Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Síða 43
X
Wpr Of WOAÍÍSA0UAJ
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
Skák
Jón L. Árnason
Orest Popovych, Bandaríkjamað-
ur sem mun vera fæddur í Úkraínu
en ekki Júgóslavíu eins og mis-
hermt var hér í þættinum, tefldi
glaðíega á mótinu og náði því að
verða fyrir ofan íslendingana að
stórmeistaranum undanskildum.
Af heimamönnum er það annars
að segja að mótið hefur áreiðanlega
verið þeim dýrmæt reynsla, eins
og til var stofnað. Enginn þeirra
náði að sýna verulega tilburði. Þó
var sigur Guðmundar Gíslasonar á
Popovych almennt áhtin besta
skák mótsins.
Við skulum renna yfir þessa skák
og aðra, þar sem Helgi Ólafsson,
eldri, fléttar glæsilega.
Hvítt: Guðmundur Gíslason
Svart: Orest Popovych
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. a4 Rc6 7. Be2 e5 8.
Rb3 Be7 9. 0-0 0-0 10. Be3 Be6 11. f4
exf4 12. Hxf4 Hc8 13. Rd5 Bxd5 14.
exd5 Re5 15. Hb4 Dc7 16. c3 Rfd7 17.
Rd4 g6 18. Db3 Rc5 19. Dc2 Hfe8 20.
Hfl Dd7 21. Rf3 Rg4 22. Bd4 Bd8 23.
Dd2 Re4 24. Df4 f5 25. Bd3 g5 26. Dcl
h6 27. h3 Rgffi
28. Rxg5! hxg5 29. BxfB Bxf6 30. Bxe4
He5 31. Dc2 f4 32. Bf3 Hc7 33. Bg4
Dg7 34. Df2 Kh8 35. Be6 He3 36. Dd2
Hcxc3 37. bxc3 Bxc3 38. Ddl Bxb4
39. Dh5+ Dh7 40. De8+ Kg7 41. h4
He5 42. Hf3! Bc5+ 43. Kh2 Kf6 44.
Df8+ Kg6 45. h5+
- Svartur gafst upp.
Hvítt: Helgi Ólafsson (eldri)
Svart: Guðmundur Halldórsson
Frönsk vörn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5
Rfd7 5. c5 6. c3 Rc6 7. Re2 cxd4 8.
cxd4 Db6 9. Rf3 f6 10. exf6 Rxf6 11.
0-0 Bd6 12. Rf4 0-0 13. Hel Bd7 14.
Rxe6 Hfe8 15. Bf5 Re7 16. Bh3 Bb4
17. He3 h6 18. Rf4 Bxh3 19. Rxh3 Rf5
20. Hd3 g5
21. Rhxg5!? hxg5 22. Bxg5 Re4 23.
Bf4 Bd6 24. Re5 Dxb2 25. Dg4+ Rg7
26. Hfl He6 27. Hb3 Dxd4 28. Hxb7
Be7 29. Bh6! Hxh6 30. Hxe7 Hh7 31.
Dg6 HfS
32. He8!
Svartur er vamarlaus eftir þenn-
an frábæra leik. Ef 32. - Hxe8, þá
33. Df7+ Kh8 34. Rg6 mát!
32. - Rg5 33. Hxf8+ Kxf8 34. Dxg5
Hh5 35. Rg6+
Og svartur gafst upp.
-JLÁ
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Á hinu borðinu sátu n-s Ragnar
Magnússon og Aðalsteinn Jörgen-
son, en a-v Sævar Þorbjömsson og
Karl Sigurhjartarson. Nú gengu
sagnir á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
1L pass 2S pass
2G pass 3L pass
3T pass 3H pass
3G pass 4H pass
6T pass pass pass
Þrátt fyrir afburðasagnakerfi sitt
höfnuðu n-s í sex tíglum sem engin
leið var að vinna eftir hjartaútspil
Karls.
