Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 57

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988. 73 - T Afmæli Olína Eiríksdóttir Ólína Eiríksdóttir húsfreyja, Víði- holti, Seyluhreppi í Skagafirði, verður sjötug á mánudaginn. Ólína fæddist í Vík í Staðarhreppi og ólst upp í foreldrahúsum þar og á Auðnum, Varmalandi og Bessa- stöðum í Sæmundarhlíð. Ung að árum lærði Óhna fatasaum og lagði hún talsverða stund á þá iðn. Ólína giftist 31.3.1940 Hjalta Jóns- syni, f. 29.7.1909, d. 7.4,1984. For- eldrar hans voru Jón Árnason, b. á Stóru-Ökrum í Akrahreppi og víðar, síðast í Valadal í Seyluhreppi, og kona hans, Dýrborg Daníelsdóttir. Þau Hjalti bjuggu fyrst í Valadal og síðan í Reykjavík en reistu árið 1952 nýbýhð Víðiholt og bjuggu þar síðan. Með búskap ráku þau sumar- heimili fyrir böm í tuttugu og sex ár og dvöldust þar um tuttugu börn áári,flestárin. Börn Óhnu og Hjalta em: Þrúður Jónheiður, f. 30.3.1941, verslunar- maður í Reykjavík, var gift Pálma Guömundssyni járnsmiði og eiga þau tvö böm; Kristín Dýrborg, f. 29.11.1942; verslunarmaður í Kópa- vogi, gift Asmundi Guðmundssyni lögreglumanni og eiga þau þijú börn; Hörður, f. 23.3.1945, bifvéla- virki í Reykjavík, kvæntur Ásu Sig- urlaugu Hahdórsdóttur verslunar- manni; Eiríkur, f. 12.5.1947, bif- reiðastjóri í Garðabæ, kvæntur Jó- hönnu Sigmundsdóttur banka- starfsmanni og eiga þau þrjú börn; Árný Hugrún, f. 25.7.1950, hár- greiðsludama í Winnipeg í Kanada, gift Lionel Leveque pípulagninga- manni og eiga þau eitt barn; Guð- björg, f. 5.5.1952, verslunarmaður á Ákureyri, sambýlismaður Haraldur Óskarsson bifvélavirki, en hún á eitt barn; Katrín Eygló, f. 30.6.1954, skrifstofumaður í Hafnarfirði, en sambýlismaður hennar er Halldór Ólafsson múrarameistari og eiga þau þrjú böm; Auður Helga, f. 5.6. 1956, aöstoðarstúlka tannlækms á Akureyri, gift Jóni Þór Guðjóns- syni, starfsmanni Flugleiða og eiga þau tvö börn, og Hlífar, f. 30.9.1960, b. í Víðiholti, en sambýhskona hans er Sigríður Helgadóttir og eiga þau tvö börn. Auk sinna eigin barna fóstruðu Ólína og Hjalti upp sex önnur börn um lengri eða skemmri tíma. Ólína er elst af ellefu systkinum og eru nú átta þeirra á lífi. Foreldrar hennar voru Eiríkur Sigurgeirsson, f. 24.9.1891, d. 13.5. 1974, lengst og síðast bóndi í Vatns- Ólína Eiríksdóttir. hhð í Bólstaðarhlíðarhreppi, og kona hans, Kristín Vermundsdóttir, f. 20.7.1898, d. 11.11.1973. Ólína tekur á móti gestum sunnu- daginn 11. september klukkan 15.00 í safnaðarheimihnu Kirkjuhvoli í Garöabæ. Una Jóhannesdéttir Una Jóhannesdóttir frá Gaul, hús- móðir, til heimihs að Stekkjarholti 20, Akranesi, verður áttræð á mánu- daginn. Una fæddist á Shtvindastöðum í Staðarsveit. Hún ólst upp í foreldra- húsum en réðst kaupakona þegar hún var fimmtán ára til Guðjóns Péturssonar, b. í Amartungu í Stað- arsveit. Þau fóm síðar að búa saman og bjugggu í Amartungu til 