Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Side 25
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. 25 dv________________________________________Vísnaþáttur Allt er mælt á eina vog Mér varö heldur betur á í messunni í síöasta þætti þegar ég eignaði HauM Sigtryggssyni vísu sem er eftír Erling Jóhannesson en hann mun vera bóndi á Hallkelsstöðum í Hvítársíðu, eför því sem ég best veit. Haukur vill hafa það sem sannara reyn- ist og undir engum kringumstæðum skreyta sig með lánsfjöðrum. Ég tel mér það helst til afsökunar að ég heyrði Hauk fara með vísuna og þar sem hann er hagmæltur vel taldi ég víst að hún væri eftir hann. Bið ég Hauk, Erling og lesendur að virða mér þetta til betri vegar. Þá skal tekið fram að höfundur vísunnar Lengi muna bömin (Man ég tvennt...) er eftir KN. En nú er best að snúa sér að efni þessa þáttar. Ætlunin er að fjalla um stjómmál, stjómmálaflokka og stjómmálamenn. Haíldóra B. Bjömsson skáldkona vann mörg ár á Alþingi og varpaði þá oft fram stökum að gefnu tilefni. A þinginu 1946-1947 kvað hún og var tilef- nið 180. mál, þingskjal 445: Það má sjá af þingskjölum (en þau era stundum margumdeild) að flutt hefur verið frumvarp um fávitahæli í efri deild. Líka er hægt að lesa þar löngu vituð sannindi að tillögunni tekið var með takmörkuðum skilningi. Er rætt var um sölu kristfjárjarða í Austur- Húnavatnssýslu kvað Halldóra: í Húnaþingi viðreisnin góðbændur gisti, þá græddu þeir sumir, hj á öðrum taprekstur var. Nú kaupa þeir efnaðir allar jarðir af Kristi. Þeir ætla ekki að láta hann verða sveitfastan þar. Fyrir margt löngu var ónefndum þingmanni lýst á eftirfarandi hátt í Alþýðublaðinu: „Svo er áhuginn og hitinn mikiil, að svo er stundum sem málefnið sjálft, er hann flytur, fái orð til að tala með. Hann ýtir þá gleraugunum upp í hársrætur og slíkum ákafablæ slær á allt andlitiö, að það er eins og hver dráttur í því titri. Hann er riddaralið þingsins, eld- heitur og görmikill, ætíð búinn til atlögu, aldrei vanbúinn til vettvangs, og gangi ei undan honum, þá er hann leggur að fyrir alvöm, þá er ekki til neins fyrir aðra að reyna að komast lengra". En hvaða eiginleikum ætti góður alþingismaður að vera búinn? Egill Jónasson á Húsavík svarar þvi: Upp skal telja þetta þrennt það em aðalstigin: Hann skal hafa meðalmennt, mælskur vel og lyginn. Skyldi nokkuð hafa breyst síðan Guðmundur Sig- urðsson, skáld og gamanvísnahöfundur, orti: Nú rökkvast byggðin og brosin dvína er birtist vetrarins ásýnd grá og veðurguðimir vopn sín brýna en vofur glotta á hverjum skjá. Og líkt og kotroskinn kappaskari ■ nú koma þingmenn til starfs á ný í grennra lagi að gáfnafari og greiða atkvæði samkvæmt þvi. Næst kemur vísa eftir Jón Þorsteinsson frá Arn- arvatni sem nefnist Pólitískur himinn: Allt er mælt á eina vog í því svarta skýi, helmingurinn öfgar og afgangurinn lygi. jón M. Pétursson frá Hafnarnesi orti er hann hlustaði á eldhúsdagsumræður frá Alþingi: Flækjur smaug hann faglega, flátt var spaug í svörum. Fjandi laug hann laglega, lygin flaug af vörum. Hvað er það sem helst má prýða stjómmáia- mann? Jónatan Jakobsson: Hans var framagatan greið, greind og mælsku næga hafði. En staðreyndirnar lönd og leið lét hann þegar nauðsyn krafði. Fólk brýtur oft heilann um hvort stjómin muni standa eða falla, ekki síst þegar ágreiningsmálin koma fram í yfirlýsingum flokksformanna. Þor- steinn L. Jónsson í Hafnarfirði botnaði eftirfar andi vísu, ekki veit ég hver höfundur fyrrihlutans er: Stjórnin liföi árið af, þótt yrði henni kvillasamt. Á loforðunum sínum svaf svo til loka verður skammt. Margrét í Dalsmynni hefur áhuga á breytingum á stjórnarfari: í einlægni er um það spurt, hvort ekki er vel til fundið, að reka íhaldsbáknið burt úr borginni við Sundið? Að morgni dagsins sem stjórnarskiptin urðu í Reykjavík brá svo við að borgarbúar vöknuðu í slydduhríð og nöpru veðri. Esjan var hvít niður fyrir miðjar hliðar. Gamali þulur bretti upp krag- ann og tuldraði í barm sér er hann kom út morgun- inn þann: Fölnar birtan, fýkur í skjólin, fellur krapi á torg. Endaslepp varð okkur sólin yfir Davíðsborg. Sigurður Pétursson sendi Mbl. eftirfarandi pistil sem svo birtist í blaðinu 25. maí 1982: „Þegar ég var að ganga í vinnuna í morgundýrðinni í einstakri veðurblíðu og glöðu sinni eftir skemmtilega kosn- ingahelgi varð þessi staka til í huga mínum: Vísnaþáttur Torfi Jónsson Fjöturinn rauði er fallinn að sinni og frelsið mun leysa vandann. Það er bjartari sól yfir borginni minni og betra að draga andann." Hér er vist við hæfi að birta vísu Bjarna frá Gröf: Þegar lífs er þorrin gangan og þrýtur líf um allan skrokkinn ég hlýt að leggjast á hægri vangann, því hitt væri sko að svíkja flokkinn. Lokaspurningin er þó hvort Qósamaður sem yrk- ir svo hefur rétt fyrir sér: Margt eitt undriö framhjá fer, fljótt vill sundrast tundur. Stjómarglundrið alveg er allt að splundrast sundur. Torfi Jónsson Akureyri Afgreiðsla og smáauglýsingar Sími 25013 Ritstjórn Sími 26613 Heimasími blaðamanns 25384 Opið virka daga kl. 13-19 laugardaga kl. 11-13 Skipagötu 13 Akureyri STÖÐ1OG STÖÐ 2 SAMTÍMIS Á SKJÁNUM Ef þú átt SANYO VHR 500 myndbandstæki og myndlykil þá getur þú fylgst með báðum dagskrám samtímis, þ.e. mynd í mynd! Þetta er bara einn af mörgum ótrúlegum möguleik- um sem tækniundur SANYO D 500 digital gerir þér kleift. Komdu og skoðaðu SANYO D 500 og þú sannfærist að þetta er tækið fyrir þig. Verð aðeins: 61.550, staðgr. sAfim skrefi framar Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16, sími 91 -691600. HAPPDRÆTTI 5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno Dregiö 12. september, Heildarveromœti vinninga 21,5 milljón. /j/tt/r/mark

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.