Það voru 100 í viðbót til sveitar
Pólaris sem græddi 16 impa á spilinu.
Úrslit bikarmótsins
Úrslit Sanitas bikarmótsins verða
spiluð um helgina á Hótel Loftleiöum
og verða undanúrslitin spiluð á laug-
ardaginn. Búið er að draga og leikur
sveit Braga Haukssonar við sveit
Kristjáns Guðjónssonar frá Akureyri
og sveit Modern Iceland mætir sveit
Pólaris en sú síðamefnda sló út sveit
Flugleiða fyrir skömmu.
Spiluð verða 48 spil í undanúrslit-
unum en úrslitaleikurinn sjálfur,
sem spilaður verður á supnudaginn,
verður 64 spila leikur. Sá leikur verð-
ur sýndur á töflu. Spilamennskan
hefst kl. 10 að morgni báða dagana
og bridgeáhugamenn er hvattir til
þess að fjölmenna.
Vetrarstarfsemi Bridgefélags Reglur um varamenn verða mjög
Reykjavíkur er nú hafin oger byrj- frjálslegar, t.d. geta 3 eöa 4 einstakl-
að á tveimur eins kvölda Mitchell- ingar rayndað eitt par. Þar sem
datvímenningum. Þar á eftir tekur búist er viö mikilli þátttöku i
við 6 kvölda barómeterkeppni og keppnumvetrarins.verðakeppnis-
sfðasta keppnin fyrir jól verður 5 gjöld í lágmarki.
kvölda Butler-tvímenningur. Skráning er hafin í Barómeter-
Stefnt er að því að spilarar fái út- tvímenninginn sem hefst 21. sept-
skrift af spilum kvöldsins strax að ember og er hægt að skrá sig hjá
lokinni spilamennsku, og útreikn- Hauki Ingasyni i heimasíma 671442,
ingar allir verða tölvuvæddir vinnusíma 53044, eða Jakobi Krist-
þannig að úrslit hvers kvölds ættu inssyni í heimasíma 14487, vinnu-
að liggja fyrir nokkrum mínútum síma 623326.
eftir aö spilamennsku lýkur.
• Atli Eðvaldsson, Sævar Jónsson og Sigurjón Kristjánsson fagna glæsilegum sigri Valsmanna gegn frönsku
meisturunum i liði Mónakó ó Laugardalsvelli i vikunni. Atli skoraði sigurmarkið og var það sérlega glæsilegt.
IþrottapistiJl
Sérlega
glæsiiegur
árangur Vals
Glæsilegur leikur Valsmanna í
Evrópukeppninni í knattspymu
gegn frönsku meisturunum í Món-
akó á Laugardalsvelli í vikunni
verður lengi í minnum hafður enda
einn merkasti sigur sem íslenskt
félagshð hefur unnið í viðureign
við erlenda risa. Það var oft á tíðum
hrein unun að sjá til Hlíðarenda-
strákanna, leikur þeirra einkennd-
ist af miklu skipulagi, þolinmæði
og baráttu.
Framarar töpuðu viðureign sinni
gegn Barcelona en þegar þetta er
skrifað hafa Skagamenn ekki lokið
sér af gegn ungverska hðinu Ujpest
Doza.
Allir áttu leikmennirnir frá-
bæran leik
Aht hð Valsmanna lék einstak-
lega vel gegn Mónakó. Hvergi var
veikan blett að finna. Aðah hðsins
var og hefur reyndar verið sterk
vöm og það fengu leikmenn í hði
frönsku meistaranna aö finna.
Það verður að viðurkennast að
undirritaður var ekki mjög bjart-
sýnn á góð úrslit fyrir þennan leik,
það er að segja sigur Vals. Maður
gældi við jafntefhshugmyndir
lengst af. En er hða tók á leikinn
og Valsmenn höfðu „lifað af ‘ fyrstu
tuttugu mínútur leiksins var Ijóst
að ýmislegt óvænt gat gerst.