1929. Þau bjuggu síðan á tveimur öðrum bæjum í sveitinni en fluttu að Gaul 1934 og bjuggu þar meðan Guðjón liíöi en hann lést 7.8.1968. Eftir lát Guðjóns hélt Una áfram húsfreyjustörfum að Gaul hjá Guð- mundi syni sínum sem þá tók við jörðinni en þau bjuggu þar til 1985 er þau fluttu til Ákraness þar sem þau hafa búið síðan. Una og Guðjón eignuðust fjórtán börn og em tólf þeirra á lífi. Þau era: Jón, Pétur Ingiberg, Jóhannes Matthías, Jóhaxm Kjartan, Vil- hjálmur Maríus, Sveinn, Gunnar Hildiberg, Óhna Anna, Guömundur Bjöm, Siguijón Magnús, Soffía • Hulda og Vilborg Inga. Afkomendahópur Unu er orðinn stór en auk bama sinna á hún fimm- tíu bamaböm og sextíu barna- bamaböm. Una var elst tólf systkina. Foreldrar hennar voru Vilborg Kjartansdóttir og Jóhannes Guð- Una Jóhannesdóttir mundsson, b. á Slitvindastöðum. Una tekur á móti gestum í félags- heimilinu Rein á Akranesi á morg- un, sunnudaginn 11.8., klukkan 15-19. Lydía Pálmarsdóttir Lydía Pálmarsdóttir húsmóðir, Eskihhð 5, Reykjavík, er sjötug á morgun, sunnudag. Lydía er fædd og uppalin í Reykja- vík. Hún lauk burtfaraprófi úr 4. bekk Kvennaskólans í Reykjavík árið 1936. Mörg undanfarin ár hefur Lydíastarfað fyrir Kvenfélag Hah- grímskirkju. Hún var ritari félags- ins í áratug en formaður sl. 12 ár. Lydía giftist Sigurbergi Árnasyni forsfjóra, f. 27. febrúar 1910, d. 28. júh 1987. Foreldrar hans vora Ámi Runólfsson frá Áshóli í Holtum og kona hans, Margrét Hróbjartsdóttir frá Húsum í Holtum. Árni var fyrst bóndi á Áshóh en flutti til Reykja- víkur upp úr aldamótum og vann verkamannavinnu. Sigurbergur er bróðir Hróbjarts Árnasonar, eiganda Burstagerðar- innar í Reykjavík og þeirra systk- ina. Hróbjartur er aftur faðir séra Jóns Dalbú Hróbjartssonar og séra Helga Hróbjartssonar. Böm Lydíu og Sigurbergs eru Pálmar Ami, f. 3. apríl 1940, hljóð- færasmiður, rekur Hljóðfæraversl- un Pálmars Áma í Reykjavík, kona hans er Jóhanna Snorradóttir. Pálmar á 5 böm: Ólafur Viggó, f. 4. ágúst 1943, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi í Endurskoðunar- skrifstofu Ólafs J. ólafssonar, kona Ólafs er Sólrún Jónsdóttir og eiga þau tvær dætur; Grétar, f. 14 febrú- ar 1946, geðlæknir, starfar á Geð- deild Borgarspítalans og á eigin stofu, kona hans er Kristín Hah- grímsdóttir og eiga þau þrjú börn; Friðrik, f. 8. júní 1957, læknir á Borg- arspítalanum og starfar jafnframt á þyrluvakt Landhelgisgæslunnar, kona hans er Ámý Sigurðardóttir, hjúkranarfræðingur og eiga þau tvö böm. Lydía á sex hálfsystkini, samfeðra: Bjarni, f. 11. febrúar 1930, hljóð- færasmiður, kona hans er Guðbjörg Bjömsdóttir og eiga þau tvö börn, Bjami á son frá fyrra hjónabandi, Ingvar; Helgi, 20. janúar 1934, kona hans er Erla Guðmundsdóttir, þau era barnlaus, en Erla á dóttur frá fyrra hjónabandi; Ingólfur, f. 14. nóvember 1942, hljóðfærasmiður, kona hans er Hrönn Hafliðadóttir, óperasöngkona, og eiga þau tvö