Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988.
Utlönd
-^ST
Bandaríski teiknarinn LURIE telur greinilega að ýmislegt hefti „friðar-
vilja" Shamir.
Yitzhak Shamir, forsætisráöherra ísraels, sagði í rnorgun aö ísraelsk
stjómvöld myndu ekki hverfa frá þeirri stefhu að visa Palestínumönnum,
sem þau teþa að hvetji til mótmæla á herteknu svæðunum, úr landi.
Shamir sagði að leiðtogum uppreisnar Palestínumanna yrði áfram vísað
úr landi þrátt fyrir kröftug mótmæh annarra ríkja, þ.á m. Bandaríkj-
axrna, ef róstunum á herteknu svæðunum hnnti ekki í bráð. Palestinu-
menn hafa haldið uppi stöðugum mótmælum gegn yflrráðum ísraelshers
á Gaza-svæðinu og vesturbakkanum á níunda mánuð.
Þijátíu og flórum Palestínumömuun hefur verið vísað úr landi síöan
rósturnar hófust og hefur 25 öðrum verið gert að yfirgefa landið.
Bandarikin, sem stutt hafa ísraelsstjóm frá stofhun Ísraelsríkis, hafa
harðlega mótmælt ákvörðun stjómvalda og tefja fréttaskýrendur að mót-
mælþi séu harðvítugustu ávítur sem Bandarikin hafi veitt ísrael.
Útnefníngu mótmælt
Frá mótmaelunum í Santiago í gær.
Fjöldi stjómarandstæðinga í Chile
safhaðist saman á götum Santiago,
höfuðborgarinnar, í kjölfar tilkynn-
ingar stjómarinnar um aö Augusto
Pinochet forseti heföi verið útnefnd-
ur sem eini frambjóðandinn í for-
setakosningunum sem fram fara í
landinu þann 5. október nk. Tahð er
að am.k. einn maður hafi látið lífið
þegar hermönnum og mótmæl-
endum lenti saman. Sjö hundruð
mótmælendur voru handteknir.
Fastlega var búist við því aö Pino-
chet, sem ráðið hefur ríkjurn í Chile
í fimmtán ár, eða lengur en nokkur
annar leiötogi landins, yrði útnefhd-
ur. Hijóti hann yfir fimmtíu prósent
atkvæða mun hann sitja að völdum
í átta ár til viðbótar.
HJjóti hann undir helming atk væða
mun hann samt sem áður halda völd-
um í landinu til marsmánaöar 1990
Símamynd Reuter
Augusto PinocheL
Simamynd Reuter
en þá verður hann að efna til kosninga á nýjan leik. Samkvæmt lögum
verður forsetinn að leyfa öðrum frambjóðendum að taka þátt í þeim kosn-
ingum sem fara munu fram um sama leyti og þingkosningar eru áætlaðar
í Chile.
Kosningarnar 5. október verða þær fyrstu í Chile þar sem almenningur
fær tækifæfi til aö láta í ljós vilja sinn síðan Pinochet hrifsaði til sín
völdin í desember 1973. Með valdatökunni fyrir fimmtán árum steypti
herinn Salvador Ahende af stóh. Valdataka Pinochet og hersins var ein
sú blóðugasta sem getið er um og voru margir andstæðingar teknir af
lífi, vísað úr landi eða fangelsaðir.
Sprenging í Suður-Afríku
Öflug sprengja sprakk í höfuðstöðvum samtaka sem beijast gegn kyn-
þáttamisrétti í Jóhannesarborg í Suöur-Afríku snerama i morgun.
Sprengjan olli töluverðum skemmdum og brotnuðu rúöur í bygging-
unni. Eldur braust út í nálægu fjölbýlishúsí. Ekkert mannfall varð og er
ekki taliö að nokkur hafi slasast alvarlega.
rétti hafa aðsetur í húsinu en saratökin hafa barist gegn aöskilnaðar-
stefnu suður-afrískra stjórnvalda. Um ehefu milijón kristinna blökku-
manna i Suður-Afriku eru meðlirair í samtökunum. Eeuter
Breski herinn læt-
ur til skarar skríða
Hermenn úr sérsveitum breska
hersins skutu til bana þrjá hðsmenn
IRA, írska lýðveldishersins, í Omagh
um 50 kílómetra vestur af Belfast í
norðurhluta írlands í gær. Atvikið
gerðist nálægt þeim stað sem átta
breskir hermenn létu lffið í árás IRA
fyrir tíu dögum. Ekki er ljóst hvort
mennirnir þrír hafi tekið þátt í þeirri
árás.
