Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988.
Fréttir
Möguleikar Steingríms bundnir
því að hafna launafiystingu
- líkur fyrir þvl að gengið verði til kosninga aukast
Þrátt fyrir að innan Alþýöubanda-
lagsins séu mjög skiptar skoðanir um
hvort flokkurinn eigi yfir höfuð að
fara í stjórnarsamstarf með Fram-
sóknarflokki og Alþýðuílokki eru
sterkir menn í flokkum sem vilja
stökkva á þetta samstarf ef flokkarn-
ir tveir eru tilbúnir til þess að falla
frá frystingu launa. Á flokksráðs-
fundi Alþýðubandalagsins í gær kom
fram skýr afstaða flokksmanna um
að ekki kæmi til greina að falla frá
þessu atriði.
Það atriði er hins vegar einn af
hornsteinunum í tillögum Fram-
sóknar- og Alþýðuflokksins um efna-
hagsaðgerðir. En staðan í dag er orð-
in þannig að ef ekki verður fallið frá
þessu atriði eru tilraunir Steingríms
Hermannssonar til myndunar ríkis-
stjórnar runnar út í sandinn.
Kvennalistinn hefur nú lýst sig tilbú-
inn til að styðja stjórn í skamman
tíma en setur kröfu um samningsrétt
sem skilyrði. Fyrir utan Alþýðu-
bandalagið og Kvennalista hefur
Steingrímur því ekki í önnur hús að
venda en til Borgaraflokks og Stefáns
Valgeirssonar en það er ekki nóg til
að fá nægan þingstyrk.
í dag mun koma í ljós hvert fram-
hald verður á tilraunum Steingríms.
Ljóst er að nokkrir þingmenn eru
tilbúnir að styðja stjórn hans til að
koma fram með bráðaaðgerðir. Til
þess að stjórn hans hafi trúverðugan
meirihluta verður hann hins vegar
að hverfa frá frystingu launa. Það á
bæði við meirihlutastjórn og minni-
hlutastjóm með stuðningi meiri-
hluta þingsins.
Þann tíma sem Steingrímur hefur
staðið í tilraunum sínum hefur
minnihlutastjórn Framsóknar- og
Alþýðuflokks í raun verið líklegasti
kosturinn. Stefán Valgeirsson hefur
bundið stuðning sinn við Steingrím
við slíka stjóm. Það hefur því í raun
aldrei verið nein forsenda fyrir
meirihlutastjórn nema með inn-
göngu Borgaraflokks en Steingrímur
hefur ekki talið það góðan kost.
Það er því líklegast að í dag komi
Steingrímur sér niöur á minnihluta-
stjórn til aö koma á bráðaaögerðum,
annað hvort með Alþýðubandalagið
innan borðs eða sem stuðningsaðila.
Hann mun þá bjóða forseta að end-
urnýja umboð sitt og fá heimild til
myndunar slíkrar stjórnar.
Ef Steingrími tekst ekki að tryggja
stuðning við minnihlutastjórn Fram-
sóknar- og Alþýðuflokks mun hann
skila umboðinu. Þá er sú staða kom-
in upp aö mestar líkur eru til þess
að gengiö verði til kosninga því á
meðan tilraunir Steingríms hafa
staðiö yfir hafa möguleikar á öðrum
stjórnarmunstrum minnkað.
-gse
Eftir ræðu Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, risu fundarmenn úr sætum og hylltu formanninn
sem beindi skeytum sínum mjög að persónu Steingrims Hermannssonar. DV-mynd GVA
Fundur sjálfstæöismanna á Hótel Sögu:
Framsókn höfuðóvinurinn
- samstarf við Alþýðuílokkinn enn talið fýsilegt
„Eina breytingin er sú að nú kemur
nafn sonar í stað fóður,“ sagði Þor-
steinn Pálsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins, þegar hann lauk sögu-
legri greiningu á atburðum síðustu
daga á fundi hans með sjálfstæðis-
mönnum á Hótel Sögu í gærkvöldi.
Þorsteinn vitnaði stíft í sögu Ólafs
Thors og viðskipti hans við Hermann
Jónasson og sagði að sagan heföi
endurtekið sig nema kvað nú væri
Steingrímur kominn í stað Her-
manns. Fékk málflutningur Þor-
steins góðar undirtektir á fundinum.
