Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 40
N1
FRETT ASKOTIP
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotiö I hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn r Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988.
Skákmótið í Tilburg:
Jóhanní
3.-5. sæti
Jóhann Hjartarson gerði jafntefli
viö Robert Hiibner í síðustu umferð
skákmótsins í Tilburg. Jóhann fékk
því 7 vinninga og hafnaði í 3.-5. sæti
ásamt Nikolic og Timman. Úrslit í
14. og síðustu umferð voru þannig
að Karpov og Short gerðu jafntefli.
Van der Wiel vann Timman og Ni-
kolic vann Portisch.
Lokastaöan var þannig að Karpov
vann yfirburðasigur með 101 - v.
Short varð annar með 8L v. Á eftir
Jóhanni komu þeir Htibner og Van
der Wiel í 6.-7. sæti með 5L v. og
Portisch var neðstur með 5 v. Gera
má ráð fyrir að Jóhann hækki um 5
Elo-stig við þessa frammistöðu sem
var mjög góð þrátt fyrir skamman
undirbúning og slaka byrjun. -SM J
Kron leigir
JL-Húsið
Kron tók JL-Húsið á leigu í gær.
Reiknað er með að Kron opni nýja
matvöruverslun í húsinu um miðja
næstu viku. Unnið var að vörutaln-
. jngu í gærkvöldi.
JL-Húsinu var lokað skyndilega
um klukkan fjögur í fyrradag. Starfs-
fólkinu var sagt að það fengi launin
sín send í pósti og að vonast væri til
að verslunin opnaði aftur, hvort sem
JL ræki hana eða einhverjir aðrir.
-JGH
Rániö á Seltjamamesi:
Þrír í gæslu-
varðhaldi
Þrír menn hafa verið handteknir
vegna ránsins sem var framið á Sel-
tjarnarnesi aðfaranótt sunnudags.
, Þá fengu hjón á áttræðisaldri óvænta
^*%eimsókn grímuklæddra manna sem
rændu hjónin og beittu þau ofbeldi.
Rannsóknarlögreglan telur sig
þarna hafa réttu mennina, en eftir
yfirheyrslur liggur engin játning fyr-
ir. Ekkert af þýfmu hefur komið í
leitirnar. Rannsókn málsins heldur
áfram. -hlh
LOKI
„Sælir eru fátækir."
W-
i------------
Olafur Ragnar Grímsson fiármálaráöherra:
Fjármagn sótt í
stómm stíl til fjár
magnseigenda
Olíðandi að vel efnaðir
„Fjármálastefna þessarar ríkis-
stjómar markast af því að nú verð-
ur í fyrsta sinn sótt fjármagn í stór-
um stíl til fjármagnseigenda í þessu
landi sem á undanförnum árum
hafa tekið stóran hlut til sín í skatt-
lausum gróða. Þannig að þeir sem
hafa hagnast í góðæri undanfar-
inna ára en lítt lagt af mörkum til
samfélagsins munu núna þurfa að
bera byröarnar fyrst og fremst,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandaiagsins, eft-
ir þingflokksfund í gær þar sem'
ákveðið var að hann tæki við af
Jóni Baldvin Hannibalssyni sem
fjármálaráöherra.
„Auðvitað er það ljóst að það eru
mikil vandamál hér framundan en
við raunum reyna að leysa þau á
grundvelli jafnréttissjónarmiða og
félagshyggju. Það er sú fjármála-
stefna sem viö raunum hafa að leið-
arljósi ásamt þvi aö stuðla að stöð-
ugleika í efnahagsmálum. Við
borgarar komist hjá að
munum kappkosta að ná því mark-
miöi nýrrar ríkisstjórnar að verð-
bólgan verði komin niður í 5 pró-
sent í upphafi næsta árs.“
- Til að ná tekjuafgangi á næstu
fjáriögum munt þú þurfa að skera
niður meira en aörir fjármálaráð-
herrar í langan tíma. Hvar ætlar
þú að beita hnifhum?
„Ég skal ekkert fúllyrða um þaö.
Niðurskurðurinn verður ekki
ákveðinn hér og nú. Hann verður
tengdur öðrum þáttum efnahags-
lífsins. Þegar þarf að fara í þau
verk er einnig nauðsynlegt aö það
verði gert með sjónarmið jafnréttis
og félagshyggju í huga þannig að
slíkar aðgerðir komi sem minnst
við þær aðgerðir sem minnst mega
við því í okkar þjóðfélagi.*'
- Það kemur einnig i þinn hlut að
leggja á nýja skatta að andvirði um
2,5 milljarða króna.
„Þeir skattar, sem þessi ríkis-
stjórn leggur upp raeð, eru fyrst og
borga eölilega skatta
fremst fólgnir í því að skattleggja
þá sem á undanförnum árum hafa
ýmist ekki búið við neina skatta
eins og fjármagnseigendur eða þá
sem hafa hlutfallslega sloppið vel.
