Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988. Fréttir Engin kona í ráöherrahóp Alþýðubandalagsins: Því miður voru ekki fleiri ráðherraembætti - segir Olafur Ragnar Grímsson „Eg er aö sjálfsögöu ekki ánægð með að flokkurinn skyldi ekki treysta sér til þess að velja konu sem ráðherra," sagði Margrét Frí- mannsdóttir eftir að þingflokkur Alþýðubandalagsins hafði sam- þykkt tillögu Ólafs Ragnars Gríms- sonar um ráðherra flokksins. Ólaf- ur útnefndi sjálfan sig, Svavar Gestsson og Steingrím J. Sigfússon. Val Alþýðubandalagsins á ráð- herra tók mun lengri tíma en hinna flokkanna. Þegar flokkarnir höfðu komið sér saman um skiptingu ráöuneyta eftir þriggja tíma þóf tók val Alþýðubandalagsins viö. Það fór þannig fram að Ólafur Ragnar Grimsson kallaði einn og einn þingmann flokksins fyrir sig og kannaði hug hans. Þegar hann hafði gengið á röðina kallaði hann nokkra þeirra aftur til sín. Þegar Ólafur lagði fram listann fyrir þingflokkinn bauð hann Guð- rúnu Helgadóttur stöðu formanns þingflokksins og Margréti Frí- mannsdóttur formennsku í fjár- veitinganefnd. Þær tóku ekki boð- inu á fundinum heldur tóku sér umhugsunartíma. Guðrún fór strax af fundi eftir að listi Ólafs hafði verið samþykktur. „Það er mjög eðlilegt sjónarmið aö það væri kona í ráðherrahóp Alþýöubandalagsins. Það eru hins vegar ýmis önnur sjónarmið sem einnig þarf að taka tillit til,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson. „Það hefur ávallt verið venjan hjá okkur í Alþýðubandalaginu að þingmenn á landsbyggðinni séu einnig í hópi ráðherra. Viö fylgjum þeirri venju nú. Einnig hefur fyrsti þingmaður okkar í Reykjavík setið í ríkisstjórnum áður. Mér flnnst mjög dýrmætt að fyrirrennari minn sem formaður Alþýðubanda- lagsins skuli sitja með mér í þess- ari ríkisstjórn. Ég held að það sýni í verki samstöðuna innan flokksins og auki styrk okkar. Því miður voru ráðherraembættin ekki fleiri en þessi þrjú. En við munum hins vegar kappskosta við það bæði inn- an Alþýðubandalagsins og eins innan ríkisstjórnarinnar aö gjör- breyta þeim hlutfóllum sem ríkt hafa milli karla og kvenna á ýms- um sviðum í þjóöfélaginu. Menn munu sjá mjög stór skref í því á næstunni." - Er það ekki slæm byijun á því verki að taka þau sjónarmið sem réöu vali á ráðherrahóp flokksins fram yfir sjónarmið jafnréttis? „Það eru ýmis sjónarmiö sem þarf að taka tillit til. Við hefðum kosið að ráðherraembættin hefðu verið fleiri. Þeim var hins vegar fækkað frá fyrri ríkisstjóm. Ég hefði kosið að þaö hefði veriö svigr- úm til að veita konu ráðherraemb- ætti,“ sagði Ólafur Ragnar. -gse Ráðherrar Framsóknarflokksins voru valdir með lófaklappi á þingflokks- fundi. Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs, dóms- og kirkjumálaráðherra, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. DV-mynd GVA Alþýðuflokkurinn gekk frá vali sinna ráðherra í morgun á framhaldsfundi flokksráðsins. Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra, Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráö- herra. DV-mynd GVA Eftir skoðanakönnun meðal þingmanna lagöi Olafur Ragnar Grimsson fram ráðherralista sinn sem var samþykktur. Steingrímur J. Sigfússon, land- búnaðar- og samgönguráðherra, Ólafur Ragnar Grimsson fjármálaráðherra og Svavar Gestsson menntamálaráðherra. DV-mynd GVA Svavar Gestsson: Skipuð nefhd um ríkisútvarpið „Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni. Það er mikill hópur góðs fólks í uppeldisstéttum, mennta- og menningarmálum sem ég mun leita til í þessu starfi. Ég veit að það er tilbúið til að veita alla aðstoð. Það verður vafalaust þannig að þaö verð- ur ekki úr miklum fjámunum að moða miöað við stöðu ríkissjóðs, sem flokkurinn ber einnig ábýrgð