Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
dv Fréttir
Nýi móttökudiskurinn, sem mun
miðla okkur efni frá ólympíuleikun-
um, er ekki stór miðað við stóra
Skyggni sem er 32 metrar í þver-
mál. Verið er að koma honum fyrir
þessa dagana með aðstoð banda-
rísks sérfræðings.
DV-mynd GVA
Nýr diskur fyrir ÓL:
Stórauknir
möguleikar
á möttöku
myndefnis
Nýr móttökudiskur til móttöku á
sjónvarpsefni um gervihnött er kom-
inn til landsins ög unnið er að upp-
setningu hans við Skyggni þessa dag-
ana. Diskurinn er ekki stór miðað
við risana þarna við Úlfarsfell, 5,5
metrar, en stóreykur möguleika
sjónvarpsins á móttöku myndefnis
frá aðildarstöðvum Evrópusam-
bands sjónvarpsstöðva, EBU. Verður
diskurinn fyrst og fremst notaður til
móttöku efnis frá ólympíuleikunum
í Seoul en eftir leikana getur íþrótta-
deild og fréttadeild fengið efni um
diskinn í gegn um gervihnöttinn
Eutelsat-F2. Eftir áramót er ráðgert
að fá enn stærri disk uppsettan við
Skyggni í stað þessa en það hefur
ekki verið ákveðið enn.
„Það er sífellt verið að biðja um
meiri þjónustu og því veröur að setja
upp fleiri diska. Ólympíuleikarnir
eru sendir um einn af fjórum gervi-
hnöttum EBU, Eutelsat-F2, en við
höfum ekki haft disk á honum til
þessa. Þetta er þannig að hver diskur
er stilltur á einn gervihnött og fleiri
hnettir kalla á fleiri diska,“ sagði
Gústav Arnar, yfirverkfræðingur
Pósts og síma, við DV.
Bogi Ágústsson, fréttastjóri sjón-
varpsins, sagði við DV að ef diskur-
inn virkaði á fullnægjandi hátt gæti
fréttastofan móttekið fréttapakka frá
aðildarstöðvum EBU, Eurovision
News, þrisvar til fjórum sinnum á
dag.
„Diskurinn mun auka öryggi
fréttasendinga og magn efnis til
muna. Framboð efnis verður meira
og móttaka þess ódýrari. Þetta mun
hafa talsverðar breytingar í för með
sér fyrir fréttastofuna. EBU er með
tvær rásir stöðugt í notkun þannig
að ef eitthvað markvert gerist þá er
hægt að senda myndir út um allt
undir eins,“ sagði Bogi Ágústsson.
íþróttadeildin mun fá aögang að 2-3
íþróttapökkum í viku með tilkomu
disksins og shkar sendingar verða
því reglulegri en oft áður. Munu ís-
lendingar geta sent efni í þennan
pakka og hafa möguleika á að sitja
fundi þar sem efni hans er ákveðið.
Nefna íþróttamenn sem dæmi að
jafnteflisleikurinn við Sovétmenn
hafi verið sendur um daginn og farið
víða um Evrópu.
-hlh
EF ÞU TEKUR UPP RUSL
✓ /
A VEGI ÞINUM
VERÐUR BORGIN ÞÍN HREIN!
Öll þekkjum við þá vellíðan sem fylgir hreinu og snyrtilegu umhverfi innan dyra.
Sama lögmál ræðurlíka á götum úti!
Þegar þú beygir þig eftir rusli á förnum vegi sýnir þú sjálfum þér og öðrum Reykvíkingum
tillitssemi - og leggur þitt af mörkum til betra mannlífs í borginni okkar!
HREIN BORG. BETRI BORG!
ARGUS/SÍA