Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988. Laus staða Staða lektors í rússnesku við heimspekideild Há- skóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir svo og náms- feril og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 25. október nk. Menntamálaráðuneytið 22. september 1988 FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN í REYKJAVÍK Allsherjaratkvæðagreiðsla innan safnaðarins um uppsögn séra Gunnars Björnssonar fer fram laugar- dag og sunnudag 1. og 2. október nk. kl. 10 til 19 báða dagana. Kosið verður í Álftamýrarskóla (gengið inn frá Álfta- mýri). Safnadarstjórn Fríkirkjusafnaðarins i Reykjavík. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Skólabrekka 9, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Birgis Kristmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 5. okt. ’88 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Björgvin Þorsteinsson hdl., Iðnaðar- banki íslands hf. Landsbanki Islands, VeðdeOd, VOhjálmur H. Vilhjálmsson hrl., Guðni Á. Haraldsson hdl., Ingvar Björgvinsson hdl. og Gísli Baldur Garðarsson hrl. Faxatröð 10, íbúð A, Egilsstöðum, þingl. eign. Einars Ingólfssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 5. okt. ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðandi er Kristinn Siguijónsson hrl. Fjarðarbraut 41, hl., Stöðvarfirði, þingl. eign Kaupfélags Stöðfirðinga, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 5. okt. ’88 kl. 16.40. Uppboðsbeiðendur eru Ámi Pálsson hdl. og Bjöm Ólafur Hallgrímsson hdl. Búðavegur 8, Fáskrúðsfirði, þingl. eign Birgis Knstmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikud. 5. okt. ’88 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru Gísli Gíslason lögfr., Róbert Ami Hreiðars- son hdl. og Ari ísberg hdl. Sýslumaður Suður-Múlasýslu Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Uppboðsbeiðendur em Landsbanki íslands, Sigríður Thorlacius hdl., Ot- har Öm Petersen hrl. og Jón Sveins- son hdl. Heiðargerði 24 (neðri hæð), þingl., eig- andi Steinunn Eldjámsdótth, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur em Tryggingastofhun ríkisins, Jón Sveinsson hdl.og Veðdeild Lands- banka íslands. Einigrund 9 (02.02), þingl. eigandi Þórir Axelsson, fer fram á eigninni ðjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Tryggingastofn- un ríkisins, Guðmundur Kristjánsson hdl., Akraneskaupstaður, Guðmundur Þórðarson hdl., Ævar Guðmundsson hdl. og Lögmenn Hamraborg 12. Vallholt 13, kjallari, þingl. eig. Guðni Jónsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 10.30. Uppboðs- beiðendur em Akraneskaupstaður, Guðmundur Markússon hrl., Veðdeild Landsbanka íslands og Innheimtu- maður ríkissjóðs. Garðalóð 33, hesthús, talinn eig. Knstján Leósson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akranesi. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: banka íslands, Skúli Bjamason hdl., Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Guð- ríður Guðmundsdóttir hdl. Hraunbraut 30, þingl. eig. Matthildur Þ. Marteinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka íslands, Bæjarsjóður Kópavogs og Búnaðarbanki íslands. Reynistaður v/Nýbýlaveg, þingl. eig. Páll Dungal, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 16.00. Uppboðs- beiðendur em Guðjón Ármann Jóns- son hdl., Skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi, Ásgeir Thoroddsen hdl., Bæjarsjóður Kópavogs og Veðdeild Landsbanka íslands. Álfatún 33, 1. hæð, talinn eig. Þor- bjöm Stefánsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur em Veðdeild Landsbanka fslands, Gjaldheimtan í Reykjavík og Gjaldskil sf. Fumgrund 24, 2. hæð C, þingl. eig. Gunnar P. Jensson, fer fram á eign- inni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 11.50. Uppboðsbeiðendur em Elvar Öm Unnsteinsson hdl. og Innheimtustofii- un sveitarfélaga. Smiðjuvegur 11, þingl. eig. Timbur og stál h£, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 16.45. Uppboðs- beiðandi er Guðríður Guðmundsdóttir hdl. Holtagerði 8, neðri hæð, þingl. eig. Jófríður Valgarðsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 30. sept. ’88 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Ingi Ingimundarson hrl., Veðdeild Lands- BÆJARFÓGETINN f KÓPAV0GI Útlönd_________3 Geimskotinu frestað? Steinunn Böövaisdóttir, DV, Washington: Starfsmenn bandarísku geimrann- sóknastöðvarinnar, NASA, sögöu í gær að ef til vill þyrfti að fresta fyrir- huguðu geimskoti á morgun vegna smásprungu sem fundist hefði á geimskutlunni Booster. Henni á að skjóta upp síðar á þessu ári. Áætlað hafði verið að geimskutl- unni Discovery yrði skotið á loft klukkan 9.59 að staðartíma á morgun frá Canaveralhöfða í Flórídafylki. Ferðamenn og fréttamenn hafa flykkst á staðinn og eru öll