Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1988, Page 56
72
Fréttir
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
_______BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Rollurnar ganga óhindraö í sorphaugana á Eskifirði þar sem úrgangur vikunnar er á matseðlinum. Hollustu-
vernd hótar að loka haugunum sem hafa ekki starfsleyfi. DV-mynd Emil
Slæm umgengni við öskuhaugana á Eskifirði:
Hollustuvernd hótar
lokun hauganna
- íslendingar eru vanþróaðir í sorpeyðingu
dæmis í Hnífsdal og á Egilsstöðum.
íslendingar eru mjög vanþróuð
þjóð hvað sorpeyðingu varðar,"
sagði Birgir Þórðarson hjá Holl-
ustuvernd ríkisins við DV.
Samkvæmt heimildum DV hafa
margir bæjarbúá á Eskifirði látið
lengi í ljós óánægju með öskuhaug-
ana sem þykja síður en svo til fyrir-
myndar. Þeir eru staðsettir gegnt
bænum hinum megin í firðinum.
Þeir eru ógirtir og þegar kveikt er
í ruslinu leggur óþef og reyk yfir
hluta bæjarins þegar vindáttin er
inn fjörðinn. Sauðfénaður gengiir
óhindrað á beit á haugunum og
gæti hæglega komist í rottueitur
sem þar getur verið.
Hrafnkell Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar á Eskifirði, segir að
ákvörðun hafi ekki verið tekin
varðandi framtíð hauganna.
„Það kæmi mér verulega á óvart
ef Hollustuvernd krefðist þess að
haugunum yrði lokað. Við munum
senda inn umsókn um starfsleyfi
og gera grein fyrir stööunni í þess-
um málum. Viö eigum við land-
leysi að etja. Það hefur lengi verið
á döfinni hjá okkur að steypa upp
sorpþró á þeim stað þar sem hau-
garnir eru núna, en jafnlengi hafa
verið skiptar skoðanir um þá áætl-
un. Er það vegna reykjarins sem
myndi leggjast yfir nýjasta hverfl
bæjarins. Annars' er hæpið að
kenna bæjarstjórn um þó að íbúar
bæjarins og þá ekki síst fyrirtæki
geti ekki séð sóma sinn í því að
ganga sómasamlega um haugana.
Við veröum aö treysta á hirðusemi
fólks þar sem við getum ekki haft
mann á vakt við haugana," sagði
Hrafnkell við DV.
Hann sagði ennfremur að á tíma-
bili hefði sorp verið brennt inni á
Reyðarfirði og gengiö vel, en
minnihluti framsóknarmanna í
bæjarstjórn hefði af einhverjum
ástæðum lagst gegn því.
„Við höfum hug á samvinnu við
Reyðfirðinga í sorpeyðingarmálum
og hefur komið fram hugmynd um
aö byggja sameiginlega sorpþró um
10 kílómetra frá bænum. Annars
fagna ég því að Hollustuvernd tek-
ur á sig rögg í þessum málum og
vona að það gildi um fleiri verkefni
sem stofnunin á að inna af hendi.
Vona ég þá aö það sama muni yfir
alla ganga.“
-hlh
„Við hjá Hollustuvemd rikisins
höfum sent bæjarstjórn Eskifjarð-
1 ar bréf þar sem við forum fram á
að bærinn sæki um starfsleyfi fyrir
haugana sem þeir eiga að hafa sam-
kvæmt reglugerðum. Ef engin svör
berast eftir helgina munum við
fara fram á að haugunum verði
lokað. Ástandiö þarna er alls óvið-
unandi en alls ekki einstakt.
Ástandið í þessum málum er mjög
slæmt um allt land. Við höfum
fengið kröfur frá íbúum staða um
að sorpbrennslum verði lokað, til
FRÍKIRKJUFÓLK
Stuðningsmenn séra
Gunars Björnssonar
hafa opnað skrifstofu á
Frakkastíg 6A.
