Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988,
19
Skotveiðifélag íslands hélt upp á
tíu ára afmæli sitt um helgina. Á
laugardagskvöldið var haldið hóf af
þessu tilefni á Hótel Sögu. Margt var
um manninn þar og mikiö f]ör.
í hóflnu var happdrætti og í verð-
laun var haglabyssa, glæsilegur grip-
ur. Vinnirigshafinn i happdrættinu
var Sigrún Kjærnested. Þetta er
hennar fyrsta byssa og þarf hún nú
að drífa sig í að verða sér úti um
byssuleyfi, fyrr má hún ekki nota
gripinn.
Sigrún lét það hins vegar ekki aftra
sér frá því að mæta í Grafarholtið
snemma á sunnudagsmorguninn,
þar sem félagar í Skotveiðifélaginu
gáfu fólki kost á þvi að skjóta úr
haglabyssu á gerviendur. Hún fékk
að sjálfsögðu ekki að nota byssuna
byssu sem Skotveiðifélagið lagði til,
eins og aðrir þátttakendur.
Á sunnudaginn fór einnig fram
keppni í að skjóta á leirdúfur.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
Dionne
Warwick
er búin að búa meö kærastanum
sínum, Gianni Russo, í átta ár,
og ekkert bólar á hjónabandi. Þau
segjast þó ætla að gifta sig, en
vilja ekki velja daginn fyrr en
„tölurnar" eru réttar. Þau skötu-
hjúin hafa tröllatrú á talnaspá-
dómum og ætla ekki aö hreyfa sig
í átt að hnappheldunni fyrr en
talnaspekisérfræöingurinn
þeirra gefur grænt ljós. Dionne
segist hafa góða reynslu af þess-
ari hjátrú. Þegar hún var aö byrja
að syngja sagði einn spekingur-
inn henni að breyta fjölda stafa í
nafninu sinu. Hún bætti við einu
„n“ og sló í gegn. Þá vitum viö
það.
Stefanía
Mónakóprinsessa er nú farin aö
hegða sér alveg eins og prinsess-
ur eiga að hegða sér. Pabbi sagði
henni að losa sig við Mario. þann
árans vandræðagrip, og öllum á
óvart þá gerði sú stutta nákvæm-
lega það sem pabbi gamli sagði
henni að gera. Þaö næsta sem
gerðist er það að hún er farin að
mæta í veislur í höllinni. prúð og
falleg, klædd eins og prinsessa,
og alveg hætt öllum ólátum. Hvað
ætli hún hafi nú úthald í þetta
lengi?
Soraya
fyrrum keisaraynja í íran, sem
var rekin frá manni sínum eftir
sjö ára hjónaband vegna þess að
hún gat ekki alið honum barn,
er nú orðin fimmtíu og sex ára
gömul. í mörg ár eftir skilnaðinn
var hún mjög niðurdregin og var
uppnefnd „hin sorgmædda" en
nú virðist hún loksins hafa tekið
gleði sína á nýjan leik. í sumar
var hún í heimsókn hjá vinum
sínum á Marbella á Spáni og virt-
ist skemmta sér nokkuð vel.
sína góðu, en fékk þess í stað að nota
K-izjjF ..,. tZrXZ! '-í
■1.Ai. Á.;,.
■■ ••
«
ÍÉÍÍPWWSS
. :'''V
. .'ii'Á■' « ■■ v w.'ji'#” ;v
•"Kii,., •; fHuf^v ,.•■* • Slli
Sigrún Kjærnested, vinningshafinn frá kvöldinu áður, býr sig undir að skjóta,
ákveðin á svip.
Hér sjást endurnar sem skotið var á.
Diana doktor
í tann-
lækningum
DianaBretaprinsessavarísumar Diana segist ekki hafa tilskilda
útnefnd heiðursdoktor í tannlækn- menntun til að hljóta þessa gráðu,
ingum, við konunglegu bresku en segir aö ekki vanti sig áhugann
tannlæknastofirunina. Diana var á faginu, og að hún hafi kennt báö-
sæmd heiðursdoktorsnafnbótinni um börnum sínum að bursta vel
Diana tekur sig mjög vel út sem tannlæknadoktor. Hún segist hins veg- viö mjög hátíðlega athöfn í skólan- tennurnar, bæði á morgnana og á
ar ekki treysta sér tit að stunda fagið.
um.
kvöldin.