Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Undir í samkeppni Helgarpósturinn kemur ekki út. Útvarpsstöðin Bylgj- an minnkar við sig. Þannig gengur í samkeppni fíölmiðl- anna. Sumir halda það ekki út. Helgarpósturinn var nokkuð gott vikublað, meðan hann var og hét. Hann var oft hressandi. Blaðið af- hjúpaði nokkur mál, meðal annars Hafskipsmáhð. Síðan varð Helgarpósturinn eitt fórnarlamba gjaldþrota Haf- skipsmálsins. Hafskip fór á höfuðið. Helgarpósturinn fór einnig á höfuðið, líklega eins og hann hefði einblínt um of á Hafskip, of lengi, svo að blaðið hætti að vera ferskt. Lengi áður en blaðið hætti, var deyfð yfir því. Lesendur sáu, að blaðið var ekki svipur hjá sjón. Þá loddi lengst af við blaðið, að ekki var vandléga htið á heimildir. Margt var jafnan í því blaði, sem ekki fékk staðizt, byggt á ónákvæmum upplýsingum. Engu að síður er sjónar- sviptir að því, að Helgarpósturinn kemur ekki út. En tapið var orðið gífurlegt. Núverandi stjórnendur eru jafnvel að krefjast rannsóknar á framferði fyrrverandi stjórnenda. Máhð er orðið hneykshsmál, Helgarpóstsins sjálfs. Flestir landsmenn mundu kjósa, að þetta blað kæmi út að nýju og næði sama ferskleika og þegar bezt gekk. Bylgjan dregur saman seghn. Fréttir þeirrar útvarps- stöðvar verða hér eftir aðeins svipur hjá sjón. Bylgjan fór vel af stað. Tónhst þeirrar stöðvar bar um margt af. Fréttirnar voru oft góðar. En samkeppnin reyndist stöðinni of hörð, enda margir um hituna. Nú verður breyting á, breyting sem ekki er ástæða til að fagna. Vissulega er rétt hjá bylgjumönnum, að aðrir Qölmiðlar sinna fréttum vel og raunar miklu betur en útvarps- stöðvarnar. En sorglegt er, að aðstandendur Ríkisút- varpsins, rásar eitt og rásar tvö, geta sífeht gengið að skattborgurunum th að halda uppi rekstri sínum og gera hinum frjálsu útvarpsstöðvum því erfitt fyrir. Séu rásir Ríkisútvarpsins reknar með haha, er bara seilzt dýpra í vasa skattborgaranna. Rétt væri, að einstakhng- ar tækju við Ríkisútvarpinu, auðvitað með ákveðnum skyldum. Rásirnar yrðu því reknar í raunverulegri sam- keppni við aðrar stöðvar. Þetta gildir einkum um rás tvö, sem hiklaust á að selja og það sem fyrst. En það eru ekki bara ríkisfjölmiðlarnir alþekktu, sem njóta óeðlilegrar aðstöðu. Flokksblöðin eru ríkisstyrkt. Þannig er haldið uppi öhum blöðunum nema Dagblað- inu Vísi, sem hafnar ríkisstyrk. Blöðin Alþýðublaðið, Þjóðvhjinn og Tíminn entust ekki lengi án ríkisstyrkja eða annarra hlunninda af hálfu ríkisins. Það er DV sízt áhyggjuefni, að þessi blöð koma út. En það eru rang- indi, að fjölmiðlar hfi á ríkisstyrkjum. FJölmiðlar eiga að standa og faha með því, hvort fólk vhl kaupa blöð og lesa eða horfa á sjónvarpsstöðvar eða hlusta á út- varpsstöðvar. Við getum verið þakklát því útvarps- frelsi, sem thtölulega nýlega fékkst. En það á ekki að láta okkur hta ffamhjá þeim göhum, sem á þessu eru eins og sakir standa. Ekki þarf að amast við flokks- blöðum, ef flokksmenn vhja halda úti hugvekjum th sinna manna. En skattborgarar eiga að fá að vera í friði. Skattgreiðendur eiga að vera í friði fyrir stjórnmála- mönnum, sem hirða fjármuni órétthega fyrir eigin blöð. Skattgreiðendur eiga að losna undan því oki að greiða af tekjum sínum, th þess að uppi sé haldið óvinsælum útvarpsstöðvum. Eins og Bylgjan er í vanda, eiga rásir Rikisútvarpsins að fmna fyrir vandanum, ef ekki er nóg á þær hlýtt. Haukur Helgason .