Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988. Fréttir Fyrstu lög ríksstjómarinnar: Fvysting launa og sex milljarða millifærsla - ný skattheimta bíður flárlaganna Fyrsta verk ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar verður að setja bráðabirgðalög um frystingu launa, verðstöðvun og millifærslu upp á tæpa 6 milljarða króna. Samkvæmt lögunum verða öll laun fryst til 15. febrúar. Þá munu öll laun hækka um 1,25 prósent. Miðað við samninga Verkamannasambandsins fellir ríkisstjórnin því úr gildi 2,5 prósent hækkun sem taka átti gildi 1. september síðasthöinn og 1,5 pró- sent hækkun sem koma átti 1. desem- ber. Samhliða lögunum mun viðskipta- ráðherra framlengja þá verðstöðvun sem sett var á 28. ágúst síðastliðinn. Hún mun gilda til 28. fehrúar en sam- kvæmt lögum er óheimilt að setja verðstöðvun á til lengri tíma. Fiskverð verður einnig fryst til 15. fehrúar og hækkar þá um 1,5 pró- sent. Ekki verður heimilt að semja um það eftir það fyrr en 1. júní á næsta ári. Þá hefur fiskverö verið það sama í heilt ár fyrir utan hækk- unina í febrúar. Millifærsla ríkisstjórnarinnar er tvíþætt. Stofnaður verður sérstakur sjóður, Atvinnutryggingasjóður atvinnu- veganna og heyrir hann undir for- sætisráðherra. Þessum sjóði er ætlað að lána til útflutningsfyrirtækja og skuldbreyta skammtímalánum þeirra fyrir allt að 5 milljarða króna. Stofnfé sjóðsins verður 1 milljarður og leggur ríkissjóður það til. 600 milljónir koma af því fé sem hann áður lagði til atvinnuleysistrygg- ingasjóðs og 400 milljónir af sérstök- um tekjuskattsauka. Sjóðnum verð- ur einnig heimilt að taka annan milljarð að láni hjá Seðlahanka ís- lands. Verðjöfnunarsjóði fiskiönaðarins verður heimilt að taka 800 milljónir að láni. Af þeim eiga 750 milljónir að fara til verðbóta á freðfiski en 50 til hörpudisksframleiðenda. Ef fram- leiðendum tekst ekki að greiða þessa fjármuni til baka í sjóðinn á næstu þremur árum fellur lánið á ríkissjóð. Verðjöfnunarsjóði er einnig heim- ilt að greiða út verðbætur á rækju. Þá eru afurðalánareglur rýmkaðar fyrir fiskeldi og loðdýrarækt. Auka- gjald er sett á þá loðnu sem er seld erlendis. í bráðabirgöalögunum er einnig ákvæði um að dráttarvextir skuh reiknast sem dagvextir, að Seðla- banka sé skylt að reikna og birta ávöxtunarkröfu á nýjum útlánum banka og sparisjóða og að bankanum sé heimilt að setja hámark á vaxta- mun á afurðalánum. í lögunum er ekki kveðið á um hvernig tekna skuli aflað til að fylla upp fjárlagagat næsta árs. Stjórnar- flokkarnir hafa þegar samþykkt nýja skattheimtu fyrir 2,5 milljarði. í lög- unum er hins vegar gefin heimild fyrir 950 mhljón króna aukningu út- gjalda á þessu ári umfram fjárlög. -gse Félagshyggju- stjóm „Þetta er félagshyggjustjóm. Ég tel vera tímabært að leggja áherslu á slíkt samstarf. Mér fmnst við hafa lagt of ríka áherslu á að elta gullkálflnn síðustu ár- in,“ sagði Steingrímur Her- mannsson í gær þegar ljóst var að hann hafði myndað stjórn. Steingrímur fékk umboð til aO mynda stjórn klukkan þrjú í gær. Fyrr um dagirm hafði Alþýðu- flokkurinn rætt við Kvennáhst- ann um hugsanlega stjómarþátt- töku. Síðar