Símar 15951,15697 og
15709.
Opiðfrákl. 10.00-22.00.
Stuðningsmenn eru beðnir að hafa sam-
band við skrifstofuna vegna fundarins í
Gamla bíói mánudaginn 12. september
kl. 20.00.
Ath. að safnaðargjöld eru greidd um leið
og álögð opinber gjöld og eru því allir
skuldlausir við kirkjuna.
LÆKNABÚSTAÐUR
ÖLDUBAKKA 5, HVOLSVELLI
Tilboð óskast í lokafrágang læknisbústaðar að Öldubakka 5,
Hvolsvelli.
Húsið, með tvöföldum bílskúr, er um 225 m2. Það er nú upp-
steypt, glerjað, múrhúðað að utan og með frágengnu þaki. Verkef-
nið nær til þess að fullgera húsið að innan með tilheyrandi lagna-
kerfum, gera fastar innréttingar og mála húsið að utan.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. apríl 1989.
Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík, 12. til 16. september 1988 gegn 5000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu IR, Borgartúni 7, þriðjudaginn
27. september 1988 kl. 14.00.
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1988.
Afmæli
Ingvar Vilberg
Brynjólfsson
Ingvar Vilberg Brynjólfsson
verslunarmaður, Laugavegi 160,
Reykjavík, verður sjötugur á morg-
un, sunnudag.
Ingvar fæddist og ólst upp í
Reykjavík. Hann hóf leigubílaakst-
ur árið 1937 og ók hjá Bifreiðastöð •
íslands til ársins 1949 en tók þá til
starfa hjá Miðstöðinni hf. og var þar
sölumaður i 25 ár. Ingvar hefur und-
anfarin 14 ár starfað hjá Sölustofn-
un lagmetis.
Ingvar er kvæntur Arnbjörgu
Markúsdóttur, f. 9. mars 1920, versl-
unarkonu, Jónssonar og konu hans,
Jóhönnu Jónsdóttur. Stjúpböm
Ingvars eru Helga Svavarsdóttir
tannsmiður; Sævar Svavarsson at-
vinnurekandi; Guðmundur Svav-
arsson verkfræðingur og Guðrún
Kunger, en hún býr í Bandaríkjun-
Faðir Ingvars er Brynjólfur sjó-
maður Gíslason frá Skrautási, Jóns-
sonar á Þverspyrnu. Móðir Ingvars
er Guðrún Hannesdóttir, Skipum,
Hannessonar, Skipum.
85 ára
Jens Davíðsson,
Austurgötu 47, Hafharfirði.
Hailfríður Jóhannesdóttir,
Álfaskeiði 64, Hafnarfiröi.
Ingvar Vilberg Brynjólfsson
Ingvar eignaðist átta systkini og
eru fjögur enn á lífi. Guðmundur
er kvæntur Sigurborgu Ólafsdóttur
og eiga þau 9 börn; Vigdís er gift
Guðmundi Maríussyni og eiga þau
3 börn; Jón er ókvæntur og barn-
laus; Eggert Ólafsson Brynjólfsson
er kvæntur Maríu Jóhönnu Vil-
bergsdóttur og eiga þau 3 börn.
Ingvar verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Hjalti Auðunsson,
Öldugötu 15, Hafnarfiröi.
Ásdís Hallgrímsdóttir,
Brúarflöt 5, Garðabæ.
Þórunn Lárusdóttir,
Markarvegi 10, Reykjavík.
75 ára 50 ára
Anna María Hansen,
Hæðarbyggð 20, Garðabæ.
Ragnheiður Sigurgisladóttir,
Ólafur Ágústsson,
Hólabraut 13, Keflavík.
Tjarnargötu 30, Keflavík.
Kristbjörg Steinþórsdóttir,
Hólabraut 15, Akureyri.
60 ára
Þorbjörg Þorbjarnardóttir,
Stóru-Gröf, Staðarhreppi.
Sigurður Jónsson,
Hvanneyrarbraut 53, Siglufirði.