Hreint út sagt stórkostlegt
mark
Sigurmark leiksins var mjög
glæsilegt og í raun eitt glæsilegasta
mark sem skorað hefur verið á
Laugardalsvelh. Ahur undirbún-
ingur að markinu var með ein-
dæmum góður. Markið kom eins
og köld vatnsgusa framan í leik-
menn Mónakó sem muna mega
sinn fífil fegri.
Sigur Valsmanna of smár
Mjög sanngjöm úrslit í leik Vals
og Mónakó hefðu verið 3-0, Val í
hag. Með örhtilli heppni hefðu
Valsmenn getað veriö komnir með
annan fótinn í 2. umferð. Ógerning-
ur er aö segja til um hvort glæsi-
mark Atla Eðvaldssonar dugar
Valsmönnum til þess að komast
áfram í keppninni. Lið Mónakó
þykir mjög erfitt heim að sækja.
En hð Vals er ekki árennilegt þegar
það leggur fyrir sig varnarleik.
Vörn hðsins er gífurlega sterk og
þaö er ekki hægðarleikur fyrir
nokkurt hð í heiminum að bijóta
hana á bak aftur. Vonandi tekst
Valsmönnum vel upp í Frakklandi
í síöari leiknum. Fyrri leikm- lið-
anna var sýndur í beinni útsend-
ingu til Frakklands og ef til vih
fleiri landa. Leikurinn glæsilegi hjá
Valsmönnum var þvi frábær aug-
lýsing fyrir íslenska knattspyrnu
og Valsmenn eiga þakkir skihð fyr-
ir einstaklega góða frammistöðu.
Við algert ofurefli að etja hjá
Fram gegn Barcelona
Eins og búist var við áttu Fram-
arar, íslandsmeistararnir, í mikl-
um erfiðleikum gegn spönsku bik-
armeisturunum í Barcelona. í
leiknum kom greinilega í ljós hve
mikill munur er á einu besta félags-
hði heims og íslensku félagsliði.
Og það kom greinilega í ljós á Laug-
ardalsvelhnum á miðvikudags-
kvöldið að lið Barcelona er mörg-
um gæðaflokkum fyrir -ofan hð
frönsku meistaranna í Mónakó.
Hér er þó alls ekki verið að gera
lítið úr frammistöðu Valsmanna.
Hún er jafnglæsileg þrátt fyrir þá
staðreynd sem við blasir eftir sam-
anburð á liðum Mónakó og Barcel-
ona.
Framarar úr leik
Síðari leikurinn hjá Fram gegn
Barcelona verður gífurlega erfiöur <
og þar munu Framarar gera aht
sem í þeirra valdi stendur til að
forðast mörg spönsk mörk. Svo
virðist sem leikmenn Barcelona
séu aö rétta verulega úr kútnum
eftir öldudal á síðasta keppnistíma-
bih. Miklar hreinsanir hafa átt sér
stað í herbúðum spænska hösins
og hohenski þjálfarinn, Johan Cru-
yff, er greinilega á réttri leið með
hðið.
íslensku ólympíufararnir á
leið í loftið 1
Hinir 32 íþróttamenn, sem keppa
munu fyrir íslands hönd á ólymp-
íuleikunum í Seoul, eru nú í þann
veginn að leggja af stað í langt
ferðalag til Suður-Kóreu. Fjöldi
íþróttamannanna er sá sami og fór
á síðustu ólympíuleika í Los Ange-
les. Það er hins vegar staðreynd að
í dag eigum við mun betri íþrótta-
menn og til þeirra eru gerðar enn
meiri kröfur en í Los Angeles. Von-
andi tekst okkar fólki vel upp í
Seoul og vonandi skilar allt erfiðið
sér í viðunandi árangri þegar upp
verður staðið í október.
Stefán Kristjánsson
l-
i