hótel í grenndinni fullbókuð. í fyrramálið er búist viö að um ein milljón manna verði á staðnum. Fimm geimfarar verða um borð en farmurinn er eitt hundrað milljóna dollara gervihnöttur sem komið verður á braut umhverfis jörðu í 22.300 mílna hæð. Starfsmenn geimrannsóknastofn- unarinnar segja áð líkurnar á að eitt- hvað fari úrskeiðis séu tæpast fyrir hendi. Þeir taka þó enga áhættu og ætla sér sólarhrings lengri undir- búningstíma en venja er ef vandamál skyldu koma upp á yfirborðið. Hvert óhappið á fætur öðru hefur hent geimferðaáætlun NASA. Það alvarlegasta var þegar skutlan Chal- lenger sprakk í loft upp skömmu eft- ir flugtak 28. janúar 1986. Allir sjö geimfararnir um borð létu lífið. ChaJlengerslysið svipti hulunni af brestum og veikleikum í geimferða- áætluninni og í kjölfarið upphófst mikil umræða í bandarísku þjóð- félagi um nauðsyn áætlananna. Ekki eru allir á eitt sáttir um hvort geim- skutluáætlunin sé virði þeirra mannslífa og peninga sem hún hefur kostað. Sumir vilja leggja hana niður og benda á að peningunum sé betur varið í aðstoð handa þeim sem minna mega sín á jörðu niðri. En samkvæmt skoðanakönnunum hér vestra vilja flestir Bandaríkjamenn halda áfram að senda mönnuð geimför í rann- sóknarleiðangra út í geiminn. Að áliti margra sérfræðinga kost- aði Challengerslysiö allt að 20 millj- arða dollara. Sumir halda því fram að þessi tala sé of lág og að 30 millj- arðar séu nærri lagi. Tap geimrann- sóknastofnunarinnar nam 10 mill- jörðum vegna rannsókna á tildrög- um slyssins, endurskoðunar og upp- stokkunar á öryggisatriðum, svo og endurnýjunar á rafeindabúnaði sem eyðilagðist í slysinu. Starfsmenn stofnunarinnar áætla að kostnaöur vegna mannaðra geim- skota í framtíðinni hafi aukist um að minnsta kosti helming í kjölfar slyssins. Áætlað er að hvert geimskot mannaðrar skutlu muni kosta um 500 milljónir dollara miðað við um 200 milljónir fyrir rúmum þremur árum. Þessar tölur miðast við 8 til 9 geimskot á ári í framtíðinni. Geimrannsóknastofnunin áætlar að skjóta tveimur skutlum upp á þessu ári. Sjö geimskot eru áætluð á næsta ári og samkvæmt upplýsing- um NASA er búist við aö frá og með árinu 1993 verði 12 skutlum skotið upp árlega. NASA hefur hvað eftir annað lent í vandræðum með Discovery. Síöast- liðið sunnudagskvöld hljóp snurða á þráðinn enn einu sinni. Bilun í raf- búnáði varö þess valdandi að niður- talningunni fyrir skotið var frestað og hófst hún á mánudagsmorgun, þremur dögum áður en áætlað er að skjóta Discovery á loft. Geimfarinn Rick Hauck æfir sig fyrir fyrsta geimskot Bandaríkjanna í nær þrjú ár. Símamynd Reuter Ihuga breytingar á kosningalöggjöfinni Bjami Hinnksson, DV, Bordeaux: Franskir stjórnmálamenn velta mikið fyrir sér breytingum á kosn- ingalöggjöfinni eftir aö fyrri umferð sveitarstjórnarkosninga er lokið og ljóst er að 49 prósent atkvæðabærra manna kusu. Þetta er minnsta þátt- taka í kosningum síðan seinni heims- styrjöldinni lauk. Þótt mönnum finnist prósentutal- an kannski há kemur lítil virkni kjósenda engum á óvart. Forseta- kosningar fóru fram í maí síðastliðn- um, þingkosningar í kjölfar þeirra mánuði seinna og hvorar tveggja þessar kosningar eru i tveimur um- feröum. Kjósendur eru því orönir þreyttír á kosningabrölti. Þar við bætist svo óvirk stjórnar- andstaða hægri flokkanna en vinstri stjórnin nýtur eins og er þokkalegra vinsælda svo að ekki sé minnst á persónulegar vinsældir forsetans og forsætisráðherrans sem hafa aukist síðustu viku. Kosningabaráttan var því lítil sem engin rétt eins og úrslit- in væru kunn fyrirfram og stjórn- málamennirnir teldu þetta varla ómaksins vert. Úrslit kosninganna komu heldur engum á óvart. Hægri og vinstri öflin skipta atkvæðum svo að segja jafnt á milli sín. Það sem helst er athyglis- vert er enn einn ósigur Le Pens og Þjóðfylkingar hans sem fékk einung- is 5,3 prósent atkvæða. Margir vilja einfaldar kosningar og sameina þannig til dæmis sveitar- og bæjarstjórnarkosningar. Eins og staðan er í dag þurfa Frakkar að ganga til kjörklefa svo að segja einu sinni á ári allt til 1995. Auk þess eru þessar kosningar ríkissjóði afar dýr- ar. Stjórnmálamenn úr öllum flokk- um eru sammála um að þessu þurfi aö breyta þótt sú breyting gæti reynst tæknilega erfið. Hins vegar ljá ekki allir máls á að breytt verði úr meirihlutakosningu eins og nú er yfir í hlutfallskosningu eins og var á meðan sósíalistar voru við völd 1981 til 1986. Mörgum sósíal- istum og kommúnistum, jafnvel sumum miðjumönnum, þætti ekkert verra að þessi breyting kæmist á en hægri menn eru alveg mótfallnir slíku. Það hefur vakið athygli að Þjóðfylk- ing Le Pens hlaut aðeins 5,3 pró- sent atkvæða i fyrri umferð sveitar- stjórnarkosninganna í Frakklandi á sunnudaginn. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.