Stefán Valgeirsson:
Allir nema
Þorsteinn
„Það koma allir til greina nema ef
til vill Þorsteinn Pálsson," var þaö
eina sem Stefán Valgeirsson þing-
maður vildi segja þegar hann var
spurður í morgun um hveijir huldu-
menn hans væru. í gær varpaði Stef-
án fram sprengju þegar hann til-
kynnti að hann gæti tryggt hugsan-
legri stjóm Steingríms meirihluta í
báðum deildum. Hann hefur þ'ó ekki
viljað gefa upp hverjir það eru.
„Ég segi ekki einu sinni Steingrími
frá því hveijir þetta em. Hins vegar
mun ég tilkynna forseta íslands það
til að tryggja Steingrími umboðið
áfram ef til þess kemur.“ Stefán hef-
ur sagt að hugsanlega komi aldrei
fram hveijir það eru sem hann á við.
-SMJ
Það kom greinilega fram í máli
Þorsteins og annarra fundarmanna
að Framsókn er höfuðóvinurinn og
beindust harðar persónulegar árásir
að Steingrími Hermannssyni.
Annar tónn var til alþýöuflokks-
manna og sagði t.d. Halldór Blöndal
að:....í grundvallaratriðum viljum
við vinna saman enda fara lífskoðan-
ir okkar sarnan." Hann ásakaði þá
um að skorta úthald. Formaðurinn
ræddi hins vegar lítið um Alþýðu-
flokkinn en árásir hans beindust
vissulega einnig að Jóni Baldvini þó
hann færi mildari höndum um hann
en Steingrím.
í lok máls síns kom Þorsteinn inn
á viðræðurnar við Borgaraflokkinn:
„Á þessu stigi eru viðræðurnar á
milli tveggja sjálfstæöra flokka sem
hvor um sig ber ábyrgð á sínum
málum og forystumönnum." Kom
greinilega fram í máli annarra fund-
armanna að sameining við Borgara-
flokk væri vænlegur kostur í stöð-
unni.
-SMJ
FríMrkjudeilumar:
Búist við afsögn tveggja
úr safnaðarstjórn í dag
Búist er við afsögn tveggja stjórn- messuna á sunnudag ennþá en við
armeðlima úr stjórn Fríkirkj unnar vonumst eftir lyklunum hið fyrsta.
ídag.ÞaðeruÞorsteinnEggertsson Það fer að verða nauösynlegt að
stjómarformaður og Eyjólfur Hall- boða til annars safnaðarfundar til
dórs. Heimildarmenn DV innan að binda enda á þessa ringulreið
safnaöarins segja aö þá sitji ekkert sem ríkir í kringum stjórnina.
eftir nema leifar af sijórn með van- Þessi fundur í fyrrakvöld var eng-
traust safnaðarins á bakinu og þvl inn stjómarfundur. Það voru þrlr
sé Fríkirkjusöfnuöurinn f raun stjómarmeðlimir sem „rottuöu“
stjómlaus. sig saman án formlegs fundar-
Séra Gunnar Björnsson er enn boðs,“ sagöi séra Gunnar.
lyklalaus og aUs óvist hvort hann Séra Cecil Haraldsson sagði í
messar í Fríkirkjunni á sunnudag- samtali viö DV að ekki væri Ijóst
inn. hver ætti að messa á sunnudag.
„Þaö er ekki farið aö tala um -hlh
Kaupfélag Dýrfiröinga:
Heildarskuldir nema
um 800 milljónum
- óvíst hvort opnaö verður í dag
„Eg þori ekki að segja til um hvort
opnað verður í dag. Eg sendi skeyti
til fjármálaráðuneytisins í gær þar
sem ég ítrekaði erindiö um fyrir-
greiðslu og óskaði eftir að innsiglin
yrðu rofin þannig að hægt væri að
starfrækja fyrirtækin meðan unnið
væri að lausn málsins. Mér hefur
ekkert svar borist enn,“ sagði Magn-
ús Guðjónsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Dýrfirðinga á Þingeyri,
er DV ræddi við hann í morgun.
Verslun, frystihús og fiskimjöls-
verksmiðja kaupfélagsins vom enn
lokuð í morgun vegna vanskila á
staðgreiðslu- og söluskatti við ríkis-
sjóð. Togarar fyrirtækisins hafa þó
ekki veriö stöðvaðir enn. Sléttanesiö
er á veiðum og Framnesið landaði á
ísafirði í gær.
