Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 40
56
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
Nú má Jón Páll fara að vara sig á konunum:
Ætlar að verða
sterkust í Evrópu
„Eg á ekki í neinum vandræðum
með vinina en ef einhver ætlar að
slást við mig get ég hrætt þann sama
•* með rnörnmu." Svo segir Svíinn
Micke sem er 23 ára. Móöir hans er
sterkasta kona Svíþjóðar og þó víðar
væri leitað. Hún segist hafa verið
þrítug er hún byijaöi að byggja upp
líkamann. Gunilla Söderberg, en svo
heitir kvenkyns „Jón PáOinn" þeirra
Svía, er nú 38 ára gömul og stefnir
að því að vera sterkasta kona Evr-
ópu.
„Ég verð að viðurkenna að fólk
hneykslast oft á vaxtarlagi mínu.
Oftar er það þó feimið við mig en
starir engu að síður. Þegar ég kem
inn á bar, sem er sjaldan, fer fólk
oftast að ræða við mig um vaxtar-
ræktina." Hún segist kæra sig koll-
ótta um hvaö fólk hugsar eða segir.
Sem betur fer fyrir Gunillu er eig-
inmaðurinn líka í vaxtarrækt þannig
að hann setur það ekki fyrir sig þó
að eiginkonan sé vöðvamikil. Hann
lætur þó vera að keppa í greininni
eins og Gunilla gerir.
Gunilla segir að það séu aðallega
kynsystur hennar sem hneykslist á
henni. Hún lætur sér á sama standa
enda segir hún það hollt og gott að
halda líkamanum í formi. „Það þarf
ekki endilega að vera í vaxtarrækt.
Sund og hjólreiðar eru h'ka ágætis-
hreyfing fyrir líkamann og passar
flestum konum.“
Sex til átta vikum fyrir keppni
heldur Gunilla sig frá öllu sem er
feitt eða sætt og mjólkurvörum. „Ég
borða þorsk, kjúkling, ávexti, græn-
meti og bakaðar kartöflur. Brauö
baka ég sjálf því þá er ég viss um
hvað er í því,“ segir hún.
Gunilla er þrátt fyrir vöðvabúntinn
aðeins 67 kiló. Hún tekur son sinn,
sem er 85 kíló, auðveldlega upp með
annarri hendi og gengur um með
hann á öxlinni. Æth Jón Páll megi
ekki fara að vara sig?
Gunilla heldur á syni sínum, sem
er 85 kíló, auðveldlega með annarri
hendi.
Kjörinn félagi
ThnarltfyriraUa
SEPTEMBER
Ertu tilbúin að
eicnastbarn?
Ólvnipíu*e^arnir
Þrautaleið átindin
Verða menn n
megrun?
-bls. 41
Mata Hari og
dóttirhennar
NÝTT
HEFTI
*
A
BLAÐ-
SÖLU-
STÖÐUM
UM LAND
ALLT
ÁSKRIFT:
o
27022
Óperan um Nixon í Kína hrífur
hvarvetna.
Nixon
sýndur
í Edinborg
Bandaríska óperan Nixon í
Kína hefur hlotið miklar og góðar
undirtektir á listahátíðinni í Ed-
inborg. Hún hefur ekki áður ver-
ið sýnd á Bretlandseyjum.
John Adams, höfundur óper-
unnar, stjórnaði flutningi hennar
í Edinborg. Hann hefur ekki áður
stjómað verkinu í heild sinni.
Óperan var frumsýnd í Houston
í Texas í október á síðasta ári.
Hún fékk þar góðar viðtökur, sem
og annars staðar þar sem hún
hefur verið sýnd. í óperanni segir
frá ferð Nixons með konu sinni
og fylgdarhði til Peking árið 1972.
Prins
vikið úr
höllinni
Prins var meinað að spila í
Marmarahölhnni í Róm.
Menntamálaráðherra Ítalíu
bannaði bandaríska poppgoöinu
Prins að halda tónleika á Stadio
dei Marmari í Róm. Tónleikana
átti að halda síðasta mánudag.
Menntamálaráðherrann sagði
aö hölhn væri í mjög slæmu
ástandi og það yrði öragglega
ekki tíl að bæta ástand hennar
að halda þar hávaðasama popp-
tónleika. Hölhn tekur 20 þúsund
manns í sæti.
Á morgun var fyrirhugað að
gömlu rokkaramir í Deep Purple
héldu tónleika á þessum sama
stað en þeir urðu einnig frá að
hverfa vegna ástands haUarinn-
ar.
Canon
Ljósritunarvélar
FC-3, 43.600 stgr.
FC-5, 46.300 stgr.
Skrifvélin, sími 685277