Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1988, Page 38
50
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1988.
Jarðarfarir
Baldur Einarsson bifreiöarstjóri,
Skúlagötu 66, lést 12. september sl.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og 4
uppkomin börn. Hann verður jarö-
sunginn frá Fossvogskirkju í dag kl.
15.
Rafn Sigurðsson, frá Hafnarnesi við
Fáskrúðsfjörð, Engihjalla 9, Kópa-
vogi, sem lést 27. ágúst sl., verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 23. september kl. 13.30.
Björn Steindórsson lést 15. septem-
ber sl. Hann fæddist 5. maí 1915 á
Vopnafirði. Foreldrar hans voru
Steindór Jóhannesson og Guðrún
Pálsdóttir. Björn starfaði lengst af
sem bifreiðarstjóri. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Kristín Alexanders-
dóttir. Útför Bjöms verður gerð frá
Fossvogskapellu fóstudaginn 23.
september kl. 10.30.
Sigurbjörn Ágúst Nikulásson lést á
heimili sínu, Framnesvegi 6, þann 12.
september sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Útför Þorbjargar G. Jensdóttur,
Bakkagerði 6, Reykjavík, verður gerð
frá Bústaðakirkju fóstudaginn 23.
september kl. 13.30.
Útför Ólafíu Gísladóttur, Ægisgötu
2, Ólafsfirði, sem andaöist 15. sept-
ember sl. á sjúkradeild Hornbrekku,
fer fram frá Ölafsfjarðarkirkju föstu-
daginn 23. september kl. 14.
Kjartan Guðmundsson tannlæknir,
Búlandi 4, verður jarðsettur frá
Dómkirkjunni á morgun, fóstudag-
inn 23. september, kl. 13.30.
Þráinn M. Ingimarsson pípulagn-
ingameistari, Nönnugötu 5, andaöist
á heimili sínu miðvikudaginn 14.
september. Jarðarfórin fer fram frá
Fríkirkjunni fóstudaginn 23. septem-
ber kl. 15.
Benedikt Reynir Ásgeirsson, sem lést
af slysfórum að kvöldi 16. september,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju
laugardaginn24. septemberkl. 10.30.
Egill Bachmann Hafliðason skreyt-
ingameistari, Meistaravöllum 21, verður
jarðsunginn mánudaginn 26. september
kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
í Óperunni
Andlát
Guðrún Anna Ólafsdóttir, Gauta-
stöðum, Fljótum, lést í Sjúkrahúsi
Siglufjarðar þriðjudaginn 20. sept-
ember.
Ragnheiður Jóhannsdóttir, Faxa-
skjóli 14, Reykjavík, lést 20. septem-
ber.
Meiming
Afmælistónlist
Tímarit
Tónlist
Hár og fegurð
Nýverið kom út 2. tbl. 8. árg. 1988 af tima-
ritinu Hár og fegurð. Það er greinilega
tekið eftir þvi erlendis sem tímaritiö er
að gera því aö efni streymir látlaust inn.
Meðal efnis í blaðinu að þessu sinni er:
Myndir úr módelkeppni tímaritsins, við-
tal við Leo Passage, forseta Pivot Point
Intemationai, viðtal við Pál Sigurðsson
um fyrsta hárskerann á íslandi, úrslit í
Avant Garde keppni timaritsins, viðtal
við landslið íslands í hárgreiðslu og hár-
skurði, birt er mynd eftir Nicolay í París,
viðtal við Ann Bray, þjálfara landsliðsins
í hárgreiöslu, viðtal við John Jay, forseta
Intercoiffure, viðtal við Salvadore, þjálf-
ara landsliðsins í hárskurði, tískulinur
frá Jan Even Wiken, Elsu Haralds, Se-
bastian, Jingles, Pivot Point, Sanrizz,
Schwarzkopf og fleira og fleira.
Nú stendur yfir forsíðukeppni timarits-
ins sem er næststærsta keppni sem hald-
in er í hársnyrtifaginu á Islandi. Verð-
launin em ekki af lakara taginu en þau
era: listaverk eftir listamanninn Nicolay
í París, ferð til Ítalíu á hársnyrtisýningu,
myndavél frá Ljósmyndabúðinni, vöru-
úttektir frá Gelli, Schwarzkopf, Nexxus
og fleiri. Þess má að lokum geta aö módel-
keppni tímaritsins verður framvegis í
hverju blaði.
