Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988.
21
LífsstOl
Haustmatur
og slátxugerð
Þegar haustar hefst sláturtíðin og
fólk keppist við að draga björg í bú.
Þeir sem vilja leggja eitthvað á sig
til að draga úr matarkostnaði heimil-
isins taka slátur enda er það einhver
ódýrasti matur sem fæst í dag. Auk
þess ér innmatur mjög næringarrík-
ur og hóllur. Sláturgerö er þjóðleg
hefð sem því miður hefur dregið úr
á síðustu árum.
Margir hafa það á móti blóðmör og
lifrarpylsu að hvort tveggja sé of feitt
og orkuríkt. Vissulega þurfum við
ekki eins mikla orku í dag og áður
en í hófi er slátur kostafæða. Inn-
matur, svo sem hjörtu, lifur og nýru,
er aftur á móti fiturýr og sneisafullur
af næringarefnum.
Mörg heimili eiga sínar uppskriftir
af slátri en fyrir þá sem ekki búa svo
vel birtum við uppskrift að blóðmör
og lifrarpylsu.
Blóðmör
2 1 blóð
11 vatn
50 g gróft salt
1 kg rúgmjöl
200 g hveiti
400 g haframjöl
2-2'Akgmör
Síið blóðið og blandiö vatni og salti
saman við. Mjölið er hrært saman
við blóðhræruna. Brytjið mörinn í
bita og hrærið saman við.
Úr einni vömb eru sniðnir 4-5
keppir. Keppirnir eru hafðir liðlega
hálffullir og síðan er saumaö fyrir.
Keppimir eru soðnir í saltvatni i
2-2'ó klst. Hafið nóg vatn á keppun-
um og sjóöið við vægan hita. Fleytiö
og snúið keppunum öðru hverju.
Rúsínublóðmör er búinn til eins og
venjulegur blóðmör en þá eru rúsín-
ur notaðar að meira eða minna leyti
í staöinn fyrir mörinn.
Mjög gott er að nota söxuð fjalla-
grös í blóðmör. Notið þá minna af
mjöli og hafið blóðhræruna fremur -
þunna.
Lifrarpylsa
1 kg lifur
250 g nýru
450 g rúgmjöl
150 haframjöl
50-100 g hveiti
30 g salt
3/< 1 mjólk
1 kg mör
Þvoið lifur og nýru og hreinsiö
himnu af nýrum og stærstu æðarnar
úr lifrinni. Hakkið lifur og nýru í
hakkavél eða blandara. Hellið mjólk
og salti yfir og hrærið mjölið vel sam-
an við. Lifrarhræran á að vera nokk-
uö þykk. Þumalputtaregla um þykkt-
ina á blóðmörshræru og lifrarpylsu-
hræru er að sleif geti staðið upprétt
í hrærunni en hræran má ekki vera
mjög þurr.
Brytjið mörinn og látið mör og lifr-
arhræru jafnt í vinstrar og langana.
Fylliö liðlega til hálfs. Sjóðiö síðan
og farið með lifrarpylsuna á sama
hátt og blóðmörinn. Sjóðið vinstrar
aðeins skemur.
Án haframjöls
Þaö eru nokkuð margir sem vilja
eingöngu hafa rúgmjöl í slátrinu og
sleppa haframjölinu. Hér kemur
uppskrift að blóðmör og lifrarpylsu
án haframjöls.
Auðveldast er að eiga við hræruna ef hrært er með höndunum. Notið ein-
nota hanska og þá er auðvelt að halda höndunum hreinum.
DV-myndir KAE
2 msk. salt
1050 g rúgmjöl
750 g mör (má vera meiri eða minni)
Mælið blóðið og síið það. Hellið
vatninu í gegnum síuna og saltið svo.
Setjið helminginn af mörnum út í og
hræriö mjölinu saman við. Hrærið
þar til það er jafnt og setjið siðan
afganginn af mörnum saman viö.
Vambarkeppirnir eru rúmlega hálf-
fylltir, saumað fyrir þá og síðan soön-
ir í 3 klukkusturidir í söltu vatni.
Lifrarpylsa
1100 g lifur
2 /1 msk salt
6 dl mjólk
900 g rúgmjöl
800 g mör (má vera meiri eða minni)
Lifrin er þvegin og himnuhreinsuð,
skorin í bita og hökkuö í hakkavél
2-3 sinnum. Saltinu og mjólkinni
hrært vel saman við. Mjölinu og
mörnum hrært saman viö þar til
blandan er jöfn. Látiö í vinstrina og
langana og soðið á sama máta og
blóðmörinn en skemur.
Látið vömbina í iófann og yfir hand-
arbakið og þá er hægt að komast
hjá mesta subbuskapnum. Fyllið
vömbina aðeins til hálfs eða rétt
rúmlega.
Blóðmör
11 blóð
3 dl vatn
Eins og sjá má er hægt að halda hreinu í kringum sig ef hanskar eru notað-
ir og maður vandar sig aðeins við að fylla vambirnar. Saumið fyrir endann.
Yerðá
slátrí
Töluverö verðhækkun hefur
orðið á slátri síðan í fyrra og
munar þar mest um söluskattinn.
Nú kosta 5 slátur í kassa 1870
krónur en í fyrra kostuðu þau
1200 krónur, samkvæmt upplýs-
ingum frá Sláturfélagi Suður-
lands. Slátursala sláturfélagsins
er núna í Glæsibæ og veröur
verlsunin einnig meö til sölu aðr-
ar afurðir meðan á slátursölunni
stendur.
í ár verða ekki seldir saumaðir
keppir eins og í fyrra og reyndist
mjög vinsælt. Að sögn fram-
leiðslustjóra SS, Jón Gunnars,
hefur sláturfélagiö því miður
ekki framleiðslugetu til að sauma
keppi.
Aukalega er hægt að kaupa all-
ar tegundir af afurðunum. Dilka-
lifur kostar 249 kr, hjörtu kr. 353
hvert kíló, nýru eru 91 kr/kg, mör
kostar 53 kr/kg og sagaðir hausar
204 kr/kg. Tvö kíló af rúgmjöli
kosta 115 krónur.
Ef við tökum dæmi af lifrar-
pylsu og reiknum saman hráefn-
ið i einn skammt (mjög lauslega)
þá kosta rúmlega tvö kíló af lifr-
arpylsu um 450 krónur eða 225
kr/kg og gerast matarkaup vart
ódýrari.
MJ
Matur
Jafnið hræruna í vömbunum áður en þær eru settar
til suðu.
Lifrarpylsan soðin og síðan skorin niður.
Hrisgrjónavellingur með rúsinum og slátur er staðgóður matur og ódýr. Er hægt að biðja um meira á þessum siðustu og verstu timum.