Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1988, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988. 31 Lífsstíll Holur fyrir tré sem eiga aö koma næsta vor er heppilegt að undirbúa núna. Moldin er stungin upp gróflega og blandað saman við hana hús- dýraáburði. Auk þess má bæta kalí- eða fosfóráburöi saman viö. Ef um mómold er að ræða má blanda kalki saman við hana. Holumar verða að vera nægilega djúpar. Þannig skal hafa í huga að ösp og víöitegundir þarf aö gróður- setja dálítið dýpra á nýja staönum. Birki og reynitegundir eiga þó að vera í svipaðri hæð og þær voru í. Aö öðru leyti er ágætt að athuga beð- in vel í garðinum núna og gá hvort bæta þarf við mold fyrir veturinn. Ef rætur eru famar aö koma upp á yfirborðið verður að skýla þeim með jarðvegi. Gróðursetningu fyrir vorið er heppilegt að undirbúa á þessum árstíma. Sérstak- lega fyrir stórar plöntur. saman geta greinar þeirra slegist til í vetrarvindi - sært greinar og börk. Með þetta í huga er vert að huga að trjánum og klippa greinar sem hugs- anlega eru til óþurftar. Hér er aðeins um fyrirbyggjandi „snyrtingu“ að ræða fyrir veturinn. Vöxtinn er auö- vitað betra að sjá þegar laufm eru fallin og því er í sumum tilfellum betra að bíða þangað til. Fjölærar plöntur hafa margar all- myndarlega stöngla sem geta slegið frá sér og sært næstu plöntur. Þá er óhætt að khppa af því þeir vaxa aftur næsta ár. Afklippur af trjám og plöntum nota margir til aö skýla plöntum í beðum. Þannigéru stöngl- ar eða greinar og jafnvel lauf lögð yfir til skjóls. Þess verður þó að gæta að leggja afklippumar ekki of þétt saman. Gróðursetning undirbúin fyrir vorið Vorið eða fyrri hluti sumars er besti tíminn til að gróðursetja trjá- plöntur. Því betur sem jarövegur er undirbúinn því meiri líkur eru á að trén lifi. Stór tré, sem flutt eru á milli staða, em viðkvæm hvað þetta snertir. Þau verða að geta fest rætur sem best -og fengið sem besta nær- ingu. Þar sem tré hafa verið nýlega gróð- ursett verður að tryggja að rót þeirra hreyfist ekki. Það gerist stundum í miklum vindi og er sérlega bagalegt þar sem plönturnar eru að festa ræt- ur. Trén verður því að festa vel með þar til gerðum útbúnaði. Fyrir veturinn er skynsamlegt að huga að sumarvexti gróðursins - athuga hvort trjágreinar og stilkar á fjölærum plöntum geta slegið frá sér í vetrarvindi. Þannig getur „haustsnyrt- ing“ verið tii góðs. Snjóskaflar og saltfok Fyrstu árin eru mikilvægust fyrir uppvöxt gróðursins. Á löngum og köldum vetri verður því að hlúa vel að öllum plöntum. Snjóskaflar eru auðvitað ekki mjög hhðhollir við- kvæmum gróðri. Því skyldi gera fyr- irbyggjandi ráöstafanir, a.m.k. þar sem nýlega hefur verið gróðursett. Þar sem mikhr snjóskaflar mynd- ast má þannig setja grindur eða því- umlíkt til vamar. Og bæta jafnvel striga við á mihi tíl frekari mótstöðu. Barrtré ná fallegum vexti sé vel að þeim hlúð fyrstu árin. Særok er vágestur í görðum margra sem búa við sjó. í saltinu eru ýmis konar efni eins og klór sem brennir frá sér að einhverju leytí. Þetta er ráðlegast að forðast með því að úða vatni yfir plönturnar - helst í þíðu. Þetta má gera bæði á lauflaus tré og sígræn barrtré þó svo þaö sé gert að vetri. Sumir garðyrkjumenn segja það þjóðsögu eina aö ýmsar trjátegundir þrífist ekki í sumum sjávarþorpum eða á stöðum nálægt sjó. Svo kann að vera að illa hafi tekist tíl við rækt- un þar sem ræktunarskilyrði hafa verið mjög fjandsamleg gróöri. Hafi