Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 37
53
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
dv Knattspyma unglinga
Það voru hinir mestu fjörkálfar úr 4. flokki sem sóttu knattspyrnuskólann, kandidatarnir í næsta drengjalandslið. Hér eru þeir að „flippa" út í friminútum og alvörunni er sleppt um stund. Þeir
kváðu æfingar nokkuð strembnar en góðar og áttu þeir ekki nógu sterk orð til að lýsa ánægju sinni með veruna á Laugarvatni. „Þetta er alveg frábært," var viðkvæðið. DV-mynd HH
„Knattspymuskóli KSÍ er kominn til að vera"
Knattspyrnuskóli KSÍ var starf-
ræktur á Laugarvatni vikuna 28.
ágúst til 2. sept. sl. Unglingasíöa DV
brá sér því austur til aö fylgjast með.
Á staðnum voru tæplega 80 ungling-
ar og var mikið um að vera. Það var
því í mörgu að snúast hjá Lárusi
Loftssyni, kennara strákanna. Hon-
um til aðstoðar var Kristján Guð-
mundsson, efnilegur þjálfari 4. fl. ÍR.
Til að fræðast nánar um þaö sem
fram fór í skólanum látum við Lárus
hafa orðið:
„Knattspyrnuskólinn er náttúru-
lega fyrst og fremst hugsaöur fyrir
4. fl. strákana, hina verðandi
- Bjössi minn, á þetta að þýöa
að þú sért búinn að skipta um
félag???
- segir Lárus Loftsson unglingaþjálfari
drengjalandsliösmenn. Þeir eru út
alla vikuna. Drengja- og unglinga-
landsliðin eru í skólanum sitt í hvoru
lagi hálfa vikuna en eyða þó mið-
vikudeginum saman. Ég tel þetta
ákaflega mikilvægt til að auka kynn-
in milh þessara aldurshópa. 4. fl.
strákamir kynnast á þennan hátt,
bæði æfingum þeirra eldri, ef við
getum notað það orð, og ekki síst
skapast persónuleg kynni milh
drengjanna sem er stórt atriði.
Hér er æft tvisvar á dag og þess á
milli eru skoðuð myndbönd frá leikj-
um. Nú og svo hafa verið haldnir
fyrirlestrar og hefur Jón Gíslason
matvælafræðingur fjallað um matar-
venjur og þá með hhðsjón af holl-
ustu. Jón hefur heimsótt skólann öll
árin þrjú og hafa erindi hans ávallt
vakið mikla athygli.
Eyjólfur Ólafsson knattspyrnu-
dómari hefur komið og rætt við
strákana um samskipti leikmanna
og dómara, sem ég tel mjög gagnlegt.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Sama má reyndar segja um Sigurjón
Sigurðsson lækni, en hann hefur
rætt við drengina um fyrirbyggjandi
aðgerðir vegna meiðsla og komið
víða við.
Eftir þessi þrjú ár, sem skólinn
hefur starfað, má segja að við séum
búnir að öðlast ákveðna reynslu og
er hann núorðið í föstum skorðum
og þá hlýtur framhaldið að vera að
byggja meira í kringum hann.
Reynslutíminn er nefnilega liðinn og
sú reynsla hefur sýnt okkur að skól-
inn er kominn til að vera.
Við náum aldrei að auka við getu
þessara stráka nema með því að láta
þá koma saman og reyna með sér.
Þegar þeir bestu eru sameinaöir
ganga hlutimir miklu betur fyrir sig,
ekki síst hvað varðar aht er lýtur að
æfmgum. Svo er annað að umræðu-
efni strákanna er yfirleitt á hærra
plani en gerist og gengur hjá flestum
félögum. Þetta hlýtur að auka þroska
unglingsins.
Breyting á næsta ári
Meðal þeirra breytinga, sem verða
á skólanum á næsta ári, er að hann
verður haldinn um miðjan júlí til
þess aö hann stangist ekki á við úr-
slitakeppnina. Einnig er meiningin
að reyna að lengja tímabihð, auk
annarra breytinga sem eiga að leiöa
til aukinnar kennslu.
Ég hef t.d. mikinn áhuga á því að
strákamir klæöist skólabúningi,
keppnisbúningi, ásamt æfingagaha.
Það skapar ákveðna samstööu hjá
þeim. Minn draumur er einnig að
þegar þeir hafa lokið veru sinni í
knattspyrnuskólanum fari þeir út th
félaganna úti á landi eða hvar sem
er og jafnvel í skólana. Þetta gæti
verið hður í að kynna knattspym-
una.
Að mínu viti á að gera knatt-
spymuskóla KSÍ hátt undir höfði, því
við erum hér að höndla blómann úr
íslenskri unglingaknattspyrnu. Þetta
eru framtíðarleikmenn Islands. Við
verðum því að reyna að skapa þeim
sem besta undirstöðumenntun. Allt
shkt stuölar síðan aö bættri knatt-
spyrnu í landinu.
Þeir strákar, sem sækja skólann
að þessu sinni, taka hlutina mjög al-
varlega og að mínum dómi eru hér
mörg afburðagóð knattspymu-
mannsefni. Þeir eru og bjartsýnir á
framtíðina. Það er síðan okkar að sjá
svo um að draumar þeirra geti ræst.
Kostnaðurinn við skólann að þessu
sinni greiðir KSÍ að mestu en Lýsi
hf. styrkir hann. Svona til gamans
má geta þess að strákarnir taka lýsi
á hverjum morgni meðan þeir dvelja
hér og hefur það fallið í góðan jarð-
veg hjá þeim.
í sambandi við matarvenjur þá vh
ég geta þess að við emm á engan
hátt að reyna að umturna matarvenj-
um þeirra. Aftur á móti höfum við
reynt að benda þeim á að neyta hohr-
ar fæðu og að þeir hfi reglusömu lífi.
Þeir hafa áhuga á þessum þætti, og
það hlýtur aö vera skylda okkar að
benda þessum ungu leikmönnum á
leiðir til hehbrigös lífemis,“ sagði
Láms í lokin.
-HH
Myndin er af hinum föngulega hópi sem sótti KnaHspyrnuskóla KSÍ:
Fremst eru drengirnir í 4. flokki, hinir veröandi drengjalandsliðsmenn.
í miðiö er drengjalandsliðshópurinn en hann á að leika tvo leiki gegn
Norðmönnum i þessum mánuði heima og heiman í Evrópukeppni lands-
liða. Sigri drengirnir í þeirri viðureign fara þeir í úrslitakeppnina sem
háð verður í Danmörku næsta sumar. Aftast i hópnum eru svo unglinga-
landsliðsmennirnir. Alls voru 75 ungmenni á Laugarvatni á vegum Knatt-
spyrnuskólans. DV-mynd HH