Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JONAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLU.NAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð i lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Hræðslulið í hremmingum Erfiðleikar Steingríms Hermannssonar við myndun stjórnar sýna, að seint og sennilega alls ekki næst sam- an stjórn, sem getur setið langleiðina út kjörtímabilið. Einfaldast og fljótlegast er því að efna til kosninga sem fyrst og leyfa gömlu ofstjórninni að sitja á meðan. Ekki er sérstök ástæða til að ætla, að ný ofstjórn eft- ir kosningar verði skárri en aðrar. Hins vegar má bú- ast við, að hún endurspegli betur ríkjandi viðhorf og njóti því meira trausts hjá fólki. Slíkt þykir gott vega- nesti, þegar talið er, að grípa þurfi til stórræða. Áhugi ýmissa stjórnmálamanna á nýrri stjórnar- myndun byggist ekki á því sjónarmiði, að nauðsynlegar séu aðgerðir í efnahagsmálum, heldur á hræðslu þeirra við kosningar. Þetta á einkum við um foringja Alþýðu- flokksins, Alþýðubandalagsins og Borgaraflokksins. Af hálfu hins síðastnefnda hefur margoft komið í ljós, að flokkinn þyrstir í að komast í stjórn, nánast með hverjum, sem til þess fengist. Ráðherrastólar yrðu þá virðulegur undanfari að hinu margspáða andláti flokks- ins, auk hins fornkveðna, að frestur er á illu beztur. Ofan á skeytingarleysi þjóðarinnar um Alþýðubanda- lagið, sem birtist í skoðanakönnunum, leggst svo for- mannsvandinn. Ólafur Ragnar Grímsson er umsetinn innanflokks-óvinum, sem munu kenna honum sem for- manni um ósigur flokksins í næstu kosningum. Það var nokkuð sniðugt hugsað hjá Steingrími Her- mannssyni að tefla upp á shka veikleika og safna saman hræðslubandalagi allra flokkanna þriggja, sem ekki þola kosningar um þessar mundir, og fylkja þeim undir ofstjórnarstefnu og forsæti Framsóknarflokksins. Dæmið byggðist á þeim styrk Framsóknarflokksins, að hann var eini flokkurinn af fyrirhuguðum fjórum stjórnarflokkum, sem gat látið sér standa á sama, hvort kosningar yrðu eða ekki. Samkvæmt valdataflsfræðum átti það að gefa Steingrími góða samningsaðstöðu. Af ýmsum ástæðum gekk þetta ekki upp. Borgara- flokkurinn fann upp á þeim óskunda, að telja sér trú um, að hann gæti ráðið ferðinni með því að semja í all- ar áttir í senn. Auk þess átti formaðurinn sælar minn- ingar úr húsi, sem hann hafði byggt við Bolholt. Alþýðubandalagið sá hka, að ótækt væri að fara í stjórn með Steingrími, ef Kvennalistinn væri utan stjórnar með vinsælar hugmyndir um þjóðstjórn til bráðabirgða og snarlegar kosningar. Enda hefur for- maður bandalagsins ekki getað dulið gremju sína. Niðurstaða þessara hremminga varð sú, að formaður Framsóknarflokksins hefur talið sig tilneyddan að fara út í vafasamar hugmyndir um minnihlutastjórn, sem kæmi í gegn efnahagsofstjórn og síðan fjárlögum með einhvers konar hlutleysi utanstjórnarþingmanna. Steingrímur telur sig hafa fordæmi fyrir slíku í ýms- um nágrannaríkjum. En hætt er við þungum róðri, ef áhyggjur hans af velferð nokkurra skuldugra frystihúsa Sambandsins leiða til myndunar stjórnar með A-flokk- unum einum og aðeins 32 þingmenn. Enginn heimsendir verður, þótt stjórnmálaflokkarnir haldi áfram enn um sinn að reyna að beija saman ríkis- stjórn, sem ekki nýtur trausts úr kosningum. Alténd má vona, að þjóðin hafi í stjórnarkreppunni frið fyrir ýmissi ofstjórnaráráttu í efnahagsmálum. Heppilegra væri að fá sem allra fyrst nýja ríkisstjórn með nýjan þingmeirihluta að baki sér, jafnvel þótt ástæðulaust sé að gera sér gylhvonir um afrek hennar. Jónas Kristjánsson Síblaðrandi i fjölmiðla með trúnaðarmál á vinnslustigi er fyrir neðan allar hellur og á lágu politisku plani. Samrýmist ekki skyldum og ábyrgð sem ráðherrar bera. - Þessi setning er ætluð formönnum Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. Stjómmálaástandið: Að vera í pólitík Jæja, það gekk loksins að koma stjórninni frá. - En ekki var nú aðferðin mannaleg, að „slátra stjórninni í beinni útsendingu,“ eins og formaður Sjálfstæðis- flokksins orðaði það réttilega. Það hefði nú verið meiri reisn yfir því aö brotnað hefði á málefnum. Eftir á getur maður sagt eins og of fáa grunaði að þeir sem sprengdu stjómina í beinni útsendingu gekk það aðallega til aö koma höggi á formann Sjálfstæðisflokksins. Svona aögerð er síðan réttlætt með því „að vera í pólitík". M.