Tónleikar
Kynningartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
í kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit ís-
lands árlega kynningartónleika sína í
Háskólabíói. Þrjú verk veröa á efnis-
skránni, serenaða fyrir blásara eftir Ric-
hard Strauss, trompetkonsert eftir Jo-
hann N. Hummel og að lokum tónlist úr
Carmen eftir George Bizet í útsetningu
Schedrins. Einleikari á tónleikunum
verður Ásgeir H. Steingrímsson trompet-
leikari í Sinfóníuhljómsveitinni. Stjóm-
andi verður nýráðinn aðalhljómsveitar-
stjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, Firrn-
inn Petri Sakari..
Fundir
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Fundur verður haldinn i safnaðarheimil-
inu Kirkjubæ fimmtudaginn 22. þ.m. kl.
20.30. Fundarefni: Vetrarstarfið og
kirkjudagurinn.
Námskeið
Námskeið í lýsingu
og Ijósahönnun
Bandalag íslenskra leikfélaga, Þjóðleik-
húsið og Leikfélag Reykjavíkur gangast
fyrir námskeiði í lýsingu og ljósahönnun
í Þjóðleikhúskjallaranum 24. og 25. sept-
ember. Kunnur breskur leikhúsmaöur,
Francis Reid, hefur verið fenginn til að
kenna. f tengslum við námskeiðið verður
haldin sýning á ljósabúnaði. Námskeiðið
stendur frá kl. 10-17 báða dagana og er í
fyrirlestrarformi. Þátttökugjald er kr.
4.000, hádegismatur í Þjóðleikhúskjallar-
anum innifahnn. Námskeiðið er haldið
með stuöningi frá British Council. Skrán-
ing og allar nánari upplýsingar á skrif-
stofu Bandalags ísl. leikfélaga, s. 16974
og 622944.
Slysavarnaskóli sjómanna
Almenn námskeið hjá Slysavamaskóla
sjómanna, sem enn era laus til umsókn-
ar, verða haldin sem hér segir: 11.-14. og
18.-21. október, 1.-4., 15.-18. og 22.-25.
nóvember, 6.-9. og 13.-16. desember.
Námskeiðin verða haldin um borð í
skólaskipinu Sæbjörgu sem hggur við
Norðurgarð í Reykjavíkurhöfn. Nánari
upplýsingar verða veittar á daginn í síma
985-20028, á kvöldin og um helgar í síma
91-19591:
Leifur Þórarinsson
brosleit og veittu vel á undan kon-
sertinum. Var mikið skálað og ótal
margt fallegt mælt af munni fram,
bæði í bundnu og lausu máli.
Tónleikarnir sjálfir voru afar fín-
gerður þverskurður af ævistarfi
hins mikilvirka og virta tónskálds.
Þeir hófust með lögum fyrir fiðlu
og píanó sem Ath samdi kornungur
í námi hjá meisturum í Þýska-
landi. Þau Simon Kuran og Anna
Guðný Guðmundsdóttir fóru eink-
ar geðslega með þessa byrjenda-
músík sem lýsir ótrúlega sérstæðu
„talenti" á krossgötum. Síðan kom
Dona novis pacen við ísl. þýðingu
á kvæði eftir Neruda, þar sem beð-
ið er innilega fyrir friði og farsæld
allra manna og málleysingja og fór
Tapað fundið
Læða í óskilum í Mosfellsbæ
Lítil hvít læða, grábröndótt á baki, röfu
og höfði, hefur verið í óskilum í Barr-
holti sl. 2-3 vikur. Eigandi hennar er vin-
samlegast beðinn að hringja í síma
666692.
Tilkynningar
Neskirkja - starf aldraðra
Farið verður í ferð um Þjórsárdal sunnu-
daginn 25. sept. Lagt verður af stað frá
kirkjunni kl. 13, skoðaður sögualdarbær-
inn á Stöng o.fl. Veitingar verða bomar
fram í félagsheimilinu Arnesi.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag
kl. 14. Fijáls spilamennska, t.d. bridge eða
lombert. Félagsvist kl. 19.30, hálft kort.
Kl. 21 verður dansað.
Nýtt merki Sinfóníu-
hljómsveitar íslands
Merki það sem prýðir efnisskrá Sinfóníu-
hljómsveitar íslands nú teiknaði ung
grafíkhstakona, Aðalbjörg Þórðardóttir.
Aðalbjörg útskrifaðist frá Háskóla ís-
lands 1979 sem líffræðingur en sneri sér
að myndlistamámi árið eftir. Hún lauk
námi frá Myndhsta- og handíðaskólanum
sl. vor og valdi sér merki fyrir Sinfóníu-
hljómsveit fslands sem lokaprófsverk-
efni. Merkinu lýsir Aðalbjörg á eftirfar-
andi hátt: F-lykillinn er rittákn í tónhst
eins og öhum er kunnugt sem eitthvað
þekkja th tónhstar. Fuglinn hefur verið
tákn tónhstar í gegnum aldimar. Saman
mynda þessi tvö tákn, F-lykillinn og fugl-
inn, eina heild sem hkist eihfðartákninu
Öing-jang), en þaö er mjög við hæfl þar
sem tónhstin er eilif.
