Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988. Útlönd hafln George Bush, (orsetaframbjód- andi repúbllkana, segist muni reka heiðarlega rikisstjóm. Simamynd Reuter George Bush, forsetaframbjóö- andi repúbllkana í kosningunum í nóvember, sagðist myndu skipa sérstakan siðgæðisráöunaut er sjá myndi til þess aö embættismenn ríkisstjómar hans störfúðu á heiö- arlegan og hreinskilinn hátt yröi hann kosinn forseti. Bush reynir nú aö aðskiija sjálfan sig og fram- boð sitt frá hneykslum sem nú ríöa yfir Hvíta húsiö og stjóm Reagans forseta, s.s. afsögn dómsmálaráö- herrans og rannsókn á hegöan for- seta fulltrúadeildarinnar, Jim Wright. Sprenging í Mexíkó Sprengja sprakk á skrifstofu mexíkansks verðbréfasala aðfaranótt þriðjudags. Enginn særöist í árásinni. Lögregluyfirvöld í Mexíkó fúndu bækbnga merkta áður óþekktum stjómarandstöðuhópi á svæðinu. í bæklingunum kalla meðlimir hópsins á frelsi verkamanna og sósíalisma í Mexíkó ellegar dauöa. Árásin kemur um tuttugu dögum eftir aö þing- og forsetakosningum lauk í Mexíkó þar sem stjómarflokkurinn er sakaður um víðtækt kosn- ingasvindl. Frambjóðendur stjómarandstöðunnar hafa hvatt tii mótmæla gegn nið- urstöðum kosninganna en frambjóðandi Byltingarflokksins, stjómar- flokks Mexíkó, hlaut alls 50,4 prósent atkvæða sem er minnsta fylgi stjóm- arflokksins. Stjómarandstaöan segir niðurstöðumar falsaðar og hvetur Mexikana tíl aö mótmælá þeim án þess þó aö nota ofbeldi. Argentísku horforingjamir þrir sem nu eiga yfir höföi sér annan dóm en þann sem þeir hlutu í herrétti áriö 1986 fyrir aðild þeirra að Faik- iandseyjastríöinu. Simemynd Reuter Réttarhöld vegna Falkiandseyjastriösins, sem hófúst árið 1982, hófúst í Argentínu í gær. Sérstakur saksóknari i raálinu ásakaði þrjá herforingja, sem börðust í stríðinu, ura að hafa bmgöist hemaöarlegura skyldum sín- um og um kunnáttuleysl Saksóknarinn sagði að Argentíria heföi tapaö stríðinu strax á fyrsta degi og hann kvaðst sækjast efúr harðari dómum en mennirair þrír hefðu fengiö í herrétti árið 1986. Mennimir afþlána nú á milli átta og fiórtán ára fangelsisdóm. Réttarhöldin veröa opin almenningi og munu öll vitni nema eitt bera vitni fyrir eyrum almennings. Þetta eina vitnier eini borgarinn sem leidd- ur veröur aö vitnastúkunni. Karoiy Grosz, forsætiráöherra Ungveijalands, sem er í opinberrri heimsókn í Bandaríkjunum, ræddi í gær viö bandaríska utanríkisráö- herrann, George Shuitz. Grosz hef- ur staöiö fyrir miklum pólitískum og efnahagslegum umbótum í Ung- verjalandi á þeim þrettán mánuö- um sem hann hefúr gegnt embætti og vom þær helsta umræðuefni þeirra. ' Grosz ræddi viö Shultz um aukn- ar bandarískrar fiárveitingar til endurskipulagningar efnahags landsins en Ungvetjaland á viö ell- efú raiRjaröa dollara erlenda skuld að striöa. Ungverjaland æskir betrí viöskiptatengsla viö Bandaríkin, lægri kvóta og lægri viðskiptatolla, svo og auknar fiárfesöngar Banda- ríkjamanna í Ungverjalandi. Karoly Grosz raecMI viö George Shultz I opinberrl helmaókn I Bandaríkjunum. Simsmynd Reuter