Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Blaðsíða 17
DU
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
17
Breiðsíðan
DV-myndbrot
vikimnar
Þaö er engu líkara en sú stutta sé
aö hvetja kusu gömlu í nautaat. En
sú gamla lætur ekki plata sig í leiki.
Lítur einungis meö vanþóknun á
krakkakjánann og hugsar sjálfsagt
með sér: „Þessi börn þekkja ekki
einu sinni muninn á tudda og alvöru
mjólkandi kú.“
Litla stúlkan gafst upp eftir smáþóf
við kusu og fór að velta fyrir sér
hvaö þetta væri sem héngi þarna
niður. Er von að bamið viti það, að-
eins tveggja ára gamalt? En þá kom
mamma með söguna um grasið og
mjólkina. Það er ekki að sökum að
spyija að nú eru öll mjólkurglösin
gefin af Búkollu í sveitinni. -ELA
DV-mynd JAK
Guðmunda Jónsdóttir í lottóinu:
„íslendingar óvenju getspakir"
stefni að því aö taka stúdentspróf um
jólin. Ég hef verið að dunda við nám-
iö í mörg ár en undanfarin tvö ár hef
ég verið í fullu námi. Þetta hefur
gengið ágætlega en er svolítið erfitt
þegar maður er að sýsla í mörgum
hiutum og er auk þess með þriggja
ára bam,“ sagði Guðmunda. „Þetta
er dálítið strembið á próftímum."
Guðmunda, sem er 29 ára, sagðist
hafa hug á að halda áfram námi við
Háskóla íslands og þá í félagsfræði.
„Ég gæti vel hugsað mér að taka fjöl-
miðlanámskeiðin sem boðið er upp
á. Áður en að því kemur ætla ég að
taka mér eitthvert frí. Sjónvarpsmið-
ilhnn höfðar til mín og ég gæti vel
hugsað mér að prófa frétta-
mennsku,“ sagði Guðmunda.
Hún hætti sem sjónvarpsþula um
áramótin ’86-’87 en þá var öllum
þulum Sjónvarpsins sagt upp. „Það
stóð til að breyta starfinu og gera
vinnudaginn lengri. Á þeim tíma
hentaði það mér ekki sökum anna
svo ég hætti. Þar að auki var starfiö
illa borgað. Mér líkaði alltaf vel á
Sjónvarpinu en undir það síðasta
urðu miklar mannabreytingar óg
margt af því fólki, sem ég þekkti,
hætti og fór að vinna annars staðar.
Þá fór ég að finna fyrir leiða á starf-
inu og þessari kvöldvinnu sem fylgdi
því.“
Guðmunda sagði að ekki stæði til
að hún færi í frekari dagskrárgerð,
lottóið væri ágætt en i kvöld breytist
það frá því sem verið hefur. „Erlend-
is er fólk míög undrandi á því að
lottóvinningarnir gangi svo oft út
sem hér hefur verið raunin. íslend-
ingar eru míög getspakir eftir því að
dæma. Með nýja leiknum bætist við
sjötta talan, vinningspottar verða
fleiri og auk þess verða vinningarnir
hærri. Það ætti að gera leikinn meira
spennandi og einnig ættu pottamir
að verða hærri þar sem erfiðara
verður að fá fimm rétta,” sagði Guð-
munda. „Það verður að minnsta
kosti gaman að sjá hvort íslendingar
verða áfram jafngetspakir þegar töl-
urnar eru orðnar 38," sagði Guð-
mundaJónsdóttir. -ELA
,Það var Þorgeir Ástvaldsson sem
kom að máh við mig og bauð mér
þetta starf. Þeir vildu fá manneskju
sem væri vön sjónvarpsvélunum og
ég sló til,“ sagði Guðmunda Jóns-
dóttir í samtali við Breiðsíðuna er
hún var spurð hvað komið hefði til
að hún tók að sér að kynna lottótöl-
ur. Guðmunda var um sex ára skeið
sjónvarpsþula og líklegast flestum
kunn síðan. Fjórir skipta með sér að
kynna lottóið.
Guðmunda starfar einnig sem flug-
freyja hjá Flugleiðum, auk þess sem
hún hefur setið í öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahhð. „Ég
Guðmunda Jónsdóttir er aftur komin á skjáinn - nú í lottóinu sem breytist
i kvöld. DV-mynd Brynjar Gauti
Sigurbjörg Kristjánsdóttir hefur fengið nýtt starf hjá Rafha. í stað þess að
afgreiða eldavélar ætlar hún að selja Göflurum áfengi. Sigurbjörg var i
óðaönn að raða upp í hillur í vikunni. DV-mynd KAE
Áfengið komið í Hafnarfjörö:
Brennivín í eldavélaplássi
Afengisverslun verður opnuð í
Hafnarfirði á mánudag. Sennhega
eru ekki margir atvinnurekendur
sem myndu nota þann dag tU opnun-
ar en þeir eru ekki hjátrúarfullir hjá
ríkinu. Hafnfirðingar hafa lengi beð-
ið efdr áfengisverslun enda var mik-
ill meirihluti í bænum jákvæður er
kosið var um útsöluna fyrir nokkr-
um árum. Kaupmenn í bænum telja
að bæjarbúar versh fremur í Reykja-
vik, t.d. í Kringlunni, þar sem er
áfengisverslun, heldur en í sínu eigin
bæjarfélagi.
Þeir voru því margir kaupmenn-
imir sem buðu ÁTVR frítt húsnæði
undir útsöluna en ekki voru allir
jafnheppnir og Rafha. Sú verslun
hýsir nú hina nýja áfengisverslun og
útvegar ríkinu bæði frítt húsnæði og
fría starfskrafta í stað mjöðsins.
Undanfarna daga hafa staðið yfir
miklar breytingar á húsnæðinu í
Rafha. Áfengisverslunin er smækk-
uð útgáfa af „Ríkinu” í Kringlunni.
Alhr eru sammála um að sjálfsaf-
greiðsluformið sé mun hentugra og
skemmtilegra en gamla kássu-
stemmningin sem menn muna úr
eldri áfengisverslunum. Útsölustjór-
inn er Sverrir Valdimarsson en hann
var áður í Kringlunni sem aðstoðar-
útsölustjóri.
Er DV leit inn í hina nýju verslun
í vikunni voru starfsmenn í óðaönn
að raða flöskum í hihur. „Ríkið“ í
Hafnarfirði er fremur htil verslun
og spumingin er þvi sú hvort bjórinn
kemst fyrir líka. Æth Rafha láti þá
ekki aðeins meira af eldavélapláss-
inu? Hvað er ekki gert þegar brenni-
vinið er annars vegar?
-ELA