Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1988, Síða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Marlee Matlin talar
Margir álíta aö Marlee Matlin hafi
verið ótrúlega heppin og aö hún ætti
að vera ánægö með þaö sem henni
hefur tekist hingað til. En hin heyrn-
arlausa leikkona er nú ekki aldeilis
á því aö taka saman föggur sínar,
þakka fyrir sig í Hollywood fyrir
Children of a Lesser God, og hverfa
í fjöldann.
Úm þessar mundir glímir hún viö
hlutverk í tveimur kvikmyndum þar
sem þess er krafist að hún tali.
Reyndar hefur Marlee þegar sýnt
hæfileika sína til að tala, því þegar
hún veitti Michael Douglas óskarinn
fyrr á árinu þá sagði hún nokkur
orð.
Ólíkt því sem gerðist með Söru í
myndinni Children of a Lesser God,
þá er Marlee ekkert hrædd við að
tala. Þó að framburður hennar sé
dálítið óskýr, þá getur hún vel gert
sig skiljanlega. Henni finnst gaman
að tala og segist reyndar sjálf tala
of mikið.
Fékk loks talhlutverk
Hlutverkin tvö sem hún leikur
núna, eru einmitt það sem hún hefur
verið að bíða eftir, síðan hún hlaut
talkennslu. Hún segir að nú fái hún
upp í hendumar handrit þar sem
ekki fyrirfinnist heymarlaus per-
sóna. Sumir leikstjóranna geti tekist
á við heymarleysi hennar, en aðrir
ekki.
Marlee fann það sem hún var að
leit.a eftir þegar henni var boðið að
leika í myndinni Walker, sem tekin
var upp í Níkaragúa. Mynd þessi er
byggð á staðreyndum og fjallar um
Wilham Walker sem réöst inn í Ník-
líkt hlutverki Söm.
Áður en hún varð tíu ára, hafði
Marlee farið með aðalhlutverkin í
Galdrakarlinum í Oz, Mary Poppins
og Pétri Pan í leikhúsi fyrir heyrnar-
lausa. Hún hætti svo að leika þegar
hún fór í framhaldsskóla og aðrir
hlutir áttu allan huga hennar. Síðar
ætlaði hún að verða verjandi heyrn-
arlausra glæpamanna en það breytt-
ist allt saman þegar góður vinur
hvatti hana til að sækja um hlutverk
Söru í Children of a Lesser God, sem
átti að fara aö sýna í leikhúsi heima-
bæjar hennar. Hún fékk hlutverkið,
og áður en hún vissi af þá var búið
að bjóða henni að leika í kvikmynd-
inni.
Varð ástfangin af
mótleikara sínum
Það kom svo ekki að sök að mjög
góðir straumar mynduðust milh
Marlee og William Hurt, sem lék á
móti henni. Reyndar urðu þau ást-
fangin og bjuggu saman í tvö ár, en
leiðir skhdu og nú eru þau góðir vin-
ir.
Marlee er enn mjög viðkvæm fyrir
því sem viðkemur heymarlausum.
Hún myndi vhjasjá myndir textaðar,
og hún myndi einnig gjarnan viljá
ryöja leiðina fyrir aðra heymarlausa
leikara í Hollywood. Marlee sagöi að
þeir sem heyrnarlausir væru héldu
oft að Children of a Lesser God væri
fyrir þá, en svo væri ekki. Myndin
íjallaði um heyrnarlausa en væri fyr-
ir fjöldann, þar sem markmiðið með
henni væri að sýna líf heyrnleys-
ingja.
Pakkað fyrir sumaríríið
Flestir kannast við vandræðin sem hefjast þegar á að troða sumarleyfis-
farangrinum í bílinn. En fæstir eiga þó við sama vanda að stríða og hún
Beta Bretadrottning. Heillin þurfti að leigja 12 metra langan vöruflutninga-
bil er hún hélt í fimm daga sumarfrí til Skotlands.
Ekki var hún ein með allt þetta drasl þvi í fylgdarliðinu voru 100 starfs-
menn og þurftu þeir auðvitað að taka með sér farangur líka. Svo inn í bíl-
inn fór allt frá hattaöskjum til pósthúss.