átti hann fund með forystumönnum Borgaraflokks- ins. Þaö varð ekki að fuhu ljóst hvers konar rikisstjórn var að myndast fyrr en rúmlega þrjú þegar Stefán Valgeirsson kynnti hana á blaöamannafundi. -gse Skúli mætti með atkvæðið Skúh Alexandersson er ekki tilbú- inn tifþess að verja ríkisstjóm Stein- gríms Hermannssonar vantrausti. Til þess að ríkisstjórnin kæmist á laggirnar var því það samkomulag gert innan Alþýðubandalagsins að varamaður Skúla, Gunnlaugur Har- aldsson, forstöðumaður Byggða- safnsins á Akranesi, tæki sæti á þingi ef vantrauststillaga verður lögö fram. Skúh kom með Gunnlaug á þing- flokksfund Alþýðubandalagsins í gær og kahaöi hann „atkvæðið sitt“. -gse Skúli Alexandersson kom með atkvæðiö sitt, Gunnlaug Haraldsson, á þing- flokksfund í gærkvöldi. DV-mynd GVA DV Dráttaivextir felldir niður á skatt- skuldum Inn í bráðabirgðalögum ríkis- stjórnarinnar er kafli sem fjall- ar um eftirgjöf á dráttarvöxtum á skattskuldum einstaklinga. Samkvæmt þeim geta menn fengið eftirgefinn helminginn af áfóllnum dráttavöxtum ef þeir greiða upp skuldir sínar viö ríkissjóö fyrir áramót. Tveir aörir kostir eru í boöi fyrir skuldara. Annar er sá aö greiða upp skuldir sínar fyrir 1. júlí á næsta ári og fá þeir sem það gera eftirgefinn fjórðung af áfollnum dráttarvöxtum. Þeir sem ekki geta greitt upp skuldir sínar fyrir þann tíma geta gefið út skuldabréf til fimm ára. Þeir munu hins vegar þurfa að greiða áfallna dráttarvexti að fullu. Fjármálaráðherra mun gefa út reglugerö þar sem kveðið er nánar á um framkvæmd þess- arar eftirgjafar á vöxtum skuld- ara. Miösljórn Alþýðubandalags- ins samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi aö ganga til ríkis- stjómarsamstarfs með Fram- sóknarflokki, Alþýðuflokki og Stefáni Valgeirssyni á grund- velh þeirrar stefhuyfirlýsingar sem lögð var fyrir fundinn. 64 miöstjórnarmenn greiddu at- kvæði með ríkisstjóminni en 23 vom á móti. Fimm mið- stjórnarmenn skiluðu auðu. í ræðum fundarmanna kom fram blendin afstaða til ríkis- stjómarinnar en flestir forystu- menn flokksins mæltu meö stjómarþátttöku. -gse Stefán fór á fimm milljarða Nú er komiö í ljós að verð á einum ráðherrastól hleypur þetta á fjór- um til fimm milljörðum króna auk smærri bitlinga. Stjórn félags- hyggju eins og Steingrímur kailar það og stjóm jafnréttis eins og Ólaf- ur Ragnar kcdlar það kom sér sam- an um að það væri mihjarðavirði að losna viö að hafa Auðbrekku- bóndann innanborðs. Þessu til við- bótar fær svo Stefán að valsa áfram um í bankaráði Búnaöarbankans, Byggðastofnun og öörum • opin- berum lánafyrirtækjum sem em einhver mestu atkvæðaveiðarfæri sem tíl era. Þegar aUt er tahð er því ljóst að sigurvegari þessarar stjómarmyndunar er einmitt bóndinn frá Auðbrekku. Þaö fer ekki mikið fyrir Nordal þama í Seðlabankakassanum eftir að Stef- án hefur tekið víð sjóðsstjórninni hvar sem peninga er aö finna og deila út. En það vora ekki allir eins dýrseldir og Stefán við þessa stjómarmyndun. Ólafur Ragnar sá í hendi sér að frystingin yröi að halda áfram hvað sem tautaði og raulaði og notaöi þá tækifærið tíl að frysta öU laun í landinu lika