Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 30
38
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988.
Lífsstfll
Gamalt bakhús gert upp:
Hugrekki í húsnæðismálum
Fyrir þremur árum stóð húsið við
Bergstaðastræti 17B í mikilli niður-
níðslu. Þar hafði hafst við fólk sem
hvergi átti höfði sinu að halla.
Álitamál var hvort húsið ætti að
standa eöa hvort ekki væri best að
rífa það. En þá komu ung hjón til
sögunnar sem höfðu áhuga á að
kaupa gamia bakhúsið - og gera
upp. í dag er hús þetta, sem byggt
var árið 1919, umhverfl sínu til
mikillar prýði. Eigendur hafa lagt
á sig mikla vinnu með góðra vina
hjálp en árangur erfiðisins er aug-
ljós. DV kom við á Bergstaðastræt-
inunýlega.
Grímur með dóttur sína Emmu Elisabetu. Hann hefur nú tekið sér hlé frá smíðum og vinnur nú hjá lögreglunni.
DV-mynd KAE
Er í löggunni núna
Grímur Grímsson og kona hans,
Julie Ingham, fluttu inn í júní í
fyrra. Grímur er smiður og vann
að mestu leyti sjálfur við húsið með
hjálp foður síns. Julie var hins veg-
arútivinnandi. „Égtókmér pásu
frá smíðum og starfa hjá lögregl-
unni núna. Þetta er nú ekki alveg
búið. Við eigum eftir að setja lista,
skápahurðir og annað slíkt. Ann-
ars tek ég alltaf rispur þegar
tengdamamma kemur í heimsókn
frá Englandi. Hún mætti koma einu
sinni aftur núna. Þá ætti þetta að
verakomið.
Svona framkvæmdum er alltaf
gott að haga eftir efnum og aðstæð-
um. Hins vegar vill, eins og gengur
og gerist, draga úr framkvæmda-
hraða eftir að flutt er inn. Svo ætl-
um við að setja garðskála við suð-
urhliðina þegar koma betri tímar.
Þetta hleypur ekkert frá manni.“
Hvort það borgi sig?
- Borgarsigaðgerasvonahús
upp?
„Þetta verður auðvitað dýrara ef
maður vinnur ekki sjálfur við
þetta. Jú, ég myndi segja að þetta
hafi borgað sig. En þessar fram-
kvæmdir eru dýrari en ég áætlaði
íbyrjun.
Húsið fengum við fyrir 250 þús-
Byggingaþjónustan við Hallveigarstíg:
Verkfræðingar á vegum Rann-
sóknastofnunar byggingariðnaðar-
ins munu næstu miðvikudaga, á
milli kl. 16 og 18, veita almenningi
ókeypis ráðgjöf. Áhersla verður
lögð á steypuskemmdir, raka- og
lekavandamál ásamt ýmsum öör-
um upplýsingum sem verkfræðing-
ar geta veitt varðandi ný og eldri
hús.
Hér er einn liður í aðgeröum
Byggingaþjónustunnar sem miöar
að því að gefa fólki upplýsingar um
ýmis málefiii sem snúa að eigend-
um híbýla. Þess má geta aö arki-
tektar hafa á síðustu mánuðum
veitt ráðgjöf á sama stað og tíma
og mun sú þjónusta halda áfram.
Því verður hægt aö tala við arki-
tekt og verkfræðing á sama stað á
næstu vikum - lll þjónusta þeirra
er ókeypis. t
Almenningur veit ekki að ...
Hákon Ólafsson hjá RB segir að
stofnunin hafi gefið út mikiö af
fræðsluefiii um vandamál vegna
Heimilið
byggingaframkvæmda. „Oft er það
svo að hægt er að lesa um vanda-
mál og lausnir vegna einstakra
húsa á einu blaði eða í litlum bækl-
ingi,“ segir Hákon. „Staðreyndin
er bara sú að fólk veit ekki að þessi
gögn eru fyrir hendi. Hjá Bygginga-
þjónustunni munum við veita
munnlega ráögjöf eins og frekast
er kostur - til hliðsjónar getur fólk
svo fengið upplýsingar á prenti. Ég
tel það einnig styrk fyrir alla hlut-
aðeigandi að samtimis okkar ráð-
gjöf verða arkitektar til viö-
tals.“
Steypuskemmdir algengar
Vandamál vegna steypu og leka
eru mýraörg hér á landi. Reyndar
var sett ný byggingarreglugerð
árið 1979 þar sem markmiöið var
áð framleidd yrði steypa sem inni-
héldi ekki efnasambönd sem or-
saka alkalískemmdir. Kveðiö var á
um að sandur skyldi hreinsaður
og að sement skyldi vera kísil-
blandað.
Þó reglugerðir hafi veriö settar
ber ekki svo aö skilja að steypu-
skemmdir séu úr sögunni.
Skemmdir í steypu eru algengastar
af völdum alkalíefnahvarfa, frosts
og ryðs. í þessu sambandimá nefiia
að múrhúðun er í vissum tilfellum
ófullnægjandi. Notkun svokallaðr-
ar sjónsteypu hefur aukist. Stund-
um er yfirborðslag steypunnar
ekki nægilegt (þynnra en 2 cm frá
jámabindingu) til aö hindra ryð-
myndun.
I umhleypingasömu veðri er mik-
il hætta á að raki komist í steypu,
sérstaklega ef hús eru ómáluð.
Nokkrar aðferðir em fyrir hendi
til að hindra frekari skemmdir í
útveggjum. Klæðning er góð lausn
og eru til á markaðnum ýmis
heppileg efni. Viögerðir vegna
grotnunar, á stökum sprungum og
á ryðsprengdri steypu eru einnig í
dag framkvæmdar með ýmsu móti.
En hvernig á að snúa sér í því sam-
bandi? Því geta verkfræðingar best
svarað. -ÓTT.
Hjá Byggingaþjónustunni tást allan ársins hring ókeypis upplýsingar um ýmsa þjónustuþætti varðandi hús Um þessar mundir gefst húseigendum kostur á að njóta leiðsagnar
og byggingaframkvæmdir. verkfræðinga og arkitekta hjá Byggingaþjónustunni.