Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
Spumingaleikur
Veistu fyrr en í fimmtu tilraun?
Hér býður DV lesendum að reyna sig við sjö spumingar úr ýmsum áttum. Skráið hjá ykkur stigin og sjáið hve glögg þið eruð.
5 stig 4 stig 3 stig 2 stig lstig
Fleyg orö „Dettur yður í hug að ég ætl á einræði og orðinn 67 ára gama]l,“ sagði hann þeg- ar hann tók við forsetaemb- ætti. Hann var einn af litríkustu sijómmálamönnum Evr- ópu á þessari öld. Hann var hershöfðingi áður en hann varð stjómmála- maður. Hann var franskur að ætt og uppruna og lengi einn helsti leiðtogi þjóðar sinnar. Einn af stjómmálaflokkum Frakklands ber nafh hans.
Staður í veröldinni Þetta er nyrsta fasta byggð- in í heiminum. Fólk á þessum stað haíði ekkert samband við um- heiminn fyrr en árið 1910. Staðurinn fékk nafh sem Grikkir gáfú í fomöld ímyn- duðum löndum lengst í norðri. Staðurinn er á vesturströnd Grænlands. Á þessum stað hafa Banda- ríkjamenn aðstöðu fyrir flugher sinn.
Fólk í fréttum Spurt er um aldinn þjóð- höfðingja sem fæddur er á Englandi. Hann hefur verið í fréttum vegna ferðalags til íslands. Hann er fæddur árið 1903 og er því 85 ára gamall. Hann hefur tvívegis áður komið hingað, árin 1961 og 1974. Hann hefur verið Noregs- konungur frá árinu 1957.
Frægt í sögunni Um er að ræða slagsmál sem háð voru þar sem bíla- stæði Alþingis er nú. Slagurinn er kenndur við samkomuhús sem stóð þar. Húsið var í eigu Góðtempl- arareglunnar á íslandi. Tilefhi slagsins var deila um kaup í atvinnubótavinnu í Reykjavík. Slegist var hinn níunda nóv- ember árið 1932.
Sjaldgæft orö Orð þetta er stundum notað um megnið eða bróðurpart- inn af einhverju. Einnig þekkist að það sé notað um flúðir í ám. í hiiðstæðri merkingu er það notað um hæð í landi eða hálent svæði. Það þekkist einnig sem heiti á íshrönnum við vötn. Algengast er að það sé notað um háreysti eða glaum.
5-< £ § 'O S S Hann var alþingismaður nær samfellt á árunum 1927 til 1957. Hann var á sama tímabili einn helsti forystumaður Alþýðuflokksins. Hann var ráðherra atvinnu- og samgöngumála í vinstri- stjóminni á árunum 1934 til 1938. Hann var fæddur árið 1892 og andaðist árið 1971. Hann sat fyrst á þingi fyrir heimabæ sinn, ísaijörð.
Rithöfundur Hann náði fyrst vinsældum fyrir skáldsögur sem hann skrifaði á norsku. Fyrsta skáldsaga hans, sem þýdd var á íslensku, heitir Morgunn iífsins. Hann er þekktastur fyrir fjölmargar skáldsögur sínar þótt hann semdi einnig leik- rit, smásögur og ljóð. Ein þekktasta skáldsagan heitir Gyðjan og uxinn. Hann samdi vísindaskáld- sögur undir dulnefninu Ingi Vídalín.
Svör á bls. 50
Skólavörur og aftur skólavörur.
í septembermánuði eru 60.000
nemendur að birgja sig upp af
skólavörum og er þá margs að
gæta, bæði hvað varðar verð
og gæði. Mikill fjöldi vöru-
merkja er á markaðnum og get-
ur skipt miklu fyrir barnmörg
heimili að innkaup á þessum
vörum séu hagkvæm. DV fór á
stúfana og kannaði verð á öll-
um hugsanlegum skólavörum
og verða niðurstöður þessarar
könnunar birtar í mánudags-
blaði og einnig síðar í vikunni.
Það eru margar verslanir sem
bjóða skólavörur til kaups og
erverð sem gefuraðskilja mis-
jafntá milli þeirra.
Neytendafélag Akureyrar gerði
svipaða könnun fyrir stuttu í
nokkrum verslunum á Akureyri
og eru niðurstöður þar hafðar
til hliðsjónar. Forvitnilegterað
bera saman verðlag þarfyrir
norðan og hér í höfuðstaðnum.
Verður ekki annað séð en að
Norðlendingar megi vel við una
hvað varðar þann samanburð.
Á mánudaginn segjum við frá
verðkönnun á stíla- og reikn-
ingsbókum en síðar koma svo
önnur þau áhöld sem skólafólk
þarf á að halda.