„í júníblaði Voga er grein eftir Ólaf G. Einarsson alþingismann, þar sem hann víkur „smekklega" að Kvenna- listanum. Þar er hann þó einstaklega seinheppinn og hefði þurft að lesa Morgunblaðið sitt betur.“ Sannleiksleit er ýmsum þraut Sjálfstæðismenn í Kópavogi reka pólitík sína af mikilli elju, gefa m.a. út blaðið „Voga“ mánaðarlega í 40-50 þús. eintökum - eða álíka og Morgunblaðið - og dreifa „ókeypis inn á heimili í Reykjaneskjördæmi og í stóran hluta Reykjavíkur", eins og segir í blaðinu. Sú hugul- semi er þó sennilega nýtilkomin, a.m.k. hefur undirrituð ekki kynnst þessu blaöi fyrr en á síðasta vetri. Síðan hafa 4 tölublöð dottið inn um póstlúguna, og hvað sem gerst hefur fram að þeim tíma, þá vill svo til, að Kvennahstann hefur borið á góma í þeim öllum. Því miður virðast þó sjálfstæðis- menn ekki kunna að vanda til heimilda í skrifum sínum í þessu vitt útborna blaði, og því er nauð- synlegt að svara þeim með fáeinum orðum, þar sem rangfærslur úr þeim hafa ratað inn í málflutning annarra. Ætlunin var að gera það í Vogum með góðfúslegu leyfi rit- nefndar, en hún þarf sitt sumarfrí eins og aðrir, og nýtt tölublað mun ekki væntanlegt fyrr en í septemb- er. Því er DV beðið fyrir nokkur orð, enda hefur ein rangfærslan úr Vogarskrifum verið borin inn á síö- ur DV nýlega. Rangfærslur Fyrst skal nefna greinarkorn eft- ir Þorstein Halldórsson í aprílblaði Voga, sem hann nefnir „Skinhelgi Kvennalistans" og fjallar þar aðal- lega um afstöðu Kvennalistans til lagasetningar um fæöingarorlof í þinglok 1987. Póhtísk bhnda var svo augljós í ' þessari stuttu grein, að hún virtist ekki svara verð; en síðan hefur komiö í ljós, að margir sjálfstæðis- menn halda hinu sama fram um afstöðu Kvennahstans í þessu máli og virðast vilja koma því inn hjá almenningi. Þeirra á meöal er formaðurinn sjálfur, sem endurtók vitleysuna úr nafna sínum Hall- dórssyni í sjónvarpsþætti í maí sl., og Sólveig Pétursdóttir varaþing- maður, sem enn klifar á því sama í grein í júlíblaöi Voga. Allt þetta fólk heldur því blákalt fram, að Kvennahstinn hafi „ekki“ haft „þrek til að greiöa málinu at- kvæði“, eins og Þ.H. orðaði það og nafni hans Pálsson eitthvaö á svip- aða leiö í sjónvarpsþættinum, og S.P. segir orðrétt: „Hinar ágætu Kvennahstakonur höfðu hins veg- ar ekki fyrir því að ljá þessu góða máli hðsinni sitt.“ Sannleikurinn Kvennalistinn flutti sinn fyrsta vetur á þingi og árlega þar eftir frumvarp til laga um lengingu fæð- ingarorlofs í 6 mánuði og jafnan rétt til fuhra orlofsgreiöslna. Jafn- framt var flutt frumvarp um tekju- öflun vegna kostnaðar viö fæðing- Kjállariim Kristín Halldórsdóttir þingkona kvennalistans arorlof, sem var meira en ríkis- stjórnin gerði, þegar hún loks tók við sér og lagði fram frumvarp um fæðingarorlof tveimur vikum fyrir þingslit 1987. Reyndar var þar