fólk- hins vegar þohnmæði og áræði virðist svo vera að því takist það sem það ætíar sér í ræktun. En þá er mikilvægt að gróðurinn sé vel nærð- ur með áburðargjöf og vökvun, salt skolað í burtu og reynt að mynda sem ahra best skjól í garðinum. Það þýðir ekki að gefast upp. Möguleikinn er alltaf fyrir hendi að rækta fallegan garð. í þessu sam- bandi er mikilsvert að leita sér ráö- gjafar hjá sérfróðum og jafnvel fleiri en eirnun. gróðurinn mjög gjaman og mest þeg- ar sólar nýtur við. Þess verður þó að gæta að skýla plöntum ekki um of með mosa eða öðm slíku. Nái loft ekki að leika nægilega vel um gróðurinn er hætta á að stofn eða stílkar fúni. Þessu má þó yfirleitt bjarga með því að klippa þau svæði af. En hvemig skyldi vera best að út- vega sér mosa til að skýla gróðri? Víða þar sem vegaframkvæmdir eru eða þar sem verið er að grafa, t.d. á hraunsvæðum, ættí að vera nægilegt af mosa. Þannig er möguleiki að koma í veg fyrir að rífa upp jarðveg á hrjóstrugu og viðkvæmu landi. Ekki er ósennilegt aö á Reykjanesi séu svæði þar sem nauösynlega hef- ur þurft að ryðja svæði þar sem mosi hefur verið gróinn. Garðskálar Þær tegundir, sem hafðar eru utan- húss á sumrin, þola yfirleitt við í ókyntum garðskálum eða gróður- húsum á vetuma. Frost verður aldr- ei eins mikið og utanhúss og plönt- Undirbúningur grasflata Og svo er það grasflötin sem reynd- ar nýtur æ minni vinsælda í görðum. Það em nefnhega ekki allir jafn vhj- ugir að slá. Hanna garðinn þannig að hth sem engin grasflöt sé í garðin- um. Grasflatir þarf ekki aö undirbúa sérstaklega fyrir veturinn. Aðalat- riðið er að leyfa grasinu að vaxa þannig aö það nái allavega 5 cm hæð. Of snöggt gras er verr varið gegn kulda. Það er því ekki skynsam- legt að slá mikið í septembermánuði. Fosfóráburð eða kalí má svo bera á túnið - áburö sem ekki stuðlar að ótímabærum vextí. Best er að bera áburð sem þennan á þegar vind hreyfir ekki mikiö. Þetta er fínt duft sem fýkur gjarnan og því verður að dreifa á sem jafnast. Skýlt með tómum pottum í vissum tílfellum geta tómir plast- eða leirpottar komið að góöu gagni utanhúss á veturna. Þeim má hvolfa yfir smáar og viðkvæmar plöntur tíl skjóls í beðum. í þessu sambandi má nefna ýmsar sígrænar eða suðrænar plöntur, s.s. fíölærar lúisiur - lág- vaxnar og ekki miklar um sig. Svo skjólpottarnir fíúki ekki má setja steinvölur ofan á. Aðalatriðið er að gat sé á botninum þannig að lofti um plöntuna. Mosi á veturna Mosi nýtist einnig vel í þessum th- gangi. Hann má gjarna setja að stilk- um á rósaplöntum sem eru við- kvæmar gagnvart kulda. Mosinn heldur líka rakanum vel niðri - þannig er minni hætta á að plönturn- ar vindþorni. í miklum vindi þornar Sígrænum trjám er mikil- vægt að skýla á veturna. Svona vel gerð tréumgjörð er að vísu ekki nauðsynleg. Fjögur prik með striga eða akryldúk eiga að nægja. umar fá a.m.k. frið fyrir köldum vindi. Rósaplöntur t.d., sem settar eru inn í gróðurskála á veturna, þurfa á hvíld að halda. Sé stöðugur hití fá þær ekki þessa hvíld. Sé hins vegar um forræktun að ræða gegnir öðru máli. í garðskálum verður einnig að forðast slaga. Hættan á því er mest þar sem raki hefur verið og síðan frýs. Því er skynsamlegt að opna út reglulega og reyna að halda loftjafn- vægi sem bestu. Ef aht er lokað verð- tr hætta á að aht bráðni og saggi. luldinn getur einnig verið til góös því þannig þrífast síður skorkvikindi og annað slíkt. ÓTT.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.