börn; Bára, f. 5. júní 1941, maður hennar er Davíð Davíðsson og eiga þaufjögurböm;Fjóla,f. lO.júlí 1945, maður hennar er Hilmar Loftsson og eiga þau flóra syni; Margrét, f. 11. apríl 1948, hún hefur frá unga aldri verið á vistheimihnu Skála- túni í Mosfehssveit. Lydía Pálmarsdóttir. Faðir Lydíu er Pálmar Þórir ísólfsson, f. 28.7.1900 d. 26.8.1982, hljóðfærasmiður. Pálmar átti Lydíu þegar hann var ungur og ógiftur. Móðir Lydíu er Ólöf Eiríksdóttir, f. 20.9.1883 d. 12.4.1964. Föðurforeldrar Lydíu eru ísólfur Pálsson, tónskáld oghljóðfærasmið- ur, Syöra-Seli á Stokkseyri, og kona hans Þuríður Bjarnardóttir, Símon- arhúsi, Stokkseyri. Pálmar er bróðir Páls ísólfssonar tónskálds og þeirra systkina. Móðurforeldrar Lydíu eru Eiríkur Ólafsson, frá Helluvaði Rangár- vahasýslu, bóndi á Minni-Mástungu í Gnúpveijahreppi og kona hans Elísabet Jónsdóttir frá Görðum í Landsveit. Bjöm Lárusson Bjöm Lárasson, fyrrv. b. að Auð- unnarstöðum, Þorkelshólshreppi, ersjötugurídag. Björn fæddist í Grímstungu í Vatnsdal og ólst þar upp í foreldra- húsum. Hann kynntist þar öhum almennum sveitastörfum á stóru búi fóður síns. Björn stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti 1936-38 en útskrifaðist frá VÍ1942. Hann stundaði verslunarstörf hjá Verslun Sigurðar Pálmasonar á Hvammstanga í tvö ár og hóf síðan búskap á Auðunnarstöðum. Þar hefur hann búið síðan með blandað- an búskap. Bjöm hefur starfað við verslunarstörf hjá mági sínum í Reykjavík sl. þrjú ár. Kona Bjöms er Erla Guðmunds- dóttir, f. 21.4.1921, húsfreyja, dóttir Guðmundar Jóhannessonar, b. á Auðunnarstöðum, og konu hans, Kristínar Gunnarsdóttur. Bjöm og Erla eiga eina dóttur, Kristínu, f. 8.6.1948, húsmóður í Reykjavík, en hún er gift Magnúsi Magnússyni sendibílstjóra og eiga þauþijúböm. Bjöm átti sjö systkini og eru fimm þeirra á lífi. Þau eru: Helga, hús- móðir á Blönduósi; Ragnar, verk- stjóri hjá Kópavogsbæ; Grímur, vaktmaður í Stjórnaráðinu í Reykjavík; Kristín, húsfeyja á Bakka í Vatnsdal; Eggert, bæjar- starfsmaður á Seyðisfirði. Foreldrar Björns vora Lárus Bjömsson, b. í Grímstungu, f. 10.12. 1889, d. 1986, og kona hans, Petrína Björg Jóhannsdóttir, f. 21.8.1896, d. 1985. Bróðir Lárasar var Þorsteinn á Hellu, faðir Bjöms sagnfræðipróf- essors. Annar bróðir Lárusar var Sigurgeir, faðir Þorbjörns eðlis- fræðiprófessors. Systir Lárusar var Guðrún, móðir Björns, fyrrv. al- þingismanns á Löngumýri, og Hall- dórs búnaðarmálastjóra, amma Páls, alþingismanns og þingflokks- formanns á Höllustöðum, og Más, sýslumanns í Hafnarfirði, og lang- amma dr. Hannesar Hólmsteins. Lárus var sonur Björns, b. í Grímstungu í Vatnsdal, Eysteins- sonar, bróöur Ingibjargar, langömmu Friðriks Sophussonar iðnaðarráðherra. Móðir Lárusar var Guðbjörg Jónasdóttir, b. á Tind- um, Erlendssonar, og konu hans, Helgu Jónsdóttur, móður Guðrún- ar, langömmu Ingvars Gíslasonar ritstjóra. Petrína Björg var dóttir Jóhanns Skarphéðinssonar frá Hvoli í Víði- dal. Björn verður við laxveiðar norður í Víðidalsá á afmælisdaginn. Til hamingju með sunnudaginn 85 ára Ragnlieiöur Björnsdóttir, Furugerði 1, Reykjavik. 