Atli Heimir Sveinsson tónskáld og
kóna hans, Ingibjörg Björnsdóttir,
áttu merkisafmæli á dögunum og
héldu upp á þetta í gær með tón-
leikum o.fl. í Gamla Bíói. Atli varð
fimmtugur og Ingibjörg fjörutíu og
fimm, svo samtals eru þau níutíu
og fimm ára, sem er enginn aldur.
Enda voru hjónin brött og
Heiðurshjónin Ingibjörg Björnsdóttir og Atli Heimir á tímamótum.
Gunnar Eyjólfsson með textann af
skörungsskap. Sigurður I. Snorra-
son lék um leið á klarínettu en fjór-
ar söngkonur tóku lagið í lokin með
orðunum fleygu: Dona nobis pacen,
gef oss frið. Þetta hljómaði innilega
og fallega og þá ekki síður nokkrar
mínútur fyrir .sólóflautu sem Mart-
ial Nardeau lék af magnaðri snilld.
Síðast voru svo sönglög við texta
eftir Hannes Pétursson o.fl. sem
Rut Magnússon söng af rausn með
fjórum hljóðfæraleikurum. Það var
gott að heyra og gott var að vita
Atla og hans fögru frú í góðu formi
og megi þau lengi, lengi lifa og
dafna.
LÞ
Studio 76
- ný Ijósmyndastofa
Fyrir skömmu tók til starfa ný ljós-
myndastofa, Studio 76, að Suðurlands-
braut 22. Þar er boðin afhliða fjósmynda-
þjónusta en megináhersla lögð á portrait-
myndir og tækni- og iðnaðarljósmyndir.
Það era hjónin Anna Sigurðardóttir og
Tryggvi Þormóðsson sem era eigendur
og starfsmenn stofunnar en þau hafa
bæði verið í Bandaríkjunum sl. átta ár,
numið ljósmyndun og starfað að grein
sinni hjá þekktum fyrirtækjum og á eigin
vegum í Los Angeles. Studio 76 er vel
búið tækjakostnaði óg mun kappkosta
að bjóða öragga þjónustu og hagstætt
verð.
Húnvetningafélagið
Félagsvist laugardaginn 24. september
kl. 14. Spilað veröur í félagsheimilinu
Húnabúð, Skeifunni 17. Ahir velkomnir.
Sphaö veröur aha laugardaga kl. 14 í
vetur.
Uppákomur í Galleríinu
Undir pilsfaldinum
Samsýningu listamannanna Árna Ing-
ólfssonar, Hrafnkels Sigurðssonar,
Kristjáns Steingríms og Ómars Stefáns-
sonar í galleríinu Undir phsfaldinum,
Vesturgötu 3b lýkur þann 25. september.
Fjóra síðustu sýningardagana verða
uppákomur á hverju kvöldi og hefjast
þær kl. 21. Þarna verða framdir gjöming-
ar, sýndar verða stuttmyndir og flutt tón-
list. Dagskráin verður sem hér segir:
Fimmtud. 22. sept.: Uppákoma: Regnhlíf-
arsamtökin Jói á Hakanum. Föstud. 23.
sept.: Gjörningar: Ómar Stefánsson,
Þorri Jóhannsson, Ólafur Lárasson, Egg-
ert Einarsson og fleiri. Laugard. 24. sept.:
Stuttmyndir og myndbönd: Halldór
Gunnarsson, Inga Sólveig, Kári Schram,
Valtýr Þórðarson og fleiri. Sunnud. 25.
sept.: Tónleikar: Regnhlífarsamtökin Jói
á Hakanum, Benóný Ægisson, djasstríó
- Birgir Birgisson, Richard Corn og Stein-
grímur Guðmundsson, upplestur - Sjón
og fl. Aðgangur kr. 200.
„Viðviljum vinna“
Samráðsnefnd um málefni fatlaðra,
Vinnuveitendasamband íslands og
Vinnumálasamband samvinnufélaganna
hafa staöið sameiginlega að gerð bækl-
ingsins „Við viljum vinna“- í því skyni
að auka möguleika fatlaðra til starfa á
almennum vinnumarkaði og til upplýs-
inga fyrir atvinnurekendur og stjómend-
ur fyrirtækja.