Bryndís G. Friðriksdóttir,
Furulundi 5a, Akureyri
Maria V. Karlsdóttir,
Suðurgötu 52, Siglufirði.
Helga Friðriksdóttir,
Kambsvegi 30, Reykjavik.
Þórdís Guðjónsdóttir
Þórdís Guðjónsdóttir húsmóðir,
Bleiksárhlíð 62, Eskifirði, er áttatíu
ogfimmáraídag.
Þórdís fæddist á Kolmúla við Fá-
skrúðsfjörð og ólst þar upp og á
Kaldalæk við Vattarnes. Hún naut
þeirrar almennu barnauppfræðslu
sem þá tíökaðist en flutti sjö ára að
aldri með foreldrum sínum frá
Kaldalæk til Eskifjarðar. Þá strax
fór hún í vist og vann hún fyrir sér
upp frá því. Síðustu þijátíu starfsár-
in vann Þórdís við Hraðfrystihús
Eskifjarðar eða til áttræðisaldurs.
Maður Þórdísar var Sófus Oddur
Eyjólfsson sjómaður, f. 20.1.1892, d.
21.9.1971, sonur Eyjólfs Pétursson-
ar, f. 23.1.1860, d. 12.4.1931, og Katr-
ínar Maríu Oddsdóttur, f. 1.1.1874,
d. 24.11.1929.
Börn Þórdísar og Sófusar Odds
eru: María Kristín, f. 29.6.1923, d.
7.5.1956; Friðrik, f. 10.6.1927, bif-
reiðastjóri í Reykjavík, kvæntur
Ingunni Björgvinsdóttur, en þau
eiga fimm börn; Svava, f. 3.3.1934,
húsmóðir á Seyðisfirði, gift Jóhanni
Sveinbjörnssyni, en þau eiga þrjá
syni; og Hákon Viðar, f. 31.3.1936,
kvæntur Sigrúnu Valgeirsdóttur, en
þau eiga fjögur börn.
Þórdis átti átta systkini en á nú
eina systur á lífi. Systkini hennar:
Guðný Þorbjörg, látin; Kristín
Tryggvína, látin; Guðrún Jónína
Halldóra, látin; Óddný Vilborg, til
heimihs í Reykjavík; Jón Kristinn,
látinn; Jón Ólafsson, látinn; Jóhann
Halldór, látinn; og Ólöf Björg, látin.
Foreldrar Þórdísar voru Guðjón
Jónsson, sjómaður ogbóndi, f. 15.2.
Þórdís Guðjónsdóttir
1877, d. 8.1.1954, og Kristín Jóns-
dóttir, f. 24.6.1876, d. 8.3.1941.
Kristín var dóttir Jóns Jónssonar,
sjómanns og bónda á Vatnsleysu-
strönd sem síðar flutti til Fáskrúðs-
farðar, og Kristínar Jónsdóttur.
Guðjón var sonur Jóns Ólafsson-
ar, skálds, ritsjóra og alþingis-
manns, og Halldóru Guðjónsdóttur
áHelgustöðum.
Hálfsystkini Guðjóns: Ólafur,
tannlæknir í Chicago; Sigríður, er
átti dr. Ágúst H. Bjarnason prófess-
flr, móðir Jóns Ólafs verkfræðings,
föður Halldórs Jónssonar verk-
fræðings og forstjóra; Gísli síma-
stjóri, og Páll, tannlæknir í Reykja-
vík, faðir Gísla Ólafssonar forstjóra.
Hálfbróðir Jóns var Páll Ólafsson,
skáld og alþingismaður. Foreldrar
Jóns voru Ólafur, prestur að Kol-
freyjustað, Indriðason, b. á Borg í
Skriðdal, Ásmundssonar, og síðari
kona Ólafs, Þorbjörg Jónsdóttir,
silfursmiðs í Dölum í Fáskrúðsfirði,
Guðmundssonar.