriö ýsa og þorskur. Fjögur íslensk skip og bátar seldu samtals rúm 500 tonn af þorski og ýsu fyrstu þijá daga vikunnar. Samkvæmt þessum upplýsingum hafa um 350 tonn af ýsu og þorski verið veriö flutt til Bretlands íleyf- isleysi. Stefán Gunnlaugsson, deildarstjóri viðskiptadeildar utan- ríkisráðuneytisins, sagðist ekki kannast við umframútflutning á gámafiski og kvaðst að svo stöddu ekki geta sagt til um aögerðir ráðu- neytisins vegna málsins. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hag- fræðingur fijá LÍÚ, var ekki búinn að fa tölur um skipasölur í Bret- landi og vildi hvorki játa né neita upplýsingum umboösfyrirtækj- anna. Hann benti þó á aö þegar skip og bátar fengju heimild til að sigla væri fiskurinn enn ekki veiddur og því ekki hægt að áætla með neinni nákvæmni hvað yrði selt úr þeim þegar landað yrði í Bretlandi. pv Leigubifreiðastjórar eru jafnan mættir á Akureyrarflugvöll þegar vélar Flug- leiöa koma þangað, enda von á viöskiptavinum. Þessir tveir heiðursmenn voru mættir þar til leiks á dögunum og eins og sjá má fannst þeim hávað- inn mikill-er „Fokkerinn" renhdi í hlað. DV-mynd gk, Akureyri. Ibúar við Tjamargötu: Kæra stækkun ráðhúslóðar Lóðaeigendur við Tjamargötuna í Reykjavík hafa lagt fram kæru gegn bygginganefnd Reykjavíkur vegna þeirra ákvörðunar að stækka lóðina Tjamagötu 11 og Vonarstræti 11 um 342%, ennfremur úthlutun þeirrar nefndar á þessu viðbótarsvæði til Reykjavíkurborgar. í kæra, sem send hefur verið til félagsmálaráðherra, segir eftirfar- andi: „Þar sem okkur er ekki kunnugt um neinar sérstakar eignarheimildir Reykjavíkurborgar á umræddum 3.065 fermetrum lands umfram aðra, sjáum við okkur knúna til að kæra hér með þessa úthlutun." Lóðaeigendur fóm fram á við bygg- inganefnd Reykjavíkur að hún gerði grein fýrir eignarheimildum sínum við Tjömina með bréfi 27. júní síðast- liöinn og óskuðu eftir svari 8. júlí sl. en hafa ekki enn fengið svar og kærðu þess vegna meðan kærufrest- ur var. -GKr 1H mótsvið feijuflugmann Landhelgisgæsluniii barst hjálparbeiðni frá bandarískum ferjuflugmaimi í nótt þar sem hann var á leiðinni milli Narss- assuaq á Græniandi og Keflavík- ur í lítilli 4 sæta Toma Hawk flug- vél. Óttaöist flugmaðurinn að hafa ekki nægilegt eldsneyti til aö ná landl Fór flugvél flugmála- stjórnar tU móts við vélina og var f sarafloti við hana frá hálfþijú. Þyrla landhelgisgæsluimar bætt- ist í hópinn frá kl. rúmlega 4 og var lent á Keflavíkurfiugvelli rétt fyrir hálflimm. Miðað viö áætlun átti fugvélin þá eldsneyti eftir til 9 mínútna flugs. Að sögn landhelgisgæsl- imnar er það mjög lítið afgangs- eldsneyti við lendingu. Hafði heyrst um áhyggjur af ferðum mannsins frá Kanada í gærkvöldi og því komu vandræði hans ekki aftan að mönnum hér. -hlh Skoðanakötuiun Skáís: Mlnnkandi fylgi Kvennalista Fylgi Kvennalistans fer minnk- andi ef marka má nýja skoðana- könnun Skáís og Stöðvar 2. Hann er þó enn næstvinsælasta stjóm- málaaflið. Samkvæmt könnuninni myndu 23,3% þeirra sem tóku afstöðu kjósa Ustann. I fyrri könnunum hefur Kvennalistinn haft um 30% fylgi. Þaö virðast helst vera Sjálf- stæðis-, og Framsóknarflokkur sem hirða fylgi Kvennalistans. Sjálfstæðisflokkur er með 32,8% fylgi og Framsóknarflokkurinn er með 20,3% fylgi. Einnig var spurt um fylgi ein- stakra stjómmálamanna. Þar kom fram aö Steingrímur Her- mannsson er langvinsælastur allra stjómmálamanna. Hann er með meira en helmingi fleiri at-. kvæði en sá næstvinsælasti sem. er Halldór Ásgrímsson. Þorsteinn" Pálsson er í þriðja sæti. -PLP Rassía hjá lögreglunni: 78 færðir til skoðunar 78 bílar vora færðir til skoðun- ar af lögreglunni í Reykjavík í gær. 17 þeirra misstu númerin. Restin fékk rauðan eða grænan miða og hvítan, en einhverjir höfðu einfaldlega trassaö að fara með bíiinn i skoöun. Að sögn lögreglunnar er rassía sem þessi gömul venja fyrir versl- unarmannahelgi en Óskar Óla- son, sem áöur var yfirlögreglu- þjónn umferðardeildar, stóð fyrir svona aögerðum þá. Þá vom margír á gömlum druslum. Þrátt fyrir nýlega bíla í dag er mjög mikiö um bíla í óökuhæfú ástandi eða því sem næst -hlh Straumur til Eyja Samkvæmt þeim upplýsingum sem DV aílaöi sér hjá Bifreiöastöð Islands og Flugleiðrum virðist að- alfólksstraumurinn um verslun- armannahelgina ligsja á þjóð- hátíöina í Vestmannaeyjum. Hjá BSÍ var DV tjáð að áhuginn á Atlavík og Melgeröismelum væri mikffl en áberandi að fólk færi ekki endilega á hinar skipu- lögðu hátíðir. Þannig væri mikiö um pantanir í Þórsmörk og á Laugarvatn. Einar Sigurðsson, blaöafulltrúi Flugleiða, segir föstudaginn fyrir verslunarmannahelgi einn af stærri dögum ársins hjá félaginu. Verða famar 29 fiugferðir frá Reykjavík þann dag. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.