Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988.
5
Fréttir
Gert að laxi i húsi ísrastar. Tíu manns munu vinna í húsinu.
DV-mynd Sveinn
Laxaslátrun í Reykjavík
í vikunni var tekiö í notkun laxa-
sláturhús í Reykjavík. Húsið er vest-
ur á Granda og getur aíkastað 3-5
tonnum af laxi á dag.
Húsið er í eigu ísrastar hf. og sagði
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
Júlíus Ólafsson, að í húsinu væri góð
aðstaða til að gera aö og frysta lax.
Júlíus sagði að helstu kúnnar húss-
ins yrðu laxeldisstöðvar. Þeir hjá ís-
röst segjast bjartsýnir á reksturinn.
Til að fullnýta aðstöðuna stendur til
aö heilfrysta aörar fisktegundir og
einnig er í bígerð að heilfrysta þorsk-
hausa til útílutnings. Um tíu manns
munum starfa í húsinu.
pv
Ungir sjálfstæöismenn:
Samstaða um aðgerðir
- annars stjómarslK
„Ungir sjalfstæðismenn hafa um
árabil hvatt til aðhalds og spamaðar
í opinberum útgjöldum og þá ekki
hvað síst í undangengnu góðæri þeg-
ar öll rök mæltu með því að auknar
tekjur þjóðarinnar yrðu nýttar til að
greiða niður erlendar skuldir," segir
í upphaíi áskorunar sem stjóm Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna sam-
þykkti á stjórnarfundi síðastliöinn
laugardag.
í áskoruninni segir aö aukning rík-
isútgjalda sé alvarlegasta meinsemd-
in í efnahagslífinu og þörf sé á rót-
tækum aðgeröum gegn verðbólgu.
Vegna þessara aðstæðna er tahð rétt
að kanna niðurfærsluna, þótt slík
lögbinding launa, verðlags og vaxta
sé sögð í andstöðu við hugsjónir sjálf-
stæðismanna óg megi aldrei leiða til
afturhvarfs til hafta- og skömmtun-
arstefnu.
í áskoruninni er niðurfærslan sögð
skammtímalausn og samhhða verði
að gera ráðstafanir sem tryggja jafn-
vægi og stöðugleika til frambúðar og
því sé niöurskurður ríkisútgjalda
mikilvægur til að slá á þenslu í efna-
hagslífinu og koma í veg fyrir aukna
skattheimtu. Segir að náist ekki full-
kominn samstaða innan ríkisstjórn-
arinnar um raunhæfar aðgerðir í
efnahags- og atvinnumálum eigi aö
ijúfa stjórnarsamstarfið en ungir
sjálfstæðismenn telja að fyrri að-
gerðir ríkisstjómarinnar auki ekki
bjartsýni manna á árangur nú.
Ungir sjálfstæðismenn leggja til að
ríkisútgjöld verði skorin niður um 4
milljarða króna. Þetta veröi gert meö
fækkun ríkisstarfsmanna og endur-
skipulagningu í hehbrigðis-, trygg-
inga- og menntamálum, uppskurði á
landbúnaðarkerfinu og auknu sjálf-
stæði og ábyrgð ríkisstofnana. Sveit-
arfélög geti síðan fylgt eftir góðu for-
dæmi ríkisins um niðurskurð.
Lagt er til að dregið verði úr erlendri
skuldasöfnun og ríkisábyrgð afnum-
in en áhættumat og arðsemissjónar-
mið verði látin ráða.
Lagt er til að eignarhluti ríkisins í
Landsbankanum, Búnaðarbankan-
um, Útvegsbankanum, Sements-
verksmiðju ríkisins, Áburðarverk-
smiðju ríkisins og söludeild Pósts og
síma verði seld en Skipaútgerð ríkis-
ins lögð niður.
Lagt er til að komið verði á fót al-
mennum hlutafjármarkaði til að
auðvelda fyrirtækjum að fá nýtt fjár-
magn inn í fyrirtækin. Skattalögum
verði breytt svo að fjármagnseigend-
ur verði hvattir til að kaupa hluta-
bréf.