ö.o. skítt með þjóðarhag. Framsókn vorkunn Mikið eiga nú framsóknarmenn bágt. Að bregðast þegar mikið ligg- ur við að leysa vandamál atvinnu- veganna og hefja þess í stað póli- tískar svipingar einmitt þegar þurfti að taka höndum saman og leysa erfiö vandamál atvinnuveg- anna. Mikil er ábyrgö þeirra sem aðalsök eiga á árangursleysi síð- ustu ríkisstjórnar og slátrun henn- ar, þó ekki væri nema vegna þess vanda sem er aö skapast þessa dag- ana, í staðinn fyrir aö leysast. Framsóknarmenn hafa einskis metiö þaö aö hafa verið látnir í friði í aðalatriöum í sínum hallærislegu vandamálum síðustu misserin eins og t.d. kaffibaunamálinu. Það er á hreinu að ekki hafa framsóknar- menn sýnt jafnmikla pólitíska hóg- værö og þeim hefur veriö sýnd. Án þess að þaö hafi verið rætt hef ég litið svo á að forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafi ekki talið sér sæmandi aö sparka í liggjandi með því að velta framsóknarmönn- um upp úr t.d. kafíibaunamálinu og vandræðamálum í yfirstjórn SIS. Þaö gerir ekkert til þótt minnt sé á að í kafíibaunamálinu var fjall- að um upphæðir sem voru að stærðargráðu í þokkalegar efna- hagsráðstafanir fyrir frystinguna. Ég viðurkenni aö það er ljótt að vera að „bauna“ þessu á Framsókn en ég held að þeir hafí gott af því. Þurfi þeir einhverja „fyrir- greiðslu" geta þeir ekki reddað sér „avisos" sjálfir einhvers staðar? Um heilindi í samstarfi Þegar stjórn hefur verið mynduð í lýðræðisríki eiga menn aö vinna saman aö þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér. En mönnum, sem ganga til samstarfs og eru svo ekki heilir í samstarfinu, er vorkunn vegna eigin óheilinda. Dagblaðið Tíminn, málgagn Framsóknar- flokksins, var t.d. ýmist í stjóm eða KjaJIarim Kristinn Pétursson alþingismaður stjórnarandstöðu, og segir það mikið um afstöðu Framsóknar- flokksins þótt einstaka menn skuli undanskildir. Hjá málgagni Framsóknarflokks- ins voru ekki alltaf heilindi á bæ. Síðan fráfarandi ríkissstjórn var mynduð hefur varla liðið sú vika aö ekki væri ráðist að Sjálfstæðis- flokknum á einn eða annan hátt. Aðallega var notuð „frjálshyggju- grýlan“ og þyrlað upp einhverjum óhróðri í því sambandi. Svo því sé svarað örstutt, þá er frjálsræði í viðskiptalífi hér á landi bara lítið brot af því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum, svo ekki sé nú fariö lengra. Þessu skulu gerð betri skil síðar. En spurningin sem ég vil spyrja er þessi: Hvort er verra, „frjáls- hyggjugrýlan" órökstudd - eða heljartök Framsóknar á atvinnulífi landsmanna þar sem allir eiga að sitja og standa eins og henni þókn- ast? Er ekki tími til kominn fyrir suma að átta sig á því að það þarf líka „glasnost" á íslandi. Eins og myndin blasir við mér núna (aö kvöldi 20. sept.) þá voru það öfl í Framsóknarflokknum með dyggri aðstoð málgagns flokksins sem mátu það svo að pólitískum hagsmunum þeirra væri best borg- ið með því að koma höggi á for- mann Sjálfstæðisflokksins og sverta hann sem mest. Formanni Sjálfstæðisflokksins, ungum og efnilegum manni, mátti alls ekki takast að leiða ríkisstjórn sem leysti efnahagsvanda þjóðarinnar! Hvað sem forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins lagði til varð atburðarásin sú sama: Hlaupið í næsta fjölmiðil og hug- myndir hans dregnar í efa eða lagð- ar út á tortryggilegan hátt! En - skyldur ráðherra við þjóðina og samstarfsaðila voru að ná ár- angri bak við lokaöar dyr og stein- þegja þar til niðurstaöa var komin. Þá átti forsætisráöherra að halda blaðamannafund og kynna niður- stöðuna. Þetta hefði verið eðlileg málsmeöferð. En að láta sér detta í hug að vera síblaörandi í fjöl- miðla með trúnaöarmál á vinnslu- stigi er fyrir neðan allar hellur og á mjög svo lágu pólitísku plani og samrýmist á engan hátt þeim skyldum og þeirri ábyrgð sem ráð- herrar bera gagnvart þjóðinni. Þessi síðasta setning er ætluð for- mönnum Alþýðuflokks og Fram- sóknarflokks. En þaö voru líka aðr- ir ráðherrar í fráfarandi ríkisstjórn sem stóöu sig með sóma - svo það komi líka fram. Én er hægt að af- saka þessi vinnubrögð sem hér hefur veriö lýst og allir landsmenn orðið vitni að með þvi „að vera í pólitík"? - Láta hagsmuni þjóðar- innar lönd og leiö. Hvað með atvinnufyrirtækin sem beijast við lokun á rafmagni og hrúgu af vanskilareikningum þessa dagana? Að mínu mati er alls ekki hægt aö afsaka svona vinnu- brögð, þ.e. að vera að grafa sam- starfsflokki pólitíska skítagryfju á erfiðleikatímum. Það er gamalt máltæki sem segir að „þeir sem grafi öðrum gröf detti í hana sjálf- ir“. Mér dettur ekki annað í hug eitt augnabhk en að svo muni fara. Það er lögmál. Spurningin sem eft- ir stendur er bara hvenær þeir detta. Kristinn Pétursson „Formanni Sjálfstæðisflokksins, ung- um og efnilegum manni, mátti alls ekki takast að leiða ríkisstjórn sem leysti efnahagsvanda þjóðarinnar!“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.