Herinn var fenginn til að afhlaða vagninn.
Tina
Turner
- amman í tónhstariðnaðinum
- var svo þreytt og uppgefin eftir
síðustu tónleikaferð sína að ekki
einu sinni 21 milljón gat fengið
hana upp á sviðið aftur. Þetta til-
boð kom annars frá svissneskum
auðkýfingi sem hafði hugsað sér
að fá Tinu til Zúrich th að syngja
nokkur lög í afmæli 12 ára gam-
als sonar síns. En tilboðið dugði
ekki th þó að gott væri og stráksi
varð að láta sér nægja aðra
skemmtun.
Phil
Collins
og konan hans, Jill, vhja nú
eignast barn. Hinn 37 ára gamh
tónhstarmaður hefur nú ákveðið
að leggja tónhstina á hhluna og
helga sig frekar leiklistinni til
þess að hann geti komið fyrr heim
á kvöldin. Það kemur svo bara í
ljós með tímanum hvort þaö
hjálpar nokkuð þeim hjónum að
eignast erfingja.
Samkvæmt skýrslu Consumere Union News Dlgest er meðalaldur jarð-
arbúa 23 ár. En fjöldlnn mun vera komlnn yflr fimm billjónir. Fyrir
hverja 100 fullorðna á aldrinum 15 til 64 ára eru 65 ungir og aldnlr sem
þurfa á elnhvers konar hjálp eða aðstoð að halda.
Vangefin ást
Michael J.
Fox
T stjarnan úr Fjölskyldubönd-
um - varð alveg æfur er hann
komst að því að kærastan hans,
hún Tracy Polían, var ekkert að
hafa fyrir því að taka nafn síns
fyrrverandi, leikarans Kevin
Bacon, af dyrunum hjá sér. Mic-
hael dró þá kveikjara upp úr vas-
anum og sveið nafnspjaldið burt.
Marlee Matlin glimir nú við hlutverk þar sem hún talar.
aragúa á miðri nítjándu öldinni, og
var hann þá studdur af bandarískum
fyrirtækjum. Marlee leikur unnustu
Wihiams, Ellen Martin, sem var
heyrnarlaus í lifanda lífi. Marlee seg-
ist ekki hafa tekið hlutverkinu af
stjórnmálalegum ástæðum, heldur
vegna þess að hlutverkið væri gjöró-
Leikarinn Dudley Moore mun taka
mestu áhættu ferils sins í september
nk. þegar hann leikur ásamt eigin-
konu sinni í myndinni Sketch. Mynd-
in mun fjalla um rithöfund sem verð-
ur ástfanginn af ungri vangefinni
stúlku.
Dudley sagði að það væri einhver
hræösla í mönnum gagnvart van-
gefni. í myndinni væri stúlkan að-
eins líthlega þroskaheft og milli
hennar og mannsins myndast ein-
stakt samband. Hann hefði langað til
aö gera þessa mynd með konu sinni
um leið og hann las handritið.
Eins og kom í ljós, þá gat Dudley
ekki fundið neinn í langan tíma sem
fjármagna vhdi myndina með hon-
um og Brogan Lane eiginkonu hans.
Brogan er fyrrverandi fyrirsæta og
hittust þau fyrst árið 1982, en hafa
verið gift síöan í febrúar. Vhdu kvik-
myndaverin að hann fengi aðra leik-
konu í hlutverk stúlkunnar, en Dud-
ley tók þaö ekki í mál. Á endanum
gáfust þau upp.
Nú hafa þau þó ráöist í gerö mynd-
arinnar með hjálp bresks framleið-
anda og leikstjórn hennar er í hönd-
Dudley Moore lét draum sinn verða
að veruleika og gerði mynd um ást
manns á þroskaheftri stúlku.
um þess er skrifaði handritið. Mun
myndin því verða óháð. Er Dudley
mjög spenntur yfir viðtökum mynd-
arinnar, þó að hann leiki nú í Arthur
H.
„Ég vil gera þaö sem ég hef gaman
af að gera - og fjandinn eigi afleiðing-
amar. En auðvitað er það ekki alltaf
hægt,“ sagði Dudley Moore.