Ennfremur hvetja ungir sjálfstæð-
ismenn til þess að frekar verði leitað
eftir erlendu hlutafé en erlendum
lánum. Að erlendir bankar fái heim-
ild til að starfa hérlendis. Vextir
verði ekki niðurgreiddir heldur
veittir beinir styrkir í gegnum skatt-
kerfiö. Að sett verði ný vinnulöggjöf
sem tryggi aukið lýðræði í verkalýðs-
hreyfingunni. JFJ
Alþýðubandalagsmenn vilja kalla Alþingi saman:
Hafa ekki sýnt að fram-
lag þeirra sé mikils virði
- segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
„Alþingi kemur saman 10. október
eins og áður hefur verið ákveðið,"
sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra þegar hann var spurður um
þá kröfu þingflokks alþýðubanda-
lagsmanna um að Alþingi verði kvatt
saman hið fyrsta til að fjalla um þjóð-
málin. Segja alþýðubandalagsmenn í
bréfi sínu til forsætisráðherra að
komast verði hjá því að setja bráða-
birgðalög aðeins nokkrum vikum
áður en Alþingi kemur saman.
„Annars hafa alþýðubandalags-
menn ekki sýnt það að undanfórnu
að framlag þeirra sé mikils viröi en
við sjáum það 10. október hvað í þeim
býr,“ sagöi Þorsteinn.
-SMJ
Tálknabörður:
Stunda andlega íhugun í „Pollinum“
aguijón J. agurðsson, DV, ísafirði:
í næsta nágrenni Tálknaíjarðar
er heitur pottur einn þrælmerkileg-
ur. Potturinn, sem er 43 stiga heitur,
er mjög vinsæh af þorpsbúum. Hon-
um hefur verið gefið nafniö Pohur-
inn.
Að sögn Bjarna Kjartanssonar,
kaupmanns á Tálknafirði, er þessi
pohur hin mesta gersemi. Þar koma
menn saman á kvöldin, liggja í poh-
inum, stunda andlega íhugun, svo
sterka að hugur manna tekst á and-
legt flug, sem gerir menn betur at-
gerva. Þarna flatmaga menn og spá
í hin ýmsu málefni, s.s. fiskiríið, al-
heims-, innanlands- og hreppspóh-
tikina, eilífðarmáhn og horfa á feg-
urð himinsins og fjallanna.
„Þetta er hrein paradís. Þegar við
hggjum þarna á kvöldin og sólin er
að setjast þá sjáum við oft glampa á
gervihnettina sem eru að sveima yfir
okkur. Þetta er engu líkt,“ sagöi
Bjarni.
Þaö væri óskandi að fleiri sveitar-
félög á Vestíjörðum ættu svona poll,
því ekki veitir fólki af að geta slappaö
af eftir amstur dagsins og stundað
andlega íhugun í nokkur þúsund fet-
um.
Laus staða
Staða deildarstjóra í þjóðdeild Landsbókasafns ís-
lands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
starfsferil, skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu
fyrir 22. september næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
26. ágúst 1988
STÝRIMANNASKÓLINN
í REYKJAVÍK
30 rúmlesta
réttindanámskeið
Innritun á haustnámskeið er hafin og stendur til 9.
september nk. hvern virkan dag frá kl. 8.30-14.00.
Sími1-31-94.
Öllum er heimil þátttaka.
Kennslutími: 12. september - 4. nóvember.
Kennt er þrjú kvöld í viku; mánudaga, miðvikudaga
og fimmtudaga frá kl. 18.00 - 20.15 og laugardaga
frá kl. 9.00 - 13.00.
Kenndar eru eftirfarandi greinar:
Siglingafræði, stöðugleiki og þókleg sjómennska,
siglingareglur, siglingatæki, slysavarnir, eldvarnir,
skyndihjálp, fjarskipti og veðurfræði.
Samtals 111 kennslustundir.
Þátttökugjald kr. 10.000,-
Allar nánari upplýsingar í síma 13194
Stýrimannaskólinn í Reykjavík.
Skólastjóri