Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1988, Page 17
17 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1988. dv Lesendur Lággjaldamarkaðurinn hjá Flugleiðum hefur aldrei gilt fyrir íslendinga í Ameríkufluginu hvort eð er. Lokað á lággjaldafarþega Flugleiða: Enn þrengt að íslendingum Páll Guðmundsson hringdi: Ég hef lítillega fylgst með skrifum um fargjaldamál sem viðgangast í ílugheiminum. Ég þykist hafa það fyrir satt að íslendingar, sem ferðast héðan til Ameríku eða kaupa miða þar vestra hingað til lands, sitji ekki við sama borð og útiendingar sem ferðast með Flugieiðum alla leið til Evrópu. Dæmi hafa verið tekin um þetta í sérstökum greinum, svo ekki verður um villst. Nú nýlega las ég grein um fyrir- hugaða endurnýjun Flugleiða á flug- vélakosti sínum, aöaUega í utan- landsflugi. Ekki er óeðlilegt að félag- ið endurnýi flugvélakost sinn. Félag- ið er sagt vera á vendipunkti og hygg- ist það breyta um stefnu í rekstri sin- um. Það sem mér þótti eftirtektarverð- ast í þessari grein voru þó ummæli sem höfð voru eftir stjómarformanrii Flugleiða í fyrirsögninni: „Sækjumst ekki lengur eftir lággjaldafarþeg- um!“ Og síðar í greininni kemur m.a. fram hjá stjómarformanninum: „Við leggjum mun meiri áherslu á flug- leiðina milli íslands og Bandaríkj- anna í Atlantshafsflugi okkar. Við setjum stefnuna á að þjónusta far- þegana eins og kostur er. Það verður okkar keppikefli. Þess vegna verðum við ekki á lággjaldámarkaðnum í Atlantshafsfluginu. “ Ég get ekki séö að þarna sé um neinar áherslubreytingar að ræða, því lággjaldamarkaðurinn hjá Flug- leiðum hefur aldrei gilt fyrir íslend- inga á þessari flugleið hvort eð er. Eina breytingin er þá hugsanlega sú, að íslenskir farþegar fái aukna þjón- ustu fyrir það gjald sem þeir hafa orðið að greiða umfram hina erlendu farþega. Eftir stendur að við íslend- ingar stöndum í sömu spomm, og eigum engra kosta völ aö því er hag- stæð fargjöld til Ameríku varöar. „Aukin þjónusta“ verður látin rétt- læta hin geysiháu fargjöld milli ís- lands og Ameríku, sem hafa gilt og munu gilda áfram. Svona er hræsnin á íslandi Hneykslaður leikhúsgestur skrifar: Á meðan þjóðsöngvar okkar og Ráðstjórnarríkjanna vom leiknir í Laugardalnum, skömmu fyrir lands- leikinn fræga, rauk allsnakinn dóni inn á leikvanginn. - Sjónvarpsmanni fannst sniðugra að beina myndavél sinni að honum heldur en leikmönn- um. Það sýnir ákveðinn „smekk og háttvísi“! Lögreglan mátti elta þenn- an dóna út á völlinn til þess að hann yrði þjóðinni ekki til frekari skamm- ar en orðið var. Mannkertið hefur sennilega talið þetta sniðugt uppátæki en mun miklu fremur hafa valdið viðbjóði vallargesta. Rússum mun hafa.verið ætluð þessi sérkennilega skemmtun en leiknum var sjónvarpað beint þangað austur. Án efa hefur Rússum þótt þetta skortur á háttvísi og fund- ist miður að kynnast íslendingum á þennan hátt. - Verið getur aö þetta hafi glatt „húsmóður" nokkra og aðra sem gjarnan skrifa ofstækis- fullar greinar í Morgunblaðið. En það verður hver að þjóna sinni lund. Fyrir allmörgum árum bauð Þjóð- leikhúsið (leikhússtjóri Sveinn Ein- arsson) landsmönnum