fram í febrúar en þá á að stór- hækka laun hátekjuifóUcs svo sem flugmanna og fiskverkunar- kvenna. Hjörleifur reyndi vel aö ströggla út af álversmálum enda má hann ekki heyra minnst á álver eftir að honum mistókst að koma á fót kísilmálmverksmiöju á Reyðar- firði sem samkvæmt fróðra manna útreikningi heföi tapað milljörðum á ári hveiju. En inn fór álversáætl- un en Hjörleifur er þegar farinn að gera uppkast að bréfi til Cúpers og Læbrandt í London um að fylgjast vel með þeim málum fyrir sína hönd. Lengi vel vildi Ólafur Ragnar fá utanríkismálin í sínar hendur og benti ítrekaö á að hann þyrfti að vera á tíðum ferðalögum vítt og breytt um veröldina til að bjarga heimsfriðnum og gæti þá komið málefnum íslands að í leiðinni. Á þetta máttu hinir flokkamir ekki heyra minnst af ótta við aö hann byði Gorbatsjov í opinbera heim- sókn tíl að sýna honum mann- virkin í Helguvík. Hins vegar þótti viö hæfi að setja Ólaf Ragnar yfir matarskattinn og láta Jón Baldvin í utanríkisráðuneytið eftir aö hann feUdi niður söluskatt á útlendinga og aflaði sér þar með alheimsvin- sælda. Steingrímur hefur lýst því yfir að ríkisstjóm hans og Stefáns sjóðsstjóra ætU sér að sitja út aUt kjörtímabUið og því hafi þótt nauð- synlegt aö fækka ráðherrum nokk- uð enda bara til ills að hafa marga í kringum sig sem stöðugt eru að brúka munn út af hinu og þessu. Samt var nú byijaö á því að varpa Jóni frá Seglbúðum fyrir róða sem aldrei mælti orð að fyrrabragði og kann því aö vera að hann hafi hreinlega gleymst þegar veriö var aö semja ráðherralistann. Hins vegar þótti nauösynlegt að hafa Halldór áfram í sjávarútvegsráðu- neytinu vegna vasklegrar fram- göngu hans í baráttunni viö hval- friðunarmenn og Guömundur Bjarnason er sjálfkjörinn sem heU- brigðisráðherra eftir að hann gekkst fyrir vatnsdrykkjuátakinu sem drukknaöi í fæðingu. En það vaíöist enn fyrir Ólafi Ragnari að velja samráðherra þegar síöast fréttist. Um tíma leit út fyrir að hann léti sinn besta óvin, Svavar Gestsson, í landbúnaðarráðuneytiö því telja má líklegt aö það geti ekki orðið tU annars en auka á óvild í garð Svavars. En þar sem búið er að skera niður mikinn hluta af bústofni landsmanna og enn skal haldið áfram á sömu braut gegn því að bændum verði greitt offjár fyrir að rækta skóg getur svo farið að landbúnaöarráðherra kunni aö öðlast nokkrar vinsældir. Svavar var því enn i lausu lofti þegar síð- ast fréttist þótt samgönguráðu- neytið hafi raunar horið á góma en þó talið næsta óvíst að þaö yrði til að bæta boðleiðir innan Alþýðu- bandalagsins. Menntamálaráðu- neytiö er svo eitt vandræðamáhð því þar verður tekist á um hvort Guðrún Helgadóttir sé meiri rithöf- undur en Ragnar Arnalds. Ragnar er nú með verk á fjölunum í Iðnó og hefur því smáforskot á Guðrúnu sem er á leið í Þjóðleikhúsið með nýtt leikrit. Og svo er það hann Albert sem fær þaö eftirsóknar- verða hlutskipti að skipa sér á bekk með Kvennaiistanum hvort sem honum verður nú neitað um form- lega inngöngu eins og í Hvöt forð- um. Um frekari þátttöku Sjálfstæð- isflokksins í stjórnmálum er enn ekki vitað. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.