Við munum einnig leggja ríka
áherslu á aðgerðir gegn beinum eða
óbeinum undanslætti frá skatti eða
skattsvikum. í okkar þjóöfélagi er
það náttúriega ólíðandi að ákveðn-
ir vel efnaðir borgarar í þessu landi
skuli komast hjá því að greiða sína
eðlilegu skatta.“
- Alþýðubandalagið hefur barist
gegn matarskattinum. Hvernig
munt þú afnema hann?
„Ég hef ekki tekið afstöðu til þess
í hvaða mynd það veröur. Við höf-
um lagt á það áherslu aö breyta
verði á algengri matvöru. Skatta-
formið sjálft er ekki höfuðatriðið
heldur verðlagið á þeirri vöru sem
fólkið kaupir í landinu,“ sagði Ólaf-
ur Ragnar Grímsson.
-gse
Stórmeistarinn Margeir Pétursson tefldi klukkufjöltefli við nokkra af okkar efnilegustu unglingum í Kringlunni í
gær. Unglingarnir stóðu sig vel gegn stórmeistaranum en i dag heldur hátiðin áfram. Þá verður það Hannes
Hlífar Stefánsson, yngsti alþjóðlegi meistarinn okkar, sem teflir við úrvalslið alþingismanna. Ef að líkum lætur
verða margvísleg brögð í tafli og tvísýnt um úrslit. DV-mynd Brynjar Gauti
Veður á morgun:
Næturfrost
um allt
land
Norðanáttin heldur áfram með
köldu veðri og víða talsverðu
næturfrosti. É1 veröa á Norðaust-
ur- og Austurlandi, bjart veöur
sunnanlands og vestan. Hitinn á
landinu verður 0-3 stig.
Vodaskot
Ámi E. Albertsson, DV, Ólafsvflc
Það hörmulega slys yildi til í landi
bæjarins Kársstaða í Álftafirði fyrir
hádegi í gær, að tæplega tvítugur
maður varð fyrir voðaskoti og lést
samstundis. Maðurinn, sem var við
vegavinnu í Álftafirði, hafði ásamt
vinnufélögum sínum, fengið leyfi hjá
bónda að huga að gæs í landi hans,
og ætluðu þeir að nýta matartímann
til þess.
Fljótlega skildu leiðir með þeim
félögum. Fór vinnufélagi mannsins
að leita fanga annars staðar. Hann
var þó aðeins kominn skamma leið
frá er hann varð var þess sem gerö-
ist. Hann reyndi strax lífgunartil-
raunir en árangurslaust því maður-
inn mun hafa látist samstundis. Ekki
er hægt að greina frá nafni mannsins
að svo stöddu.
Óskar Vigfiísson, formaður SSÍ:
Bætir ekki
fyrir okkur
„Viö höfum beðið lengi eftir leið-
réttingu á fiskverði til sjómanna
þannig að þessi lagasetning bætir
örugglega ekki fyrir okkur,“ sagði
Óskar Vigfússon, formaöur Sjó-
mannasambands íslands, en sam-
kvæmt bráðabirgðalögum sem nú
veröa sett á að frysta fiskverð til 1.
mars á næsta ári. Öskar sagði að sjó-
menn hefðu ekki fengið þá hækkun
sem aðrir launþegar fengu fyrr á
árinu þannig að það yrði enn erfiðara
fyrir þá að bíða.
Þing Sjómannasambandsins hefst
á morgun og þar má búast við að
dragi til tíðinda t.d. varðandi þá
ákvörðun að draga fulltrúa sjó-
manna úr verðlagsráði sjávarútvegs-
ins. -SMJ
Fríkirkjan:
Kosningar
um helgina
Stjórn Fríkirkjusafnaðarins hefur
efnt til kosninga vegna uppsagnar
séra Gunnars Björnssonar. Fara
kosningarnar fram á laugardag og
sunnudag milli klukkan 10 og 17 báða
daga í Álftamýrarskóla.
Að sögn ísakS Sigurgeirssonar í
stjórn safnaðarins verða valdir þrír
hlutlausir menn í kjörstjórn og und-
irkjörstjóm eins og í venjulegum
kosningum. Mun fógeti innsigla kjör-
kassana og lögregla geyma þá yfir
nóttina milli kjördaga. Verði í öllu
fariö eftir lögum um kosningar hér
á landi.
Munu safnaðarmeðlimir aðeins
krossa við , já“ eða „nei“ við spurn-
ingunni: „Ert þú samþykkur því að
safnaðarstjórn vék séra Gunnari
Bj ömssy ni úr starfi?' ‘ -hlh
Gengisfelling?
Gjaldeyrisdeildir bankanna vom
ekki opnaðar í morgun. Samkvæmt
upplýsingum, sem DV fékk hjá gjald-
eyrisdeild Landsbankans, verður
enginn gjaldeyrir afgreiddur í dag.
Samkvæmt lögum hefur Seðla-
bankinn heimild til 3 prósent gengis-
fellingar og því vaknar sú spurning
hvort sú heimild verður notuð í dag
eða hvort. enn meiri gengisfelling
verður framkvæmd.
-S.dór