upp á að alls- nakinn máður kæmi upp á senu öll- um að óvörum. Þetta átti að vera „listrænt". Þá rauk lögreglan ekki til og gómaði dónann; sem varð sér og leikhúsinu til skammar í anda hstar- innar!! - Svona er hræsnin á íslandi. - Klám er sýnt í sjónvarpi. Ef ein- hver myndsóði telur það vera í anda listarinnar þá má þjóðin þola argasta klám. Svona er hræsnin á íslandi. Mæður og feður ætla að ærast og lögreglan er kölluð á vettvang ef ein- hver öfuguggi flettir sig klæöum á almannafæri, svo ekki sé talað um pf stúlkuböm hafa séö dónann. - En stúlkubörnin, sem fóru með foreldr- um sinum í Þjóðleikhúsið hér á árun- uiú sem áður er getið, máttu þola að horfa á ógeðið í anda listarinnar. - Svona er hræsnin á íslandi. Það er áreiðanlega kominn tími til að bæði mynd: og ritsóðar verði látn- ir fara að lögum og ekki látnir kom- ast upp meö að útbía saklaust fólk með ógeði sínu. Þeir geta haft það fyrir sig. - En mættum við hin fá að vera í friði? Hitaveita Suðurnesja ÚTBOÐ Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í byggingu tengibyggingar rofastöðvar og uppsteypu hluta af undirstöðum orkuvers IV í Svartsengi. Tengibygging rofastöðvar er 419 m2 að grunnfleti, kjallari og ein hæð. Hæðin verður aö hluta til reist úr forsteyptum einingum. Helstu magntölur í undirstöður orkuvers IV eru: Steypa 450 m3 Mót 2200 m2 Járn 23000 kg Verkunum skal að fullu lokiö fyrir 1. febrúar 1989. Útboðgsgögn verða afhent gegn 10.000 króna skila- tryggingu á eftirtöldum stöðum: Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík, Fjarhitun hf., Borgartúni 17, Reykjavík. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suður- nesja aö Brekkustíg 36, Njarðvík, þriójudaginn 11. október 1988 klukkan 11. Hitaveita Suðurnesja DULUX S FRÁ OSRAM - Ljóslifandi orku- sparnaður. - 80% lægri lýsingar- kostnaður miðað við glóperu. 5 W T «* 250 Im « 25 W ( 7 W » 400 Im = 40 W \ 9 W LL = 600 Im = 60 W UWf = 900 Im = 75 W - Fimmföld ending á við venjulega peru. - Þjónusta í öllum helstu raftækja- verslunum og kaupfélögum. Heildsölubirgðir: JÓHANN ÓLAFSSON & CO.HF. 43 Sundaborg 13 -104 Reykjavík-Sími 688 588 two Nú er blómkál á hag- Örbylgjuofnar stæðu verði og um að gera að gera sér mat úr því. í tilraunaeldhúsinu var eldaður ódýr blóm- kálsréttur í ofni. Hentugur og hollur heimilismatur úr blómkáli verður aðal- umfjöllunarefni á matar- síðum á morgun. Einnig verður fjallað svolítið um spergilkál en margir eru einmitt að taka í hús upp- skeruna sína. eru víða til á heimilum en á mörgum þeirra er hann frekar lítið notaður. í til- raunaeldhúsinu var bökuð einföld eplakaka í ör- bylgjuofni og birtar verða upp- skriftir að fleiri einföldum réttum fyrir örbylgjuofna. Hvernig skyldi það vera að stunda nám erlendis, búa á hóteli og borða 3-5 rétta hádegis- og.kvöldverð á hverjum degi? Um næstujól útskrifast fyrstu íslensku nemendurnirfrá hótel- og veitingaskólá í Luzern í Sviss. Þar eru nú tíu íslend- ingar í námi. DV tók einn nemenda frá þessum skóla tali nýlega. í Lífsstíl á morg- un fræðumst við um þenn- an sérstaka skóla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.