á. Þeim mun brýnna er aö hafa mikið af góö- um hugmyndum. Ég veit að sá hópur sem ég mun leita til er auðugur af hugmyndum og tilbúinn til starfa. Þannig að það verður örugglega tekið eftir því að eitthvað er að gerast í menntamálaráðuney tinu, ‘ ‘ sagði Svarar Gestsson, sem verður menntamálaráðherra eftir hádegi í dag. „Eg hafði satt að segja velt því fyr- ir mér að láta það veröa mitt fyrsta verk að skipa nefnd sem gerði tillög- ur um eflingu ríkisútvarpsins. Eg vænti þess að ég undirbúi það strax á morgun ef ég hef tök á og tilkynni það í næstu viku,“ sagöi Svavar Gestsson. -gse *■ t ♦ Stelngrímur J. Sigfusson: Ánægður með traustið „Ég er fyrst og fremst ánægður yfir því trausti sem mér er sýnt með því að fá að takast á við þessi verkefni fyrir flokkinn,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon eftir aö þingflokkur Alþýðubandalagsins hafði valið hann til að gegna emb- ætti landbúnaðar- og samgöngu- ráðherra. „Ég kem að þessum málmn meö fullkomlega opinn huga og ætla að .skoöa þau frá öllum sjónarhomum. Ég hef oftast brugðist við með sama hætti þegar ég tek óvænt að mér ný verkefni. Eg hringi í nokkra góöa menn til að fá hugmyndir, spjalla viö þá og læra af þeim. Það læt ég sfðan hjálpa mér við fram- haldið,“ sagði Steingrímur J. Sigf- ússon. -gse ión líklegur sem forseti Þar sem Jón Helgason féll út af ráðherralista Framsóknarflokksins er taliö líklegt að hann verði kjörinn forseti sameinaðs þings. Stjórnar- flokkarnir gengu ekki frá því hver fengi það embætti í gær né heldur hverjir fá formennsku í utanríkis- málanefnd og fjárveitinganefnd. En vanalega er þessum stöðum skipt „Ég hef aldrei litið á ríkisstjórn þannig að hún sé fyrir einhveija til að komast í ráðherrastóla heldur séu önnur sjónarmið sem þar eigi að ráöa. Viö vissum að það yrði fækkað um einn mann hjá Framsóknar- flokknum núna og því þyrfti einn að fara út,“ sagði Jón Helgason, sem í hádeginu í dag verður orðinn fyrr- verandi landbúnaðarráðherra. „Ég er búinn að vera í landbúnað- arráöuneytinu í fimm og hálft ár og þar hefur veriö ærið að starfa. Þar hefur veriö margt ánægjulegt en einnig margt sem hefur þurft að ta- kast á við. Ég held að mál hafi þok- ast í rétta átt á þessum tíma og það sé á ýmsan hátt betra að taka við því starfi nú heldur en þegar ég tók viö upp á sama tíma og ráðuneytum. Þar sem Ólafur Ragnar Grímsson bauð Margréti Frímannsdóttur stöðu fornianns í fjárveitinganefnd í gær má hins vegar telja víst að sá háttur verði hafður á að formenn þessara tveggja nefnda verði úr sama flokki og sá ráðherra sem fer meö viðkom- andi málaflokk. Það má því gera ráð því.“ - Hefur þú trú á því að eftirmaður þinn muni halda áfram þeirri stefnu sem þú hefur markað meö búvöru- samningum og því sem fylgt hefur í kjölfar þeirra? „Já, ég er ekki í nokkrum vafa um það. Það er búið að leggja grunninn á svo mörgum sviðum að ég held að það sé óhjákvæmilegt að það verði haldið áfram á sömu braut. Ég held að engum detti í hug aö hverfa frá þeirri stefnu sem mörkuö hefur ver- ið.“ - Hvernig líöur þér nú sem almenn- um þingmanni? „Þaö er náttúrlega á margan hátt léttir," sagði Jón Helgason. -gse fyrir að Alþýðuflokksmaöur fái for- mennsku í utanríkismálanefnd. Þá er forseti sameinaðs þings eftir handa Framsókn. Jón Helgason gegndi því embætti áöur en hann varð ráðherra fyrir fimm og hálfu ári. -gse Jón Helgason sagðist ætla að velta þvi tyrir sér hvort hann keypti jep- pann af landbúnaðarráðuneytinu þegar hann gekk út úr Alþingis- húsinu eftir að þingflokkur Fram- sóknarflokksins hafði hafnað honum sem ráðherra. DV-mynd GVA Jón Helgason hættur: Óhjákvæmilegt að halda áfram á sömu braut

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.