ekki um eitt mál að ræða, heldur tvö. Hið fyrra fjall- aði um lengingu fæðingarorlofs úr 3 mánuðum í 6, en að vísu í þrem stökkum en ekki einu, eins og Kvennalistinn lagði tíl. Aldrei kom þó annað tíl greina en að styöja þetta stjórnarfrumvarp, og þaö gerðum við Kvennahstakonur sannarlega. Hið síðara var um fyrirkomulag greiðslna í fæðingarorlofi og skipt- ingu þeirra í „styrk“ og dagpen- inga, sem eru mismunandi eftir aöstæðum viðkomandi og t.d. fá heimavinnandi húsmæður enga dagpeninga. Þetta fyrirkomulag töldum við - og teljum enn - órétt- látt og flókið og gátum ekki stutt það. Hins vegar vhdum viö ekki bregða fæti fyrir máhð í heild sinni og sátum því hjá við afgreiöslu þessa hluta þess. Þeir, sem vhja leita sannleikans um þessi efni, geta fundið hann í 18. og '20. hefti Alþingistíðinda 198&-87. Ólafur G. og Kvennalista- „bullið“ En það vefst fyrir fleirum að vanda th heimilda. í júníblaði Voga er grein eftir Ólaf G. Einarsson al- þingismann, þar sem hann víkur „smekklega“ að Kvennahstanum. Þar er hann þó einstaklega sein- heppinn og hefði þurft að lesa Morgunblaðið sitt betur. Hann vitnar - án þess þó að geta heimhdar - í frétt í Mbl. 2. júní, en hún er byggð á grein í Toronto Sun í Kanada, sem segir frá ársþingi kanadískrar kvennahreyfingar, þar sem Þórhildur Þorleifsdóttir flutti opnunarræðu og sagði frá starfi Kvennahstans. I frétt Mbl. er m.a. þýtt upp úr Sun-greininni á þá leið, að Kvennalistakonur séu „að þessu skemmtunarinnar vegna“ og að „bestu hugmyndir kvikni út frá þessu bulli". Þessar setningar hafa greinhega hitt ýmsa í hjartastað svo rækilega, að sennhega vilja þeir ekki heyra sannleikann í málinu. Hann er hins vegar sá að bullið á hvergi heima nema hjá Toronto Sun, og öll var sú grein full af villum og rangfærsl- um, eins og Þórhildur leiörétti rækilega í Mbl. 7. júní. Þá grein hefur Ólafi ekki hentað að lesa, enda ekki eins hagstætt fyrir keppi- nauta Kvennalistans að vitna í hana. Sighvatur og meira bull Nú er svo komið í ljós, aö Sig- hvatur Björgvinsson, þingmaður Alþýðuflokksins, treystir Olafi G. svo takmarkalaust sem heimhdar- manni, að hann tekur þessa vit- leysu upp úr Vogum í grein í DV 5. júlí, sem þó fjallar að stórum hluta um nauðsyn vandaðra vinnubragða! Það hvarflar kannski að einhverjum, að Sighvatur hefði mátt spara vandlætingaroröin í grein sinni um botnlausa fáfræði fjölmiölamanna, þekkingarskort og umræðu á lágu plani, fyrst hann fellur sjálfur í þennan pytt að leita ekki réttra heimhda. Hver skyldi svo koma næst og fiska rangfærsluna um bullið upp úr grein Sighvats, sem tók hana úr grein Ólafs, sem tók hana úr Mbl., sem þýddi hana úr Toronto Sun? Eða má vænta þess, að þessi leiörétting dugi? Eigum við ekki að lyfta umræð- unni á örhtið hærra plan, eins og skáldið sagði? Kristín Halldórsdóttir „ Pólitísk blinda var svo augljós 1 þess- ari stuttu grein, að hún virtist ekki svara verð, en síðan hefur komið í ljós að margir sjálfstæðismenn halda hinu sama fram um afstöðu Kvennalistans í þessu máli og virðast vilja koma því inn hjá almenningi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.