Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. 3 Fréttir Jóhannes Kristinsson gámavinur: Sakar fjóra fréttamenn um að vera á mála hjá SÍS og Solumiðstoðinni „Þegar þessir menn koma á mark- aðina í Hull og Grimsby þá eru ævin- lega menn frá Sambandinu og Sölu- miðstöðinni með þeim. Við höfum verið að hugsa um að auglýsa eftir blaðamanni sem vinnur á stórum fjölmiðli. Það er skoðun allra sem eru í útflutningi á ferskum fiski að þessir fjórir menn séu á mála hjá Samband- inu og Sölúmiðstöðinni. Það er ekki eðlilegt hvað þeir ráðast heiftarlega á þessa atVinnugrein. Þeir sjást ekki þegar vel gengur. Ef einhver von er um að halli undan fæti þá eru þeir mættir með allar sínar græjur," sagði Jóhannes Kristinsson, fram- kvæmdastjóri hjá Gámavinum í Vestmannaeyjum. Jóhannes ber fjóra fréttamenn þungum sökum. Hann segir þá vera á mála hjá Sambandinu og Sölumið- stöð hraöfrystihúsanna. Frétta- mennirnir fjórir eru þeir Ólafur Sig- urðsson hjá Sjónvarpinu, Gissur Sig- urðsson hjá Ríkisútvarpinu, Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2 og Hjörtur Gíslason hjá Morgunblað- inu. Jóhannes sagði að einn þessara manna hafi í vor ætlaö að taka fyrir í frétt hvað fersfiskútflutningurinn væri óhagstæður. Þegar annað hafi komið í ljós þá hafi verið hætt við að vinna fréttina. „Hefði maðurinn verið hlutlaus þá heföi hann átt að klára fréttina sem hann var langt kominn með að vinna. Svona hefur þetta oft verið. Þessir menn koma aldrei með já- kvæðar fréttir frá þessari grein. Við köllum fjórmenningana „antigáma". Þetta eru fullyrðingar hjá mér. En svona er þetta. Það er kannski áhætta fyrir mig að segja þetta. Þeir kannski hefna sín á mér. Ég held samt að þeir séu búnir að hefna sín nóg,“ sagði Jóhannes Kristinsson. -sme Hjöriur Gíslason á Morgunblaölnu: Tílhæfiilaus ásökun „Ég hef heyrt þetta frá honum áð- honum,“ sagði Hjörtur Gíslason, ur. Ég hef ekki séð ástæðu til að gera blaðamaður á Morgunblaðinu, þegar athugasemdir við þetta. Þetta er að ásakanir Jóhannesar Kristinssonar mínu mati tilhæfulaus ásökun hjá voru bornar undir hann. -sme Gissur Sigurðsson hjá Ríkisútvarpinu: Þetta er ekki svaravert „Ef hann vill vera með ærumeið- fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, þeg- ingar þá verður hann aö taka afleið- ar ummæh Jóhannesar Kristinsson- ingum þeirra. Þetta er ekki svara- ar voru borin undir hann. vert,“ sagði Gissur Sigurösson, -sme Ólaíur Sigurðsson, Sjónvarpinu: Er ekki vilhallur _ „Ef hann getur fundið það út að ég sé á móti fólki sem selur í gámum þá vil ég gjarna að hann sýni það. Ég tel ekki aö svo sé. Ég tel það vera átvinnustarfsemi sem eigi að fara fram eins og hver önnur. Það jafn- vægi, sem verður að fmna í þessum. málum, hef ég ekki á hraðbergi. Ég sé ekkert athugavert viö þá atvinnu- starfsemi. Ég tel þetta í hæsta máta eölilegt og æskilegt og eigi rétt á sér með öðru. Ef þessi maður er með svona ásak- anir verður hann að finna þeim stað. Þetta er fáránlegt og rangt að ég sé vilhallur í þessum málum. En að ég sé á mála hjá þessum fyrirtækjum er beinlínis rangt og þarf ekki að ræða frekar," sagði Olafur Sigurðs- son þegar ummæh framkvæmda- stjóra Gámavina voru borin undir hann. Páll Magnússon, fréttastjóri á Stöð 2, er í leyfi. Ekki náðist til hans th að bera ummæli Jóhannesar Krist- inssonar undir hann. -sme Aldraðir á Þingvölium Regína Thorarensen, DV, Selfoas: Rjörutiu manna hópur frá Styrktarfélagi aldraðra í Hafnar- firði hefur undanfarna daga verið í heimsókn á Þingvöllum og hefur hópurinn dvahð á Hótel Valhöll. Hópurinn gerði sér ferð einn dag- inn á Selfoss að skoða mjólkurbú Flóamanna, harðfiskverslun og kaupfélag KÁ þar sem drukkið var framsóknarkaffi. Fólkið gerði góðan róm að glæsi- leik kaupfélaganna. Séra Heimir Steinsson, prestur á Þingvöhum, fór meö eldri borgarana í Þing- vahakirkju og sýndi hana og þjóð- garðinn og voru eldri borgarar sérstaklega ánægðir með staðar- lýsingu Heimis og þótti hann vel að sér um þessi mál. Það er auð- heyrt á eldri borgurum að það er mikil fróðleiksfýsn í þeim. Dvölin á Þingvöllum tekur alls viku, en annar hópur eldri borgara frá Hafnarfirði kemur í næstu viku. Fararstjórar í ferðinni voru hjónin Ragnhildur Guðmundsdóttir og Jón Kr. Guðmundsson. LENDIR ÞÚ STUNDUM Á "MÚR" í SAMSKIPTUM ÞÍNUM VIÐ AÐRAR ÞJÓÐIR? Innritun í ný og markviss 12 vikna tungumálanámskeið er nú hafin. Kennt er tvo daga í viku, tvær kennslustundir í senn. Öll enskunámskeið miða að hinum alþjóðlegu Cambridgeprófum. Takmarkaður fjöldi nemenda á hverju námskeiði. Námskeið verða haldin í: Ensku, dönsku, sænsku, frönsku, þýsku, spænsku, ítölsku, portúgölsku, grísku, japönsku og íslensku fyrir útlendinga Námskeiðin hefjast 12. og 13. sept. n.k. og lýkur fyrstu vikuna í des. Innritun og frekari upplýsingar á skrifstofimni í símum: 91-10004 og 91-21655. ,, ,, ^ MALASKOLINN MIMIR ÁNANAUSTUM 15, RVÍK. SÍMI: 10004 & 21655. ILVER REED skólaritvélin f ár Allir nemendur þurfa góða rítvél, af hverju ekkí að velja vél sem endist út námsárín. SILVER REED er framtíðareign sem kostar ekki nema 19.800 kr. stgr. SIIVER REED er handhæg heímílísvél sem %vw,í>gott er að hafa við hendína % SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. _________ r Hverfisgötu 33, simi: 62-37-37 Helstu söluaðilar auk Skrifstofuvéla hf.: Akranes: Bókaverslun Andrésar Níelssonar Akureyri: Tölvutæki/Bókval hf Gindavík: Bókabúð Grindavíkur Hafnarfjörður: E. Th. Mathiesen Húsavík: Bókaversl. Þórarins Stefánssonar Isafjörður: Bókaversl. Jónasar Tómassonar Keflavík: Nesbók Ólafsfjörður: Versl. Valberg Reykjavík: Penninn, Hallarmúla/Kringlunni/Austurstræti Tölvuvörur Skeifunni 17 Selfoss: Vöruhús K.Á. Siglufjörður: Aðalbúðin Vestmannaeyjar: Kjarni hf Hella: Mosfell.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.