Mótmæii í Júgóslavíu Þúsundir Júgóslava ætla aö safnast saman fyrir fraraan herrétt i Lju- blana, höfuöborg Slóveníu-héraös f Júgóslaviu, til að bíöa úrskurðar dóm- ara í málum þriggia blaöamanna og eins hermanns sem ásakaðir hafa verið um aö höndla meö hemaðarleyndarmál. Réttarhöidin fara fram fyrir luktum dyrum og segja stjómmálaskýrend- ur að mál þetta hafi skapað leiöindi milli júgóslavneska hersins og yfir- valda 1 Slóveníu. Hemaöaryfirvöld segja aö eitt skjalanna, sem máiiö snýst um, fjalli um hversu vel undirbúnar ýmsar herdeildir landsins séu en gaf engar nán- ari skýringar. Hinir ákæröu eiga yfir sér þriggja mánaöa til fimmtán ára dóm ef þeir veröa dæmdir sekir. Úrskurðar dómara er að vænta seinna í dag. Rvuter Eigandi þessa veitingahúss á Mallorca, Geoffrey Kenyon, var handtekinn í gær, grunaður um aöild að einum stærsta smyglhring sem vitaö er um. Símamynd Reuter Hasskóngur handtekinn Bandarísk, bresk og spænsk yfir- völd hafa haft hendur í hári eins umsvifamesta eiturlyfjasmyglara heims. Dennis Marks, sem kaliaöur var Marco Polo smyglaranna, 43 ára, var handtekinn á sólríku eyjunni Máflorca ásamt Judith konu sinni. Annar Breti, Geoffrey Kenyon, var einnig handtekinn, grtmaður um að- ild aö sama smyglhringnum. Taliö er aö Marks sé höfuðpaurinn í einum stærsta smyglhring sem vit- að er um. Upphaf smyglhringsins má rekja til ársins 1970 en síðan þá er talið að meðlimir hans hafi smygl- aö mörg þúsund tonnum af mariju- ana og hassi frá Asíu til Bretlands, Bandaríkjanna, Spánar og annarra landa. Marks hélt því fram aö hánn væri í raun að vinna sem njósnari fyrir bresku leyniþjónustuna og aö starf hans sem eiturlyfjasmyglari væri eingöngu til aö hylja yfir njósnastarf- semina. Bresk yfirvöld neituöu þeirri staðhæfingu. Yfirvöld í tíu löndum hafa hand- tekið alls tíu manns sem talið er aö hafi átt aðild að samtökunum og stendur nú yfir víðtæk leit að þeim tólf mönnum sem enn ganga lausir. Bandarísk yfirvöld sögðu frá því í morgun að breskur lávaröur, Sir Anthony Moynihan, heíði átt stóran þátt í að Marks og aðrir meðlimir smyglhringsins náðust en Moynihan brá sér í gervi smyglara. Bandarísk yfirvöld hafa einnig höggviö stórt skarð í framleiðslu Medellin smyglsamtakanna frá Kolombíu. Meðlimir samtakanna létu óeinkennisklæddum lögreglu- mönnum í té um 600 kíló af kókaíni sem flytja átti frá Kólombíu til New York. Þrír háttsettir meðlimir sam- takanna í New York vom handteknir í kjölfar viðskiptanna. Medellin eru ein stærstu smygl- samtök heims og hafa verið aö reyna aö komast inn á bandaríska markaö- inn. Reuter Skaðabótamál vegna kyiwilluyfirlýsiiiga Guuniaugur A. Jónsson, DV, Lundi: í dag hefiast í beinni sjónvarpsút- sendingu yfirheyrslur í Ebbe Carls- son-málinu svonefnda í stjómar- skráraefnd sænska þingsins. Þeir sem yfirheyrðir veröa í dag em Ebbe Carlsson sjálfur, sem á skömmum tíma hefur orðið umtalaöasti maöur Svíþjóöar, Hans Holmér, fyrrum lög- reglustjóri í Stokkhólmi, og Nils Mánsson ríkislögreglustjóri. Vafalaust er almenningur í Svíþjóö fyrir löngu