80 ára Gísli Gíslason, Gröf, Óspakseyrarhreppi. 75 ára Guðmundur Loftsson, Kastalagerði 5, Kópavogi. 70 ára Pétur Jónsson, Hörðalandi 2, Reykjavík. Sigurður J. Briem, Lönguhlíð 9, ReyKjavík. Stefán Gestur Kristjánsson, Hraunteigi 15, Reykjavík. 60 ára Gyða Guðmundsdóttir, Glerá, Akureyri. Erla Vídalín Helgadóttir, Grensásvegi 58, Reykjavík. Hafsteinn Gunnarsson, Flúðaseli 89, Reykjavík. Hanna Bjarnadóttir, Austurbrún 19, Reykjavík. Ingi K. Jóhannesson, Birkimel 8a, Reykjavík. Guðmundur Gunnarsson, Sóltúni 7, Keflavík. 50 ára örn Sigurðsson, Lækjamóti, Ljósavatnshreppi. Árni Jónsson, Fagrabæ 3, Reykjavík. Ásta Sigurðardóttir, Ásavegi 7, Vestmannaeyjum. Hrönn Vagnsdóttir, Hjöllum 15, Patreksfirði. Jóhannes Agnarsson, Fagraseli, Skarðshreppi. 40 ára Sólvéig Knútsdóttir, Munkaþverárstræti 27, Akureyri. María Gústafsdóttir, Fossheiði 62, Selfossi. Guðjón Róbert Ágústsson, Vesturbergi 8, Reykjavik. Skarphéðinn H. Einarsson, Espihlíö 8, Reykjavík. Guðmundur Þóroddsson, Hófgeröi 13, Kópavogi. Dagný Jónasdóttir, Vogalandi 10, Reykjavík. Gyða Siggeirsdóttir Gyða Siggeirsdóttir, Kópavogs- braut la, Kópavogi, er sjötug á morgun, sunnudag. Gyða giftist 22. júlí 1938 Agh Zoífaní- asi Bjamasyni, f. 20. febrúar 1915, fombókasala. Foreldrar hans eru Soffía Eggertsdóttir, Jónssonar, Hreiðarstaðakoti, Svarfaðardal, og Bjarni Guðmundsson bílstjóri, Sem- ingssonar, Semingssonar, bróður Marsibilar, móður Bólu-Hjálmars. Börn Gyðu og Egils eru Hrafnkell, f. 24. júní 1939, vélvirki í Reykjavík, og er hann kvæntur Önnu Sigur- jónsdóttur. Þau eru barnlaus; Ólaf- ía, f. 5 maí 1943. Fyrri maður hennar er Njáll Bergþór Sigurjónsson' prentari og þeirra börn Egill, f. 14. október 1962, Hrefna, f. 15. júlí 1964, en hún er gift Steindóri Gunnlaugs- syni, verslunarsjóra í Dynjanda. Seinni maður Ólafíu er Jóhann Gunnar Friðjónsson bankavörður og þeirra börn era Gyða, f. 15. jan- úar 1973, Friðjón f. 14. september 1976; Soffía Stefanía, f. 7 mars 1953, og er hún gift Jakobi Gunnari Har- aldssyni, f. 13. maí 1953, fram- kvæmdastjóra. Þeirra börn era Hrafnkell, f. 22. september 1977, Haraldur, f. 8. febrúar, 1980, og Hild- ur Björg, f. 10. júlí 1986. Gyða á tvö systkini, Hafstein og Einar. Móðir Gyðu var Hrefna Einars- dóttir, f. 14. ágúst 1901 í Knarrar- tungu í Staðarsveit, d. 9. nóvember 1955 í Reykjavík. Móðurfaðir Gyðu er Einar Þorkelsson, Eyjólfssonar, prests á Staðastað, Eyjólfssonar, prestsíGarpsdal. Faðir Gyðu er Siggeir, bakari í Reykjavík og síöar póstafgreiðslu- maður, f. 11. september 1894, Einars- son, thm. í Vorhúsum í Reykjavík. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að ber- ast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.