Magnús sagði að heildarskuldir
kaupfélagsins næmu nú um 800
milljónum króna, ef allt væri talið
með, s.s. afurðalán. Tryggingamat
eigna væri þó töluvert hærra heldur
en upphæö heildarskuldanna. Magn-
ús sendi nýlega erindi til fjármála-
ráðuneytisins þar sem hann fór fram
á að skuldunum yrði breytt í lang-
tímalán. Ekkert svar hafði borist í
morgun, hvorki við þessari beiðni
né beiðni um að rjúfa innsiglin.
„Plássið þolir þetta stopp alls
ekki,“ sagði Magnús. „Þetta er svipað
og ef 60.000 manns á Reykjavíkur-
svæðinu myndu missa atvinnu
sína.“
Hallgrímur Sveinsson, stjómar-
formaður kaupfélagsins, sagði við
DV í gær að kaupfélagið hefði „átt
við innri vandamál að stríða" og
hefði viss hluti vandans skapast
vegna þess. „Það var við vissa erfið-
leika að etja fram að kaupfélags-
stjóraskiptum," sagði Hallgrímur.
Umrædd skipti urðu fyrir fáeinum
mánuðum þegar Bjarni Kr. Gríms-
son, núverandi bæjarstjóri á Ólafs-
firði, lét af starfi kaupfélagsstjóra og
við tók Magnús Guðjónsson.
-JSS
Lögmaður um mál Leós Ingólfssonar:
Brot opinberra starfsmanna
séu metin
DV skýrði frá því á laugardag að
Leó Ingólfsson, deildarstjóri hjá Pósti
og sima, hefði fengið áminningarbréf
með hótun um uppsögn frá yfir-
mönnum sínum vegna skrifa sinna
um stofnunina í kjallaragreinum
blaðsins. DV vildi kanna hvort yfir-
mönnum Pósts og síma væri stætt á
því að hóta Leó uppsögn vegna skrifa
hans með tilvísun í lög um réttindi
og skyldur opinberra starfsmanna.
Spurningin var þá hvort opinberir
starfsmenn gætu ekki notaö rétt sinn
til tjáningarfrelsis eins og aðrir
landsmenn og viðrað skoðanir sínar
á opinberum vettvangi án þess að
eiga á hættu að vera áminntir eða
sagt upp störfum. Skipti þá engu
hvort þeir geröu viðkomandi opin-
bera stofnun eða annaö að umtals-
efni.
Samkvæmt lögfróðum mönnum
sem DV hefur rætt við er þetta alls
ekki einfalt mál. í lögum um réttindi
og skyldur opinberra starfsmanna
eru ákvæði um hollustuskyldu,
hlýðnisskyldu, trúnaðarskyldu og
þágnarskyldu þeirra. Ef skyldur
þessar eru brotnar getur það varðaö
áminningu eða lausn frá starfi um
stundarsakir. Er ekki hægt að svara
almennt hvenær opinber starfsmaö-
ur hafi brotið þessar skyldur. Er það
matsatriði hveiju sinni.
„Brot á þessum ákvæðum þurfa
ekki að vera þaö alvarleg að varði
í samhengi
áminningu. Starfsmaður getur brot-
ið lagalegar reglur en ekki gerst brot-
legur að öðru leyti þannig að áminn-
ing sé réttmæt. Annars eru mál um
brot á þessum lögum skoðuð í sam-
hengi og þau metin hveiju sinni.
Hefur viðkomandi starfsmaður til
dæmis gerst brotlegur að öðru leyti
en þessu? í þessu tilviki mun við-
komandi starfsmaöur líklega halda
fram stjórnarskrárvernduðum rétti
sínum til málfrelsis og skoðanafrels-
is. Þessi rök yrðu vegin gegn brotum
samkvæmt fyrrnefndum lögum og
þá ákveðið hvort eigi að áminna,
segja upp um stundarsakir eða víkja
alveg úr starfi,“ sagði heimildarmað-
ur DV.
Hann sagði einnig að rétt væri af
yfirmönnum Pósts og síma að vitna
til laga um réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna í áminningunni
þar sem þeir teldu hann bijóta
ákvæði þeirra laga meö skrifum sín-
um. Með því að áminna starfsmann
losnaði stofnunin við bótaskyldu ef
til brottrekstrar kæmi.
Ef stofnunin hefði einhver önnur
aðfinnsluatriði fram að færa um
starfsmanninn og hefði áminnt hann
vegna þeirra mætti líta svo á að hún
væri að safna í sarpinn fyrir uppsögn
en áminning er samkvæmt venju
fyrsta skrefiö í átt að henni.
-hlh