orðinn þreyttur á Ebbe Carlsson-málinu sem hefur verið for- síðuefni í dagblöðum vikum s'aman en sífellt kemur eitthvað nýtt í fjós sem veröur til að halda lífi í málinu. Sem kunnugt er neyddist Anna- Greta Leijon dómsmálaráðherra til að segja af sér embætti á sínum tíma er fjölmiðlar komust aö því að hún hefði skriflega lagt blessun sína yfir að bókaútgefandinn Ebbe Carlsson, sem var persónulegur vinur hennar, stimdaði sjálfstæða rannsókn á Palmemorðinu. Ekki bætti úr skák er fyrrum lífvörður Hans Holmérs var handtekinn er hann reyndi aö smygla ólöglegum hlerunartækjum til landsins. Ebbe Carlsson viður- kenndi þegar að eiga þar hlut að máli. Nú um helgina tók málið enn á sig pýja mynd er Henxúng Sjöström, þekktasti lögfræðingur Svía, sagði í sjónvarpsviðtali að nauðsynlegt væri að rannsaka einkalíf og kynlíf ýmissa þeirra sem mest kæmu viö sögu í Ebbe Carlsson-málinu. Þrálát- ur orðrómur hefðí verið á kreiki um kynvillusamband ýmissa þeirra sem mest kæmu viö sögu. Hafa yfirlýsingar þessar leitt til umræöna í fjölmiðlum þar sem ýms- um þykir sem nú hafi bæöi Sjöström og fjölmiðlar gengiö of langt Aörir benda hins vegar á aö í njósnamálum og því um líkum málum sé mjög al- gengt að kynlíf gegni mikilvægu hlutverki og því sé nauðsynlegt aö rannsaka einnig þann þátt. Lögfræðingur Ebbe Carlsson hefur skýrt frá því að hann muni höfða skaðabótamál á hendur sænska sjón- varpinu vegna fréttarinnar irni hugs- anlegt kynvillusamband Ebbe Carls- son og ýmissa þeirra sem koma mest viö sögu í málinu. Anna-Greta Leijon sagði um helg- ina að hún kannaðist ekki við neitt slíkt samband milli Ebbe Carlsson og annarra aðilá í málinu. Ennfrem- ur lét hún í ljós þá von að umræður un) máiið yrðu ekki dregnar niður á slíkt plan. Hún játaði enn á ný að sér hefðu orðið á mistök er hún skrifaði meðmælabréf með Ebbe Carlsson en viðbrögðin í fjölmiðlum hefðu orðiö miklum mun meiri en eðlilegt gæti talist. Hún sagði að það væri mjög alvarlegt aö þetta mál virtist ætla aö koma í veg fyrir eðlilegar umræður um aðrar þýðingarmiklar spuming- ar í kosningabaráttunni. í gær krafðist Bengt Westerberg, formaður Þjóðarflokksins, þess að Carl Lidbom, sendiherra Svía í Frakklandi, yrði sviptur formennsku í nefnd þeirri sem hefur með höndum rannsókn á störfum sænsku öryggis- lögreglunnar. Lidbom hefur komiö nokkuð við sögu í Ebbe Carlsson- málinu og um helgina birtist grein eftir hann þar sem hann geröi mjög lítið úr mistökum Önnu-Gretu Leijon og annarra í málinu. Líkti hann því til dæmis við stöðumælabrot að Ebbe Carlsson hefði fengið aðgang að leynilegum gögnum í Palmemálinu. Grein þessi hefur vakiö mjög harkaleg viðbrögð og orðiö til þess að afsagnar Lidboms hefur verið krafist eins og áöur segir. Ingvar Carlsson forsætisráöherra hefur nú lofað stjómarandstöðunni því aö nefnd sú sem Carl Lidbom er í forsæti fyrir muni ekki koma sam- an fyrir kosningar. Er það talin vís- bending um að Lidbom veröi sviptur formennsku í nefndinni aö kosning- um loknum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.