Bresk yfirvöld segja að hermenn-
irnir hafi gripið til vopna eftir að hðs-
menn írska lýðveldishersins hafi
hafið skothríð að þeim úr bifreið sem
þeir hafi tekið traustataki fyrr um
daginn. Við leit í bifreiðinni fundust
skotvopn.
Það voru hermenn úr sérsveitum
breska hersins sem voru ábyrgir fyr-
ir dauða þriggja liðsmanna IRA í
Gíbraltar í mars síðasthðnum. Her-
mennirnir skutu hðsmennina til
bana í kjölfar bílsprengju að sögn
yfirvalda. Síðar kom í ljós að menn-
irnir voru óvopnaðir.
í yfirlýsingu Sinn Fein, stjórn-
málalegu deildar IRA, saka samtökin
ríkisstjórn Margrétar Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands, um morð
að yfirlögðu ráði.
Frá því að bresku hermennimir
átta létu lífið í árás liðsmanna IRA
fyrir tíu dögum hefur verið búist við
því aö breski herinn láti til skarar
skríða gegn hryðjuverkaöldu írska
lýðveldishersins. Margir telja að at-
'vikið í gær sé upphafið að því.
Tom King, Irlandsmálaráðherra
bresku stjórnarinnar, tilkynnti í síð-
ustu viku að yfirvöld hefðu lokið við
allsherjarendurskoðun á öryggis-
málum breska hersins á Norður-
írlandi. Hann gaf engar nánari skýr-
ingar á því hvernig yfirvöld hygðust
bregðast við auknum árásum IRA.
Talsmaður bresku stjórnarinnar
neitaði því að fleiri breskir hermenn
hefðu verið sendir til írlands eins og
komiö hefur fram í fréttum í Bret-
landi.
Liðsmenrí IRA hafa aukið mjög
umsvif sín upp á síðkastið og gert
skyndiárásir á breska hermenn á
írlandi, Bretlandi og í Evrópu. Tutt-
ugu og sex breskir hermenn hafa
fallið í þessum árásum það sem af
er árinu. írski lýðveldisherinn hefur
misst tuttugu hðsmenn síðasthðinn
21 mánuð.
Reuter
Breski herinn lokaði af svæðið þar sem þrir liðsmenn IRA voru skotnir til bana í gær.
Símamynd Reuter
Walesa ræðir
við stjómvöld
Lech Walesa, leiötogi Samstöðu,
hins bannaöa verkalýðsfélags í Pól-
landi, mun eiga viðræður við innan-
ríkisráðherra landsins, Czeslaw
Kiszczak, í dag. Þetta verður í fyrsta
sinn sem Walesa ræðir opinberlega
við pólsk stjórnvöld í sjö ár eða síðan
herlög voru sett á í landinu í kjölfar
mikilla verkfaha árið 1981.
Verkfóll standa enn yfir í Póllandi
og munu Walesa og innanríkisráð-
herrann ræða hvernig hægt sé að
leysa þau. Einn helsti ráðgjafi Sam-
stöðu, Tadeusz Mazowiecki, sagði í
samtali Við blaðamenn í gær að hann
vonaðist til að viðræðumar myndu
auka skilning yfirvalda á kjörum
Pólverja og að umræður um lögleið-
ingu Samstöðu myndu fylgja í kjöl-
farið.
Hann sagði einnig að verkfólhn,
sem hófust þann 15. þ.m. og lamað
hafa kolaframleiðslu Póllands þrátt
fyrir harðar aðgerðir lögreglu,
myndu halda áfram þar til kröfum
verkfallsmanna yrði mætt. Lögregla
braut á bak aftur verkfóh í nokkmm
þeirra náma sem stöðvuðu fram-
leiðslu í síðustu viku en verkfalls-
menn hafa engan bilbug látið á sér
finna.
Verkfallsmenn krefjast bættra
launa, auk þess að Samstaða verði
viðurkennd. Talsmaður pólsku
stjómarinnar hafði áöur sagt að
samningaviðræður verkfallsmanna
og yfirvalda, auk stjórnarandstæð-
inga, um framtíð Póllands gætu haf- ræður Walesa og innanríkisráðherr-
ist um leið og verkfallsmenn hæfu ansséuundirbúningurfyrirþærvið-
vinnu á nýjan leik. Talið er að við- ræður. Reuter
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, í augum skopteiknarans Lurie.